Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 41 Jóla- og líkn- armerki 1998 Frfmerkl Jól 1998 Jólamerki Barnauppeldissjóðs Thor- valdsensfélagsins, Framtíðarinnar á Akureyri, Rotaryklúbbs Hafnarfjarð- ar, Líknarsjóðs Lionsklúbbsins Þórs, Ungmennasambands Borgarfjarðar, Kaþólska safnaðarins og Rauða kross Islands. ÞVÍ miður hafa frímerkjaþættir mínir orðið færri á liðnum mánuð- um en æskilegt hefði verið. Ymsar ástæður liggja til þess, en vonandi verður bætt úr því að einhverju leyti með nýju ári, enda hafa ýms- ir spurt eftir þeim og jafnvel, hvort þeir væru með öllu horfnir af síðum Mbl. Sú er enn ekki orðin raunin, enda þótt þáttarhöfundur hljóti eðlilega að lýjast eitthvað með árunum. En á meðan einhver fylgist með þáttunum, jafnvel þótt þeir verði eitthvað stopulli en áð- ur, er sjálfsagt að halda þeim áfram. Því verður ekki heldur neitað, að margs konar efni er á boðstólum, sem getur átt erindi við íslenzka safnara. Sú er orðin föst venja í byrjun árs að segja frá þeim jóla- og líkn- armerkjum, sem vitað er, að hafi komið út um nýliðin jól. Hefur Bolli Davíðsson í Frímerkjahúsinu að venju látið þættinum flest þess- ara merkja í té og eins ýmsar upp- lýsingar um þau. Færi ég honum að sjálfsögðu beztu þakkir fyrir þá hugulsemi í garð þáttarins, en um leið hafa þeir, sem safna jóla- merkjum sérstaklega, gagn af upplýsingum hans. Hef ég orðið þessa áþreifanlega var í samtölum við safnara. í fyrra benti ég útgef- endum jóla- og líknarmerkja á það, að vel er þegið að fá góðar upplýsingar beint frá þeim um hönnun merkja þeirra og tilgang útgáfunnar. Slíkt kunna einmitt þeir, sem safna þessum merkjum, vel að meta. Um leið getur þetta ýtt undir söfnunina og hefur jafn- iramt sögulegt gildi fyrir söfnin sjálf. Þá má jafnvel búast við, að nýir safnarar jólamerkja leiti eftir því hjá útgefendum þeirra að fá keypt eldri merki í söfn sín. Hér er þess vegna um hagsmunamál beggja aðila að ræða, þegar gi-annt er skoðað. Því miður varð enginn við tilmælum mínum að þessu sinni nema Thorvaldsensfé- lagið. Færi ég stjórn félagsins þakkir fyrir. Þegar greint var frá jólamerkj- um ársins 1997 í þætti 23. jan. 98, var vikið að því, að gera mætti ráð fyrir, að samkeppnin harðnaði jafnvel enn frekar en áður hafði verið milli jóla- og líknarmerkja annars vegar og svo jólafrímerkja Islandspósts hf. hins vegar. Engu að síður er sjálfsagt, að þau líkn- arfélög, sem hafa haslað sér völl á þessum vettvangi, láti ekki deigan síga. Jólamerki hafa líka sett nokkurn svip á jólapóst okkar all- ar götur síðan 1913, þegar Thor- valdsensfélagið hóf útgáfu merkja sinna. En því verður ekki neitað, að í seinni tíð hafa önnur félög, sem hafa ýmiss konar líknarstarf- semi með höndum, haslað sér völl á þessum jólamerkjamarkaði. Slíkt hlýtur óhjákvæmilega að setja þeim félögum, sem fyrir eru, einhverjar skorður, enda markað- ur fyi-ir þessi merki ekki tak- markalaus. Af sjálfu sér leiðir, að líknar- og góðgerðarfélög eru sjálfráð, hvort þau fara inn á þetta svið, en hófs skyldi þó gætt í hví- vetna og eins tekið tillit til þeirra félaga, sem fyrir eru. Þróunin virðist líka vera sú, að eldri félög- um fækki með hverju ári. Fyrir jólin 1997 gáfu níu samtök út líkn- armerki, en að þessu sinni urðu þau sjö. Auðvitað getur ýmislegt annað valdið fækkun þessara merkja en harðnandi samkeppni, en hún er þó nærtæk