Morgunblaðið - 27.02.1999, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 19
Grandi hf. býðst til að kaupa öll hlutabréf í Árnesi hf. í Þorlákshöfn
Félagið verður rekið í ná-
inni samvinnu við Granda
§TJÓRN Granda hf. hefttr boðist til
að kaupa öll hlutabréf í Árnesi hf. í
Þorlákshöfn og hefur stjórn Arness
ákveðið að mæla með því við hluthafa
félagsins að þeir gangi að tilboðinu.
Grandi á nú þegar rúmlega 50%
hlutafjár í Arnesi og miðast tilboðið
við að hlutabréf annaiTa eigenda
verði keypt á genginu 1,3 og greitt
verði með reiðufé. Að sögn Brynjólfs
Bjarnasonar, forstjóra Granda, yrði
um að ræða samtals um 300 milljóna
króna greiðslu fyrir bréfin.
I kjölfar tilkynningar stjórnarinn-
ar í gær hækkaði gengi hlutabréfa í
Granda um 5,5% og voru í lok dags
5,80 á Verðbréfaþingi Islands. Alls
voru viðskipti með bréf í félaginu
fytir rúmar 15 milljónir á Verðbréfa-
þingi í gær.
Rekstur Árness hefur gengið erf-
iðlega undanfarin ár, en þeir fiski-
stofnar sem félagið hefur byggt af-
komu sína á eru í mikilli lægð. Þar
vegur þyngst mikill aflasamdráttur í
flatfisid, en samanlagðui- landsafli
kvótabundinna flatfisktegunda
minnkaði um 37% á síðasta _ári. I
fréttatilkynningu frá stjórn Árness
segir að stjórninni þyki einsýnt að
félagið þurfi aukinn stuðning til að
takast á við þær breytingar sem
nauðsynlegar séu til að bæta rekstr-
argrundvöll félagsins. Með tilliti til
atvinnulífsins á svæðinu og með
hagsmuni hluthafa í huga hafi
stjórnin leitað efth- því að öflugur að-
ili eignaðist fyrirtækið að mestu eða
öllu leyti og héldi áfram rekstri þess.
Árnes hf. er ekki á Verðbréfaþingi
Islands eða hlutabréfamarkaði, en
Brynjólfur Bjamason sagði í samtali
við Morgunblaðið að í tilboðinu til
hluthafanna hefði verið stuðst við
þær reglur sem þar væm til.
Góð markaðsstaða erlendis
„Við ætlum að bjóða hluthöfunum
að greiða 1,3 fyrh' bréfin, sem er það
sama og við höfum verið að greiða
öðrum sem hafa keypt. Hversu
margir selja getum við ekki sagt um
í dag, en að minnsta kosti erum við
komnir með meirihlutann í fyrirtæk-
inu og gemm við frekar ráð fyrir því
að fólk vilji láta sína hluti. Þá er
þetta viðbótarfjárfesting hjá okkur
upp á um 300 milljónir ki-óna,“ sagði
Brynjólfur.
Hann sagði að það lægi Ijóst fyrir
að styrkja þyrfti fyrirtækið, losa um
eignir og reyna síðan að halda úti
hagkvæmum rekstri. Þá þyrfti að
vona að með tímanum kæmu flatfisk-
stofnarnir upp aftur þannig að rekst-
urinn kæmist í eðlhegt horf.
„Fyrirtækið hefur sérhæft sig í
flatfiski og öðlast mjög góða mark-
aðsstöðu erlendis, bæði í Asíu og
Evi-ópu. Það liggja því verðmæti í
fyrirtækinu, en því aðeins að það
takist að halda utan um flatfiskinn.
Þetta verðm’ rekið áfram sem hluta-
félag, en auðvitað í mjög náinni sam-
vinnu við Granda," sagði Brynjólfur.
í lok janúar síðastliðins keypti
Sölumiðstöð þraðfrystihúsannadótt-
urfyrh'tæki Árness í Hollandi, Ames
Europe, sem aðallega hefur fengist
við sölu á frystum fiski í Hollandi og
víðar í Evrópu. Sagði Brynjólfur að
þessi markaðsskrifstofa yrði rekin
áfram og hún héldi áfram að selja á
Evrópumarkað.
