Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 76
I Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPIN KERFIHF Wtipl hewlett mL'LM PACKARD MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Verð á símtölum milli landa 62-77% lækkun á tíu árum KRISTINN H. Gunnarsson, for- maður sjávarútvegsnefndar Alþing- is, segir að breytingar þær sem nefndin leggur til á kvótafrumvörp- um sjávarútvegsráðherra, sem lögð voru fram í kjölfar dóms Hæstarétt- ar, uppfylli kröfur smábátasjó- manna. „Eg held þeir geti ekki ann- að en verið sæmilega sáttir," segir Kristinn. Kristinn vildi ekki tjá sig efnislega mn tilhögun sóknardagakerfísins '.jamkvæmt tillögum nefndarinnar, enda hafa þær ekki verið kynntar þingmönnum stjórnarandstöðunnar. „Niðurstaða lögmanna sem við höf- um helst stuðst við er að öll kerfi, hvort sem er aflamarkskerfi eða önnur, verði að vera þannig að sæmi- lega greiður aðgangur sé fyrir ný- liða, með öðrum hætti heldur en til dæmis að kaupa skipið með öllu. Svipað gildir um sóknardagakei'fið, það verður að gefa mönnum kost á að komast inn með því að kaupa sér sóknardaga. Það verður því að vera eitthvað framseljanlegt.“ Tillögurnai- voni kynntar í gær á þingflokksíundum Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks. Fulltrúar Félags smábátaeigenda komu einnig á fund nefndarmanna í gærkvöldi. Nefndarmenn funduðu fram á kvöld í gær og annar fundur var ráð- gerður í dag. Stefnt er að því að fnimvörpin verði afgreidd formlega úr sjávarútvegsnefnd í dag og tekin til annarrar umræðu á Alþingi á morgun. Valgerður Svemsdóttn, þing- flokksformaður Framsóknarflokks- ins, segir að líklega verði frumvörpin tekin til umræðu í sjávarútvegs- nefndinni að nýju milli annarrai- og þriðju umræðu. „Eg held að þetta sé þokkaleg lending miðað við aðstæður,“ segir Valgerður. Stjóimarþingmenn sem haft var samband við í gær vildu ekki tjá sig um efnisatriði breytinganna. samninga Landssímans við erlend símafyrirtæki, en einnig hefur samkeppni innanlands leitt til lækkunar á síðustu mánuðum. Skíma/Netsíminn býður símnot- endum að greiða lægra verð fyrir minni gæði í talsambandi í gegnum Netið, og einnig hefur Tal hf. til- kynnt að fyrirtækið bjóði milli- landasímtöl frá og með 15. janúar næstkomandi með 20% lægri gjald- ski-á en gjaldskrá Landssímans. Hjá Islandia Internet er í athugun að hefja þjónustu af þessu tagi og Íslandssími hefur lýst því yfir að fyrirtækið muni bjóða upp á alhliða símaþjónustu, jafnt innanlands- sem millilanda- og farsímtöl. ■ 34,5% meðaltalslækkun/39 Kristinn H. Gunnarsson um breytt kvótafrumvörp , Smábátasjómenn ættu að vera sáttir GJALDSKRÁ millilandasímtala hefur farið ört lækkandi frá því fjarskiptarekstur var gefínn frjáls hér á landi 1. janúar 1998, og að meðaltali hefur orðið 34,5% lækk- un á gjaldskrá millilandasímtala frá því í október 1997. Þegar litið er á verðþróun milli- landasímtala síðustu tíu ára kemur í ljós að verð á símtölum til þeirra landa sem einna mest er hringt til hafa lækkað 'á bilinu 62-77% á þessu tímabili. Mínútugjald á sím- tölum til Bandaríkjanna hefur lækkað um 76,5%, símtöl til Norð- urlandanna hafa lækkað um 64,2% og mínútugjald til Japans hefur lækkað um 77%. Þessar lækkanir eru raktar til alþjóðlegrar sam- keppni á símamarkaði og betri Samvinnunefnd Landafundanefndar og starfsliðs Bandaríkjaforseta Gefa saman út minnispeninga FYRIRHUGAÐ er að Bandaríska myntsláttan (US Mint) og Seðla- banki íslands gefi hvort út sinn minnispeninginn um aldamótin í til- efni þess að 1000 ár verða þá liðin frá því Leifur Eiríksson fann Am- eríku. Þetta er meðal samvinnu- mála sem rædd hafa verið í sam- vinnunefnd starfsliðs Bandaríkja- forseta og Landafundanefndar ■^gna landafundaafmælisins og er málið til meðferðar í Bandaríkja- þingi. Verði af útgáfunni er það í fyrsta skipti í rúmlega 200 ára sögu Bandarísku myntsláttunnar sem samvinna er höfð við aðra þjóð um útgáfu penings. Steingrímur Hermannsson, fyrr- verandi seðlabankastjóri, annast mál þetta fyrir Seðlabankann. Kvaðst hann í gær hafa átt nokkra fundi með framkvæmdastjóra nefndar bandaríska þingsins um fjármála- og bankastarfsemi um út- gáfu minnispeninganna. Til þess að af