Morgunblaðið - 20.01.1999, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
NOUR fyrir rétti í gær.
ABARGIL, ungfrú heirnur.
Meintur nauðgari
neitar ásökunum
ungfrúar heims
Ramle. Reuters.
ÍSRAELINN Shlomo Nour neit-
aði því harðlega fyrir rétti í
Ramle í ísrael í gær að hafa
nauðgað hinni nítján ára gömlu
Linor Abargil, sem valin var ung-
frú heimur í nóvember á síðasta
ári. Var Nour engu að síður úr-
skurðaður í gæsluvarðhald fram
til 31. janúar meðan lögreglan
rannsakar þær staðhæflngar ung-
frúar heims að Nour hafí nauðgað
henni í nágrenni Mílanó-borgar á
Ítalíu sjötta október síðastliðinn.
Nour, sem er fjörutíu og
þriggja ára, var handtekinn við
komuna til_ Israels fyrr í þessum
mánuði. „Eg gerði ekki þennan
ljóta hlut,“ sagði Nour í gær áður
en hann gekk á fund dómara. „Eg
gerði ekki þennan viðurstyggi-
lega hlut og ég er saklaus af þess-
um ásökunum.“
Abai-gil heldur því fram að No-
ur hafí boðist til að keyra sig út á
flugvöll í Róm, þar sem Abargil
ætlaði að ná flugi heim til Israels,
en síðan brugðið upp hnífi og
neytt hana til samræðis í bílnum.
Nour segir þau Abargil hins vegar
hafa haft kynmök í íbúð hans í
Róm og að það hafí gerst með
fullu samþykki hennar.
Abargil, sem er námsmaður,
vann titilinn ungfrú heimur sjö
vikum eftir meinta nauðgun, í
keppni sem fram fór á Seychell-
eyjum. Munu skipuleggjendur
keppninnar enga hugmynd hafa
haft um raunir hennar svo
skömmu áður. Sagðist ungfrú
heimur í síðustu viku vonast til
þess að mál sitt gæti orðið öðrum
konum, sem lent hefðu í svipuð-
um raunum, hvatning til að leita
réttar síns, jafnvel þótt það gæti
kostað opinber málaferli.
Reuters
Endurfædd-
ur forseti?
ÞESSI tæplega tveggja ára snáði,
Sampath Wijebahu að nafni, er
samkvæmt frásögnum dagblaða á
Sri Lanka endurfæddur
Ranasinghe Premadasa, fyrrver-
andi forseti eyríkisins sem var
myrtur. Sampath litli vakti að
sögn athygli foreldra sinna fyrir
skömmu ineð því að taka upp á
hlutum sem minntu á líf Prema-
dasas. Hann er sagður vakna kl.
þrjú að nóttu til að fylgjast með
bænahaldi, rétt eins og hinn látni
forseti gerði, og ennfremur
benda á mynt sem á er slegin
mynd Premadasas og segja:
„Þetta er ég“.
Færeyingar hafna
tillögu um herskyldu
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYINGAR ættu í framtíðinni
að taka upp svipað varnarsamstarf
og íslendingar að mati Annfínns
Kallsbergs lögmanns. Hann hefur
ásamt Högna Hoydal, varalög-
manni, lýst yfír harðri andstöðu við
tillögur Dana um að Færeyingar og
Grænlendingar verði skyldaðir til
að sinna herskyldu í Danmörku.
Þess í stað leggja þeir til að Fær-
eyjar, líkt og Island, taki þátt í al-
þjóðlegu varnarsamstai-fí án þess
þó að taka upp almenna herskyldu.
„Ég er sjálfur þeiiTai’ skoðunar
að Færeyingar eigi að taka þátt í
milliríkjasamstarfi á sviði varnar-
mála án þess að Færeyingar þurfí
að gegna herskyldu. Það gengur á
íslandi og ég get því ekki séð að það
sé ekki framkvæmanlegt á Færeyj-
um,“ segir Kallsberg.
Danir hafa hins vegar nýlega lagt
til að Færeyingar jafnt sem Græn-
lendingar verði skyldaðir til að
sinna herskyldu líkt og aðrir dansk-
ir ríkisborgarar, en sú hefur ekki
verið raunin til þessa, þó svo að
varnir Dana nái einnig til Græn-
lands og Færeyja. Eni rökin þau að
áður hafí verið litið á Grænland og
Færeyjar sem hálfgerðar hjáleigur.
