Morgunblaðið - 27.02.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Golli
TÓNLISTARFÓLKIÐ á æfingu íyrir tónleikana.
Síðdegisstund í
g-moll í Garðabæ
Á KAMMERTÓNLEIKUM í
Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í
Garðabæ í dag kl. 17 munu þau
Guðný Guðmundsdóttir, Helga
Þórarinsdóttir og Gunnar Kvaran
flytja píanókvartetta eftir Mozart
og Brahms ásamt píanóleikaranum
Gerrit Schuil.
„Tónleikarnir hefjast á píanó-
kvartett í g-moll KV 478 eftir W.A.
Mozart. Þennan kvartett samdi
hann í Vínarborg árið 1785 um
sama leyti og hann vann af kappi
að Brúðkaupi Fígarós. Hann bauð
útgefanda sínum verkið en sá taldi
það ekki útgáfuhæft þar sem það
væri of ei-fitt fyrir áheyrendur, og
þar skildi leiðir þeirra. Þegar Moz-
art semur verk í g-moll tekur
ákveðin dramatík völdin og nær-
tækt er að bera þetta verk saman
við sinfóníuna og strengjakvartett-
inn sem hann samdi í sömu tónteg-
und. Sams konar dramatík svífur
yfir vötnum í öllum þessum verk-
um. Það vekur athygli að píanó-
þáttur verksins er í senn bæði
sjálfstæður og ofinn inn í strengja-
þáttinn. Hér er ekki á ferðinni pí-
anó í einleikshlutverki eins og
áheyrendur höfðu svo oft átt að
venjast til þess tíma, heldur er
þetta ósvikið kammerverk þar sem
öllum hljóðfærum er gert jafnhátt
undir höfði.
Síðara verkið á efnisskránni er
píanókvartett í g-moll opus 25 eftir
Johannes Brahms. Verkið samdi
hann ungur að árum, hann hóf að
vinna að kvartettinum árið 1857,
en lauk honum ekki fyrr en fjórum
árum síðar og það var Clara
Schumann sem tók þátt í að frum-
flytja hann í Hamborg í nóvember
1861. Aðeins lokaþátturinn vakti
hrifningu áheyrenda og umsagnir
gagnrýnenda voru kuldalegar. Við
---------------------
Sex í sveit
sýnt í
70. sinn
GAMANLEIKURINN Sex í sveit,
eftir Marc Camoletti verður
sýndur í sjötugasta sinn á Stóra
sviði Borgarleikhússins nú á
sunnudag. Leikritið var frum-
sýnt 12. mars 1998.
Hjónakornin Benedikt og Þór-
unn eiga sín leyndarmál og þeg-
ar frúin hyggur á heimsókn til
móður sinnar sér eiginmaðurinn
sér leik á borði til að bregða
undir sig betri fætinum í fjar-
veru konunnar.
Leikendur eru Björn Ingi
Hilmarsson, Edda Björgvins-
dóttir, Ellert A. Ingimundarson,
Gísli Rúnar Jónsson, Rósa Guð-
ný Þórsdóttir og Halldóra Geir-
harðsdóttir.
frumflutning í Vínarborg ári síðar
tóku áheyrendur verkinu vinsam-
lega en gagnrýnendur voru enn við
sama heygarðshornið. Stuttu síðar
lýsti hinn frægi gagnrýnandi Ed-
ward Hanslick því yfir að hér væri
að finna burðarásinn í list Brahms.
Þetta mikla verk einkennist af
fjaðurmögnuðum krafti, gnótt
syngjandi stefja og glæsileika.
Kvartettinn hefst á upphrópunum
hins unga og ástsjúka manns og
þær eru síðan leiddar í gegnum
skapandi sjálfskoðun sem lýkur
með yfirlýsingu hins frjálsa
sígaunaanda sem kann að vísa
beint til þeirrar ákvörðunar tón-
skáldsins að lífa lífi „sígaunans“,
kæra sig kollóttan um hefðbundið
miðstéttarlíf og fylgja tónlistar-
gyðju sinni hvert sem hún kynni
að leiða hann,“ segir í kynningu.
