Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 64
34 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Leifar af
hátíðamat
Mikið er til af mataraí'söngum á heimilum
nú eftir hátíðirnar segir Kristín Gestsdótt-
ir, en þá má nýta í gómsæta rétti.
Ég vaknaði um níuleytið á ný-
ársdagsmorgun og gekk fram í
stofu, óvenjuleg birta mætti
mér, er fullt nýárstunglið spegl-
aðist í Skógtjöminni og varpaði
birtu hingað upp á Garðaholtið.
Ég opnaði fyrir Rás 1 í útvarp-
inu. Þar hljómuðu hinar ýmsu
kirkjuklukkur landsins, hver
með sitt sérstaka hljómfall. Síð-
an var að venju leikin 9. sinfónía Beethovens með hinu fagra stefi í „Oði til gleðinnar“, sem er ein- kennandi fyrir fjórða kafla. Hug- urinn fylltist friði og gaf fyrir- heit um gott og gjöfult nýár. Ég skreið upp í á ný, en þegar leið að hádegi sagði hungrið til sín, enda vissi ég af ýmsu góðgæti í ísskápnum, en böm og bama- böm ætluðu að koma síðdegis og hjálpa okkur að borða það. Ég bretti upp ermamar, skellti deigi í hrærivélina og bjó til fyllt brauð og böku með hangikjöt- inu, kalkúnaleifar fóra í salat. tvær meðalstórar bökur. Deigið sett á botninn og upp með börm- unum á tveimur meðalstórum bökuformum eða álformun, þá er fyllingin sett yfir, 2 egg slegin saman með örlitlu salti og hellt yfir. Þá er aukalega ¥t dl af rifn- um osti stráð yfir hverja böku. Bakað við sama hita og smá- brauðin í 30 mínútur.
Kalkúnasalat 1 dós sýrður rjómi
Ilmur af nýbökuðu hangikjöts- brauði mætti gestunum þegar þeir knúðu dyra. 2 tsk. mæjonsósa
% tsk. rifinn sítrónubörkur
1/2 tsk. papríkuduft
. 1-2 dl sósa af kalkúnanum
Smábrauð eða baka 1 stór bolli soðin hrísgrjón
með hangikjöti smábiti laukur, helst salatlaukur
Vh dl hveiti eða vorlaukur
1 msk. þurrger 2 meðalstórir sellerístönglar
1 tsk. salt 2 sneiðar græn eða rauð paprika
1 dl matarolía 1 stór bolli smátt skorið
210 dl fingurvolgt vatn kalkúnakjöt
(úr krananum) væn grein steinselja
eggjarauða til að pensla með 20-30 vínber
Fyllingin: 1/2 dl saxaðar möndlur
1 dl rjómaostur án bragðefna 1. Setjið sýrðan rjóma, mæj- onsósu, sítrónubörk, papriku- duft, kalkúnasósu, hrísgrjón, smátt saxaðan lauk og þunnt
1 dl kotasæla
1-2 dl saxaður aspas úr dós
2 msk. safi úr dósinni
2 dl fínt skorið hangikjöt sneidda sellerístöngla í skál og hrærið vel saman. 2. Setjið út í smátt brytjaða papriku, smátt skorið kalkúna- kjöt og smátt klippta steinselju og blandið saman. 3. Kljúfið vínberin, takið úr steina ef einhverjir era. Setjið saman við. Hellið í skál og látið standa í kæliskáp í 2-3 klst. eða lengur. 4. Brúnið saxaðar möndlurnar smástund á þurri pönnu. Kælið og stráið yfir skálina þegar þetta er borið fram.
í smábrauðin er deigið látið lyfta sér og flatt út frekar þunnt, síðan skorið í aflanga feminga 6x8 sm. Öllu sem fer í fylling- una er blandað saman, 1 tsk. af því sett á hvern deigbút, hann brotinn um þetta langsum og síðan brotið upp á endana. Rað- að á bökunarpappír og penslað með eggjarauðu. Bakað við 200°C í bakarofni, í blástursofni við 180-190°C í um 15 mínútur. I bökuna passar þetta deig í
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Jólagjöf
R-listans!