skýring að einhverju leyti. Nú skal greint frá líknarmerkj- um einstakra félagasamtaka. Að þessu sinni komu út níu merki, svo að mér sé kunnugt um. Fyrst verður í röðinni jólamerki Thor- valdsensfélagsins, enda þau orðin langelzt þeirra. Þetta er fallegt merki, sem Sigrún Eldjárn hann- aði . Næst kemur merki Kvenfé- lagsins Framtíðarinnar á Akur- eyri. Þetta er stílhreint merki með mynd af engli með geislabaug yfir höfðinu. A merki Rotaryklúbbs Hafnarfjarðar er mynd af kerti (að vísu ekki logandi) og eru brag- andi norðurljós á himninum. Merki Lionsklúbbsins Þórs er með mynd af Fríkirkjunni í Reykjavík. A merki Ungmenna- sambands Borgarfjarðar er mynd af kirkjunni á Staðarhrauni á Mýrum, en hún var reist 1889, svo sem stendur á merkinu. Merki þetta mun aðeins hafa verið gefið út ótakkað. Þá er jólamerki kaþ- ólska safnaðarins. En það er eins að gerð og frá fyrri árum, nema breytt er um ártal. Þá eru þrjú merki Rauða krossins. Á tveimur þeirra er mynd af brosandi dreng og stúlku, en jólakötturinn á því þriðja. Eru myndir þessar eftir Halldór Pétursson. Þessi merki ásamt jólakortum og merkimiðum munu einkum vera send félags- mönnum til þess að styrkja þenn- an ágæta félagsskap. Frá síðustu jólamerkjum munu safnarar sakna jólamerkis, sem Fransiskus-systur í Stykkishólmi höfðu gefið út fyrir nokkur jól frá 1990 til 1993 og svo aftur í fyrra. Þessi jólamerki munu einkum hafa verið ætluð á þeirra eigin póst. Fyrir jólin 1997 kom svo út sér- stakt jólamerki, sem ég frétti af fyrir hreina tilviljun, en vakti strax forvitni mína. Var hér um að ræða merki, sem samtök áhuga- fólks um verndun gamla vatns- tanksins á Fiskihóli á Höfn í Hornafírði. Rakti ég sögu þessa máls þeirra Hafnarbúa nákvæm- lega í þættinum 23. jan. sl. eftir eigin frásögn þeirra. Nú hefur ekkert nýtt merki komið út á veg- um Hafnarbúa, enda var tæpleg- ast að búast við því. Að lokum má minna lesendur, sem safna jólamerkjum, á bókina íslensk jólamerki 1904 - 1996 eftir þá Hauk Valdimarsson og Þór Þorsteins, ef hún skyldi hafa farið fram hjá einhverjum þeirra. Þar er hrein náma fróðleiks um jóla- og líknarmerki á tilgreindu tíma- bili. Jón Aðalsteinn Jónsson. Italskir heimsmeistarar á Bridshátíð BRIPS It r i d s h á t í ð 18. Bridshátíð BSÍ, BR og Flugleiða verður haldin á Hótel Loftleiðum 12.-15. febrúar 1999. ÞAÐ h'ður senn að Bridshátíð og eru línur að skýrast hvað gestalist- ann varðar. Ljóst er að erlendu gest- imir í ár ættu ekki að draga úr áhuga íslenskra spilara að spreyta sig, því nýbakaðir Rosenblummeistarai- Itala hafa boðað komu sína og gamalkunn- ug nöfn á borð við Zia Mahmood, Al- an Sontag, Christian Mari og Lars Blakset eru á þátttökulistanum. Italska landsliðið hefur áður keppt á Bridshátíð eftir að það vann Evrópumeistaratitilinn fyrir fjórum árum. Liðið vann Rosenbl- um-bikarinn í Lille í ágúst 1998 og er án efa ein sterkasta sveit heims um þessar mundir. Spilafélagi Zia verður Skotinn Bamet Shenkin og með þeim í sveit verður Bandaríkjamaðurinn Ralph Katz og annaðhvort George Mittel- mann frá Kanada eða Steve Wein- stein. Alan Sontag spilar að þessu sinni við Kyle Larsen sem vakti nokkra athygli á Bridshátíð fyrir um ára- tug eða svo, þegar hann hlustaði á beina lýsingu af bandaríska homa- boltanum meðan hann sat við spila- borðið. Mari verður með þeim í sveit en ekki er ljóst hvern hann spilar