Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 69
AFI á enn eftir að fara holu í höggi, en Davíð yngri náði
draumahögginu í sumar.
Einherjum fjölgar
jafnt og þétt
► Einherjum, þeim sem ná að
leika golfbraut á einu höggi,
fjölgar jafnt og þétt hér á landi.
Næstsíðasta dag ársins vai’ haldið
hóf fyrir þá sem náðu drauma-
högginu á síðasta ári, en
þeir voru 84 talsins, en í
Eiuherjakhíbbnum eru
nú 740 kyifingar.
Kjartan L. Pálsson er
formaður klúbbsins
og sagði hann meðal
annars við þetta
tækifæri að menn
hefðu alltaf möguleika
á að fara holu í höggi og
það sannaðist best á því að á
stórum steini við eina brautina á
golfvellinum í La Manga á Spáni
stæði að hér hefði maður farið
holu í höggi og var hann nafn-
greindur. Það sem er hins vegar
merkilegt við árangur hans er að
þegar hann náði draumahögginu
var hann 99 ára gamall.
Fjölmargir kylfingar voru
mættir á Píanóbarinn í Hafnar-
stræti þar sem umboðsaðili
Drambuie bauð uppá veitingar
auk þess að veita öllum nýjum
Einherjum viðurkenningarskjal
og annað sem tilheyrir þessum
merka áfanga.
Meðal þeirra sem voru mættir á
staðinn voni Magnús Guðmunds-
son, flugstjóri, úr Golfklúbbi Ness
og Gfsli Jóhannesson, skip-
stjóri, úr GR, NK og GO, en
þeir fóru báðir holu í
höggi á annarri braut,
Magnús á Nesinu en
Gísli á Korpúlfsstöðum.
„Þetta er algjört glópa-
lán,“ sagði Gísli sem hef-
ur tvívegis náð holu í
höggi.
Þeir félagar hafa spilað í
nokkur ár. Gísli „kom í land“ 1985
og hefúr spilað síðan en Magnús
sagðist hafa leikið í 26 ár enda
hefði hann verið í þannig vinnu að
hann gat leikið golf með henni.
Yngstur til að fara holu í höggi
í fyrra var Davíð Svansson, 13 ára
kyflingur úr Mosfellsbænum.
Hann sló draumahöggið á 9. braut
þar í bæ og var að vonum mjög
áængður. Afi hans og nafni, Davíð
B. Sigurðsson, sem mikið hefur
starfað með handknattleikslands-
liðinu, var með honum í hófinu en
hann hefur aldrei náð drauma-
Tísku-og ljósmyndaförðun
t 6-12 vikna námskeið
JKennsla hefst 18. janúar
SKRÁNING HAFIN Á SEPTEMBERHAUSTÖNN ‘99.
Lokaverkefni Birtu myndatökur í N
úr förðunarskóianum Beauty Center of Miian
• Notum ýmis snyrtivörumerki við kennslu
Innritun og nánari upplýsingar í síma 561 6525
Kristín Friðriksdóttir
hefur yfirumsjón með allri
förðun fyrir ísienska
útvarpsfélagið og hefur
jafnframt starfað við
leikhúsförðun og farðað fólk
á forsíðum tímarita.
Kristín Stefánsdóttir
er margfaldur íslands-
meistari í föröun og hefur
farðað fólk á forsíðum allra
helstu tímarita landsins
síðastliðin ár. Hún hefur
staðið fyrir námskeiðahaldi
í förðun til margra ára.
COSMIC EHF., HVERFISGÖTU 76. S. 561 6525, FAX 561 6526, E-MAIL NO NAME@ISLANDIA.IS
FÓLK í FRÉTTUM
HÓPURINN sem tók við viðurkenningu fyrir holu í höggi var myndarlegur.
Morgunblaðið/Halldór
högginu en það hefur Hulda
Finnbogadóttir, eiginkona Da-
víðs eldri og amma þess yngri
gert. Hún var viðstödd þegar
ömmubarnið náði draumahögg-
inu enda spila þau mikið saman.
Þegar menn fara holu í höggi
þarf að tilkynna það til GSÍ og í
fyrra fylgdi vísa frá Jóni H.
Karlssyni, Valsmanni og muln-
ingsvélarmanni. Hún er svona:
Hérna sérðu skíta-skor
sýnu verra en liðið vor.
Ljósan punkt samt iíta má
létt var holu í höggi að ná.
TVEIR úr mulningsvél Valsmanna, Jón H. Karls-
son og Ólafur H. Jónsson, með Kjartan L. Pálsson,
formann Einlierjaklúbbsins, á milli sín.
FLUGSTJÓRINN og skipstjórinn, Magnús Guð-
mundsson (t.v.) og Gísli Jóhannesson til hægri.