Morgunblaðið - 27.02.1999, Side 49

Morgunblaðið - 27.02.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 49 + Kristín Aðal- heiður Júlíus- dóttir fæddist, á Dal- vík 9. apríl 1917. Hún lést á heimili sínu Dalbæ, Dalvík 16. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voi-u hjónin Jóm'na Jónsdóttir, f. 7.4. 1887, d. 25.2 1967, og Júlíus Jó- hann Björnsson, f. 15.6. 1885, d. 1.6. 1946. Systkini Krist- ínar: Jón Egill, f. 11.3. 1908, d. 21.12. 1993; Nanna Amalía, f. 7.10. 1909, d. 19.12. 1909; Sigrún, f. 25.7. 1911, d. 22.12. 1979; Hrefna f. 7.8. 1914, d. 11.3. 1990; Baldur Þórir, f. 15.9. 1919, d. 2.11. 1996; María, f. 20.9. 1921, d. 14.5. 1941; Hjálmar Blómkvist, f. 16.9. 1924; Ragnheiður Hlíf, f. 10.7. 1927; Gunnar Skjöldur, f. 1.4. 1931, d. 13.7. 1998. Hinn 17. nóvember 1938 gift- ist Kristín Snorra A. Arngríms- syni frá Vegamótum á Dalvík, f. 17.3. 1908, hann lést 9.2. 1981. Börn þeirra eru: 1) Júlíus, f. 26.3. 1938, maki Aðalbjörg Árnadóttii’, f. 4.12. 1934. Börn þeirra eru: Anna Jóna, f. 8.10. 1954, Kristín, f. 27.2. 1958, Árni Elsku mamma mín. Ég kveð þig með djúpum söknuði og þakka þér allar samverustundirnar okkar. Það er mér huggun að vita að nú ert þú í öðrum heimi, í faðmi horfinna ást- vina þar sem engar þjáningar þekkjast. Égminnistþín, ómóðir, þó mér nú sértu fjær. Þig annast englar góðir ogungivorsinsblær. Eg man þær mætu stundir er mig þú kysstir hlýtt, sem vorsól grænar grundir, og gerðir lífið blítt. í faðmi þínum fann ég, þann frið, er beztan veit, því það var alit, sem ann ég, þín ástin móður heit. Þar huggun fann ég hæsta frá hjarta, er aldrei brást, því konu gerir glæsta hin göfga móðurást. Og öll við hittumst aftur og ævin hérna dvin. Og einhver æðri kraftur, semofar jörðuskín, mun okkur göfga og gleðja; það Guð á hæðum er. Með kossi vii ég kveðja þig kærsta af öllu mér. (E.H.) Guð blessi þig og varðveiti. Þín dóttir, María. Elsku amma Stína. Okkur langar til að kveðja þig og þakka þér sam- verustundirnar á liðnum árum. Það verður okkur alltaf ógleymanlegt að sjá brosið þitt og hlýjuna breiðast yfir andlitið þegar við gægðumst inn í herbergið þitt á Dalbæ. Ailtaf var nammiskálin full og tilbúin fyrir okkur og aldrei varstu ánægð fyrr en þú gast með einhverju nóti glatt okkur, hvort sem það var með gjöf eða hlýlegum orðum og óþrjótandi áhuga yfir hverju því er við höfð- umst að á degi hverjum. Það var ekki séð að fyrirgangurinn í okkur gerði annað en að gleðja þig og þér þótti það bara fyndið þótt foreldrar okkar væm ekki alltaf á sama máli og sendu okkur fram að skoða í fiskabúrið í setustofunni til að fá frið til að tala við þig! Þakka þér amma fyrir allar stundirnar okkar saman, við munum ávallt minnast þeirra, góður Guð geymi þig og varðveiti. Anton, f. 7.9. 1959, Jónína Amalía, f. 2.6. 1961, og Ingi- gerður Sigríður, f. 4.8. 1965. 2) Snorri, f. 14.2. 1940, maki Anna Björnsdóttir, f. 3.3. 1943. Börn þeirra eru: Aðal- björg, f. 7.9. 1960, Snorri, f. 20.5. 1962, Guðrún, f. 17.6. 1963, Bergljót, 24.4. 1966, Baldur, f. 21.2. 1973, og Björn f. 21.2. 1973. 3) Jónína María, f. 8.5. 1943, maki Símon Ellertsson, f. 25.7. 1939. Böm þeirra era: Jónína, f. 12.10. 1963, Kristín Aðalheiður, f. 19.9. 1964, Arnar, f. 19.8. 1966, og Svana Rún, f. 16.8. 1981. 4) Ingigerður, f. 1.2. 1946, maki St- urla Krisljánsson, f. 12.3. 1943. Synir þeirra eru: Snorri, f. 4.2. 1967, og Krislján, f. 9.2. 1980. 5) Valdimar, f. 7.12. 1949, maki Ágústína Jónsdóttir, f. 2.5. 1949. Böra þeirra eru: Jenný, f. 10.5. 