Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 43
FRETTIR
Urskurðurinn tak-
markar mjög- mögu-
leika stofnunarinnar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
afrit eftirfarandi bréfs frá Gústavi
Arnar forstöðumanni Póst- og fjar-
skiptastofnunar til Guðmundar
Bjömssonar, forstjóra Landssíma
Islands hf.:
„Vísað er til bréfs yðar dagsett
15. janúar 1999 sem stflað var á
undirritaðan með afriti til sam-
gönguráðuneytisins en dreift var
samtímis til fjölmiðla.
Landssími íslands hf. segist
telja það afar óeðlilegt að lægra
sett stjórnvald sendi frá sér frétta-
tilkynningu og lýsi yfir vonbrigð-
um með úrskurð sérstaklega lög-
skipaðs hlutlauss úrskurðaraðila.
Póst- og fjarskiptastofnun er þess-
ari skoðun mjög ósammála, um-
ræddur úrskurður takmarkar
mjög möguleika hennar til að
grípa með skjótum hætti inn í mál
þar sem bið á niðurstöðu getur
verið íþyngjandi fyrir málsaðila og
þess vegna eðlilegt að stofnunin
gerði opinberlega grein fyrir af-
stöðu sinni til áhrifa úrskurðarins
hvað þetta snertir.
I öðru lagi segir í bréfi yðar að
Landssíminn harmi fréttatilkynn-
ingu Póst- og fjarskiptastofnunar
og telji að í henni felist óeðlileg af-
staða til þess ágreiningsefnis sem
enn hefur ekki hlotið efnismeðferð
hjá stofnuninni. Þessu hafnar Póst-
og fjarskiptastofnun alfarið enda
kemur greinilega fram í fréttatil-
kynningunni að það sé sú niður-
staða úrskurðarnefndar að stofnun-
in hafi ekki lagaheimild til bráða-
birgðaákvarðana sem takmarki
möguleika stofnuninnar að tryggja
jafnræði milli samkeppnisaðila og
möguleika notenda. Hvergi er í
fréttatilkynningunni minnst á efnis-
leg atriði í kæru Tals hf.
Bréfi þessu verður dreift með
sama hætti og bréfi yðar.“
Stofnfundur Umhverfis-
samtaka Islands
NÝ LANDSSAMTÖK um umhverf-
ismál og náttúruvernd verða stofn-
uð fimmtudaginn 21. janúar. Stofn-
fundurinn fer fram í Norræna hús-
inu og hefst kl. 17 og er öllum opinn.
„Þessum nýju landssamtökum er
ætlað það hlutverk að sameina alla
þá, bæði einstaklinga, félög og fyrir-
tæki, sem vilja vinna að framförum í
umhverfismálum og vernda þau lífs-
gæði sem felast í náttúru íslands.
Þau vilja jafnframt vera málsvari
þeirrar stefnu að auðlindir til lands
og sjávar verði ætíð nýttar með
sjátfbærum hætti og vinna að end-
urheimt landgæða. Stefna þeirra er
að hið ósnorta hálendi landsins
verði sem minnst skert á ókomnum
árum.
Þá vilja hin nýju samtök verða
vettvangur annarra umhverfis- og
náttúruverndarsamtaka til átaka og
samvinnu um brýn umhverfisverk-
efni og taka þátt í mótun umhverfis-
stefnu sem samrýmist ofangreind-
um markmiðum.
Landeyðing á Islandi er meiri en
hjá öðrum vestrænum þjóðum og
gera þarf öflugt átak til þess að
draga úr losun skaðlegra gróður-
húsalofttegunda. Brýnt er að úr
verði hér bætt sem fyrst,“ segir í
fréttatilkynningu frá fundarboð-
endum.
A stofnfundinum í Norræna hús-
inu munu Vigdís Finnbogadóttir
fyrrverandi forseti íslands og
Steingrímur Hermannsson fyri-ver-
andi forsætisráðherra flytja ávörp.
Þau hafa unnið að undirbúningi að
stofnun samtakanna ásamt ýmsum
öðrum, m.a. Gunnari G. Schram
prófessor, Júlíusi Sólnes fyirver-
andi umhverfisráðherra og Óskari
Magnússyni stjórnarformanni
Baugs hf.
