Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 17 VIÐSKIPTI Islenski hugbúnaðarsjóðurinn hf. Lan dsbankinn tekur við rekstrinum STJÓRN fslenska hugbúnaðarsjóðs- ins hefur gengið til samninga við Landsbanka íslans um daglegan rekstur og vörslu á eignum félagsins. Samkvæmt fréttatilkynningu frá sjóðnum eru helstu áhersluatriði samningsins þau að Landsbankinn mun sjá um daglegan rekstur og um- sýslu með eignum félagsins gegn ákveðinni hlutfallsþóknun. Einnig mun bankinn leggja félaginu til sjóðsstjóra, sem mun hafa daglegan rekstur sjóðsins að aðalstarfi og vera framkvæmdastjóri þess. Landsbank- inn mun annast nýtt hlutafjárútboð félagsins, sem fyrirhugað er að hefj- ist í febrúar, og mun sölutryggja allt að 200 milljónir króna í útboðinu og fjárfesta að auki sjálfur í útboðinu. I tilkynningunni segir jafnframt að Landsbankinn muni annast við- skiptavakt með hlutabréf í félaginu sem verða skráð á Vaxtarlista VÞÍ samfara útboðinu. Samningurinn við Landsbankann mun ekki hafa nein áhrif á fjárfest- ingarstefnu félagsins, samkvæmt fréttatilkynninguni, sem hefur verið sú að fjárfesta einungis í fyrirtækj- um í upplýsingatækni. Jafnframt er stefnt að því að viðhalda þeirri þekk- ingu sem byggst hefur upp á meðal starfsmanna félagsins og stjórnar þess, segir þar jafnframt. „Samningurinn við Landsbankann og komandi hlutafjárútboð mun tryggja stækkun félagsins og efla hann þannig að hann fái staðist til lengi-i tíma sem sjálfstæð rekstrar- eining,“ segir í fréttatilkynningunni. Verður sýnilegra á markaðnum Sigurður Smári Gylfason, fráfar- andi framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður í því, segir að hingað til hafi hann sinnt starfinu sem hlutastarfi en með samningnum komi fastara form á starfsemina og hún verði sýnilegri fyrh' fjárfesta. „Þessi samningur er ekki eðlisbreyt- ing á starfseminni í sjálfu sér, en fé- lagið verður vonandi sýnilegra á markaðnum í kjölfarið,“ sagði Sig- urður. Hluthafar í Islenska hugbúnaðar- sjóðnum eru 80, að sögn Sigurðar, og þeir stærstu eru íslenski fjársjóður- inn, Lífeyrissjóðurinn Framsýn, Líf- eyrisjóðurinn Hlíf og Lífeyrissjóður Vesturlands, Hugvit og Eignar- haldsfélagið Alþýðubankinn hf. „Sjóðurinn er búinn að koma sér ágætlega fyi'ir og við erum búnir að fjárfesta í nokkrum af framsækn- ustu fyrirtækjum í hugbúnaðargeir- anum, fyrirtækjum sem eru orðin gróin á heimamarkaði og eru í út- rásarhugleiðingum," sagði Sigurð- ur. Helstu fjárfestingar Islenska hugbúnaðai'sjóðsins eru í eftirfai'- andi félögum: Gagarín ehf. 27%, Hugur hf. 17%, Hugvit hf. 1%, land- steinar International hf. 23%, Lon & Don ehf. 54%, Menn og mýs ehf. 10%, Teymi hf. 15% Þróun ehf. 23%. Nýsköpunarverð- laun forseta íslands Sex verk- efni til- nefnd til verðlauna SEX verkefni hafa verið til- nefnd til Nýsköpunarverð- launa forseta Islands sem af- hent verða við hátíðlega at- höfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin eru nú afhent í fjórða skipti, en þau eru veitt fyrir framúrskarandi vinnu nemenda og nýsköpunargildi verkefna, sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna, að því er kemur fram í til- kynningu. Höfundar verkefnanna sex eru: Ai'inbjöm Ólafsson fyrir íshúðun, aðferð sem notuð er til að