Gerrit Schuil er listrænn stjórn-
andi þeiiTa sex kammertónleika
sem haldnir eru í Garðabæ á þess-
um vetri á vegum menningarmála-
nefndar bæjarins og er þetta þriðji
veturinn í röð sem nefndin stendur
fyrir slíkum tónleikum í samvinnu
við Gerrit.
Námskeið
og fyrir-
lestur
ÍMHÍ
NÁMSKEIÐ um efnisfræði
verður haldið í Iðnskóla Hafn-
arfjarðar og hefst fimmtudag-
inn 4. mars. Unnið verður með
silikon, úrítan og pólyester-
kvoðu. Kennari er Helgi
Skaftason, kennari í hönnun-
ardeild Iðnskólans í Hafnar-
firði.
Ríkharður Valtingojer
myndlistarmaður leiðbeinir á
námskeiðinu Grafík III.
Kenndar verða aðferðir í
málmgrafík með notkun sýi-u
(línuæting, aquatinata, ljós-
myndatækni). Unnið á kop-
arplötu. Kennt verður í gi-afík-
deild MHÍ og hefst kennsla
mánudaginn 8. mars.
Fyrirlestrar
SÖB (Sigurður Örn Brynj-
ólfsson) heldur fyrirlestur í
húsnæði MHI í Laugarnesi
mánudaginn 1. mars kl. 12.30
og fjallar um eigin teikni-
myndagerð og hugmyndafræði
hennar.
Gunnar Kristjánsson pró-
fastm- heldur fyrirlestur í
Barmahlíð, Skipholti 1, mið-
vikudaginn 3. mars kl. 12.30 er
nefnist Síðasta kvöldmáltíðin
og Andy Warhol.
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 39 ^
_________UMRÆÐAN________
Snertiþörfin er ein af
grunnþörfum mannsins
FLESTIR eru sam-
mála um mikilvægi
snertingar fyrir ung-
börn. Margar rann-
sóknir hafa sýnt fram á
að ef ungbörn fá ekki
snertingu getur það
haft áhrif á tilfinninga-
legan þroska þeirra.
Þegar við verðum full-
orðin höfum við áfram
sterka þörf fyrir að
finna að einhver er til
staðar sem snertir okk-
ur og okkur langar til
að snerta.
Auðveldara að
snerta börn
Flestir eiga auðveldara með að
snerta börn en fullorðna. Börn
vekja hjá okkur þessa þörf fyrir að
snerta aðra manneskju og þau eru
líka opnari fyrir henni en fullorðnir.
Það er mjög eðlilegt en ef við getum
ekki sótt snertingu til annarra full-
orðinna erum við að leggja það á
börnin að bera okkar eigin þörf fyr-
ir snertingu og það getur verið
þungt fyrir barn að bera ábyrgð á
þörfum fullorðinnar manneskju á
þennan hátt. Börn þurfa snertingu
á sínum eigin forsendum.
Óttinn við höfnun
Stundum þurfum við að telja í
okkur kjark til að biðja aðra full-
orðna manneskju um eitthvað sem
við viljum að hún geri fyrir okkur.
Hún gæti sagt nei og þá stöndum
við berskjölduð frammi fyrir henni
og finnst við alveg nakin. En þetta
er áhætta sem fylgir því að verða
fullorðinn.
Ekki snertivæn menning
Af einhverjum ástæðum er okkar
menning ekki mjög snertivæn. Ein-
hvers staðar á leiðinni frá því að
vera ungbörn og yfir í að verða full-
orðið fólk þróum við með okkur
ákveðna snertifælni og hættum að
geta tekið við og veitt snertingu
bara fyrir snertinguna sjálfa.