Viðbótarlífeyris-
sparnaður ríkis-
starfsmanna
í BRÉFI fjármálaráðuneytisins til
starfsmanna ríkisins og ríkisstofn-
ana um frjálsan viðbótarlífeyris-
spai-nað, dags. 10. desember sl., var
starfsmönnum gefínn frestur til 15.
janúar 1998 til að gera upp hug sinn
og tilgreina launagreiðanda um
vörsluaðila sparnaðarins, hygðust
þeir vera með frá upphafi.
Þar sem í ljós hefur komið að
margir rfldsstarfsmenn sem áhuga
höfðu á að taka þátt í lífeyrisspam-
aði gátu ekki gengið frá samningn-
um við vörsluaðila íyrir 15. janúar
hefur fjármálaráðuneytið ákveðið að
lífeyrissparnaður þeirra sem ekki
hafa tilgreint hvert hann skuli inn-
lagður verði varðveittur á biðreikn-
ingi til 1. mars nk. Þannig gefst við-
komandi einstaklingum frestur til
15. febrúar 1999 til þess að ákveða
hvert spamaðurinn á að renna.
Mánaðarlegir
símreikningar
frá Lands-
símanum
FRÁ og með komandi mánaðamót-
um verða símreikningar Landssím-
ans í almenna símakerfinu gefnir út
mánaðarlega en þeir hafa verið
gefnir út á þriggja mánaða fresti.
Símreikningar í farsímakerfunum
hafa verið gefnir út mánaðarlega
frá 1. júlí á síðasta ári.
„Þessi nýbreytni er ætluð til að
veita viðskiptavinum Símans meiri
og tíðari upplýsingar um símnotkun-
ina og gera þeim kleift að grípa fyrr
en ella inn í, telji þeir að símakostn-
aðurinn sé að fara úr böndunum. Þá
er augljóst hagræði af því að dreifa
símakostnaði þannig jafnar yfir ár-
ið,“ segir í frétt frá Landssímanum.
Með reikningum sem sendir
verða út um mánaðamótin, verða
innheimt afnotagjöld fyrir febrúar-
mánuð. Gjald fyrir skrefanotkun
verður innheimt íyrir einn mánuð
(desember) hjá sumum símnotend-
um, fyrir tvo mánuði (nóvember og
desember) hjá sumum og hjá þriðja
hópnum fyrir þrjá mánuði (október
til desember), eftir því hvenær fólk
fékk símreikning síðast.
I framtíðinni verður með hverjum
símreikningi innheimt afnotagjald
fyrir einn mánuð fram í tímann og
notkunargjöld fyrir mánuðinn áður
en reikningagerðin fer fram. Þannig
verður með símreikningunum, sem
dagsettir verða 1. marz nk., inn-
heimt afnotagjald fyrir marz og
notkun fyrir janúar, svo dæmi sé
nefnt.
Kjördæma-
félag stofnað
í Reykjavík
STOFNFUNDUR Vinstrihreyfing-
arinnar græns framboðs í Reykja-
víkurkjördæmi verður haldinn í sal
iðnaðarmanna við Hallveigarstíg í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30.
Á undanförnum dögum hafa verið
stofnuð félög í þremur kjördæmum
og er stefnt að því að félög hafi ver-
ið stofnuð í öllum kjördæmum
landsins fyi-ir stofnfund samtak-
anna, sem haldinn verður 5. og 6.
febrúar n.k.
mm
SAMNINGURINN handsalaður af Hreggviði Jónssyni, forsljóra íslenska útvarpsfélagsins, Halldóri Guð-
myndssyni, forstjóra Hvíta hússins, og Bergsveini Sampsted, markaðssljóra Eurocard.
SIGURÐUR Ólafsson verðlaunahafi og Steinn Logi Björnsson,
stjórnarformaður SAF, með verðlaunamerkið á milli si'n.
Urslit tilkynnt í sam-
keppni um merki SAF
NÝSTOFNUÐ samtök ferða-
þjónustunnar (SAF) hefur látið
hanna einkennsimerki sitt.
Efnt var til samkeppni um
merkið meðal nemenda í graf-
ískri hönnun í Mynd- og hand-
íðaskóla íslands. Átján nem-
endur tóku þátt í samkeppn-
inni undir handleiðslu Guð-
mundar Odds Magnússonar
deildarstjóra og sendu þeir
samtals inn 35 tillögur. Stjórn
Samtaka um ferðaþjónustu
mat tillögurnar og komu
margar þeirra til álita.