/
Islensku tölvuverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn í gær
Opin kerfi hf. og
Friðrik Skúlason
urðu fyrir valinu
OPIN kerfi hf. og Friðrik Skúla-
son, stofnandi og eigandi sam-
nefnds hugbúnaðarfyrirtækis,
fengu Islensku tölvuverðlaunin
sem veitt voru í fyrsta sinn við
hátíðlega athöfn í gær, Opin
kerfi í flokki fyrirtækja en Frið-
rik í flokki einstaklinga.
Að verðlaununum standa tíma-
ritið Tölvuheimur, fslenska álfé-
lagið hf., Rafiðnaðarsambandið,
Landssamband rafverktaka, Raf-
iðnaðarskólinn og Viðskipta- og
tölvuskólinn. Ætlunin er sú að
þessir aðilar muni árlega heiðra
einstakling og fyrirtæki sem
skara fram úr í íslenska tölvu- og
upplýsingatæknisamfélaginu, og
leggja ríkan skerf af mörkum til
að efla þróun þess. Jafnframt
verða tveimur einstaklingum til
viðbótar og tveimur fyrirtælqum
veittar sérstakar viðurkenningar.
Við athöfnina kom fram að
handhafar verðlaunanna væru
vel að þeim koninir. Opin kerfi
hefðu vakið athygli fyrir glæsi-
legan rekstrarárangur síðustu
ár og að hafa aukið tiltrú fjár-
festa á tölvu- og hugbúnaðar-
geira atvinnulífsins. Þá hefði
fyrirtækið fjárfest mikið í öðrum
fyrirtækjum í greininni og
þannig lagt sitt af mörkum til
uppbyggingar tölvusamfélagsins
hérlendis.
Friðrik Skúlason fékk verð-
launin í einstaklingsflokki vegna
góðs árangurs og hugmynda-
auðgi á hugbúnaðarsviðinu. Bent
var á að hann væri m.a. braut-
ryðjandi í útflutningi á Netinu
hérlendis og hefði komið á mark-
að hinu virta veiruvarnarforriti
F-PROT, sem væri í fremstu röð
á sínu sviði.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ afhendingu Islensku tölvuverðlaunanna í gær. Fremri röð f.v.:
Frosti Sigurjórisson forstjóri Nýherja, Frosti Bergsson forstjóri Op-
inna kerfa, Ólafur Daðason frá Hugviti. Aftari röð f.v.: Guðjón Már
Guðjónsson frá Oz, Friðrik Skúlason og Ragnheiður Benediktsson,
sem tók við viðurkenningu fyrir hönd Odds Benediktssonar.
Auk verðlaunanna voru veittar
sérstakar viðurkenningar og r
einstaklingsflokki voru þeir Guð-
jón Már Guðjónsson, stofnandi
Oz, og Oddur Benediktsson, pró-
fessor og frumkvöðull kennslu í
tölvunarfræði hérlendis, útnefnd-
AðalfLindur
Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn fmuntudaginn
18. mars 1999 í efri þingsölum
Hótels Loftleiða og hefst ld. 14:00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild til félagsstjómar til kaupa á eigin hlutum skv.
55.gr. laganr. 2/1997.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á aðalfundi, skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum íyrir
aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum
fyrir aðalfund.
Stjóm Flugleióa hf
Aðgöngumióar, atkvæðaseðlar og
fundargögn verða afhent í hlutabréfa-
deild Flugleiða á 1. hæð á aðalskrifstofu
félagsins á Reykjavíkurflugvelli dagana
1S. til 17. mars frá kl. 09:00 til 17:00
og fundardag tíl kl. 12:00.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskurferðafélagi
ir. í fyrirtækjaflokknum fengu
viðurkenningar Nýherji hf. og
Hugvit hf.