ENN og aftur gefur R-list-
inn okkur Reykvíkingum
jólagjöf, en ég ætla að af-
þakka hana í ár eins og í
fyrra. Fyrir ári skrifaði ég
grein í Morgunblaðið um
jólagjöf R-listans sem var
boðun á hækkun leiguí-
búða borgarinnar um
helming. I ár kemur enn
ein „gjöfin“ og nú er hún
stærri en í fyrra enda
höfðingjar þar á ferð. Jóla-
gjöf R-listans í ár er: 1.
Hækkun á útsvari, 2.
hækkun í sundlaugar, 3.
hækkun á dagvistargjöld-
um, 4. sorpgjald, 5. hækk-
un í heilsdagsskóla, 6. heil-
brigðisgjöld.
Ekki veit ég hver sendi
R-listanum óskalistann í
ár, en grunur minn er að
R-listinn hafi sent sér
hann sjálfur. Ef maður
skoðar þessar boðaðar
hækkanir má sjá að þær
koma mest niður á barna-
fólki. Sagðist R-listinn
ekki vera með fjölskyldu-
stefnu í fyrirrúmi? Höfð-
inginn nr. 1 sagði í apríl á
Lækjartorgi: Lækkun á
gjöldum til Reykvíkinga.
Hvar er sú lækkun? Höfð-
ingi nr. 1 hjá R-listanum,
þetta heitir á íslensku svik
við kjósendur borgarinnar.
Guðjón Sigurðsson,
Hátúni lOa, Rvík.
Jól fram á þrettánda
ÉG VAR að hlusta á lauf-
skálann á Rás 1 milli jóla
og nýárs, svona með öðru
eyranu á leiðinni í vinnuna.
Heyri ég þá umsjónarkonu
þáttarins segja að nú sé
jólunum lokið og hvers-
dagsleikinn tekinn við. Ég
varð fyrh- smávegis áfalli.
Ég sem hélt að jólin stæðu
fram á þrettándann eða að
minnsta kosti fram á ný-
ársdag. Mér hefur nefni-
lega alltaf fundist, þ.e.a.s.
síðan ég komst til vits og
ára og eignaðist eigið
heimili, að besti tími jól-
anna væru dagarnir á milli
jóla og nýárs og jafnvel á
milli nýárs og þrettánda.
Þegar ekki er lengur ætl-
ast til að borin séu fram
veislufóng á fjögurra
klukkustunda fresti eða
oftar. Þegar maður þarf
ekki að standa í eldhúsinu
mest allan daginn og
skera, raða, þeyta, blanda,
skreyta, ná í hreinan dúk,
hreinsa bletti og allt þetta
vesen. í þokkabót á maður
að vera afslappaður og láta
sem ekkert sé að gera.
Ekki misskilja mig. Auð-
vitað hjálpumst við að og
auðvitað er yndislegt að
halda hátíð með fjölskyld-
unni. En á milli jóla og
nýárs er allt svo afslappað,
þótt maður þurfi að mæta í
vinnu, það er samt tími til
að líta í jólabækurnar og
njóta þess að koma heim í
skreytt og fallegt hús. Ég
held að ég sé varla eina
manneskjan sem lít svona
á þetta. Ég vil halda jól
fram á þrettándann og
ætla að gera það hvað sem
hver segir. Jólin eru hér
og við skulum pjóta þeirra
- núna.
Með bestu kveðju,
Dóra.
Tapað/fundið
Hleðslutæki fyrir
myndbandsupptökuvél
týndist
HLEÐSLUTÆKI fyrir
myndbandsupptökuvél
týndist í vikunni fyrir jól á
höfuðborgarsvæðinu.
Finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 565 6868.
Dýrahald
Pjakkur er týndur
ÞESSI bröndótti köttur á
myndinni heitir Pjakkur.
Hann hefur verið týndur
frá því aðfaranótt 24. des-
ember sl. Hann býr á
Bergstaðastræti 28b, var
merktur með svartri ól og
nafnspjaldi, sem á stóð
Monsi því hann kom ólar-
laus heim og ól af öðrum
ketti var sett á hann. Fólk
er beðið að ath. skúra,
kjallara og kompur hjá
sér. Eins ef einhver veit
um afdrif hans, að láta vita
í símum 5510539 eða
553 2877. Fundarlaun.
Tík týndist frá Berg-
staðastræti
LITIL tík, brún-grá-svört
á lit, týndist frá Berg-
staðastræti 82. Er af
Yorkshire Terrier kyni.
Þeir sem hafa orðið henn-
ar varir hafi samband í
síma 568 9055 eða
552 4082.