Snerting verður eitthvað sem til-
heyrir bara ákveðnum kringum-
stæðum. Við höfum tilhneigingu til
að tengja saman kynlíf og snert-
ingu og rugla saman þöifinni fyrir
snertingu og kynlífsþörf. Þörfin
fyrir snertingu er hluti af gi'unn-
þörfum mannsins eins og við verð-
um svöng og þyrst.
Nudd og snerting
Nudd er eitt elsta meðferðarform
sem til er og gott nudd veitir okkur
þessa nærandi snertingu sem við öll
þurfum. Hlutverk nuddarans er
fyrst og fremst að kenna okkur að
hlusta á líkamann, hjálpa okkur að
taka eftir hvar við geymum spennu
með þvi að beina athygli okkar að
henni. Þetta tekur okkur út úr hug-
anum um stund og það eitt og sér
veitir okkur djúpa hvíld.
Við deyfum okkur
til að flýja spennuna
Þegar við erum búin að safna upp
mikilli spennu eða vöðvabólgu eða
þreytu í vöðvana hættir okkur til að
taka athyglina í burtu frá því svæði
í líkamanum og deyfa það með því
að halda niðri í okkur andanum eða
anda mjög grunnt. En gallinn við
þessa „flóttaleið" er að spennan er
þarna enn og hún heldur áfram að
safnast upp.
Líkaininn verður óhamingju-
samur undir spennuálagi
Besta leiðin til að forðast þennan
vítahring er að bregðast við nógu
snemma og sýna þessum líkama
sem við fáum til afnota tilhlýðilega
virðingu. Eitt af því sem við getum
gert fyrirbyggjandi er að fara
reglulega í nudd. Ekki bara þegar
axlirnar eru komnar upp að eyrum
og lífið er orðið tómlegt og óspenn-
andi. Með því að fara reglulega í
gott nudd búum við
okkur til góðan grunn,
þar sem við tökum
sjálf ábyrgð á eigin
heilsu og lærum að
hlusta á þarftr líkam-
ans jafnóðum svo við
getum brugðist við áð-
ur en eitthvað gefur
sig.
Þegar við erum
utan við okkur
Stundum verðum við
óhamingjusöm og vit-
um ekki af hverju. Við
getum verið eirðarlaus
og kannski utan við
okkur, förum að
gleyma hlutum, hættum að vera al-
veg í sambandi við annað fólk og ná-
um ekki að hvfla í því sem við erum
Nudd
Með því að fara reglu-
lega í gott nudd, segir
Guðrún Arnalds, búum
við okkur til góðan
grunn, þar sem við
tökum sjálf ábyrgð á
eigin heilsu.
að gera. Það er yfirleitt merki um
að við séum komin úr tengslum við
líkamann.
Að næra líkamann
Þegar við nærum líkamann gegn-
um nudd erum við að fóðra ónæmis-
kerfið, örva og koma jafnvægi á
vökva- og orkuflæði líkamans, losa
um spennta vöðva og við fyliumst
vellíðan, njótum þess að vera í lík-
ama og vera til. Ondunin hefur líka
mikið að segja í þessu sambandi.
Við öndum flest of lítið og njótum
lífsins þess vegna ekki til fulls. I
nuddi getur því verið gott að nota
öndunina til að hjálpa okkur að
tengjast líkamanum og losa um
spennu.
Margar aðferðir í nuddi
Nudd býður upp á óteljandi að-
ferðir og nuddarar era eins ólíkir og
þeir eru margir. Þar verðum við að
treysta eigin tilfinningu og innsæi
og finna þann sem hentar okkur.
Fyrir mér byggist nudd fyrst og
fremst á tilflnningu og næmi fyrir
þeim sem liggur á nuddbekknum.
Tæknin kemur á eftir eins og afleið-
ing frekar en aðalatriði og byggist á
því hverjar þarfir einstaklingsins
eru. Hægt er að nýta sér nudd til að
ná djúpri slökun, vinna með líkam-
lega þætti eins og vöðvabólgu, bak-
verk, höfuðverk, svefnleysi, sí-
þreytu, meltingarvandamál, þreytu
á meðgöngu, tíðaverki og tíðatrufl-
anir svo eitthvað sé nefnt. Einnig er
hægt að nota nudd til að hjálpa til
við að losa um tilfinningar eins og
sorg, leiða, kvíða, fæðingarþung-
lyndi, reiði, ótta, ótjáða gleði og ást.
