Morgunblaðið - 27.02.1999, Page 28
28 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Handhægur kostagripur
MIKIÐ hefur verið að gerast á lófa-
og handtölvumarkaði á undanförn-
um misserum. Vöxtm' hefur verið
mikill á þeim markaði, rúm 60% á
síðasta ári, og því spáð að hann eigi
eftir að margfaldast. Tveir fram-
leiðendur hafa verið með yfirburði á
markaðnum, 3Com á lófatölvumark-
aði en Psion með sterka stöðu á
handtölvumarkaði. Ymis teikn eru á
lofti um að það kunni að breytast.
3Com framleiðir lófa-
tölvuna frægu Palm, en
fimmta útgáfa hennar kom
á markað fyrir skemmstu,
og hefur haldið sínum hlut
og vel það, jók markaðs-
hlutdeild sína nokkuð á síð-
asta ári þrátt fyrir harða
hríð tölva af ýmsum toga
sem keyra WindowsCE.
Psion hefur aftur á móti
gengið verr að halda sínu,
enda hefur atgangurinn verið
einna mestur á því sviði, og
þar verið sterkir framleiðend-
ur eins og Sharp og Hewlett-
Packard, sem styrkt hefur
verulega markaðsstöðu sína.
Þeir HP-menn hyggjast og
bæta um betur, kynntu fyrir
skemmstu bráðgagnlega hand-
tölvu, sem reyndar sprengir
formið utan af sér, og hyggja á
lófagerð á næstu mánuðum.
HP hefur náð talsverðum ár-
angri í sölu á ýmiskonar handtölv-
um, þar á meðal handtölvum með
litaskjá og var reyndar meðal
brautryðjenda í þeim efnum. Þegar
Microsoft kynnti fituskerta útgáfu
sína af Windows sem kallast
Windows CE var HP meðal fyrstu
fyrirtækja að kynna vélar sem
keyrðu það stýrikerfi, 620LX-gerð-
ina, og fyrir skemmstu vai- það með
þeim fyrstu sem komu á markað
tölvum sem hannaðar voru fyrir
Jupiter-gerð Windows CE 2.x.
Tölva H3P er með lyklaborði í nánast
fullri stærð, litaskjá og ýmsum
aukabúnaði, rafhlöðu sem dugir í tíu
tíma eða meira. HP kallar sína vél
Jomada, sem er spænska og táknar
ferðaiag, og hefst sala á henni hér á
landi á næstu dögum.
Nýttur dauður tími
Þeir sem þurfa að ferðast mikið
starfs síns vegna taka gjaman með
sér fartölvu og nýta dauðan tíma í
ferðinni, til að mynda þegar beðið
er á flugvelli, setið í flugvél eða að
kvöldi á hóteh, til þess að grípa í
vinnu, lesa tölvupóst, skrifa bréf eða
skýrslur, eða eins og í mínu tilfelli
skrifa greinar. Á síðasta ári fór ég
fimm ferðir til útlanda sem þýddu
að vinnutími sem nemur einni
vinnuviku fór í súginn. Iðulega var
fartölva með í för, en þær áttu það
sameiginlegt að vera þungar og illa
meðfærilegar, utan ein, og rafhlöð-
umar dugðu ekki nema skamma
hríð; ekkert sem hægt var að
treysta á. Psion-handtölva reyndist
betur hvað líftíma varðaði, en hún
hentar illa til skrifa þó hún sé fram-
úrskarandi dagbók, símanúmera-
skrá og góð til að skrifa stutt skila-
Mikið er um að vera í heimi handtölvanna.
Árni Matthíasson kynnti sér nýja vél á
því sviði, HP Jornada, sem hann segir
mikinn kostagrip.
boð eða hugmyndir. Með það að
leiðarljósi er Jornada-tölva HP mik-
ill kostagripur.
Jomada er til í tveimur úgáfum,
820 og 820e (reyndar kemur brátt á
markað lófagerð hennar sem heitir
420). 820-gerðin er sú sem seld er
vestan hafs, en 820e Evrópuútgáfa.