við. Þá kemur Blakset á eigin vegum með danska sveit. Hart barist í Hollandi Margir af ofangreindum köppum vom í eldlínunni á Cap Gemini-tví- menningnum í Haag í Hollandi um helgina en þangað var að venju boðið 16 völdum pörum. Urslitin urðu þau að Bandaríkjamennirnir Larry Cohen og Dave Berkowitz unnu örugglega: tóku forustuna þegai- í fyrstu umferð og héldu henni til enda. I öðm sæti m-ðu, þriðja árið í röð, ítalirnir Massimo Lanzarotti og Andrea Buratti, sem væntan- lega koma til Reykjavíkur í febm- ar. Þriðju vora heimamennirnir Enri Leufkens og Berry Westra, Norðmennirnir Geir Helgemo og Tor Helness urðu í 4. sæti, Brasil- íumennirnir Gabriel Chagas og Marcelo Branco urðu í 5. sæti og Italirnir Lorenso Lauria og Al- fredo Versace í 6. sæti. Zia og Tony Forrester vora í 7. sæti. Þetta spil, sem kom fyrir í fjórðu umferð, var mikið sveifluspil: Austur gefur, enginn á hættu Vestur Norður ♦ 4 V Á4 ♦ ÁDG9432 ♦ 654 Austur A7 V KD108765 ♦ 87 *DG2 Suður * 8652 V 932 ♦ 10 * ÁK1087 * ÁKDG1093 »G * K65 * 93 ÍTÖLSKU heimsmeistararnir sem koma á Bridshátíð. Frá vinstri eru Lanzarotti, Versace, Sementa, Angelini, Lauria og Buratti. Á opnu borði eiga NS 11 slagi í spöðum og AV 10 slagi í hjörtum. Pörin áttu hins vegar erfitt með að stoppa undir slemmu, eins og oft vill verða, og hvergi tókst AV að taka laufaslagina sína strax svo allar slemmurnar unnust. Þetta vora m.a. sagnir þar sem Westra og Leufkens sátu AV og bresku tvíburarnir Justin og Jason Hackett NS: Vestur Norður Austur Suður EL Jason BW Justin - Pass 1 spaði 4 hjörtu dobl Pass 5spaðar Pass 6 tíglar Pass 6 spaðar/// Leufkens var ekki öfundsverður af útspilinu. Tígull og spaði kom ekki til greina svo valið er milli hjarta og laufs. Makker doblaði ekki en svo virðist sem andstæð- ingarnir séu viðbúnir hjartaútspili. Eftir langa umhugsun spilaði Leuf- kens þó út hjarta og Justin átti 15 slagi. Við annað borð gerðu austur- rísku konurnar Terri Weigkrickt og Doris Fischer betur í NS gegn Hollendingunum Piet Jansen og Jan Westerhof. Vestur Norður Austur Suður PJ DF JW TW - - Pass lspaði 3 hgörtu 4tíglar 4 hyörtu 4grönd Pass 5 björtu Pass 6 spaðar Pass Pass dobl Pass Pass 6grönd dobP// Fischer ákvað að flýja úr 6 spöð- um dobluðum í 6 grönd og Wester- hof var alveg í vindinum. Eftir mikl- ar sálarkvalir valdi hann hjai-ta- kónginn sem útspil og Weigkricht fékk sömu 13 slagina og Justin. Við þriðja borðið sátu Zia og Forrester NS og Frakkamir Paui Chemla og Alain Levy AV: Vestur Norður Austur Suður AL ZM PC TF - - Pass 1 spaði 31\jörtu 3grönd 4 i\jöitu 4grönd Pass 6 tíglar Pass 6 grönd Pass Pass dobl! 7 spaðarV// Chemla gerðist sekur um græðgisdobl með austurspilin. Forrester grunaði hvers kyns var og breytti í 7 spaða sem voru spilaðir ódoblaðir. Levy var ekki öfundsverður og þegar hann valdi hjartakónginn út eins og flestir aðrir vannst alslemman. Við fjórða borðið vann Lanzarotti spilið í sögnum. Þeir Buratti sátu AV og Helness og Helgemo NS: Vestur Norður Austur Suður AB GH ML TH - - Pass 1 spaði 3hjörtu 3grönd 4 lauf 4 spaðar 5 työrtu dobl/// Þegar Lanzarotti sagði 4 lauf tryggði hann rétta útspilið gegn mögulegri slemmu og Norðmennirnir lögðu raunar ekki einu sinni í 5. sagnstigið. 5 hjörtu vora aðeins einn niður og ítalimir græddu því vel á spilinu. Guðm. Sv. Hermannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.