Morgunblaðið - 27.02.1999, Side 33
r
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 33
í
w
MORGUNBLAÐIÐ
BON Appetit Café er ekM raegrunarmiðstöð eins og sjá
má á veggskreytingunni.
GOTT er að borða brasaðan raat meðan beðið er eftir
að þvottavélarnar ljúki verki sínu.
og er á þeim að heyra að þau hafi
ekki látið sitt eftir liggja. „Við höf-
um til dæmis farið í hópferð á
hverfispöbbinn með nokkrum af hin-
um íslendingunum sem búa í húsinu
okkar, en þeir eru alls á annan tug
talsins. Svo höfum við horft á knatt-
spyrnuleik á krá, sem er auðvitað
toppurinn.
Annars höfum við haft ýmislegt
fyrir stafni síðan við settumst hér að.
Við höfum farið talsvert í leikhús,
mikið í bíó og heilmikið á myndlist-
arsýningar. Kvikmyndaflóran hér er
mjög fjölbreytt, sýndar eru myndir
frá öllum heimshornum og hægt er
að velja milli bíóhúsa þar sem miðinn
kostar allt frá 3 pundum upp í 9
pund.“
Þau nefna fleiri dæmi um hvernig
mögulegt sé að lifa ódýrt í borginni
með örlítilli útsjónarsemi. „Indversku
veitingastaðimir eru til dæmis marg-
ir hverjir ódýrir þannig að maður get-
ur leyft sér að fara út að borða án
þess að steypa sér í skuldir."
I það heila tekið líkar þeim vel að
búa í London en segjast þó enn vera
að kynnast borginni almennilega.
„Sumir segja að kúltúrsjokkið komi í
raun ekki fyrr en eftir sex mánaða
búsetu. Vitanlega er ekki allt full-
komið hér frekar en annars staðar
en þetta er mjög spennandi
þjóðfélag," segja þau samhljóða.
„Bretar eru þekktir fyrir íhalds-
semi en á móti kemur vaxandi frjáls-
lyndi sem skapar skemmtilegan
bræðing. I myndlist er til dæmis
mikill uppgangur, nýjungar á öðru
hverju horni, en á hinum hornunum
stendur fólk sem er enn tilbúið til að
hneykslast. Þannig skapast frjóar
umræður og hér eiga sér í raun stað
miklar þjóðfélagslegar hræringar yf-
irleitt," segja frónsku hjónin, heilluð
af andrúmsloftinu í gömlu heims-
veldi sem reynir að finna sér stað í
fjölbreytilegum samtíma.
Þá er kominn tími til þess að
þurrka steikarfeitina af fingrunum
og vitja þvottarins sem biður tandur-
hreinn í tromlunum skáhallt á móti
kaffistofunni góðu.
þau hvít“. Mér fannst ég svo fin að
ég var „ósnertanleg“. Nú kom ég
auga á rektorinn sem ætlaði að fara
að stjórna fjöldasöng. Hún var
glæsileg sem endranær. En allt í
einu er ég mjög nálægt henni og
hugsa að hárið á henni sé ekki
fallegt. Næst er ég stödd niður við
Tjörn, það er rökkur, ég horfi milli
húsa og sé fólk standa hinum megin
við Tjörnina og veifa einhverjum
sem það á von á. Ég hugsaði „er
þetta ekki fyndið, hér er samankom-
in heil fjölskyla á aðfangadagskvöld
til að fagna brúðhjónunum". I sömu
svipan komu brúðhjón þeysandi
framhjá á hraðbát. Ég sneri til baka
og hljóp, leit niður á fötin sem nú
voru svört. Skrýtið „voru þau
svört“? Ég hefði frekar viljað vera í
bjartari lit en „ég var samt fín, fólki
fannst ég mjög fín svona".
Ráðning
Eins og þú nefnir, snýst draum-
urinn um liti en það er samspil lit-
anna við önnur atriði sem gerir
hann að ákveðinni mynd af hluta lífs
þíns. Litirnir merkja: Rauður; orku,
ást, löngun, þrá. Hvítur; upphaf,
hreinsun, ósnertanlegur, einn.
Svartur; missir, falinn, dulin orka.
Önnur afgerandi tákn draumsins
eru; Tjörnin/sál, aðfanga-
dagskvöld/væntingar, samkoman í
skólanum og brúðhjónin/óskir. Sam-
an lítur þetta út sem þú berir ugg í
brjósti um að hlutirnir fari ekki sem
þú væntir og sért því hálft í hvoru
tilbúin að afstýra hugsanlegri fram-
tíð fyrirfram til að koma í veg fyrir
hugsanlegar ófarir. Þessar hug-
renningar þínar birtast í íyiTnefnd-
um táknum en draumurinn segir
meira, hann sýnir þér að fjarlæg
fegurð/glæsimennska eða ytra prjál
(skólastýi’an var glæsileg sem
endranær en nálægt var hár hennar
ljótt) er ekki eftirsóknarvert og
kannist maður við tilfinningar sínar
(þú reyndir að breiða yfir rauðu föt-
in með gríni) og eðli muni lífið hafa
sinn eðlilega gang.
•Þeir lesendur sem vilja fá draumu
si'na birta ug ráðim sendi þá með
fullu nafni, fæðingardegi og ári
ásamt hcimilisfangi og dulnefni til
birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni I
103 Rcykjavik
Einnig geta lcsendur sent draunia
sína með tölvupósti á nctfang
Kristjáns Frímanns:
krifri@xnet.is
Bjarna Brugg
54 kr.
Dönskum dögum lýkur um helgina
Ekki missa af frábærum tilboðum og vörukynningum!
OpiðfNettó -
z Mjódd og Akureyri:
< mán.- fim ..12-19
föstudaga ..10-19
0 laugardaga .10-17
z sunnudaga ..12-17
z
Bóður kostur!
I