1966, og Daði, f. 4.11. 1979. Barnabörn Kristínar era 19 og baraabarnaböra 34. Útför Kristínar Aðalheiðar fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sáu raína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla gejma öll bömin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Anna Margrét, María, Símon Darri, Iris Hlín og Petrea Kristín. Elsku amma Stína. Þá ertu farin í ferðina löngu og vist þinni hérna megin lokið. Þegar snjókornin féllu svo létt til jarðar og frostrósimar settust á gluggann þinn þetta fal- lega vetrarkvöld, kvaddir þú þennan heim með sæmd, tilbúin að takast á við hið ókunna. Mikið eigum við eftir að sakna þín. Þegar við lítum til baka til þess tíma er við áttum saman, er svo margt sem kemur upp í hugann. Um ókomin ár eigum við systkinin eftir að ylja okkur við þær ljúfu minning- ar. Þú varst svo góð kona, hjartahlý og hrein og til þín var gott að leita með málefni líðandi stundar. Þú hafðir skilning á svo mörgu enda bú- in að reyna margt á langri ævi. Oll erum við sammála um að það eisntaka í fari þínu var þessi mikla virðing sem þú barst fyrir öðrum, sama hvernig á stóð, aldrei gleymdir þú að þakka fyrir verkin sem að þér snéru og aldrei gleymdir þú að minnast á það sem vel var gert. Þú bjóst yfir miklum og góðum eiginleikum, lítillát, auðmjúk og fórnfús, öllum vildir þú vel. Þú kunnir að gleðjast yfir litlu. Þú gafst mikið af þér, óþrjótandi að leiðbeina okkur hinum og þolin- mæði var eitthvað sem þú áttir nóg af, jafnvel undir það síðasta þegar vitað var að hverju stefndi. Þú tókst yfirleitt hlutunum eins og þeir komu fyrir. Við minnumst stundanna hjá þér í Torginu forðum, notalegt tifið í stóru stofuklukkunni, kaffikannan malandi í eldhúsinu, þú sitjandi í gí-æna stólnum í horninu með heklu- nálina á lofti. Það var ljúft að fá að vera hjá þér þá. Við minnumst þín að verki í fal- lega garðinum þínum sem þú lagðir mikla rækt við, litríkar stjúpur í beinum röðum, bóndarósir og morg- unfrúr, allt sett niður af smekkvísi og alúð eins og þér einni var lagið. Við minnumst jólaboðanna þegar við komum saman hjá þér fjölskyld- urnar forðum, þú á þönum að gera okkur krökkunum til geðs, heitt kakó og kræsingar á veisluborðinu, hlátur, skvaldur og glaðværð. Við minnumst hátíðarstundanna með þér heima í Ásveginum þessi síðustu ár, þú svo fín og settleg með pakkahráguna í kringum þig og gleðin allsráðandi. Það er svo margs að minnast með þér og öll þökkum við æðri máttar- völdum fyrir þau spor sem við feng- um að stíga saman í blíðu og stríðu. Innst inni vitum við að þér líður vel jafnvel þó að það hafi verið erfitt að kveðjast, sjá á eftir þér hverfa af þessu sjónarsviði. Okkur finnst eins og það sé svo margt sem við áttum eftir að segja þér, tjá þér, en kannski skynjaðir þú þessar tilfinningar sem bærðust innra með okkur undir það síðasta. Tárin þorna, sársaukinn sefast, hyldýpisgjáin sem myndaðist við fráfall þitt mun fyllast þegar fram líða stundir en söknuðinn viljum við eiga fyrir okkur sjálf, hvert og eitt á sinn hátt. Elsku hjartans amma, Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Jónina, Heiða, Araar og Svana. Þegar ég var lítill var ég viss um að amma í gula væri amman sem skrifað var um í bókum. Ommurnar þar eru ijúfar, skilningsríkar, skyn- samar og fallegar konur og fyrir- myndin hlaut að vera amma mín. Stína Júl. var hin íslenska kona, sem samin hafa verið um lög og ljóð; atorkukonan sem skilaði góðu dags- verki en átti alltaf nóg eftir til að sinna þeim