Kettlingur óskar
eftir heimili
8 VIKNA kettlingur,
svartur og hvítur, kassa-
vanur, óskar eftir góðu
heimili. Upplýsingar í síma
555 3403 eða 897 7436.
Kettlingur óskar
eftir heimili
KETTLINGUR, 2ja mán-
aða læða, óskar eftir góðu
heimili. Er af síðhærðu
blendingskyni, falleg og
bláeygð. Upplýsingar í
síma 562 5504.
Jósefína
er týnd
HUN er svört læða sem
hvarf frá Bræðraborgar-
stíg 21 fyrir nimri viku.
Jósefina er frjálslega vaxin
með bláa ól og húðflúr í
eyra. Þeir sem vita um af-
drif hennar eru beðnir að
hringja í síma 552 8047.
Víkverji skrifar...
IGAMLARSDAGSBLAÐI Morg-
unblaðsins auglýsti borgarstjór-
inn í Reykjavík, hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar „Betri nýtingu
- meiri sparnað", þar sem m.a. er
tilkynnt nýtt sorphirðugjald, sem
verður 6.000 krónur á hverja 240
lítra tunnu. I auglýsingunni er þess
getið að um mitt ár verði gerð sér-
tök tilraun með að fjölga dögum á
milli tunnutæminga, þ.e. að sorpið
verði hirt á 10 daga fresti í stað 7
daga áður.
Það er rétt eins og borgaryfir-
völd telji borgarana vera til hins
mesta trafala, að krefjast einhverr-
ar þjónustu fyrir þau gjöld sem þeir
greiða, hvílík frekja í borgurunum.
Nú er það svo að ekki veitir af
tunnutæmingu á 7 daga fresti, því
að við hvert meðalheimili flæðir út
úr tunnunum, ef þær eru ekki losað-
ar vikulega. Víkverji reyndi það í
Fossvogshverfi nú um hátíðarnar.
Tunnan var tæmd hjá honum á Þor-
láksmessu og síðan ekki fyrr en
sunnudaginn 3. janúar. Það liðu sem
sé rúmir 10 dagar milli tunnutæm-
inga og sorpið flóði víða út um allt
og fólk varð að nota sérstaka plast-
sekki undir sorpið. Sorphirðumenn-
irnir vissu greinilega upp á sig
skömmina, því að loks er þeir
tæmdu tunnurnar og tóku pokana,
var það á sunnudegi, sem er alla
jafna ekki sorphirðudagur í Reykja-
vík.
Það lítur út fyrir að nú sé borgar-
stjórnin að lauma inn 100% hækkun
á sorphirðugjaldi. Það er nokkuð
ljóst að 240 lítra tunna í heila viku
er um það bil sú tunna sem hæfir
meðalfjölskyldunni í Reykjavík mið-
að við losun á 7 daga fresti. Nú ætl-
ar borgarstjórinn, hreinsunardeild
hins vegar að gera tilraun með að
fækka tunnulosunardögum þannig
að sorphirðan verði á 10 daga fresti.
Þá verður meðalfjölskyldan að bæta
við sig tunnu og það kostar aðrar
6.000 krónur á ári. Þannig verður
sorphirðugjaldið á hvert heimili
hækkað um 100%. Sniðugt hjá
Reykjavíkurborg að taka sorphirðu-
gjaldið út úr fasteignasköttunum og
taka fram að fasteignaskattar lækki
á móti um sömu upphæð. En búinn
hefur verið til nýr skattur, sorp-
hirðugjald, sem unnt er að hækka
án þess að fasteignaskattar hækki
nokkuð. Það er líka hægt að hækka
gjaldið með því að neyða fólk til að
fá sér fieiri tunnur.
xxx
VÍKVERJI hefur áður minnst á
það að á sviði sorphirðu hefur
þjónustu við borgarana hrakað
mjög. Nokkur ár eru síðan sorp-
hirðan hætti að hirða garðaúrgang,
en lengi vel voru til innan hverfanna
stöðvar þar sem menn gátu losað
sig við garðaúrgáng. Þeim hefur á
síðustu árum fækkað mjög og eru
nú heilu hverfin án slíkrar þjónustu.
Menn eru sem sé sífellt að fá minni
þjónustu frá borginni fyrir þau
gjöld, sem þeir borga til hennar.