Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ 52 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 * MINNINGAR KRISTMUNDUR SÖRLASON Kristmundur Sörlason fædd- ist á Gjögri í Strandasýslu 21. ágúst 1929. Hann lést á heimili sínu í Iteykjavik 19. mars síðastliðinn eftir langvinn veikindi. Foreldrar hans voru lijónin Sörli Hjálmarsson, út- vegsbóndi á Gjögri, f. 1902, d. 1984, og Guðbjörg Péturs- dóttir ljósmóðir, f. 1905, d. 1987. Krist- mundur átti átta systkini. Elst- ur þeirra er Óskar en hann er hálfbróðir þeirra og samfeðra, f. 1926, maki Sigríður Halldórs- dóttir, Pétur, f. 1927, maki Sig- ríður Vilhjálmsdóttir, Erla, f. 1931, maki Guðmundur Karls- son, Elín, f. 1933, maki Einar Gunnarsson, Friðgeir, f. 1935, Þorsteinn, f. 1938, maki Edda Aspelund, Lýður, f. 1942, maki Elísabet Matthíasdóttir, Lilja, f. 1947, maki Sigurð- ur Sigurðsson. Árið 1955 kvæntist Kristmundur Láru Stefaníu Ólafsdóttur, f. 1932. Þau skildu árið 1976. Börn þeirra eru þrjú. 1) Ólafía Guðrún, gjald- keri, f. 1956, maki Sigurvin Rúnar Sig- urðsson. Börn þeirra eru Lára Rún, f. 1977, og Haukur, f. 1980. 2) Kristmundur vélfræðing- ur, f. 1966, kvæntist Gyðu Lauf- eyju Kristinsdóttur; þau skildu. Dætur þeirra eru Anna Kolbrún, f. 1988, og íris Kristrún, f. 1991. 3) Ólafur Sörli, verkfræðingur, f. 1969, sambýliskona Steinunn Halldórsdóttir. Barn Ólafs og Guðnýjar Höskuldsdóttur er Stef- anía Bjarney, f. 1986. Börn Ólafs og Steinunnar eru tvíburarnir Halldór Sörli og Júlía Sif, f. 1998. Dóttir Steinunnar er Sunna Arnarsdóttir, f. 1984. Kristmundur kvæntist árið 1989 Addýju Guðjónsdóttur, f. 1935. Addý var áður gift Hall- grími Garðarssyni sem lést um aldur fram. Börn hennar eru fjögur: Marta, f. 1958, maki Jónas Hreinsson; Sigfríð, f. 1961; Sæþór, f. 1964; og Berg- lind, f. 1967, sambýlismaður Valgeir Barðason. Kristmundur nam einn vetur við Héraðsskólann á Reykjanesi við Djúp. Hann lærði ketil- og plötusmíði hjá Stálsmiðjunni hf. 1948-52. Hann varð vélfræð- ingur árið 1954 er hann útskrif- aðist frá Vélskóla íslands. Hann starfaði sem vélstjóri á hvalbát 1951-54, hjá Eimskipafélagi Is- lands frá 1954-59 og við vara- stöðina við Elliðaár 1959-61. Árið 1961 stofnaði Kristmund- ur, ásamt bróður sínum Pétri, vélsmiðjuna Stálver sem hann rak óslitið til dauðadags. Utför Kristmundar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar ég hugsa um pabba dettur mér fyrst í hug jákvæði hans og bjartsýni sem virtist óþrjótandi, 'Sama hvað gekk á og uppgjöf var aldrei til í hans huga. I kringum hann var aldrei lognmolla, hvorki í leik né starfí. Hann lá aldrei á skoð- unum sínum um menn eða málefni og talaði ávallt hreint út og skeytti þar engu þótt það kæmi við kaunin á einhverjum. Sama máli gegndi um athafnir hans. Af þeim sökum var hann oft gagnrýndur, rang- eða réttilega er annarra að dæma, en að minnsta kosti voru orð hans og gjörðir samkvæmt eigin sannfær- ingu. Hann hafði trú á sjálfum sér Tog brýndi það fyrir mér að í versta falli er maður þá einn um þá trú. Trú hans á sjálfum sér var réttmæt og nauðsynleg, því hann mátti berj- ast úr sárri fátækt til mennta og verða síðan fremstur meðal jafn- ingja, án stuðnings og alfarið á eigin verðleikum. Hann