er stóðu henni næst. Hún var alltaf tilbúin til að rétta hjálparhönd, gi-æða sár eða hlaupa undir bagga, en miklaðist ekki af verkum sínum. Ég lít á það sem for- réttindi að hafa átt hana sem ömmu, ekki síst vegna þess að hún átti hlut í því að kenna mér á lífið. Það er skrítið að kveðja ömmu í síðasta sinn. Þegar ég hugsa til baka minn- ist ég þess að mér fannst alltaf sárt að kveðja hana eftir sumardvöl á Dalvík. Amma og afi stóðu veifandi á tröppunum í Karlsrauðatorgi og heimurinn hrundi rétt sem snöggvast. Það var gott að koma til ömmu og afa, þar tóku á móti manni opnir armar og fólskvalaus væntum- þykja, sem maður finnur ekki hvar sem er, og þótt við værum mörg sem leituðum í þennan brunn var alltaf tími fyrir hvern og einn. Amma passaði alltaf upp á það að manni liði vel og kippti sér ekki upp við strákapör, sem hún vissi að voru hluti af því að alast upp. Hún var t.d ekki stolt af mér þegar ég skar að mér fannst fallegar rendur í nýja gólfteppið hennar með dúkahníf, en hún áleit þetta greinilega framlag mitt til teppalagningarinnar og tók framtaksseminni með hægð. Garð- urinn hennar heima í Karlsrauða- torgi bar vott um eljusemi og natni, sem flestir stefna að í lífinu en ekki öllum er gefið. Amma var glettin og skemmtileg þegar sá gállinn var á henni og ég á eftir að minnast bross- ins og hlýjunnar sem hún átti og gaf í svo ríkum mæli. Þótt við kveðjumst veit ég að amma er ekki farin, spor hennar verða ekki afmáð og það sem hún gaf okkur er eitthvað sem ekki verður af okkur tekið. Amma lagði í ferðalag sem liggur fyrir okkm- öll- um og ég veit að henni á eftir að farnast vel. Hún er komin á góðan stað þar sem hún hittir þann sem skipti hana mestu máli þegar allt kemur til alls. Ég á eftir að hitta ömmu og afa síðar meir, en þangað til lifir minningin með mér. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Snorri Sturluson. Kveðja til ömmu Stínu. Ég sakna þín svo mikið. Ég sagði við þig: „Þetta er í síðasta sinn sem ég sé þig.“ Ég kom og fór. Það einasta sem ég veit er að þú ert farin, farin frá mér. Laufey Jónsdóttir. KRISTIN AÐALHEIÐUR JÚLÍUSDÓTTIR + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VIGFÚS HELGASON frá Borgarfirði eystra, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. mars kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Jóna Vigfúsdóttir, Haltgrímur Vigfússon, Vigfús Kröyer, Vala Björg Kröyer. Ástkær faðir okkar, FRIÐRIK GARÐAR JÓNSSON fyrrv. lögregluþjónn, frá Arnarbæli, andaðist föstudaginn 26. febrúar. Baldur Friðriksson, Sigurður Kr. Friðriksson, Hildur Jóna Friðriksdóttir. + Dóttir okkar og systir mín, NÍNA SKÚLADÓTTIR, er látin. Skúli Þorvaldsson, Susann Schumacher, Þorvaldur Skúlason. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför EDDU ÞÓRZ, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. Magnús Ó. Valdimarsson, Katrín Edda Magnúsdóttir, Björn Pétursson, Ágústa Edda Björnsdóttir, Eva Björnsdóttir, Hugrún Björnsdóttir. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, VILMUNDAR KRISTINS JÓNSSONAR, Háholti 9, Akranesi. Matthildur Nikulásdóttir, Svandís Vilmundardóttir, Kristný Vilmundardóttir, Hallfreður Vilhjálmsson, Ingvar Friðriksson, Erla F. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem hafa sýnt okkur samúð og vinarhug vegna andláts SKÚLA ÍSLEIFSSONAR, Völvufelli 46, Reykjavík. Sérstakar þakkir til heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins. Sigrún Torfadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.