Vélamar eru eins í öllum aðalatrið-
um, en í bandarísku gerðinni er inn-
byggt 56,6 Kbás mótald. í þeirri
evrópsku er aftur á móti íslenskt
lyklaborð sem ekki er til fyrir
bandarísku útgáfuna sem stendur
þó WindowsCE styðji fullkomlega
íslenskt letur. Ég komst fyrst yfir
bandarísku útgáfuna, enda kom hún
einhverjum vikum á undan þeirri
evrópsku á markað, en síðan barst
til landsins kynningareintak af
þeirri evrópsku sem var þegar tekin
til kosta.
190 MHz 32 bita RISC
StrongARM örgjörvi
Jornada 820 er með 190 MHz 32
bita RISC StrongARM örgjörva, 16
MB Burst Mode ROM minni, sem
notandi getur uppfært, og 16 MB
RAM, USB-tengi, VGÁ-tengi fyrir
ytri skjá, mótald ef um bandarísku
útgáfuna er að ræða, PC-Card II
tengi og annað CompactFlash II
tengi. Einnig er 155 Kbás raðtengi
og straumtengi. Rafhlaðan dugir í
um tíu tíma í samfelldri vinnslu, en
um 100 tíma ef vélin er látin standa
óhreyfð, en þá taka við vararafhlöð-
ur, að vísu litlar, og halda í henni líf-
inu nokkum tíma enn. Tölvan er um
24x17,5 lokuð, en skjárinn er 21 sm
(8,2“) VGA CSTN. Vélin er með
hljóðnema, og því hægt að taka upp
á hana, og hátalara. Einnig er á
henni IrDA innrautt tengi sem
styður alla staðla og að sögn er
hægt að senda skjöl í prentara neð
innrauðu tengi, tengjast öðrum tölv-
um og þar fram eftir götunum, en
ekki gafst færi á að reyna það að
neinu viti. Hægt er að fá í vélina 15
tíma rafhlöðu.
Eins og getið er var ekki til ís-
lenskt lyklaborðsforrit fyrir banda-
rísku útgáfuna og óljóst hvenær
slíkt verður til. Það er aftur á móti í
þeirri evrópsku og þó það sé ekki
alveg eins og hefðbundið lyklaborð,
til að gera broddstafi er slegið á
AltGr og síðan á stafinn, þá tekur
skamman tíma að ná tökum á því.
Með Jornada 820/820e fylgir ýmis
hugbúnaður en í ROM á vélinni er
stýrikerfið og forrit eins og Word,
Excel, PowerPoint, Outlook, Inter-
net Explorer, Calendar og Tasks,
allt sérstakar útgáfur fyrir
WindowsCE og talsvert minni um
sig en útgáfur fyrir Windows 9x eða
NT. Einnig íylgh' dagbókai’forritið
HP Viewer, en annar hugbúnaður
er á diskum sem fylgja, meðal ann-
ars myndvinnsluhugbúnaður sem
gerir mönnum kleift að smella
CompactFlash-korti úr stafrænni
myndavél í viðeigandi rauf á tölv-
unni, skoða myndir, skala og
klippa til og síðan senda með
tölvupósti ef vill.
Lyklaborðið er nálægt fullri
stærð eins og getið er og vanda-
laust að skrifa á það langan texta
eins og þessa grein til að mynda,
þó ævinlega taki tíma að venjast
nýju lyklaborði. Fyrir neðan
lyklaborðið á tölvunni er reitur
til að stýra bendlinum, sem er
kærkomin tilbreyting frá
snertiskjánum, mun fljótlegri
og öruggari. Minni glampi er
og af skjánum fyrir vikið, því
snertiskjáir hafa jafnan meiri
gljáa en venjulegir LCD-
skjáir.
Öll samskipti við borðtölv-
ur era einföld svo framar-
lega sem viðkomandi tölva
sé með lausu COM-tengi og
uppsettan viðeigandi hug-
búnað. Nóg er að setja
Jomada-tölvuna i sam-
band við borðtölvuna með
snúru sem fylgir og ef
hugbúnaðurinn er rétt
upp settur tengjast þær sam-
stundis. Þá er hægt að skoða skjöl á
Jornada-tölvunni, færa þau til og
frá. Ef lesa á gögn á milli tölvanna
sér sérstakur hugbúnaður um að
breyta sniðinu jafnharðan. Þetta er
óneitanlega nokkuð seinlegt ef um
mikið gagnamagn er að ræða, enda
er raðtengið 115 Kbás, en þá er
hægt að fá sér Ethernet-tengi sem
passar í CompactFlash-raufina.
