Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ _i J j_Í _J _Í j J^ — -J-J PNUNARTILBOÐ 10 - 50% afsláttur af vörum | .. . -V- • — Frábær tilboð á brúguefnum, rauðum, hvitum og rósa. Byrjunarsett með öllu sem þart tíl víngerðar kr. 2.990 Sólarhrings víngerðarefni, hvít og rauð, (er tilbúið á 24 tímum) Vlkuvín í rauðu, hvitu og ýmsum ávaxtaútfærslum. Nýr þjónustusími : 533 10 20 Amunnar Nóatúni og Faxafeni hafa verið fluttar í SKEIFUNA 11D (milli Griffils og Kentucky Fried) Ekkjan, presturmn og kvikmyndastjórinn SJONVARP Stöð 2 Fornbókabúðin 3-4 Eftir Guðmund Ólafsson og Jóhann Sigurðarson. Leikstjóri: Jóhann Sig- urðarson. Leikendur: Guðmundur Ólafsson, Ingvar E. Sigurðsson, Hjálmar Hjálmarsson, Edda Heiðrún Backman, Bessi Bjarnason, Magnús Ragnarsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Steinn Ármann Magnússon, Þórhallur Sigurðsson. Engu er líkara en Sjónvarpið og Stöð 2 hafi samráð sín á milli um niðurröðun í dagskrá; það er a.m.k. þægileg tilviljun að á sama tíma og frumsýndir eru fjórir þættir Fom- bókabúðarinnar skuli Sjónvarpið dunda sér við endursýningar á 12 ára gamalli ofleiksseríu úr safni sínu. Olíku er þó saman að jafna að öðru leyti, að Fombókabúðinni slepptri verður líklega fátt um frumsýningar á leiknu íslensku efni á Stöð 2, en Sjónvarpið lumar enn á einum tveimur(?) nýjum Sunnu- dagsleikhússeríum sem frumsýndar verða íyrir vorið. Efnislega féllu tveir seinni þættir Fornbókabúðarinnar vel að efni líðandi stundar. Hin fyrri passaði ágætlega við tíðarfarið; Björn, Rögnvaldur og Ester veðurteppt í búðinni undir kvöld þegar inn snjó- ar nýríkri ekkjufrú sem fokið hefur úr jarðarfor eiginmannsins og stuttu síðar fjúka inn á gólf búðar- innar presturinn og bflstjórinn Daníel ásamt eiginmanninum heitn- um í kistunni. Gegnumgangandi brandari var nafnleysi umhvei-fís- ráðherrans, hóflega fyndinn. Ein- hvern veginn náði þessi þáttur þó ekki að lifna og líkið í kistunni á miðju gólfí varð óvart táknrænt fyr- ir þáttinn. Viðleitnin var þó sannar- lega fyrir hendi þótt „gestir" þátt- arins, presturinn og ekkjufrúin, væm ekki sériega spennandi í sjálfu sér. Skemmtilegastir voru heima- menn, Björn, Rögnvaldur, Ester og Daníel; ekki vegna þess að þau hefðu fleiri brandara eða fyndnari á takteinum, heldur bara vegna þess að karakteramir era heilsteyptari, tengslin á milli þeirra skýrari og leikurinn afslappaðri. Staða „gesta- leikaranna" í þessu samhengi er viðsjárverð, þeim er ætlað að skapa kómedíuna og happdrætti hvernig til tekst. Þröstur Leó Gunnarsson og Elva Ósk Ólafsdóttir gerðu hvorki meira né minna en við var að búast; drykkfelldur og siðlaus prestur er ekki beinlínis nýjung í gamansömu samhengi fremur en léttúðug og glaðvær ekkja. Ekki fór á milli máia að þarna voru tvö slík eintök á ferðinni. Fyndnasta per- sóna þáttarins yar eiginkonan Brynhildur sem heima situr og Bjöm hefur skiljanlega vemlegar áhyggjur af. Það væra slæm mistök að láta hana birtast í einhverjum síðari þátta. Besta tímasetning fjórða þáttar- ins var að hann skyldi birtast beint í kjölfarið á úthlutun úr Kvikmynda- sjóði. Gesturinn að þessu sinni, hinn misskildi og vanmetni Brjánn Bryn- leifsson kvikmyndaleikstjóri, fékk höfnun í þrettánda sinn þrátt fyrir stórkostlegt handrit að Brennu- Njálssögu. „Minn tími mun koma“ er lífsmottó hans sem hann hrópar upp í vindinn þegar á móti blæs. Og hans tími er einmitt núna þegar allt er falt og honum finnst í hæsta máta eðlilegt að selja langbrókina sokkabuxnaframleiðanda og sýru- keraldið Mjólkursamsölunni þótt strangt tekið sé það í annarri sögu og á annarri öld. Honum verður ekki vandara um það úr því að Gunnar og Njáll eru hommar og Skarphéðinn og Þormóður Kolbrún- arskáld eiga ástarsenu á miðju engi. Skemmtilega manískur karakter Brjánn í meðförum Magnúsar Ragnarssonar. Brjánn dettur svo tímabundið í lukkupottinn þegar fyrirgreiðslupólitikusinn Dósóteus