varðveita ferskleika mat- vara, Aki Guðni Karlsson og Valdimar Tr. Hafstein, fyrir fræðilega handbók um menn- ingartengda ferðaþjónustu, Guðrún Laufey Guðmunds- dóttir, fyrir rannsókn á ís- lenskum tónlistararfi, Harpa Birgisdóttir, fyrir fokgirni og bindieiginleika foksands, Hjalti Már Þórisson, fyrir rannsóknir á samhengi milli arfgerða príongensins og riðusmits í einni riðuhjörð og Laufey Guðnadóttir og Soffía Guðný Guðmundsdóttir, fyrir farandsýninguna handritin heim. Umhverfissamtaka íslands TM hf. og Trygging hf. Hlutabréfa- skiptum lokið HLUTABRÉFASKIPTUM Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Tryggingar hf. er lokið samkvæmt samkomulagi stjórna félaganna um fyrirhugaðan samrana og sam- þykktir hluthafafunda beggja fé- laga í síðasta mánuði því til stað- festingar. I tilkynningu til Verðbréfaþings Islands hf. segir að hluthafar í Tryggingu hafi framselt til Trygg- ingamiðstöðvarinnar hlutabréf sín í Tryggingu samtals að nafnvirði 203.599.696 krónur og fengið í staðinn hlutabréf í Tryggingamið- stöðinni að nafnvirði 50.699.042 krónur. Hlutafé Tryggingamið- stöðvarinnar er nú 233.099.042 krónur. ------------- Tæknival Aðstoðarfram- kvæmdastjóri lætur af störfum GUNNAR Ólafsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Tæknivals hf., hefur ákveðið að láta af störfum hjá félag- inu fyrsta apríl næstkomandi. Gunnar segir tímabært að skipta um starfsvettvang eftir 25 ára starf í upplýsingaiðnaði. Hann sagði enn óráðið hvað tæki við hjá sér. Gunn- ar hóf störf hjá Tæknivali árið 1992 og var forstöðumaður sölusviðs þar til hann tók við stöðu aðstoðarfram- kvæmdastjóra sölusviðs. Hann tók við stöðu aðstoðarframkvæmda- stjóra í ágúst 1998. „Það er ánægju- legt að láta af störfum nú eftir að hafa átt þátt í vexti og viðgangi fé- lagsins undanfarin ár.“ Stofnfundur nýrra landssamtaka um umhverfismál og náttúruvernd verður haldinn í Norræna húsinu á morgun, fimmtudaginn 21. janúar kl. 17.00. Samtökunum er ætlað að vera heildarsamtök einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja sem áhuga hafa á umhverfismálum. Á fundinum verða helstu markmið samtakanna kynnt og þau stefnumál sem þau munu beita sér fyrir. Ávörp flytja Vigdís Finnbogadóttir fv. forseti Islands og Steingrímur Hermannsson fv. forsætisráðherra. Allir áhugamenn um umhverfismál eru hvattir til að mæta. Undirbúningsnefndin Fjölbreytt úrval gómsætra léttostaí ÍSLENSKIR OSTAR, J - ^SRACP www.ostur.is ostateninga í salutið? Þú getur notað hvort sem er 11% eða 17% Gouda til að búa til salat sem er fullkomin, létt máltíð. Einnigfæst sérstakur Salatostur tilbúinn í litlum teningum. LéttOstur Hreinn, með grænmeti eða með sjávarréttum. Frábært tríó á léttu nótunum. Smurostamir eru þægilegt, bragðgott álegg og líka spennandi í ofnrétti og sósur, t.d. meðfiski, pasta eða grænmeti. Kotasæla með eplutn og vanillu. Fitulítil og freistandi! LéttOstur í 20 g pakkningum. Handhægur og fitulítill. Kotasæla Lágt fituinnihald ogfáar hitaeiningar! Hrein, með ananaskurli eða með eplum og vanillu. Sígild á brauð, hrökkbrauð og kex, í salöt cða ofnrétti. Létt-Brie Sannkallaður veisluostur. Léttur og góður með brauði, kexi ogferskum ávöxtum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.