Niðurstaða stjórnarinnar
var sú að velja hönnun Sigurð-
ar Ólafssonar. f merki lians er
vísað til ýmissa þátta sem ein-
kenna náttúru og þjóðhætti á
Islandi og má lesa það á
marga vegu. Fyrirtæki sem
eiga aðild að Samtökum
ferðaþjónustunnar munu m.a.
nota merkið til staðfestingar
á því að um viðurkennda
ferðaþjónustu sé að ræða á
þeirra vegum.
Sigurður Ólafsson hlaut í
verðlaun flugmiða fyrir tvo
að eigin vali með Flugleiðum.
Önnur verðlaun halut Jón
Örn Þorsteinsson, tvo farseðla
með Islandsflugi til Akur-
eyrar, tvær nætur á Foss-
hóteli KEA á Akureyri og
bílaleigubíl frá bflaleigunni
Geysi í tvo sólarhringa. Þriðju
verðlaunin hlaut Erling Ingi
Sævarsson, kvöldverð fyrir
tvo í Perlunni.
Samtök ferðaþjónustunnar
eru fyrstu heildarsamtök fyr-
irtækja í ferðaþjónustu á fs-
landi. Megintilgangurinn með
stofnun samtakanna er að
ferðaþjónustan komi fram sem
ein heild í sínum hagsmuna-
málum og að SAF verði
málsvari al vinnugreinarinnar
í öllum málum sem snerta fyr-
irtæki í ferðaþjónustu.
Kosta út-
sendingar á
hnefaleikum
ÍSLENSKA útvarpsfélagið Sýn,
Eurocard Atlas og Hvíta húsið
hafa gert með sér samning um
kostun á útsendingum frá hnefa-
leikum.
Samingurinn gildir frá 14. jan-
úar 1999 til 31. desember 1999
og felur í sér að Eurocard Atlas
kostar allar beinar útsendingar
frá hnefaleikum á Sýn.
Á næstu vikum og mánuðum
koma margir heimsfrægir hnefa-
leikakappar við sögu í beinum út-
sendingum á Sýn.
---------------
LEIÐRÉTT
Er í Neskaupstað
Ranghermt var í blaðinu í gær að
Björn Magnússon læknir staifaði á
Reykjalundi. Hið rétta er að hann
er læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu
í Neskaupstað og er beðist velvirð-
ingar á þessu.
Rannsóknanefnd flugslysa
I frétt í Morgunblaðinu í gær á
bls. 2 þar sem greint var frá niður-
stöðum í rannsókn á flugslysinu í
Hornafirði í byrjun ágúst á liðnu
ári, var Skúli Jón Sigurðarson rang-
lega sagður framkvæmdastjóri
slysarannsóknadeildar Flugmála-
stjómar. Hið rétta er, að Skúli Jón
er formaður Rannsóknanefndar
flugslysa, sem er sjálfstæð nefnd og
ekki innan vébanda Flugmála-
stjómar. Beðist er velvirðingar á
þessari ónákvæmni.
Röng mynd
Þau mistök urðu við birtingu
fréttar um aukin umsvif hjá Fisk-
markaði Tálknafjarðar í gær,
þriðjudag, að röng mynd birtist
með fréttinni. Myndin sem henni
fylgdi er frá Neskaupstað. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Myndakvöld
Ferðafélagsins
FYRSTA myndakvöld ársins verð-
ur í kvöld, miðvikudagskvöldið 20.
janúar, í Ferðafélagssalnum að
Mörkinni 6 og hefst það kl. 20.30.
Ólafur Sigurgeirsson sýnir úr
nokkrum góðum ferðum sl. árs.
Þær eru þorraferð að Höfðabrekku,
dagsferðir t.d. um Síldarmannagöt-
ur og velheppnaðar sumarleyfis-
ferðir til Færeyja í júní og Norður-
landsferð er farin var í lok júlímán-
aðar. I Norðurlandsferðinni var
m.a. farið fyrir Vatnsnes og Skaga,
um Siglufjarðarskarð, siglt í Drang-
ey og ekið um Kjöl.
Þorraferð í Borgarfjörð 30.-31.
janúar með þorrablóti og gistingu
að Hótel Reykholti verður kynnt,
einnig þorraganga nk. laugardags-
kvöld, 23. janúar, frá Mörkinni 6 í
Perluna með þorrablóti þar. Kaffi-
veitingar í hléi.
Opið hús hjá
Nýrri dögun
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, verður með opið hús
fimmtudaginn 21. janúar kl. 20-22 í
Safnaðarheimili Háteigskirkju.