lofai- að útvega honum 200 milljónir úr noræna kvikmyndasjóðnum. Það nær þó ekki lengra en loforðið en Brjánn notar tímann vel, skipar í hlutverk og lætur fjölfalda handrit- ið. Heimafólk Fombókabúðarinnar veðrast upp að vonum meðan kvik- myndafárið gengur yfír enda fetar Brjánn ótrauður í fótspor sumra kollega sinna í kvikmyndastétt og ræður eintóma amatöra í lykilhlut- verkin vegna þess einfaldlega að Björn, Daníel, Steingn'mur, Ester og Rögnvaldur hafa allt til að bera sem hlutverkin ki-efjast. Þau eru Njáll, Skarphéðinn, Gunnar, Hall- gerður og Þormóður hoidi klædd. Vel saminn þáttur, með ágætlega heppnaðar kómískar tilvísanir út í raunveruleikann. Vonandi sér Stöð 2 ástæðu til að framleiða/kaupa fleiri þætti af Fombókabúðinni, það er full ástæða til þess. Hávar Sigurjónsson 20. janúar-2. febrúar mkoikmyndir Kostuleg kviki ndi I Iþróttir Fótboltaveisla BÞaettir A Ur flæðarmálinu LEIKIAST Möguleikliúsið HAFRÚN eftir Pétur Eggertz, Völu Þdrsdóttur, Katrínu Þor- valdsdóttur og Kristján Eldjárn. Leikstjórn: Pétur Eggerz. Leikari: Vala Þórsdóttir. Leikmynd og bún- ingar: Katrín Þorvaldsdóttir. Höfundur tónlistar og gítarleikur: Kristján Eldjárn. Lýsing: Ólafur Pét- ur Georgsson. Sérlegur aðstoðar- maður: Bjarni Ingvarsson. Sunnu- dagur 17.janúar. HAFRÚN er leikverk unnið upp úr þremur íslenskum þjóðsögum sem aliar tengjast hafinu á einn eða annan hátt. Hér er um einleik með áherslu á látbragð að ræða og í öllum hlutverkum er Vala Þórs- dóttir. Vala hefur áður sýnt og sannað að einleiksformið hentar henni vel. Hún er örugg á sviðinu, hefur skemmtilega líkamsbeitingu og blæbrigðaríkt andlit og nær auðveldlega til áhorfenda. Vala er efni í mikinn skopleikara og beitti hæfileikum sínum á því sviði vel í þessari sýningu en engu að síður er heildarstfll sýningarinnar ljóðrænn fremur en skoplegur og kemur þar fyrst og fremst til falleg og skemmtilega útfærð leikmynd Katrínar Þorvaldsdóttur. Katrín notfærir sér þema sýn- ingarinnar - hafíð - á útsjónarsam- an máta. Alls konar þang og sjávar- gróður skreytir sviðið og ljær sýn- ingunni bæði fallegt náttúrlegt yf- irbragð auk þess sem sjávarlyktin fyllir vit áhorfenda. Búningar Katrínar eru einnig skemmtilegir, bæði mjúkur, ljósgrár búningur Völu svo og brúnn þanglegur galli Kristjáns Eldjáms gítarleikara sem er skemmtilega fjömlallalegur um leið og hann vísar til leðurgalla nútímarokkara. Þetta er virkilega athyglisverð vinna hjá Katrínu Þorvaldsdóttur. Kristján Eldjárn leikur eigin tónlist undir leik Völu og var sam“leikur“ þeirra tveggja mjög góður. Melódíur Kristjáns eru áheyrilegar og hin ýmsu leikhljóð hans vel útfærð og ómissandi þátt- ur í heildinni. Það er reyndar ein- kenni á allri sýningunni hversu sterkur heildarsvipur hennar er og kemur þar vafalaust til sögunnar góð leikstjóm Péturs Eggertz og náin samvinna allra sem að sýning- unni koma, allt frá byrjun. Hin leikræna framvinda er vel samofin. Hinar þrjár þjóðsögur sem unnið er út frá - „Selshamurinn, Haf- skessan og Sigurður í Skoravík - renna saman í eina frásögn, sem síðan bítur í sporðinn á sér, svo að segja. Möguleikhúsið auglýsir sýning- una fyrir börn frá átta ára aldri og fullorðna. Ýmis atriði sýningarinn- ar kynnu að vekja ótta hjá yngri börnum því hér er hvergi reynt að fegra eða mýkja hinar hrollvekj- andi hliðar þjóðsagnanna. Ætlunin mun vera að ferðast með sýning- una um landið og ég hvet sem flesta foreldra að fara með börn sín á Hafrúnu og nota um leið tækifærið til að kynna börnin fyrir hinum mikla þjóðsagnaarfi sem við íslendingar eigum. Auk þess má geta þess að texti sýningarinnar er skrifaður á því málfari sem fínna má í þjóðsögunum og fyrir koma orð og orðatiltæki sem mörg hver eru að hverfa úr hversdagsmáli bama í dag. Hér er kærkomið tækifæri til að auka orðaforða yngstu kynslóðarinnar til muna. Soffía Auður Birgisdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.