Um tvö hundruð manna hópur
álitsgjafa var fenginn til að
senda inn tilnefningar og hafði
dómnefndin þær til hliðsjónar við
endanlega ákvörðun. Formaður
dómnefndar var Rannveig Rist,
forstjóri ísal, en auk hennar sátu
fulltrúar allra aðstandenda verð-
launanna í dómnefndinni. Verð-
launagripurinn er hannaður af
myndlistarmanninum Jóni Ósk-
ari.
Hlutabréf í deCode
Rúmlega
90% hækk-
un frá ára-
mótum
GENGI hlutabréfa í móðurfélagi
Islenskrar erfðagreiningar,
deCode, hefur hækkað úr um 10,50
dollurum á hlut í 20 dollara frá ára-
mótum. Hefrn' gengi þein-a því
hækkað um rúm 90% það sem af er
þessu ári.
I morgunkomi Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins í gær kemur
fram að eftirspurnin eftir hluta-
bréfum í deCode, sem ekki er skráð
á almennan hlutabréfamarkað, hafi
verið ótráleg og virðist ekkert lát
vera þar á. Tæpt ár er síðan hluta-
bréf fyrirtækisins voru fyrst seld á
íslenskum markaði á genginu 5
dollara á hlut sem þýðir að hækk-
unin nemur 300% frá fyrstu við-
skiptum með bréf fyrirtækisins.
„Eins og áður hefur komið fram
er verið að vinna að undirbúningi
á skráningu deCode á erlenda
markaði og reiknað með að út-
boðsgengi þar verði á bilinu 12-14
dollarar á hlut. Þar sem ekki er
reiknað með að formleg starfs-
leyfisveiting fyrir rekstri miðlægs
gagnagrunns á heilbrigðissviði
verði veitt fyrir kosningar gæti
það frestað skráningu erlendis
enn frekar. Óvíst er hvort það
hefur einhver áhrif á verð hluta-
bréfanna," að því er fram kemur í
morgunkorni FBA.
----------------
Verðbréfaþing
Héðinn-
smiðja hækk-
ar um 25%
VIÐSKIPTI með hlutabréf á Verð-
bréfaþingi íslands námu 166 millj-
ónum króna í gær. Mest viðskipti
voru með bréf Þormóðs ramma-
Sæbergs fyrir tæpa 21 milljón
króna og hækkaði gengi þeirra um
0,9%. Gengi bréfa í Vinnslustöðinni
hækkaði um 5,36% en rúmlega 20
milljón ki'óna viðskipti voru með
bréf í félaginu.
Mest hækkun var á gengi hluta-
bréfa í Héðni - smiðju eða 25% en
lítil viðskipti voru að baki hækkun-
inni. Gengi bréfa FBA lækkaði
mest í gær eða um 2,78% og endaði
gengi bréfanna í 2,10. Úrvalsvísi-
tala Aðallista hækkaði um 0,96%.
Viðskipti á Verðbréfaþingi námu
alls 956 milljónum króna. Mest við-
skipti voru með húsbréf, um 455
milljónir króna og lækkaði mark-
aðsávöxtun markflokkanna um 5-6
punkta.
Skuldabréf
2. flokkur 1999 á Verðbréfaþingi íslands
Verðbréfaþing íslands hefur ákveðið að taka
skuldabréf Sparisjóðs vélstjóra á skrá.
Bréfin verða skráð 3. mars næstkomandi.
Helstu upplýsingar um 2. flokk 1999:
Nafnverð
Útgáfudagur
Grunnvísitala
Vextir
Lánstími
2.000.000.000
1. febrúar 1999
Vísitala neysluverös í febrúar 1999, 184,8
stig
4,5% fastir vextir
Bréfin í flokknum eru til 25 ára með jöfn-
um árlegum afborgunum vaxta og
höfuðstóls, fyrsta sinn 1. febrúar 2000 og í
síðasta sinn 1. febrúar 2025. Engin upp-
sagnarákvæði eru í bréfunum.
Skráningarlýsingu og önnur gögn, s.s. samþykktir og síðasta
ársreikning er hægt að náigast hjá umsjónaraðila skráningar-
innar, Sparisjóði vélstjóra, Borgartúni 18,105 Reykjavík
n
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA