Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 45

Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 45 BRÉF TIL BLAÐSINS Fjölskyldan Yfírlýsing til heimsins V ínartónleikar í Höllinni MORG UNBLAÐINU hefur borist ósk frá Ólafí Einarssyni, Umdæm- isforseta Islandsumdæmisins, Bárði Arna Gunnai’ssyni, greinar- forseta Reykjavíkurgreinar og Sig- urjóni Þorbergssyni, forseta öld- ungasveitar Reykjavíkurdeildar og almannafulltrúa kirkjunnar á ís- landi, þess efnis að það birti eftir- farandi yfírlýsingu frá Kirkju Jesú Krists, hinna síðari daga heilögu, og fer hún hér á eftir: „Æðsta forsætisráðið og ráð postulanna tólf í kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. Við, æðsta forsætisráðið og ráð postulanna tólf í Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu, lýsum því hátíðlega yfir að hjónaband milli karls og konu er vígt af Guði og að fjölskyldan er kjarninn í áætlun skaparans um eilíf örlög barna hans. Allar mannlegar verur _ karlar og konur _ eru skapaðar í mynd Guðs. Hver þeirra er ástkær anda- sonur eða dóttir himneskra for- eldra og sem slík á sérhvert þeirra sér guðlegt eðli og örlög. Kynferði er nauðsynlegur eiginleiki einstak- lingsins, sem einkennir hann og samræmist tilgangi hans í fortil- veru, jarðneskri tilveru og um ei- lífð. I fortilverunni þekktu og tilbáðu andasynir og dætur Guðs hann sem eilífan fóður og samþykktu áætlun hans, en samkvæmt henni gátu börn hans hlotið efnislíkama og öðl- ast jarðneska reynslu til að feta í átt að fullkomnun og að lokum gera að veruleika guðleg örlög sín sem erfíngjar eilífs lífs. Hin guðlega sæluáætlun gerir fjölskylduböndin varanleg handan grafar. Helgiat- hafnir og sáttmálar í heilögum musterum gera einstaklingum mögulegt að komast aftur í návist Guðs og fjölskyldum að sameinast að eilífu. Fyi’sta boðorðið sem Guð gaf Adam og Evu varðaði mögulegt foreldrahlutverk þeirra sem eigin- manns og eiginkonu. Við lýsum því yfir að boðorð Guðs til barna hans um að margfaldast og uppfylla jörðina er enn í gildi. Við lýsum því jafnframt yfir að Guð hefur boðið að hinn helgi sköpunarkraftur skuli aðeins notaður milli karls og konu í löglega vígðu hjónabandi. Við lýsum Því yfir að leiðin til sköpunar jarðlífsins sé guðlega til- nefnd. Við staðfestum helgi lífsins og mikilvægi þess í eilífri áætlun Guðs. Eiginmaður og eiginkona bera þá helgu ábyrgð að elska og annast hvort annað og börn sín. „Synir eru gjöf frá Drottni, ávöxtur móður- kviðarins er umbun“ (Sálm. 127:3). Foreldrar bera þá helgu skyldu að ala börn sín upp í kærleika og rétt- læti, að sjá fyrir líkamlegum og andlegum þörfum þeirra, að kenna þeim að elska hvert annað og þjóna hvert öðru, að virða boðorð Guðs og vera löghlýðnir þegnar, hvar sem þau búa. Eiginmenn og eiginkonur mæður og feður _ verða ábyrg frammi fyrir Guði, ef þau bregðast þessum skyldum. Fjölskyldan er vígð af Guði. Hjónaband milli karls og konu er nauðsynlegt eilífri áætlun hans. Börn eiga rétt á því að fæðast inn- an hjónabandsins, að vera alin upp af föður og móður sem heiðra hjónabandseiða sína af fullkominni tryggð. Hamingju í fjölskyldulífi hljótum við fyrst og fremst þegar við byggjum á kenningum Drottins Jesú Krists. Farsælt hjónaband og fjölskyldulíf byggist og varðveitist á reglum trúar, bænar, iðrunar, fyrirgefningar, virðingar, kærleika, umhyggju, vinnu og heilbrigðrar dægrastyttingar. Samkvæmt guð- legri áætlun eiga feður að sitja í forsæti fjölskyldu sinnar í kærleika og réttlæti og bera þá ábyrgð að sjá henni fyrir nauðsynjum