útgáfu Bandarísku myntslátt- unnar geti orðið þarf þingið að samþykkja frumvarp þar að lútandi -r,Qt fór það í gegnum fulltrúadeild þingsins síðastliðið haust en strandaði síðan í öldungadeildinni vegna mála Bills Clintons Bandaríkjaforseta, að sögn Stein- gríms. Frumvarpið þarf því að fara aftur fyrir fulltrúadeildina og síðan fyrir öldungadeildina og sagðist Steingrímur ekki vita til að nein fyrirstaða væri fyrir að frumvarpið kæmist í gegn. Arðurinn í sjóð kcnndan við Leif Eiríksson Steingrímur sagði að ætlunin væri að myntin frá báðum þjóðun- um yrði seld sameiginlega og arð- urinn lagður í sjóð sem hugmynd er að stofna og kalla Sjóð Leifs Eríks- sonar. Sjóðnum er ætlað að styrkja Islendinga til náms í Bandaríkjun- um og Bandaríkjamenn til fram- haldsnáms hér á landi. „Það er þegar búið að ræða um grundvallaratriði þessa sjóðs og myndi Háskóli Islands annast hann fyrir okkar hönd en Virginíuháskóli í Bandaríkjunum fyrir þeirra hönd og hann yrði að öllum líkindum með búsetu þar. Þetta mál bíður hins vegar þess að þingið ljúki málinu," sagði Steingrímur. Morgunblaðið/Kristinn Málflutningur vegna ógreiddrar kröfu úr ábyrgðarsjóði launa ákveðinn EFTA-álit ekki látið nægja RÍKISLÖGMAÐUR hefur tekið ákvörðun um að ríkið gangi ekki til ^|tta í máli Erlu Maríu Svein- igörnsdóttur gegn íslenska ríkinu og í kjölfar þess hefur málflutning- ur verið ákveðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur um miðjan næsta mánuð. Erla höfðaði mál og krafð- ist greiðslu ógreiddrar launakröfu úr ábyrgðarsjóði launa. EFTA- jtómstóllinn hefur gefíð álit sitt í fyíssu máli í þá veru að Erlu beri að fá laun. Erla hafði unnið hjá fyrirtæki sem varð gjaldþrota en kröfu hennar um laun var hafnað vegna ákvæða laga sem útiloka systkini hluthafa í gjaldþrota fyrirtæki frá greiðslum. Erla höfðaði skaðabóta- mál á hendur ríkinu á þeim grund- velli að neitun ríkisins væri óheim- il samkvæmt tilskipun sem er hluti EES-samningsins. Meðan á undirbúningi málsins stóð taldi Héraðsdómur Reykja- víkur þörf á að leita til EFTA- dómstólsins um hvernig skilja bæri umrædda tilskipun. Hinn 10. desember síðastliðinn var gert op- inbert ráðgefandi álit EFTA-dóm- stólsins og þar segir m.a. að aðil- um samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sé skylt að sjá til þess að það tjón fáist bætt sem einstaklingar verði fyrir vegna þess að landsréttur er ekki rétti- lega lagaður að ákvæðum EES- samningsins. „Þetta álit er eins skýrt og það gat orðið og í raun miklu skýrara en maður þorði að vona. Embætti ríkislögmanns virðist hins vegar ekki telja þetta nægjanlegt til að ganga til sátta í málinu. Mér finnst álit EFTA-dómstólsins svo skýrt, að ekki sé sérstök ástæða til að halda málinu áfram, en það er hins vegar auðvitað réttur hvers og eins að reka mál sín fyrir íslensk- um dómstólum allt til enda,“ segir Stefán Geir Þórisson, hrl., lögmað- ur Erlu. Þrettánda- brennur haldnar í blíðviðri ÞRETTÁNDABRENNUR log- uðu glatt víðs vegar um borgina í gær. Sú stærsta var við Vals- heimilið að Hlíðarenda í Reykjavík og þar hitti ljós- myndari Morgunblaðsins fyrir þessa litlu hnátu og fleiri börn og fullorðna, sem komu að brennunni, horfðu á leiftur af flugeldum og skemmtu sér. Samkvæmt þjóðtrúnni heldur Kertasníkir síðastur jólasveina til íjalla þrettánda dag jóla og við þrettándabrennur er rökkrið jafnan fagurt og þá kætast álfar er þeir kveða hátt og halda álfagleði hinstu nótt um heilög jól. Alls voru níu þrettánda- brennur haldnar á Stór-Reykja- víkursvæðinu í gærkvöld. Blönduós Jólin lengd um einn dag Blönduós. Morgunblaðið. JÓLIN vai-a einum degi leng- ur hjá Blönduósingum en öðr- um landsmönnum ef íbúarnir hlýða kalli bæjastjóra síns. Bæjarstjórinn, Skúli Þórð- arson, óskar eftir því að íbúar Blönduóss taki ekld niður jóla- skreytingamar fyrr en á morgun og kemur hann þess- ari ósk á framfæri í almennri auglýsingu til bæjarbúa. Ástæða þessarar óskar bæjar- stjórans er ekki af persónuleg- um toga heldur vegna þess að hinir nýju íbúar Blönduóss sem komu frá Júgóslavíu í júní í fyrra tilheyra grísku rétt- trúnaðarkirkjunni og er jóla- dagur hjá þeim í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.