Morgunblaðið - 27.02.1999, Page 2

Morgunblaðið - 27.02.1999, Page 2
2 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell Fékk örorku- mati breytt úr 7% í 70% 71 ÁRS gömul kona, sem höfðaði mál gegn Sjóvá-Almennum trygg- ingum hf. fyrir að greiða sér bætur byggðar á 7% örorkumati í kjölfar bflslyss í janúar 1995 fékk Héraðs- dóm Reykjavíkur til að fallast á að varanleg örorka sín væri 70% en ekki 7% eins og örorkunefnd, sem starfai' á grundvelli skaðabótalaga, komst að. Konunni voru dæmdar 957 þús- und krónur, en bæturnar sem kon- an fékk upphaflega voru 263 þús- und krónur að meðtalinni bóta- skerðingu vegna aldurs. I dómsniðurstöðu kom fram að útreikningur á bótum skyldi mið- ast við árslaun, að fjárhæð rúm- lega eina milljón króna, en sam- kvæmt 1. mgr. 6. gr. skaðabóta- laga eins og hún var orðuð þegar tjónsatburð bar að höndum, bar að margfalda þá fjárhæð með 7,5 og síðan 70% örorkustigi. Fékkst þá fjárhæðin 5.414.745 krónur, en sú fjárhæð sætti lækkun samkvæmt reglu 1. mgr. 9. gr. skaðabótalaga um 84% vegna aldurs konunnar og eftir lækkunina stóðu 866.359 krónur. Umreiknuð fjárhæð miðað við breytingu á lánskjaravísitölu frá janúar 1995 varð 927.785 krón- ur. Því bar tryggingafélaginu að greiða konunni 927.785 krónur í bætur vegna varanlegrar örorku og 30.000 krónur vegna annars fjártjóns eða samtals 957.785 krónur. í niðurstöðu dómsins kom fram að matsgerð dómkvaddra mats- manna væri mun ítarlegri en mats- gerð örorkunefndar og þótti sýnt að konan hefði orðið að hætta störf- um vegna slyssins. Er slysið átti sér stað var konan 67 ára og töldu hinir dómkvöddu matsmenn að með hliðsjón af atvinnuþátttöku kon- unnar og góðri heilsu hennar væri ekki ástæða til að draga í efa að hún hefði getað náð því markmiði að halda áfram í fullu starfi meðan hún gæti, þ.e. til 70 ára aldurs. Utanríkisráðherra kynnir nýja skýrslu um alþjóðavæðingu Miðað verði við að hægt verði að taka upp evruna í NÝRRI skýrslu um alþjóðavæð- ingu og hugsanlega þróun í efna- hags- og atvinnulífí landsmanna til 2010 er mælt með að peninga- og efnahagsstefnan verði miðuð við að hægt verði að óbreyttu að taka upp evruna á íslandi á árabilinu 2005- 2010. Jafnframt er lagt til að gerð- ar verði ráðstafanir til að unnt verði að taka afstöðu til aðildar ís- lands að ESB á raunhæfum grunni, ekki seinna en á árunum 2005-2010. Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra kynnti skýrsluna á spástefnu um alþjóða- og byggða- þróun á Sauðárkróki í gær. Skýrslan er unnin af Þórði Frið- jónssyni ráðuneytisstjóra, Guð- brandi Sigurðssyni framkvæmda- stjóra ÚA, Kristni F. Árnasyni sendiherra, Páli Sigurjónssyni formanni stjórnar Útflutnings- ráðs, Rannveigu Rist forstjóra ÍSAL, Runólfí Smára Steinþórs- syni frá Háskóla íslands og Sig- urði Einarssyni forstjóra Kaup- þings. í skýrslunni er lagt til að gerðar verði úrbætur á skattalegri stöðu fyrirtækja og einstaklinga sem starfa erlendis, skattalegir hvatar teknir upp vegna þróunar- og markaðsstarfsemi og skattar og gjöld aflögð sem skerða samkeppn- isstöðu innlendra fyrirtækja, s.s. stimpilgjöld á fjármálastarfsemi. Áhersla á uppbyggingu þekkingariðnaðar Halldór lagði á spástefnunni áherslu á uppbyggingu þekkingar- iðnaðar og örvun erlendrar fjár- festingar hér á landi. Sagði hann jafnframt að ýmislegt hefði mistek- ist í byggðamálum, svo að hefja þyrfti á ný markvissa vinnu til að tryggja möguleika fólks til búsetu á landsbyggðinni. I erindi Halldórs kom fram að margt benti til að mannauður yrði stöðugt mikilvægari í samkeppnis- hæfni þjóða og mikilvægt væri fyrir Island að tryggja nýtingu hans. Morgunblaðið/Björn