Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Hæstiréttur dæmir í máli Sigurðar Gizurarsonar Héraðsdóm- ur dómtaki bótakröfuna HÆSTIRÉTTUR felldi í gær að hluta úr gildi úrskurð héraðsdóms þess efnis að vísa máli Sigurðar Gizurarsonar fyi-rverandi sýslu- manns á Akranesi gegn ríkinu al- farið frá héraðsdómi þann 1. febr- úar sl. Eftir að úrskurður héraðsdóms um frávísun málsins lá fyrir kærði Sigurður úrskurðinn til Hæsta- réttar. Gerir sjö milljóna króna bótakröfu Samkvæmt dómi Hæstaréttar verður héraðsdómur að taka málið til efnismeðferðar að því er varðar 7 milljóna króna bótakröfu Sigurð- ar, sem hann gerði vegna miska sem hann taldi dómsmálaráðherra hafa valdið sér með þeirri ákvörð- un að flytja sig úr embætti sýslu- manns á Akranesi í embætti sýslu- manns á Hólmavík síðastliðið sum- ar. Hæstiréttur staðfesti hins vegar frávísun héraðsdóms að því er varðar þá dómkröfu Sigurðar að staðfest yrði með dómi að fyrr- greind ákvörðun dómsmálaráð- herra yrði ógild og ólögmæt og ennfremur að Sigurður tæki aftur við sýslumannsembættinu á Akra- nesi. ♦♦♦ Dorgveiði- maður í gegnum ís MAÐUR sem hafði verið á dorg- veiðum gegnum ís á Elliðaárvatni hringdi í lögregluna í Reykjavík og sagði farir sínar ekki sléttar. Hafði ísinn gefíð sig undan hon- um þannig að hann lenti í vatninu og hlaut kalt bað. Honum tókst þó að krafla sig í land og komast í síma tU að láta lögregluna vita af atvikinu. Þótti honum sérstök ástæða til að benda lögreglu á að ísinn væri ótraustur. Varist ísilögð vötn Lögreglan tók þessa ágætu ábendingu tU greina og fóru lag- anna verðir á staðinn til að kanna aðstæður. Vert er að benda al- menningi á að með auknum hlýind- um er varhugavert að fara út á ísi- lögð vötn eða tjamir, þar sem óvisst er að ísinn beri mikinn þunga. FRÉTTIR S O) co cr, 8--0 g 'O'-g '1 'O Q. §■•§ 1 2>eecccecccc copoppooooop ^ccocococococococococo 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 Sköðanakönnum Félagsvísindastöfnunar um fylgi stjómmálaflokka nzm.rÆ m$) Alls Framsóknar- flokkur Sjálfstæðisflokkur Samfylkingin Frjáls- Vinstri hr. lyndir grænt fr. 316,3% 41,3% ] 33,5% 12,5% 6,3% Flokkað eftir kyni Karlar Konur Flokkað eftir búsetu Landsbyggðin Reykjanes Reykjavík Flokkað eftir aldri 60 ára og eldri 45-59 ára 35-44 ára 25-34 ára 18-24 ára Flokkað eftir starfi Stjómendur/Æðstu emb.m. [U~~; iq i% Sérfræðingar/Kennarar Tæknar og skrifstofufólk Þjónustu- og afgreiðsluf. Iðnaðarm. og sérh. í iðnaði Sjómenn og bændur Vélafólk og ófaglærðir Ekki útivinnandi 46,0% % □ 28,1% H 3,6% [3] 6,1% 139.5% 11,0% EZZl 6,4% J 28,2% 47,1% 42,8% ! 35,3% H 3,9% i 2,9% 38,4% 10,4% 5,9% 4,1% 8,3% 21,7% 22,2% 139,4% J 31,6% □ 33,2% □ 33,0% I 29,2% 14,1 % 12,4% 12,1% S 1,6% H,2% 18,2% 16,7% 1235,6% 13 4,7% i'J 5,8% 20,1% 18,5% 24,5% B 1,4% H 4,3% □□] 45,3% 11,1% 06,7% 10,0% 0 3,5% 10,9% |Hj 5,7% ■ 5,1% 95,1% IBI 8,2% EU 10,3% 15,19 10,0% 7,2% 9,5% Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar um fylgi stjórnmálaflokka Minnst fylgi D-listans er meðal elstu kjósendanna ANDLEGUR ^UÐUR I Ching, Veraldan/iska, List friðarins og Leið pílagrímsins. Fjögur klassísk rit um andleg málefni, áhugaverðar handbækur um leiðir að farsæld I lífi og starfi. Bækur sem vekja til umhugsunar. 4> FORLAGIÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN nýtur aðeins 26,6% fylgis meðal kjósenda eldri en 60 ára, en fylgi flokksins í öðrum aldurshópum er yfir 40%. Samfylkingin nýtur hins vegar mests stuðnings meðal eldri kjósenda, en minnsts meðal yngstu kjósendanna. Þetta kemur fram í nýrri þjóðmálakönnun Félagsvís- indastofnunar Háskóla íslands, sem gerð var fyrir Morgunblaðið dagana 18. til 24. mars. Fylgi Samfylkingarinnar er til- tölulega jafnt í öllum aldursflokkum en Framsóknarflokkinn styðja flest- ir á aldrinum 18-24 ára eða 22,2% en minnst fylgi við hann er meðal 25-34 ára kjósenda eða 11%. Frjáls- lyndi flokkurinn hefur frá 1,2% til 4,1% fylgi, mest meðal elsta hópsins og það hefur Vinstri hreyflngin sömuleiðis. Könnunin fór fram símleiðis og svöruðu 1.024, 241 neitaði að svara, 190 náðist ekki í, 30 voru veikir eða gátu ekki svarað og 15 úr úrtakinu eru búsettir erlendis eða látnir. Svarhlutfallið er því 68,3%. Miðað við kosningar í aprfl 1995 bætir Sjálfstæðisflokkurinn við sig fylgi en þá fékk hann 37,1% at- kvæða en Framsóknarflokkurinn tapar fylgi, fer úr 23,3% niður í 16,3%. Miðað við síðustu könnun, sem fram fór í nóvember 1998, tapa báðir ríkisstjómarflokkarnir fylgi en þá hafði Sjálfstæðisflokkur 44,8% fylgi og Framsóknarflokkur- inn 19,7% fylgi. Ríkissljórnai-flokkar fengju 37 þingmenn Sé litið á fylgi flokkanna eftir kjördæmum kemur í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokks er 35,3% á lands- byggðinni en 42,8% í Reykjavík og 47,1% í Reykjaneskjördæmi. Þessu er öfugt farið með Framsóknar- flokkinn sem hefur 26,7% fylgi í landsbyggðarkjördæmunum en 9,6% fylgi í Reykjavík og 10,6% á Reykjanesi. Fylgi Samfylkingarinn- ar er 28,2% á landsbyggðinni, 38,4% í Reykjavík og 35,3% á Reykjanesi og Frjálslyndir fá 3,9% fylgi á landsbyggðinni, 0,4% í Reykjavík og 2,9% á Reykjanesi. Vinstri hreyf- ingin fær 5,9% fylgi á landsbyggð- inni, 8,3% í Reykjavík og 4,1% á Reykjanesi. I greinargerð Félagsvísinda- stofnunar um niðurstöður könnun- arinnar segir að erfitt sé að segja til um hversu mörg þingsæti flokkarn- ir fengju. Þær bendi þó til þess að núverandi ríkisstjómarflokkar fengju samanlagt 37 þingmenn en þeir hafa 40 þingmenn í dag, Sam- fylkingin fengi 22 þingmenn en flokkarnir sem að henni standa fengu 23 þingmenn í síðustu kosn- ingum. Vinstri hreyfingin grasnt framboð fengi fjóra þingmenn, þ.e. næði inn kjördæmakjörnum manni í Reykjavík og fengi þar með þrjá uppbótarþingmenn. I niðurstöðu könnunarinnar kem- ur einnig fram að hinn kjördæma- kjömi þingmaður Vinstri hreyfing- arinnar er síðasti kjördæmakosni þingmaður Reykvíkinga og gætu litlar breytingar haft í fór með sér að þeir misstu þann mann og þar með uppbótarmennina. Yrði sú raunin fengi Samfylkingin 23 þing- menn, Framsóknarflokkurinn 11 og Sjálfstæðisflokkurinn 29.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.