Morgunblaðið - 20.01.1999, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 20.01.1999, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 7 Ný lög - ný tækifæri Efnahagsleg velferð einstaklingsins og heilbrigður ríkisbúskapur eru greinar af sama meiði. Frjáls viðbótar- lífeyrissparnaður er einn þáttur í þeirri stefnu ríkis- stjórnarinnar að treysta forsendur áframhaldandi hagsældar. Meö nýjum lögum um tekjuskatt og lífeyris- sparnað, sem tóku gildi 1. janúar 1999, er einstaklingum heimilað að verja 2% viðbótar- iðgjaldi af launum í frjálsan lífeyrissparnað og draga þá fjárhæð frá skattskyldum tekjum. Betri staða við starfslok Með hækkandi meðalaldri fólks og batnandi heilsufari er mikilvægt að tryggja fjárhagslega afkomu eftir að launaðri vinnu er hætt. Markviss sparnaður og sjóðsöfnun á starfsævinni þjóna því markmiði betur en nokkuð annað. Sveigjanlegri starfslok Viðbótarlífeyrissparnaður opnar möguleika fyrir sveigjanlegri starfslokum en nú tíðkast, því hann er til frjálsrar ráðstöfunar eftir að 60-67 ára aldri er náð. Þín séreign Frjálsum viðbótarlífeyrissparnaði er hægt að ráð- stafa til séreignar eða samtryggingar eftir því sem hverjum og einum hentar. Við fráfall rétthafa fellur innstæða á séreignarreikningi til erfingja eftir reglum erfðalaga. Þú velur vörsluaðila Sá sem tekur þátt í frjálsum viðbótarlífeyrissparn- aði velur sjálfur þann aðila sem hann vill að varð- veiti og ávaxti sparnaðinn. Viðurkenndir vörsluaðilar geta verið lífeyrissjóðir, líftryggingafélög, sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki og viðskiptabankar. Þjónusta launagreiðenda Sérhver launamaður getur falið vinnuveitanda sínum að draga viðbótariðgjaldið frá útborguðum launum og færa til þess vörsluaðila sem hann kýs. 10% mótframlag úr rikissjóði Á móti frjálsum lífeyrissparnaði þínum kemur 10%framlag úr ríkissjóði. Launagreiðandi greiðir þetta mótframlag samtímis sparnaðinum inn á reikn- ing launamannsins. Skattalegt hagræði Frádráttur 2% viðbótariðgjalds frá skattskyldum tekjum er háður þvi að iðgjaldinu sé varið til aukning- ar lífeyrisréttinda og að iðgjöld séu greidd reglulega. Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af þeim vöxt- um sem menn ávinna sér og eignin sem myndast er eignarskattsfrjáls. Fjármáiaráðuneytið Léttu þér lífshlaupið - vertu með frá byrjun! Allar nánari upplýsingar um viðbótarlífeyrissparnað veita: LÍFEYRISSJÓÐIR LÍFTRYGGINGAFÉLÖG SPARISJÓÐBR VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI VIÐSKIPTABANKAR YDDA/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.