var stórhuga frumkvöðull og oft um of fyrir sam- ferðamenn sína. Ég elska hann og sakna hans og tel mig lánsaman mjög að hafa átt hann fyrir föður. Andi hans mun fylgja mér um ókomna tíð. Ólafur Sörli Kristmundsson. Ég á fáar en góðar minningar um 'Kristmund Sörlason. Ástæða þess er sú að við hittumst ekki fyrr en fyrir tæpum þremur árum og hluta af þeim tíma dvaldi fjölskylda mín í Danmörku svo samverustundirnar urðu ekki margar. Mér er það sér- staklega minnisstætt hve fallega hann bauð mig velkomna þegar Ólafur Sörli sonur hans kynnti mig fyrir honum í fyrsta sinn. Þeir feðgarnir voru þá að vinna saman í fyrirtæki Kristmundar, Stálveri, en þar eyddu þeir mörgum stundum saman. Kristmundur heilsaði mér með hlýju handtaki og sagði svo: „Þig vil ég fá að hitta oft.“ Þessi orð lýstu því vel hvaða persónu hann hafði að geyma. Oftast hittumst við "á kaffistofunni í Stálveri, og þar voru málin rædd yfír kaffibolla og kexbita, en ekki lengi, því hann mátti ekki vera að því að eyða tím- anum í kjaftæði, það þurfti að vinna. Á þessum tíma lá krabbameinið í dvala og því gat hann gert það sem honum hugnaðist best, unnið og far- ið norður á Gjögur og eytt þar lung- anum úr sumrinu. Það var gaman að tala við Krist- mund og oftar en ekki snerist talið um ættir og uppruna fólks, og um bókmenntir, en um hvort tveggja var hann mjög fróður. Svo sagði hann svo frábærlega skemmtilega frá, að unun var að heyra. Hann hafði þann hæfíleika að gæða at- burði lífi, eflaust hefur hann eitt- hvað krítað liðugt, en það skiptir engu, frásögnin var aðalmálið. Hann bar mikla umhyggju fyrir börnunum sínum og fólkinu sínu tóllu. Samband þeirra feðganna var traust og fallegt, og skein af því væntumþykja þeirra hvors til ann- ars. Þegar Kristmundur vissi að við áttum von á tvíburum hafði hann miklar áhyggjur af því að þessi meðganga myndi alveg fara með mig, og var helst hissa á því að ég væri yfirleitt á ferli síðustu vikurn- ar. Honum þótti mjög vænt um það er sonarsonur hans var skírður Sörli í desember sl. Því miður fá Halldór Sörli og Júlía Sif ekki að kynnast afa sínum, og fara með honum norður á Gjögur og út á bát, eins og hann hvíslaði að þeim ný- fæddum að þau myndu gera saman. En þau fá að heyra sögur af honum og hans skemmtilegu orðatiltækjum sem maður heyrir í staðinn í máli barna hans. „Já, vinur minn“, nú er komið að leiðarlokum. Ég er þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og geymi minningamar um þig til að segja börnunum mínum síðar meir. Steinunn Halldórsdöttir. Lífshlaup okkar bræðra var sam- tvinnað má segja frá fæðingu, fyrst 1 leik sem krakkar, síðan í starfi. Við bræðurnir byrjuðum snemma að vinna saman, enda elstir af stórum systkinahóp og á svipuðum aldri. Á þessum tíma var það siður í sveitum að börn byrjuðu að vinna við fram- færslu heimilis, þegar þau höfðu lík- amsburði til. Við bræðurnir fórum ekki var- hluta af þessum siðum. Við vorum ekki gamlir þegar við byijuðum að hugsa um skepnurnar og vinna aðra vinnu fyrir heimilið. Skemmtilegast þótti okkur að fiska í soðið, eins og það var kallað, en pabbi átti lítinn árabát sem hét Rauðmaginn og fengum við að nota hann eins og við vildum. Mamma okkar blessunin stjórnaði þessu