Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ♦ ♦♦ Stærsti norræni bank- inn næsta skrefið? Óaló. SAMNINGUR um bandalag við sænsk-fínnska stórbankann MeritaNordbanken verður senni- lega næsta skrefíð eftir boðaðan samruna Den norske Bank (DnB) og Postbanken í Noregi sam- kvæmt heimildum Dagens Nær- ingsliv í Ósló. MeritaNordbanken er stærsti banki Norðurlanda miðað við markaðsvirði og hefur áður rætt samruna bæði við DnB og Post- banken. Samruni DnB og Postbanken gerir framtíðarsamvinnu við MeritaNordbanken sennilegri en áður og um leið einfaldari. Post- banken hefur lengi reynt að fá annan tveggja stærstu banka Noregs til þátttöku í slíku banda- lagi. Bæði DnB og Postbanken hafa rætt við MeritaNordbanken um samvinnu og sennilega verður þess ekki langt að bíða að slíkar viðræð- ur verði teknar upp að nýju. Sam- kvæmt heimildum Dagens Nær- ingsliv getur það gerzt þegar form- lega hefur verið gengið frá sam- runa DnB og Póstbankans. Sennilegast er talið að almenn- ingshlutafélag í Osló verði einn eigenda MeritaNordbanken. Group DnB/Postbanken muni geta eignazt 20% hlut í öllu fyrir- tækinu miðað við núvirði. Norska ríkið, sem muni eiga 60,6% í DnB/Postbanken, muni fá ráðandi hlut í MeritaNordbanken Group með um 15% hlutabréfa. Sænska ríkið á nú 25% hluta- bréfa í MeritaNordbanken, en mun selja hlut sinn. Vitað er að MeritaNordbanken hefur lengi unnið að því að fá þriðja aðila á Norðurlöndum til samstarfs. Bankastjórarnir Sven Aaser og Olav Fjell hafa verið varkárir í ummælum um MeritaNordbanken. Aaser fór undan í flæmingi og sagði að ekki væri hægt að gefa rétt svar. „Við höfum ekki staðið í samningum við Merita Nordbanken," sagði Fjell Hvorki Aaser né Fjeld vísuðu því þó á bug að framtíðarbandalag við MeritaNordbanken væri hugs- anlegur möguleiki. Nýir hluthafar kaupa meirihlutann í Atlantik BÖÐVAR Valgeirsson og fjölskylda, sem hafa átt og rekið ferðaskrifstof- una Atlantik ehf. undanfarin 20 ár hafa selt Gunnari Rafni Birgissyni, fjölskyldu hans og öðrum fjárfest- um, meirihluta í fyrirtækinu. í fréttatilkynningu frá Atlantik segir að Gunnar Rafn muni taka við sem framkvæmdastjóri hjá Atlantik en Böðvar muni flytjast í stól stjórn- arformanns og taka áfram þátt í rekstri fyrirtækisins. Gunnar Rafn hefur undanfarin 6 ár verið deildarstjóri innanlands- deildar ferðaskrifstofunnar Sam- vinnuferðir Landsýn hf. og hefur því þónokki-a reynslu af ferðamálum. Gunnar sagði í samtali við Morg- unblaðið að ekki stæði til að gera breytingar á starfsemi fyi’irtækisins heldur að styrkja núverandi starf- semi enn frekar. ,A-tlantik er þekkt fyrirtæki á markaðnum og hefur ti-aust og góð viðskiptasambönd. Eg vil nýta þessi sambönd til að gera gott fyrirtæki betra á vaxandi markaði," sagði Gunnar. Meginstarfsemi Atlantik hefur falist í móttöku erlendra ferða- manna hér á landi og þjónustu við erlend skemmtiferðaskip og nýtur fyrirtækið góðrar stöðu og traustra viðskiptasambanda í því sviði, samkvæmt tilkynningunni frá félaginu. „Ég er mjög ánægður með kaup- in. Ferðaþjónustan hefur verið vax- andi grein og er nú önnur stærsta atvinnugrein þjóðarinnar og ég vil taka þátt í áframhaldandi vexti hennar," sagði Gunnar Rafn. Mikil viðskipti með Opin kerfí Spennandi ráðstefna, samkeppni og sýning um beina markaðssetningu íslandspóstur hf.. ásamt póstfyrirtækjunum á Norðurlöndum, stendur í fimmta sinn fyrir Norrænu DM-dögunum í Stokkhólmi dagana 6. og 7. maí nk. Dagskráin þessa tvo daga er mjög fjölbreytt og er viðskiptatryggð þema ráðstefnunnar. Auk fjölmargra fyrirlestra verður haldin yfirgripsmikil sýning þar sem kynnt er það nýjasta í auglýsinga- og prentiðnaði. Að kvöldi 6. maí verður glæsilegur hátíðarkvöldverður þar sem úr- slit verða kynnt í samkeppni um bestu DM-herferðina á Norður- löndum. Fjölmennum frá íslandi íslandspóstur hf.. Imark og Ftugteiðir standa fyrir hópferð á ráðstefnuna. Komdu með og kynntu þér það nýjasta f Ferðatilhögun Upplýsingar um flug og gistingu fást hjá Vilborgu hjá Flugleiðum í síma 505 0534, netfang: tauga21@icelandair.is. Skráning og upplýsingar Allar nánari upplýsingar og skráning eru hjá íslandspósti hf. hjá Sótveigu í síma 580 1084 og hjá Bjarneyju í síma 580 1072, netfang: markpostur@postur.is Einnig er hægt að skrá sig á heimasíðu Póstsins: www.postur.is. ístandspóstur bvður þeim sem skrá sia á ráðstefnuna fvrir 1. apríl á hátíðarkvöldverðinn 6. maí. beinni markaðssókn! Selt á geng- inu 100 Aðallista sem nær þriggja stafa tölu í gengi. Verð hlutabréfa í Opnum kerfum hækkaði um 2% í gær. Að sögn Frosta Bergssonar, stjórnarformanns Opinna kerfa, var það hvorki hann né Þróunar- félagið, sem eru stærstu hluthaf- arnir í Opnum kerfum, sem voru að selja og kvaðst hann ekki vita hver seldi né hver keypti. Um 2% hlut í fyrirtækinu er að ræða. Verð hlutabréfa í Sæplasti hækkaði um 13,1%, úr 6,10 í 6,90, en einungis ein viðskipti voru á bak við þá hækkun. Hlutabréf í Skinnaiðnaði lækkuðu um 20,5%, úr 3,90 í 3,10, en einungis ein við- skipti voru á bak við þá lækkun. Ui’valsvísitala Aðallista lækkaði um 0,49% í gær. Fjárvangur hefur keypt um 6,04% hlut í Básafelli, samtals að nafnverði 45.839.720 krónur. MIKIL viðskipti voru með hluta- bréf á Verðbréfaþingi Islands í gær eða fyrir 223 milljónir króna. Mest viðskipti voru með hlutabréf í Opnum kerfum eða fyrir 115 milljónir króna, þar af voru ein viðskipti fyrir 100 milljónir króna á genginu 100 og eru Opin kerfi fyrsta fyrirtækið sem er skráð á STERKIR-.. NORRÆNIR DM DAGAR í Stokkhólmi 6. - 7. maí 1999 Don Peppers: Bein markaðssókn einn á móti einum ..One to one marketing' Larry Light: Hvernig vekja á vörumerkjatryggð ; . §§ Ray Jutkins: Kraftur beinnar markaðssóknar! Hetga Þóra Eiðsdóttir: Bein markaðssókn fyrir Vildarkort Flugleiða ▼ íf Clyde Fesster. aðstoðarforstjóri Hartey Davidson: Vörumerkjatryggð (Brand loyatty) HH M jrki eru það sterk að þau snerta þig meira en onnur. um það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.