lífsins og vernda hana. Meginábyrgð mæðra er að annast börnin. Við þessa helgu ábyi’gð ber feðrum og mæðr- um skylda til að hjálpa hvort öðru sem jafningjar. Sjúkdómar, andlát eða aðrar aðstæður geta gert per- sónulega aðlögun nauðsynlega. Ættingjar ættu að veita stuðning þegar með þarf. Við vörum við því að þeir sem rjúfa sáttmála skírlífis, sem mis- þyrma maka eða barni, eða sinna ekki ábyrgð sinni gagnvart fjöl- skyldunni, munu síðar men- verða að standa ábyrgir gerða sinna frammi fyrir Guði. Ennfremur vilj- um við vara við því að sundrung fjölskyldunnar mun leiða yfir ein- staklinga, samfélög og þjóðir þær hörmungar sem spámenn fyrr og nú hafa sagt fyrir um. Við biðjum alla ábyrga þegna og opinbera embættismenn alls staðar að efla þá þætti sem ætlaðir eru til að varðveita og styrkja fjölskyld- una sem grundvallareiningu þjóðfé- lagsins. Þessa yfirlýsingu flutti Gordon B. Hinckley forseti sem hluta af boðskap sínum á aðalfundi Líknar- félagsins sem haldinn var 23. sept- ember 1995 í Salt Lake City, Utah.“ ÓLAFUR EINARSSON, BÁRÐUR ÁRNI GUNNARSSON SIGURJÓN ÞORBERGSSON Frá Þresti Ólafssyni: ÞAÐ hefur orðið nokkurt umtal um síðustu Vínartónleika Sinfóníu- hljómsveitar Islands sem haldnir voru í Laugardalshöll 8. og 9. janú- ar sl. Almennt hafa þau viðbrögð sem við höfum fengið verið afai’ jákvæð hvað snertir tónlist, hljómsveit, stjómanda og einsöngvara en mis- jafnari þegar komið er að tónleika- staðnum. Hann þykir ekki hæfa sem viðeigandi umgjörð fyrir Vínartón- leika, hljómburður sé lélegur og þeir sem sitja niðri sjá ekki nógu vel. Nú er þetta ekki í fyrsta sinn sem Laugardalshöll er notuð undir tón- leika. Flestir stórtónleikar Listahá- tíðar hafa verið haldnir þar, síðast kom Ashkenazy þangað með Þýsku Fílharmóníuna í Berlín. Ákvörðun um að flytja Vínartón- leikana úr Háskólabíói í Höllina mun hafa verið tekin um vorið 1998 af þáverandi stjórn. Ástæður þess voru margvíslegar en þessar helst- ar: Aðsóknin á þessa tónleika var svo mikil að síðast þurfti að leika fjór- um sinnum fyrir fullu húsi og dugði tæpast til. Ljóst var að með svipaðri aukningu myndi þurfa fimm til sex tónleika nú. Það hefði nánast verið ógerningur, en stjórn hljómsveitar- innar vildi reyna eins og kostur var að gefa sem flestum tækifæri á að sækja tónleikana. Önnur ástæða var sú að bæta átti dansatriðum við til að gera kvöldið enn eftirminnilegra. Það var ekki gerlegt í Háskólabíói. Það breytir ekki því að Laugar- dalshöll er ekki aðlaðandi tónleika- salur. Mikið vantar á að hljómburð- ur þar geti talist viðunandi. Þetta hefur þó verið það athvarf sem menn hafa hlaupið í þegar tjalda þurfti stóru og þúsundir streymdu að. Reynt var að bæta aðstöðu eins og kostur var, m.a. beitt hágæða tækni til að bæta hljómburðinn í húsinu. Hitt er svo enn annað mál að Vín- artónleikar eru sérstakir. Glæsileiki og hughrif tónlistarinnar eru slík að rétt umhverfi eykur enn frekar á ánægjuna. Það munum við hafa í huga áður en ákveðið verður hvar næstu Vínartónleikar verða haldnir. Við bíðum í ofvæni eftir nýju tón- leikahúsi. ÞRÖSTUR ÓLAFSSON, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitai- Islands. Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu mig cí 90 dra afinœli mínu 1. janúar sl. Guð blessi ykkur öll. Elín Þóra Sigurbjörnsdóttir frá Grímsey. ár námstefnur um nýjungar á sviði starfsmannaþjónustu STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANOS hefur í samstarfi við U.C. Berkeley fengið Craig Cantoni, sem er leiðtopi á sviði þróunar starfsmannamála ifyrir- tækjarekstri í Bandaríkjunum, til að fjalla ítarlega um þetta viðamikla svið á þremur námstefnum. Cantoni hefur margra ára stjórnunarreynslu á þessu sviði, m.a. hjá Micro Age, á þeim timum er fyrirtækið óx ór 700 þusund dala tölvudreifingarfyrirtæki 13 milljarða dollara fjölþætt fyrir- tæki. Einnig hefur hann verið yfir- stjórnandi startsmannamála hjá Greyhound og hjá Mars Incorporated. Cantoni hefur undanfarin ár rekið ráögjafafyrirtæki í Arizona á sviði starfsmannamála, og getið sér orðstír bæði sem eftirsóttur fyrir- lesari á þessu sviði og sem greina- og bókahöfundur. Til hans er leitað á borð v% Motorola, Honeywell! Micro Age og Sequent Computer Systems. Óhætt er að fullyrða að Cantoni hefur verið í hópi áhrifamestu einstaklinga um breytingar á þróun starfsmanna- mála. Allt frá því grein hans í Wall Street Journal um þessi mál árið 1995 vakti marga stjórnendur af værum blundi um þroun starfsmanna- mála, hafa aðrar umræddar hugvekjur fyigt í kjölfarið. Undanfarin 3 ár hefur Cantoni ítrekað verið vatinn sem aðalfyrirlesari á ráðstefnum bandarískra samtaka um starfs- mannastjórnun (SHRM) og sértækari samtaka sem tengjast starfsmanna- málum víða um Bandaríkin. Auk athyglisverðra greina í Wall Street Journai hefur hann verið tíður gestur á síðum sérfræðirita eins og The American Compensation Association Journai, The American Compen- sation News og Compensation and Benefits Review. Fyrir nokkrum árum ritaði hann bókina Corporate Dandelions: How the Weed of Bureaucracy Is Choking American Business and What You Can Do to Uproot It. AÐFERÐIR FYRIRTÆKJA í FORYSTU STARFS- MANNASTJÓRNUNAR Miðvikudagur 3. febrúar Kl. 09:00-13:00 Staður: Hótel Loftleiðir. Fyrir hverja: • Yfirstjórnendur og millistjórn- endur sem þurfa að þekkja til nýjunga og lykilatriða á þessu sviði. • Sérfræðinga á sviði starfs- mannamála sem vilja endur- meta eigin aðferðir. í hnotskurn: Hér er fjallað um svonefndar “Best Practices” á sviöi starfsmannamála. Þekking er eina raunverulega auðlindin í breyttu efnahagsumhverfi. Þeir sem sinna starfsmannamálum glíma við að stjórna þessari auðlind -fólkinu sjálfu. Er skipulag starfsmanna- mála í réttu samhengi við aðra þætti svo auðlindin sé betur nýtt? A 4 klst. verður unnið markvisst að því aö meta verkefni á sviði starfsmannamála og forgangsraða þeim. Sérstök áhersla verður lögð á stefnumótandi stjórnunarhætti, ráðgjafareiginleikana, fjárhagslega greiningu í starfsmannahaldi og viðskiptaþekkingu þeirra sem fjalla um starfsmannamálin. Verkefnið er að auka eiginleika stjórnenda til stefnumótandi ákvarðanatöku á sviði starfsmannamála. • Skoöa starfsmannaþróun í samhengi við stefnumótun fyrir- tækis, fjárhagslega greiningu og daglega stjórnun. • Sjá fyrir breytingar með greiningu á umhverfi og “kúltúr" fyrirtækis. Áhritaþættir á þróun startsmannamála • Aö skilgreina og gangsetja stefnuáætlanir. • Viðskiptahlið starfsmannamálanna. • Að ná stöðugleika á milli stefnumótunar, uppbyggingar, kúltúrs og verklags. • Að samþætta stefnumótun í starfsmannamálum við heildar- stefnu fyrirtækisins. Leiðlogahlutverkið í stjórnun starfsmannamála • Hlutverk starfsmannastjórnunar. •Áhrif áfyrirtæki/stofnun. • Stjórnun breytinga á skipulagi og vinnuferlum. • Eiginleikar og hæfileikar til starfsins. Fjárhags áætlanir og eftirlit • Fjárhagsleg greining fyrir starfs- mannamálefni. • Mælanleg áhrif starfsmannasviðs á fjárhagslega frammistöðu. • Atferlisleg nálgun að fjármálatækjum. • Stjórnun samskipta- og eftirlitstækja. Aukin áhrit á samkeppnishæfni •Greining áfyrirtækisbrag, “kúltúr”. • Greining á virkni aðgerða. • Mat á breytingum m.v. líftíma fyrirtækis. • Ahrif ríkjandi strauma í sveigjanlegu fyrirtæki. • Arangursrík virkjun hópa og net- samstarfs. Þróun ferla í starfsmannamálum • Starfsmannastjórnun sem kerfi. • Að viöhalda tengslum á milli starfsmannakerfis og annarra kerfa. • Hlutverk starfsmannastjóra í breytingum. • Umbreyting á hlutverki starfsmannahaldsins. Stefnuvirk starfsmannastjórnun • Hvort einkennist stjórnun þín af viðbrögðum við áreiti eða því að leiða breytingar? • Að hafa áhrif á fyrirtækisstefnu. • Þróun og framkvæmd áætlana á sviði starfsmannamála. • Umbunarkerfi tengd stefnu. • Mat á áhrifum starfsmannakerfis. NYJUNGAR ASVIÐI STARFSMANNA- STJÓRNUNAR Miðvikudagur. 3. febrúar Kl. 14:00-18:00 Staður: Hótel Loftleiðir. í hnotskurn: Nútímafyrirtæki og stofnanir gera þá kröfu að þeir sem fást við hið víðfeðma svið starfsmannamála skili raunveru- legum virðisauka í starfi sínu. Þetta krefst skarpari sýnar á reksturinn og þvi að byggt sé á samþættu, hagæðastarfsmannakerfi. A 4 klst. gefst þátttakendum tækifæri til að endurmeta og endurhæfa núver- andi aðferðir og öðlast sterkari heildarmynd af þróun starfs- mannamála og mikilvægustu þáttum þeirra I rekstrinum. Þeir fá tækifæri til að sjá skýrar þær að- ferðir sem nú eru notaðar, hugtök og grundvallaráherslur I starfs- mannaþróun. Þeir öðlast aukna færni í að vega og meta eigið framlag til þessara mála. Farið verður yfir hvernig skuli best skilgreina og koma höndum yfir forgangsverkefnin. • Hlutverk starfsmannastjórnunar í nútímarekstri -tími breytinga • Starfsmannamál-hvarerumvið stödd? • Samskiptakerfi starfsmanna • Starfssköpun og endurmat • Endurnýjun starfsmanna og val • Mat á frammistöðu • Umbun og laun • Þjálfun og þróun • Framabrautir og framvindu- áætlanir • Starfsmannamál- samantekið hlutverk og verklegt yfirlit. STJ0RNUN ÞJÁLFUNAR- OG ÞRÓUNARÁÆTLANA STARFSIVIANNA Fimmtudagur. 4. febrúar Kl. 09:00-13:00 Staður: Hótel Loftleiðir. I hnotskurn: Þjálfunar- og þróunar- mál starfsmanna eru í dag talin til kröftugra verkfæra til aukinnar samkeppnishæfni. Þetta svið er að fara í gegnum róttækar breytingar. Þó er það enn þannig að þjálfun þjálfaranna sjálfra leggur enn áherslu á kennslufræði I stað stjórnunar þessa viðamikla verkefnis. Þessi námstefna leggur áherslu á stjórnun þjálfunar- og þróunaráætlana starfsfólks, með pví aö fara yfir það sem best er gert í þessum efnum hjá fyrir- tækjum og stofnunum. Verkefnið er því víötækara en stíf skilgreining þjálfunar. Greindir eru möguleikar sem fólgnir eru í þeirri þjálfun sem starfsfólkið getur öðlast í gegnum starfið sjálft. Fjallað er um tvíþætta krafta í stjórnun þjálfunar- og þróunaráætlana, þörfina fyrir að stjóma þessum þáttum beint og mikilvægi starfsmannatengdrar ráðgjafartil millistjórnenda. Gefin verður greinargóð sýn yfir þennan mikilvæga þátt stjórnunar- hlutverksins. At námstefnunni átt þú að hafa: • Þróaö betri aðferðafræði og aðgerðaáætlun fyrir þjálfun og þróun starfsfólks. • Skilið hvernig er unnt að bæta árangur þessa sviðs stjórnunar - frá því að stjórna afmörkuðum þjálfunarverkefnum til stjórnunar og þróunar á mannauð fyrirtækis- ins. • Betri vissu um það sem þegar er vel gert. • Skýrari sýn á lykilskrefin í farsælli stjórnun þjálfunar- og þróunar- áætlana. • Gert þér betri grein fyrir eigin þróunaráætlun. A Stjórnunarfélag Islands Skráning og nánari upplýsingar í síma 533 4567 og www.stjornun.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.