nú öllu saman, enda var pabbi mikið að heiman bæði á vertíðum fyrir sunn- an og vestan. Einnig starfaði hann í Síldarverksmiðjunni á Djúpavík eft- ir að hún tók til starfa. Nú kemur það tímabil sem leiðir okkar skilja, þá tóku við námsárin. Kristmundur fór í framhaldsskóla í Reykjanes við Isafjarðardjúp, eftir það lá leið hans suður á vertíð í Sandgerði og víðar. Að því loknu fór hann í iðnnám að læra plötu- og ket- ilsmíði í Stálsmiðjunni og Iðnskól- anum. Eftir það í Vélskólann og til að kosta nám sitt stundaði Krist- mundur sjóinn sem aðstoðarvél- stjóri á hvalbátunum á sumrin. Á þessu tímabili í lífi sínu giftist hann Láru Ólafsdóttur og eignuðust þau þrjú börn, Ólafíu Guðrúnu, Krist- mund og Ólaf Sörla. Þau slitu síðar samvistum. Seinni kona Kristmund- ar er Addý Guðjónsdóttir frá Vest- mannaeyjum. Eftir að hafa lokið námi í Vélskól- anum réð Kristmundur sig sem vél- stjóra til Eimskipafélags Islands og var lengst af á Reykjafossi. En hug- urinn stefndi í land og endaði það með því að hann réð sig til Raf- magnsveitu Reykjavíkur og starfaði í varastöðinni við Elliðaár. Á þessu tímabili vorum við bræðurnir báðir búnir að festa ráð okkar og eignast fjölskyldur. Um það leyti fórum við að starfa saman aftur og árið 1960 ákváðum við að stofna saman fyrir- tæki sem við og gerðum og gáfum nafnið Stálver hf. Við keyptum húsnæði undir fyrir- tækið í Súðavogi 40 í Reykjavík og störfuðum þar í níu ár. Mikill upp- gangur var í kringum iðnaðinn á þessum áram og var þess ekki lengi að bíða að húsnæðið var orðið of lít- ið. Þá byggðum við okkur nýtt og stærra húsnæði á Funahöfða 17 í Reykjavík. Reksturinn gekk mjög vel hjá okkur og voru þetta einstak- lega ánægjulegir tímar og samstarf okkar sem best mátti vera. Okkur til mikillar ánægju starfaði faðir okkar, Sörli, hjá okkur um tíma sem lagerstjóri. Mest störfuðu hjá okkur milli 60 og 70 manns. Eftir að hafa rekið Stálver hf. saman í um 22 ár fannst okkur þetta rekstrarform vera orðið óþægilegt enda búið að vera í þessu formi allan tímann. Um áramótin 1982-1983 létum við verða af því að hætta rekstri Stálvers hf. og skipt- um fyrirtækinu. Við vorum farnir að eldast og afkomendur okkar orðnir fullorðið fólk. Við skiptum rekstrinum upp í þrjú fyrirtæki sem við gáfum nöfnin Vélsmiðjan Stál- ver hf., Zinkstöðin hf. og ísvélar hf. Öll störfuðu þessi fyrirtæki sjálf- stætt og döfnuðu vel. Síðar seldum við húsið á Funahöfða þar sem við vorum skildir atvinnulega séð nema að við áttum báðir hlut í ísvélum hf. Eftir þetta hættum við að sjást eins oft, en töluðum mikið saman í síma. Til að bæta úr þessu fórum við bræðurnir að hittast reglulega einu sinni í viku og ræða saman landsins gagn og nauðsynjar, en í seinni tíð eftir að Kristmundur var farinn að berjast við veikindi sín, þá hittumst við í fyrirtæki hans. Orð geta ekki lýst því að eiga jafn góðan vin í bróður sínum og ég átti í Kristmundi. Við áttum því einstaka láni að fagna að geta eytt miklum tíma saman bæði í atvinnu og á vettvangi fjölskyldunnar. Það hefði þó ekki gengið nema af því við vor- um mjög samrýndir. Ég og fjölskylda min sendum eig- inkonu Kristmundar, börnum, barnabörnum og öðrum aðstand- endum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hans. Pétur Sörlason. Elsku afi minn, það verður erfitt að kveðja þig í hinsta sinn í dag. Það verður líka erfitt að sætta sig við það að það verði aldrei nokkurn tímann hægt að spjalla við þig um málefni heimsins og fá svör við öll- um þeim spurningum sem manni liggja á hjarfa. Þeim spurningum sem þú hafðir alltaf svör við. En við höfum okkar mörgu góðu minning- ar um þig hérna hjá okkur og við varðveitum þær í hjörtum okkar. Það er af miklu að taka þegar velja á eitthvað úr minningunum okkar um þig. Þrátt fyrir að kynni okkar spanni ekki nema rétt um 11 ár. Þú varst svo mikill tignarmaður, svo hár og sperrtur, með djúpa rödd og svo veraldarvanur. Þinn staður var Gjögur, þar sem þú varst uppalinn. Ég mun alltaf muna eftir ferðinni okkar þangað. Þegar við fóram saman, ég, þú, amma og Halla Rós. Við vorum þar í þrjár vikur og endaði ferðin á því að vinir og vandamenn komu og þú hélst upp á sextugsafmælið þitt. Þú varst Iíka mikill menningar- sinni, og fannst gaman að komast í leikhús, og voruð þið amma dugleg við að drífa okkur krakkana með ykkur að sjá eitthvert barnaleikrit- ið. Þá var glatt á hjalla, því það var hátíðarstund að fá að fara í leikhús- ið. Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir hjá þér þar sem þú hefur þurft að heyja stríð við erfiðan sjúkdóm, en þú varst svo sterkur og duglegur og amma stóð eins og klettur við hlið- ina á þér allan tímann. Þið eruð bæði sannkallaðar hetjur. En ég óska þess af öllu mínu hjarta að nú hafir þú hlotið frið og ró. Ég veit að Guð mun láta fara vel um þig hjá sér, því hann hugsar vel um börnin sín, og víst ertu hans barn. Elsku amma, Lóa, Kiddi, Óli og fjölskyldur, ég votta ykkur alla mína samúð og megi guðsstyrkur hjálpa ykkur í gegnum þessa miklu sorg. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Kveðja, (V. Briem) Addý litla. Elsku afi, nú ert þú kominn til guðs og laus við allar þjáningai'nar. Okkur langar að þakka þér fyrir all- ar góðu stundimar sem við höfum átt saman. Nú vitum við að þér líður vel og ert fallegur engill á himnum hjá guði. Vertu yfír og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englai' saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Sofðu rótt, elsku afi. Bergur, Andrea, Guðný Hulda, Hallgrímur og Telma Osk. Okkur systkinin langar að minn- ast þín með nokkrum orðum. Krist- mundur Sörlason frá Gjögri, já, þar fór enginn venjulegur maður. Kynni okkar hófust þegar þú og mamma fórað að vera saman fyrir rúmum 12 árum, en þið áttuð níu ára brúð- kaupsafmæli 16. desember sl. Öllum leist okkur vel á manninn enda skemmtilegur og góður maður sem allt hefur viljað fyrir okkur gera. Við minnumst þess hversu fróður og víðlesinn þú varst og höfðingi heim að sækja, og oft gustaði af þér. Oft urðu fjörlegar umræður og hafðir þú gott lag á að kynda undir mannskapnum þannig að líflegt var á Kjartansgötunni. Til þín var gott að leita ef eitthvað bjátaði á hjá okkur. Þá gafstu mikið af þér. Við minnumst stundanna í sum- arbústaðnum á Gjögri, sérstaklega þegar þú hélst upp á 60 ára afmælið þitt í sól og blíðu, einnig stundanna á sólríkum sumardögum í garðinum ykkar mömmu sem þið erað búin að gera svo fallegan. Það eru margar minningar sem við eigum um þig, elsku Kristmund- ur, og munum við minnast þeirra með hlýhug um ókomin ár. Þú ert búinn að berjast hetjulega í baráttu þinni við þennan skelfilega sjúkdóm og mamma okkar búin að standa með þér eins og hetja í gegn- um öll veikindin þín og fannst þér alveg yndislegt að hafa hana við hliðina á þér. Við biðjum algóðan Guð að geyma þig og þökkum fyrir að hafa átt þig að og fengið að kynnast þér. Elsku Lóa, Kiddi, Öli og fjöl- skyldur, guð gefi ykkur styrk á þessari erfiðu stund. Elsku mamma, stjrrkur þinn og kraftur er ótrúlegur og biðjum við guð að styðja þig og vernda um alla tíð. Marta, Sigfríð, Sæþór, Berglind og fjölskyldur. Elsku Kristmundur minn. I dag kveð ég þig víst í hinsta sinn. Á föstudaginn þegar Kiddi hringdi í mig og sagði mér að þú værir dáinn þá fylltist ég miklum söknuði en jafnframt létti mér, því nú færð þú loks hvíld eftir þín erfiðu veikindi sem undir það síðasta drógu hratt úr þínum mikla lífsþrótti. Þú varst góður tengdapabbi, víðsýnn, skemmtilegur, góðhjartaður og ráðagóður. Því ef maður var í ein- hverjum vandræðum þá varst þú óspar á að gefa okkur góð ráð og létta undir með okkur ef eitthvað var. I heilan vetur komst þú til okk- ar á hverjum morgni í þeim erinda- gjörðum að keyi'a Kidda í vinnuna, börnin í skóla og leikskóla, svo ég kæmist á fjölskyldubílnum í skól- ann. Alltaf varst þú með bros á vör og syngjandi „Morgunstund gefur gull í mund“. Betri móttökur var ekki hægt að hugsa sér í kuldanum og nepjunni hér á Fróni. Já, elsku Kristmundur minn, margar góðar minningar á ég í hjarta mínu og gott verður að láta þær ylja sér þegar ég sakna þín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég kveð þig með söknuði og bið góðan guð að geyma þig og varð- veita. Ég votta aðstandendum mína dýpstu samúð. Megi guð leiða ykk- ur og styrkja í gegnum sorgina. Gyða Laufey Kristinsdóttir. Elsku besti afi okkar. Nú ert þú farinn frá okkur og kemur aldrei aftur. Við söknum þín sárt en vitum að nú líður þér vel. Þegar við hugsum til þín, afi, þá vakna svo margar fallegar og eftir- minnilegar minningar um þig og sjáum við fyrir okkur allar þær ánægjulegu stundir sem við áttum saman bæði í faðmi fjölskyldunnar, í sveitinni þinni, Gjögri, þar sem þú varst fæddur og uppalinn og á verk- stæðinu þínu þar sem við systur vorum oft við leik og störf. Þar var hlegið mikið, teiknaðar myndir handa þér og tínd blóm en okkar mesta ánægja var að skreyta hjá þér í Stálveri. Ekki má heldur gleyma þeim stundum þegar við sungum saman „Kidda á ósi“ og mörg voru þau lög- in sem þú kenndir okkur, elsku afi. Alltaf höfum við mætt mikilli hlýju frá þér og ást og erum við afar þakklátar fyi-ir allt það sem þú gafst okkur. Minning þín lifir í hjarta okkar, elsku afi. Með þökk fyrir allt. Ég minningar geymi, ég man þær og skil, þær minna á vordagsins blessaðan yl. Því syrgir minn hugur, ég sé þína mynd i sólhýru blómi, í fjallanna lind. Þá haustblærinn kaldur um heiðina fer ég hlusta og vaki og bið fyrir þér að veturinn hverfi, að vorsólin blíð vermi þitt hjarta um ókomna tíð. (S.Þ.G.) Þínar sonardætur, Anna Kolbrún og Iris Kristrún Kristniundsdætur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.