Morgunblaðið - 07.01.1999, Side 61

Morgunblaðið - 07.01.1999, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 61, FRETTIR Tvær málstofur efnafræðiskorar EFNAFRÆÐISKOR raunvísinda- deildar heldur tvær málstofur föstudaginn 8. janúar. Allir eru vel- komnir. Hin fyrri verður í stofu 158, VR- II við Hjarðarhaga og hefst kl. 12.20. Jóhannes Reynisson, Rann- sóknastöðinni í Risa, Danmörku, flytur erindi: Kennilegir reikningar á TOTA karbókatjóninni bornir saman við röntgenkristalstrúktúr og titringsróf hennar. Þar verður fjallar um jákvætt hlaðnar kolefn- isjónir (karbókatjónir) og kennilegir reikningar bomir saman við til- raunaniðurstöður. Seinni málstofan verður í stofu 158, VR-II við Hjarðarhaga og hefst kl. 16. Hörður G. Rristinsson, matvælafræðideild Massachusetts- háskóla, flytur erindi: Hraðahvörf, lífefnafræðilegir eiginleikar og eðl- iseiginleikar vöðvapróteina úr laxi sem eru melt af ýmsum próteinös- um. Þar verður sagt frá tilraunum til að nýta próteinríkt hráefni sem er hent eftir vinnslu sjávarafurða. Með því að nota ensím (próteinasa) sem melta vöðvaprótein úr laxi fengust afurðir sem hugsanlega geta komið að notum í matvæla- vinnslu. Samanburður á hækkun rekstrarkostnaðar leikskóla og fjölgun dvalarstunda barna / / / X ou %-fjölgun dvalarstunda X " %-hækkun rekstrar I O fy— 1 1 i i 1993 1994 1995 1996 1997 1998 LEIÐRETT Goðaland ekki Heimaland í FRÉTT í blaðinu í gær var sagt frá álfabrennu Fljótshlíðinga og var sagt að þetta hefði farið fram á Heimalandi en átti að vera Goðalandi. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Isiensk hönnun, ekki finnsk í FRÉTT í blaðinu á þriðjudag var sagt frá því að tillaga Verkafls hf. um fjölnota íþróttahús í Reykjanesbæ byggði á húsi frá finnsku fyrirtæki. Hið rétta er að tillagan byggir á hönnun Sigríðar Sigþórsdóttur arkitekts hjá Vinnustofu Ai'kitekta hf í samvinnu við Verkfræðistofu Suðurnesja hf., Rafteikningu hf., og Teiknistofuna Storð ehf. Fyrirmynda var eingöngu leitað í Finnlandi varðandi burðarþol þakvirkisins sem byggt er úr stálgrindarbitum. Rangur texti í súluriti RANGUR texti birtist í súluriti sem fylgdi grein Bergs Felixsonar og Steinunnar Hjartardóttur um dagvistai-vandann í Reykjavík 29. desember sl. Súluritið birtist hér aftur leiðrétt. NÝSTÚDENTAR frá Fjölbrautaskóla Ármúla. Morgunblaðið/Halldór 55 nemendur útskrifuðust frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla FJOLBRAUTASKOLINN við Ar- múla var slitið við hátíðlega athöfn í Langholtskirkju laugardaginn 19. desember. Sölvi Sveinsson skóla- meistari setti athöfnina og stjórn- aði henni. Bogi Ingimarsson að- stoðarskólameistari gerði grein fyr- ir skólastarfi haustannar. í máli hans kom m.a. fram að u.þ.b. 800 nemendur stunduðu nám í skólan- um á haustönn. Ilann ræddi breyt- ingar á skólastarfi sem tengjast kjarasamningum kennara og fjár- málaráðuneytis. Þá greindi hann frá því að lokið væri byggingu glerhýsis á lóð skól- ans sem bætir mjög aðstöðu allra nemenda. Einnig ræddi hann aðrar væntanlegar byggingarfram- kvæmdir. Nýlega varð skólinn þró- unarskóli í upplýsingatækni og tölvugreinum. Honum er ætlað það hlutverk að vera kjarnaskóli í heil- brigðisgreinum en beðið er eftir formlegri viðurkenningu. Unnið er að þróun nýrra námsbrauta á heil- brigðissviði. Frá skólanum útskrifast að þessu sinni 55 nemendur. Nýstúd- entar eru alls 40 og útskrifast flest- ir af félagsfræðibraut. Af starfs- menntabrautum útskrifast alls 15 nemendur, þar af 11 læknaritarar með lögvernduð stai’fsréttindi. Að venju hlutu margir nemendur viðurkenningu fyrir góðan námsár- angur eða fyrir framúrskarandi störf í þágu nemenda. Atli Krist- jánsson og Einar Guðberg Jónsson fyrir félagsstörf og eftirtaldir nem- endur fyrir góðan námsárangur í einstökum greinum: Elín Sigurðar- dóttir dux scholae, Baldur S. Helgason, Birna María Þorbjörns- dóttir, Hildur Sigurðardóttir, Jan- us Christiansen, Laufey Sveins- dóttir, Ólöf Elín Gunnlaugsdóttir, Rósa Björk Gunnarsdóttir, Sesselja Bjarnadóttir og Unnur Bjarnadóttir. Einar Guðberg Jónsson nýstúd- ent ávarpaði samkomuna fyrir hönd nýstúdenta. Við athöfnina sungu Katrín Knudsen og Þórunn Eggertsdóttir tvísöng, en þær eru nemendur Fjölbrautaskólans við Armúla og einnig söng Nanna Mar- ía Cortes, nemandi Söngskólans í Reykjavík, einsöng við undirleik Krystynu Cortes. Kór Fjölbrauta- skólans við Ánnúla söng þrjú lög við undirleik Gunnars Gunnarsson- ar. Fjölmenni var við athöfnina og^ var hún öll hin hátíðlegasta. UTSALAN ER HAFIN QTfDarion Reykjavíkurvegi 64, sími 565 1147 LAGE 30-70% afsláttur Opið laugardag kl. 10-16 KÖRFUBOLTASKÓR 10.900.- 5.900.J SKÓR 7.990.- 3.990.- AREOBIC SKÓR 7.990.- 4.990.- ÚLPUR 9.990.- 6,990.- SKÍÐABUXUR 10.590.- 3,990.- ÍÞRÓTTAGALLAR 7.200.- 3.990.- REGNJAKKAR 8.590,- 3.990.- BARNASKÓR 4.990.- 1.990,- 'BOLTAMAÐUR'NN LAUGAVEGI 23 • SÍMI 551 5599 Skrifstofutækni Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefjandi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru: Handfært bókhald Tölvugrunnur Ritvinnsla Töflureiknir Verslunarreikningur Glærugerð Mannleg samskipti Tölvubókhald Internet Lokaverkefni STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í öllum almennum skrifstofustörfum og eftir vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word- ritvinnslu og Exceltöflureikni og lærði hand- og tölvufært bókhald, glærugerð, verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum í mannlegum samskiptum og Interneti. Námið er var vel skipulagt og kennsla frábær. Kennt var 3 kvöld í viku í 4 mánuði og enginn heimalærdómur. Nú flnnst mér ég vera fær (flestan sjó! Guörún Skúladóttir, deildarstjóri. iönaðar- og viöskiptaráðuneyti. . Öll námsgögn innifalin Tölvuskóli íslands Bíldshöfða 18 Sími 567-1466

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.