Samþætting við hugbúnað eins og
Outlook er einfóld og nánast sjálf-
krafa.
Jornadan er ekki verkfæri fyrir
þá sem þurfa að keyra flókinn við-
skiptabúnað á ferðum sínum og
ekki þá sem skrifa þurfa flóknar
ritgerðir með fjölda fonta, neðan-
málsgreina, efnisyfirlita og þar
fram eftir götunum. Hún hentar
aftur á móti bráðvel fyrir þá sem
vilja fylgjast með tölvupóstinum,
skrifa bréf eða lengri texta, fara yf-
ir Excel-skjöl eða PowerPont-
kynningar svo dæmi séu tekin.
Verð á Jornada 820e verður líklega
í kringum 90.000 kr. og ef litið er til
dauða tímans hjá þeim sem eru
mikið á faraldsfæti er hún fljót að
borga sig.
52 hraða
geisla-
drif
HRAÐINN í geisladrifum eykst
sífellt, en heldur hefur samt
hægt á þróuninni undanfarið.
Kenwood kynnti á dögunum
nýja gerð geisladrifa, 52 hraða.
Hraði á geisladrifum miðast
við þann hraða sem var á geisla-
drifum framan af og er marg-
feldi af því. Með tímanum hafa'
þau orðið sífellt hraðvirkari, en
eftir því sem hraðinn hefur auk-
ist hafa komið upp ýmis tækni-
leg vandamál, meðal annars
vegna titringsins sem myndast
þegar diskarnir eru farnir að
snúast svo hratt, ekkert má útaf
bera við gerð þeirra, og svo þess
að gögnunum er þannig komið
fyrir að ekki næst að lesa af
þeim á fullum hraða eftir því
hvar verið er að lesa á disknum.
Þannig ná velflest 42 hraða
geisladrif sem svo kallast ekki
nema 19 hraða gagnaflutningi
þegar verið er að lesa af innstu
raufum diska.
Kenwood segist hafa fundið
lausn á þessu og beitir tækni frá
Zen rannsókamiðstöðinni sem
kallast TraeX. Með þeirri tækni
næst samfelldur 52 hraði yfir all-
an diskinn og gagnaflutningur
upp á 6.750 Kbás uppí 7.800
KBás. Þessi gagnafiutningsgeta
næst meðal annars með því að
drifið les margar gagnarásir
samtímis og því snýst diskurinn
hægar en ella sem þýðir að titr-
ingur er minni og hávaði einnig.
Að sögn Kenwood-manna jafn-
gildir þetta því að drifið sé 75
hraða sé miðað við hefðbundin
drif.
Sony
gefur
nasasjón
LEIKJATÖLVUVINIR bíða
spenntir eftu- Dreamcast-tölvu
Sega, sem kemur á mai'kað 9.
september næstkomandi eins og
áður hefur komið fram. Hönnuðir
Sony sitja þó ekki auðum hönd-
um og íyrir skemmstu kynntu
þeir innvolsið í næstu gerð Pla-
yStation.
Sony-menn kalla kjama vélar-
innar nýju Emotion Engine, sem
kannski má útleggja sem „tilfinn-
ingavél", en hún byggist á 128
bita örgjörva, er með íjölda
reikniörgjörva og innbyggðan
MPEG2 túlk. Að sögn Sony skil-
ar vélin 2,1 MIPS og ef marka
má yfirlýsingar tæknimanna
Sony verður afkastageta hans
meiri en nokkurs örgjörva sem
nú er á markaði, fimm milljón að-
gerðir á sekúndu. Þetta er ríflega
fjórfalt meira reikniafl en í núver-
andi PlayStation-tölvum. Toshiba
hannai- vélina með Sony og smíð-
ar helstu örgjörva hennar.
arleikur allra tíma
Leikur sem enginn |
ætti að láta fram hjá sér fara! Komið sjáið og sannfærist!
Opið laugardag 10:00-16:00 • sunnudagur 13:00-17:00
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444