Nú séu hins vegar öll svæði danska
ríkisins jafnrétthá og því beri öllum
ríkisborgurum að taka þátt í vörn-
um ríkisins.
Kallsberg segir að Danir geti
ekki þvingað herskyldu upp á
Færeyinga án þess að hafa við þá
samráð fyrst. Hann tekur fram að
það sé færeyska lögþingið er hafí
löggjafarvald á Færeyjum og mjög
ólíklegt sé að það ákveði að taka
upp herskyldu.
„Það hefur ekki verið meirihluti
á lögþinginu fyrir herskyldu til
þessa og ég tel ekki líklegt að það
eigi eftir að breytast. Mér dettur
ekki í hug að þvinga færeysk ung-
menni til starfa í Danaher. Oski
ungir Færeyingar eftir því að
starfa í hernum er ekkert sem
kemur í veg fyrir það. Þeir gera
það þá hins vegar af fúsum og
frjálsum vilja án nokkurrar þving-
unar.“
Grænlendingar hlynntir
tillögunni
Högni Hoydal, sem er í forystu
undirbúnings fyi'ir færeyska sjálf-
stjóm, er sömu skoðunar og bendir
líkt og Kallsberg á ísland sem
dæmi um sjálfstætt ríki þar sem
herskylda er ekki í gildi.
Hann telur hugmyndir Dana vera
hálfgert grín. „Það er út í hött að
ræða um færeyska herskyldu nú
þegar við erum að leggja drög að
sjálfstjórn. Og þau rök að við séum
ekki lengur hjáleiga líkjast því að
þeir líti nú á okkur sem fullorðna og
því séum við orðnir nógu stórir til
að taka okkur byssu í hönd,“ segir
Hoydal.
Hann minnir jafnframt á að í síð-
ari heimsstyrjöldinni hafí Bretar
hernumið Færeyjar til að koma í
veg fyrir innrás Þjóðverja. Spyr
Hoydal hvers vegna Danir hafi ekki
varið Færeyjar á þeim tíma í stað
þess að láta Breta hernema eyjarn-
ar. Þá hafí það aldrei verið hluti af
færeyskri menningu að sinna her-
störfum.
Afstaða Færeyinga er því ólík af-
stöðu Grænlendinga. Jonathan
Motzfeld, formaður gi'ænlenska
landsþingsins, hefur lýst því yfír að
hann telji þetta vera góða hugmynd
hjá Dönum. „Það er í samræmi við
mína afstöðu að við látum danska
hernum vinnuafl í té,“ sagði Motz-
feldt í Danmörku.
vý fW/
- V .y/ .■«- "
'éM* 'Aééh
Reuters
Tillaga um að flýta því að evrur komi í umferð
Klofin afstaða EMU-ríkja
Brussel. Reuters, The Daily Telegraph.
AFSTAÐA fjármálaráðherra hinna
ellefu þátttökuríkja Efnahags- og
myntbandalags Evrópu (EMU) til
þess hvort rétt væri að flýta því að
seðlar og mynt í evrum, hinum nýja
sameiginlega gjaldmiðli, fari í um-
ferð, reyndist klofín á fundi fjár-
málaráðherra Evrópusambandsins
(ESB) í Brussel á mánudag.
Nokkur ríki, með Belgíu fremsta
í flokki, lögðu til að millibilsástand-
ið eftir að nýja myntin tók gildi nú
um áramótin og þangað til evru-
seðlar- og mynt koma í vasa al-
mennra borgara EMU-ríkjanna
yrði stytt úr þeim þremur árum
sem gildandi áætlun um fram-
kvæmd myntbandalagsins gerir
ráð fyrir. Tefldu ráðherrar þessara
ríkja fram þeim rökum fyrir stytt-
ingunni, að æskilegast væri að al-
menningur fengi sem fyrst tæki-
færi til að fá hinn nýja gjaldmiðil í
hendurnar.
En ráðamenn annarra þátttöku-
þjóða - þ.á.m. Þjóðverja og Frakka
- vöruðu við því að hreyfa við tímaá-
ætluninni þegar þetta stóra verk-
efni er komið eins langt í fram-
kvæmd og raun ber vitni. Slíkt
myndi skapa óvissu sem setti áætl-
anir fjármálastofnana, fyrirtækja
og ríkisstjórna úr skorðum. Allir
þessir aðilar reiknuðu með því að
þeir 30 milljarðar seðla og 50 millj-
arðar myntpeninga í hinum nýja
gjaldmiðli kæmu ekki í umferð fyrr
en 1. janúar árið 2002.
Kannað hvort hyggilegt sé að
færa dagsetninguna fram
Sem málamiðlun urðu fjármála-
ráðherramir ásáttir um að fela fram-
kvæmdastjórninni að gera könnun á
því hvort hagstætt gæti verið að
fíýta því um nokkra mánuði að setja
nýju peningana í umferð, þ.e. fram á
árið 2001.
Yves Thibault de Silguy, sem fer
m.a. með málefni myntbandalagsins
í framkvæmdastjóminni, sagði enga
lagalega ástæðu fyrir að færa
dagsentinguna fram. En hann lagði
áherzlu á að ákvörðun um breytta
dagsetningu yrði að taka með sam-
hljóða samþykki allra aðildarríkj-
anna, sem augljóslega væri ekki fyi'-
ir hendi eins og er.
Frestun af-
töku aftur-
kölluð
Manila. Reuters.
HÆSTIRÉTTUR Filippseyja
ómerkti í gær þá ákvörðun sína
frá því fyrir nokkrum dögum,
að fresta skyldi aftöku manns,
sem dæmdur hafði verið til
dauða fyrir að nauðga stjúp-
dóttur sinni. Var það gert eftir
að neðri deild þingsins hafði
samþykkt með miklum meiri-
hluta að viðhalda dauðarefs-
ingu í landinu.
Joseph Estrada, forseti Fil-
ippseyja, fagnaði ákvörðun
hæstaréttar en 4. janúar sl.
frestaði hann aftöku hins
dauðadæmda á síðustu stundu
þar til þingið tæki afstöðu til
þess hvort afnema ætti dauða-
refsingar.
Dularfullt
myndverk í
óbyggðum
Astralíu
RISAVAXIN mynd af nöktum
frumbyggja er ráðgáta sem
Astralar hafa reynt að ráða svo
mánuðum skiptir. Myndin
mælist 4 kílómetrar að lengd og
greinist á gervihnattamyndum,
eins og vel sést á myndinni. Nú
hafa fyrstu vísbendingarnar
komið fram um tilgang myndar-
innar og höfunda hennar.
Myndin uppgötvaðist á síðasta
ári í óbyggðum Astralíu og er
mönnum hulin ráðgáta hvernig
hún var unnin. Stærð hennar
gefur til kynna að notast hafi
verið við stórvirk tæki og gervi-
hnattamiðunarbúnað, en útlínur
myndarinnar eru ristar í jarð-
veginn. Talið er að hálfan annan
mánuð hafi þurft til þess að
ljúka verkinu.
Frumbyggjar á staðnum álíta
myndina vanhelgun við land sitt,
en þangað sækja þeir andlegan
kraft. Myndin er talin sýna nak-
inn veiðimann úr hópi frum-
byggja með spjót í hendi. I gær
barst hins vegar vísbending frá
ónafngreinduin aðilum sem lýsa
ábyrgð á verkinu á hendur sér.
Segjast þeir munu gefa út röð
vísbendinga á komandi vikum
og verði þær að finna við frægar
kalkmyndir vítt og breitt um
Bretland. Þetta kom fram á
skildi sem fannst við nef frum-
byggjamyndarinnar í Astralíu
og einnig barst. blaðamönnum
símbréf með samhijóða upplýs-
ingum. Sagði þar að fyrsta vís-
bendingin hefði veri grafin í inn-
sigluðum umbúðum nærri kalk-
myndinni „Cerne-risanum“ ná-
lægt Dorset, í Bretlandi og
tengdist spurningunni „Hver?“.
Talið er að átt sé við spurning-
una „Hver var að verki?“.
Lögreglan í Bretlandi og
Astralíu bíður nú spennt eftir að
nákvæm staðsetning vísbending-
arinnar verði gefin upp, en það
verður að sögn huldumannanna
gert 24. janúar.