Björnsson HALLDÓR Ásgrímsson fjallaði um alþjóðavæðingu og byggða- þróun á spástefnu á Sauðár- króki í gær. „Eg tel því biýnt að íslensk stjórnvöld geri sitt til að skapa hugvitsfyrirtækjum lífvænleg skil- yrði enda er þróun og uppbygging þekkingariðnaðarins mikilvægur vaxtarbroddur og frjór jarðvegur fyrir hæfa og vel menntaða ein- staklinga," sagði Halldór. Halldór benti á að byggðastefna núverandi ríkisstjórnar tæki mið af uppbyggingu atvinnustarfsemi ut- an höfuðborgarsvæðisins og nefndi nýlegan flutning íbúðalánasjóðs sem dæmi, sem og fyrirhugaða uppbyggingu stóriðju á Austur- landi. Byggðastefnan sem hingað til hefði verið rekin væri þó ekki fullkomin. „Ljóst er að ýmislegt hefur mis- tekist í byggðamálum, svo hefja verður nýja og markvissa sókn til að tryggja möguleika þeirra sem búa utan suðvesturhornsins. Að mínu mati verður það ekki síst í þátttöku í alþjóðasamstarfi sem tækifæri landsbyggðarinnar liggja. Hins vegar þarf að sýna frum- kvæði og kjark til að nýta þau ótal- mörgu tækifæri sem framtíðin býð- ur upp á.“ Hækkun hlutabréfa í Granda GENGI hlutabréfa í Granda hf. hækkaði um 5,5% í kjölfar boðs stjórnar félagsins um að kaupa öll hlutabréf í Árnesi hf. í Þorlákshöfn. Stjórn Ár- ness hefur ákveðið að mæla með því við hluthafa félagsins að þeir gangi að tilboðinu. Grandi á nú þegar rúmlega 50% hlutafjár í Amesi og mið- ast tilboðið við að hlutabréf annarra eigenda verði keypt á genginu 1,3 og greitt verði með reiðufé. Að sögn Brynj- ólfs Bjamasonar, forstjóra Granda, yrði um að ræða sam- tals um 300 milljóna króna greiðslu fyrir bréfin. ■ Félagið verður /19 Þemadagar í Hamraskóla S 1 ÞEMADOGUM í Hamraskóla lauk í gær með því að nemend- ur og kennarar klæddu sig í búninga og skemmtu sér og öðrum með gríni og glensi. Skemmtunin tókst í alla staði vel. Eftir helgina taka nemend- ur og starfslið skólans síðan til við lærdóminn af fullum krafti áný. Grafarvogi Annar Nígeríumaður í gæslu FARIÐ hefur verið fram á gæslu- varðhald yfir Nígeríumanni en hann tengist Nígeríumanni sem lagði falskar ávísanir í banka og er talið að hann hafi ætlað að svíkja út fjármuni og koma úr landi. Héraðs- dómur Reykjavíkur hafði ekki af- greitt málið í gærkvöld. Helgi Magnús Gunnarsson, lög- fræðingur og fulltrúi í efnahags- brotadeild nTdslögreglustjóra, seg- ir að vegna tengsla Nígeríumann- anna hafi í gær verið krafist gæslu- varðhalds í viku yfir þessum síðar- nefnda manni. Starfsmaður íslandsbanka, sem tók við erlendum ávísunum sem Ní- geríumaðurinn lagði inn í bankann og reyndust við nánari athugan vera falsaðar, hefur látið af störfum að eigin ósk. Regla bankans er sú að hann tekur ekki við erlendum ávísunum og var hún brotin. Jón Þórisson, framkvæmdastjóri hjá Islandsbanka, segir að bankinn hafi ekki farið fram á uppsögn við- komandi starfsmanns en hann hafi hætt að eigin ósk þegar mistökin urðu ljós og hafi þegar látið af störfum. Hann segir Islandsbanka ekki taka við erlendum ávísunum nema í undantekningartilvikum og þá beri viðskiptavinurinn ábyrgð á slíkri ávísun þar til sannreynt hef- ur verið að innstæða sé fyrir hendi í hinum erlenda banka. Unnið er enn að rannsókn málsins og sagðist Jón vonast til að öll kurl kæmu sem fyrst til grafar. SllMimiiiIlllylEMfc SIÉi ÁLAUGARDÖGUM Eitt stærsta hagsaiunamál Austurlands MEÐ blaðinu í dag fylgir 8 síðna auglýsingablað frá Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjör- dæmi „Eitt stærsta hags- munamál Austur- lands“. Einar Þór Daníelsson ánægður á Krít / B3 )•••••••••••••••••••••• Sigfús Sigurðsson á ný með Valsmönnum / B1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.