Morgunblaðið - 27.02.1999, Page 61

Morgunblaðið - 27.02.1999, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 61 Fátæktin þeirra fylgikona KVIKMYNDAGERÐ er skyld skáldskap, en tekur sig ekki alvar- lega sem slík nema örsjaldan. Kvikmyndagerðin verður þó ekki sökuð um hugmyndaleysi. Segja má að hún vinni upp skort á skáld- skap með gnægð hugmynda. Þær eru þó oftar en hitt á skjön við það sem talið er fallegt í lífinu. Banda- ríkjamenn hafa nokkra forystu um að „skemmta" almenningi með kvikmyndum irá neikvæðari hliðum tilvistarinnar og hafa raunar gert slikar kvikmyndir að stórfelldum iðnaði. I þessum iðnaði mætti álíta að giltu einhverj- ar hömlur eða siðareglur, en svo er ekld. Mikið er barist gegn klámi og ber ekki að lasta það. En aldrei er barist gegn ofbeldi, hvorki reglu- gerðarofbeldi samtímans né of- beldi gagnvart manneskjunni. Að minnsta kosti verður þess ekki vart í kvikmyndaiðnaðinum, sem hér er til umræðu af því verið er að tala um efni í sjónvarpi. Tilefni þessara hugleiðinga er kvikmyndin Alræðisvald, sem sýnd var á Stöð 2 á laugardagskvöld. Myndin er frá 1997 en Clint Eastwood stjómaði henni og lék annað aðalhlutverkið, en hitt aðal- hlutverkið lék Gene Hackman, svo segja má að það hafi verið valinn maður í hverju rúmi. Efni myndar- innar kom nokkuð á óvart miðað við að hún var tekin í hitteðfyrra. Heimurinn, a.m.k. hinn vestræni, hefur verið nokkuð lengi upptekinn af kvennafarssögum um núverandi Bandaríkjaforseta öllum til ama og leiðinda nema repúblikönum. I rauninni eru flestir hissa á þessum fyrirgangi í landi, þar sem forseta- sagan er jaíníramt saga hjákvenna lengst af öldinni. Sá eini sem virð- ist alveg undanskilinn er Truman forseti, en þá hengdu menn á hann atómsprengjuna í staðinn. Kvikmyndin Alræðisvald er sem sagt um forseta Bandaríkjanna á , , kvennafari sem SJONVARP A hefur þann ógæfulega endi, LAUGARDEGI að öryggisverðir ---:-------------------- drepa konuna í þann mund sem hún ætlar að stinga forsetann. Þetta er kona mikils vinar forsetans og forsetinn er að beita hana ofbeldi, þegar at- vikið á sér stað. Miðað við þær hremmingar, sem forsetaembættið í Bandaríkjunum varð fyrir á með- an á gerð myndarinnar stóð, þótt ekkert í myndinni geti talist sann- sögulegt, er djarflega farið inn á eitt sérsvið embættisins. Nægir þar að telja upp, fyrir utan Clinton og Monicu, sjálfan Roosevelt, sem átti í löngu sambandi við ritara konu sinnar, Eisenhower, sem hélt við bílstjórann sinn í stríðinu og Kennedy, sem um margt er fyrir- mynd CUntons og ástundaði fræki- legt kvennafar. Eru þá einhverjir nefndir. En það verður að teljast furðu djarft verk að gera svo mynd eins og Alræðisvald á árinu 1997, m.a. til að sýna, að ekki er við venjulegan mann að eiga þar sem forseti Bandaríkjanna er, enda hefur hann meira vald en mönnum er almennt gefið. Smám saman varð mikil breyt- ing á þjóðfélaginu með tilkomu út- varps upp úr 1930. Á fyrstu árum þess var vandað mjög til efnis, jafnvel svo að sumum þótti nóg um. Einkum músikflutninginn, sem ekki var af léttara taginu. Menn vfidu jafnvel láta kveða rím- ur. Nú er poppríman þulin enda- laust og þykir afbragð. En menn- ingarhlutverk útvarpsins er engu síður mikið, því skyldi enginn neita. Svo er um sjónvarpið, sem er grein af sama meiði. Einhverjar ýt- ingar þurfti til að koma því á stað, en nú eru þær gleymdar. Þetta minnti svona á sig þegar þáttur kom með Þrándi Thoroddsen á mánudagskvöld. Hann var eins- konar tæknilegur sjónvarpsgúrú í byrjun og hafði lært og lært ekki í Póllandi. En maðurinn hefur góðar náttúrugáfur og þær fleyttu hon- um áfram. Þrándur er sögumaður og sjónvarpið þarf á slíkum að halda til að bæta upp það sem vantað hefur á dagskrána í gegn- um árin. Jafnvel draugagangur er betri en ekki neitt. Þriðji þáttur kalda stríðsins er kominn og færist nú fjör í leikinn. Churchill kominn með yfirlýsing- una um jámtjaldið og Traman bú- inn að lýsa yfir, að það verði að snúast tÖ vamar ágangi kommún- ista. Þeir stefndu eins og kunnugt er að heimsyfirráðum og helsti bandamaður þeirra var fátæktin eftir stríð og þær rústir sem þeir m.a. skildu eftir sig. Indriði G. Þorsteinsson KLÍSTURMAÐURINN var rek- inn fyrir að hæðast að blökkumönnum. Ekki allt leyfilegt í útvarpi ►VINSÆLL útvarpsmaður í Bandaríkjunum, Doug „The Grea- seman“ [Klísturmaðurinn] Tracht, var rekinn sl. fimmtudag fyrir að gera ósmekklega athugasemd er hann tengdi tóniist Grammy-verð- launahafans Lauryn Hill við morð á blökkumanni í Texas. Doug, sem starfaði við WARW- FM útvarpsstöðina, lék hluta úr lagi Lauryn, sem er svört, á há- annatíma á miðvikudaginn var. Síðan sagði hann við hlustendur: „Engin furða að fólk dragi það á eftir bílum." Ummælin féllu rétt eftir að John William King var dæmdur fyrir morðið á James Byrd, blökkumanni sem hann hlekkjaði við bíl sinn og dró svo eftir þjóðvegi með þeim afleiðing- um að hann lét lífíð. „Mér þykir mjög leitt að hafa valdið sárindum með harðbijósta ummælum mínum,“ sagði Doug. „Ef ég gæti tekið þau til baka myndi ég liiklaust gera það.“ Doug hefur starfað við útvarp síð- an í byrjun 9. áratugarins og hef- ur verið líkt við hinn umdeilda út- varpsmann Howard Stern. Þeir eru báðir þekktir fyrir að láta allt flakka og að hafa óvenjulegar skoðanir á málefnum líðandi stundar. Talsmenn WARW segja að Doug hafi komist upp með ým- islegt en ekki með að tala háðs- lega um viðbjóðslegt ofbeldisverk. Því var hann sjálfur látinn flakka að þessu sinni. íA(œ-turgaCinn Smiðjuvegi 14, ‘Kópavofli, sími 587 6080 I kvöld leikur eldhressa Þotuliðið frá Borgarnesi Opið frá kl. 22—3 Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 Næturgalinn þar sem stuðið er og alltaf lifandi tónlist Heilsubótar dansleikur eftir skemmlidagskiá Ladda og RadissonSAS SagaHotel Reykjavík Araa Þorsteinsdóttir og Stefán Jdkulsson Gleðigjafavika - Góugleði í kvöld Hljómsveitin Karma leikur fyrir dansi 28. feb. Dúettinn BSátt áfram 1. mars______ Biúavinafélagið Lennon kvöld aðeíns í þetta eina skipti! 2. mars___________ Geiri Olafs og Furstarnir 3. mars___________ Ifðvmo Hafllia 4. mars 8villt 5. mars___________ _ 8villt o. mars___________ 8villt 7. mars Rut Reginaíds/ : Maggi Kjartans Bestu tónlistarmennirnir _____- lifandi tónlist öll kvöld TILBOÐ Á J/AFFl MATOGDRYKK RFY\IAV K ALLA VIKUNA A 1 1 ' A v 1 1X HEITASTI STAÐURINN í BÆNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.