Nudd sem tilfinningalosun
Líkaminn geymir allt sem hann
hefur upplifað og með því að tengjast
minningunni í líkamanum getum við
losað um og sleppt henni. Þar finnst
mér yfirleitt nauðsynlegt að tengja
saman öndun og líkamsvitund. Þetta
krefst mikfls trausts svo að við upp-
lifum okkrn- örugg og það getur tetóð
tíma að byggja upp slíkt ti-aust.
Einnig getur það tekið tíma að læra
að hlusta á líkamann. Það er nokkuð
sem verður að koma af sjálfu sér og
er eins og afleiðing af því að okkur
fer að finnast merkilegt að hlusta á
það sem líkaminn er að segja okkur.
Einfaldleikinn getur gert kraftaverk.
Yið megum líka njóta h'fsins
Nudd sem stundað er reglulega
gerir okkur mýkri og sveigjanlegri
og hæfari til að takast á við óvænta
snúninga lífsins á yfirvegaðan hátt.
Þegar okkur líður vel verður lífið
auðveldara og ánægjulegra. Með
þvi að sinna sjálfum okkur og taka
okkur tíma bara fyrir okkur sjálf
getum við sinnt vinnu okkar og okk-
ar nánastu af meiri einbeitingu og
hlýju og notið þess um leið.
Höfundur er nuddari, hónwpati og
leiðbeinandi í líföndun.
HAPPDRÆl
HÚSNÆDISFÉIAG B* f
seidio
Þeir sem hafa hlotið vinning hafi samband við
skrifstofu félagsins í síma 588 7470.
Útdráttur 25. febrúar 1999
Bifreið að eigin vali frá Heklu kr. 2.200.000
29204
Ferðavinningar frá Flugleiðum kr. 100.000
3774 12574 22176 27422 33767 45663 50483 63445 72390 93369
5914 13036 22375 28266 35005 47100 50533 67451 78731 93974
7764 16334 24603 29830 37238 48713 51067 68373 80848 95712
7971 16562 24717 31322 43845 49355 54929 71259 84565 97019
9803 20971 25713 31709 44109 49933 58402 72177 86524103933
Vinningar frá Rúmfatalagernum kr. 50.000
1044 11152
2337 11505
2500 11735
3010 12719
3527 13001
3656 14349
3852 14752
5616 15815
5783 17646
5903 18513
6168 18760
6346 19458
6403 20043
6617 23353
6761 23376
7165 24725
7219 24891
8075 25816
9260 26618
10087 27570
27944
27954
28076
28992
29262
30268
30891
31099
31197
31208
31593
33149
34422
34949
35192
35641
35716
36771
37080
37241
37914
38499
39816
40318
40506
40560
41288
41393
42194
42223
42972
43035
43570
44380
44878
45155
45608
45917
47078
47900
48039
48131
49019
49420
50246
50793
50884
51496
51535
52404
52705
52846
53279
53280
53693
53768
53867
53937
55028
55403
55666
55750
57959
58135
58843
58942
58948
58993
59014
59416
59638
62549
64216
64869
65007
65243
66099
66285
66302
67258
67983
68547
68703
68984
69361
69583
71566
73492
75572
75619
75715
76305
76770
78562
78616
78909
78991
79166
79546
79759
80441
80774
81584
81935
82025
82752
83511
83786
84150
84175
84196
84366
85084
85849
85954
86684
86963
89675
90839
91128
91129101636
91192 102107
91264 102130
91440102243
91897 102518
92335 102647
92525 103240
92787 103524
92811 105236
93325 108104
94178108738
94795 108821
95062
97783
98407
98888
99677
99812
100303
101534
Guðrún
Arnalds