Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
‘ UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Framsóknarmenn gerast
prófddmarar yfír sjálfum sér
FRAMSOKNARMENN eru nú
komnir í leitiniar og hafa byrjað
sína kosningabaráttu á síðum
Morgunblaðsins. Þar
hefur gefið að líta
mikla auglýsingarunu
sem öll gengur út á að
sanna að Framsóknar-
flokkurinn hafi meira
og minna staðið við öll
sín hátimbruðu kosn-
ingaloforð frá 1995.
Framsóknarmenn
rifja upp að þeim var
eignað Islandsmet í
kosningaloforðum
1995. Síðan vefst ekki
fyrir þeim að slá því
föstu að þeir hafi, á
kjörtímabilinu, sett Is-
landsmet í efndum.
Ónefndur lesandi hafði
Steingrímur J.
Sigfússon
á orði að sennilega væru þessar gefið
auglýsingar fyrst og fremst ís-
landsmet í sjálfshóli.
Vandinn er nefnilega sá að hér
gerist einn og sami aðilinn allt í
senn, sá sem býr til námsefnið, les
það, semur prófspui-ningamar,
tekur prófið og gefur sjálfum sér
' einkunn. Framsóknarmenn eru
með öðrum orðum að prófa sjálfa
sig í efndum eigin kosningaloforða
og gerast svo dómarar yfír öllu
saman á síðum Morgunblaðsins.
Framsóknarmönnum er frjálst
að reyna að telja kjósendum, eða
lesendum Morgunblaðsins, trú um
að allt hið góða sem gerst hefur sl.
4 ár sé meira og minna þeim prívat
og persónulega að þakka. Fram-
sókn nýtur reyndar hagstæðs sam-
anburðar við íhalds- og afturhalds-
■ stjórn Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins frá síðasta kjörtíma-
bili. j allri sanngirni verður þó líka
að horfa til ytri skilyrða og árferðis
í landinu og meta það sem gerst
hefur í því ljósi.
Það er t.d. nokkuð spaugilegt að
sjá framsóknarmenn telja að þeir
hafi efnt kosningaloforð um að
breyta Húsnæðisstofnun og fá
henni nýtt og breytt hlutverk sem
ráðgjafa og við endurreisn heimil-
anna, að þetta loforð hafi verið efnt
með því að leggja stofnunina niður.
Sömuleiðis er kostulegt að sjá um-
fjöllun um það loforð að verja 2-3
milljörðum kr. sérstaklega til lífs-
kjarajöfnunar, að það hafi verið
'efnt með flatri lækkun tekjuskatts
og með því að tekjutengja að fullu
bamabætur. Eins og allir vita hafa
skattabreytingar ríkisstjómarinn-
ar komið bamlausu hátekjufólki
mest til góða.
Loforð í húsnæðismálum
loforð í húsnæðismálum. Stað-
reyndin er sú að í loforðalista
Framsóknarflokksins fyrir kosn-
ingarnar 1995 í kafla
undir íyrirsögninni
„Endurreisn heimil-
anna“ var m.a. sagt
„grípa til víðtækra
skuldbreytinga sem
fela í sér að vöxtum
og/eða lánstíma sé
breytt, skuld sé lækk-
uð eða fryst um tíma á
meðan fólk leitar
lausnar á tímabundn-
um erfiðleikum svo
sem vegna atvinnu-
leysis og veikinda“.
Þetta loforð varð á
sínum tíma frægt að
endemum þai- sem
þarna var beinlínis
í skyn að framsóknarmenn
hygðust beita sér fyrir niðurfell-
ingu skulda í húsnæðislánakerfinu
Sfjórnmál
Framsóknarmönnum
er frjálst að reyna að
telja kjósendum trú
um, segir Steingrímur
J. Sigfússon, að allt hið
góða sem gerst hefur
sl. 4 ár sé meira og
minna þeim að þakka.
En undir einu verður þó tæpast
setið; fullyrðingum framsóknar-
manna um að þeir hafi efnt öll sín
hjá fólki í erfiðleikum. Þetta loforð
hefur að sjálfsögðu ekki verið efnt
og það vantar mikið upp á að fram-
ganga framsóknarmanna í hús-
næðismálum sé með þeim hætti að
þeir geti stært sig af. Eða kannast
einhver við að hafa fengið sérstaka
niðurfellingu skulda? En það er
einnig nauðsynlegt að skoða það
sem Framsóknarflokkurinn ekki
lofaði, en gerði samt í húsnæðis-
málum. Framsóknarflokkurinn lét
það aldrei koma fram í stefnu-
skrám sínum eða loforðum fyrir
síðustu kosningar að hann hygðist
leggja niður félagslega íbúðalána-
kerfið og markaðsvæða húsnæðis-
lán í landinu að fullu.
Viðskilnaður framsóknannanna í
húsnæðismálum er slíkur að við
blasir ófremdarástand t.d. á leigu-
markaði, biðraðir hafa myndast
o.s.frv. Þessar kerfisbreytingar í
húsnæðismálum munu örugglega
draga úr framboði á nýju leiguhús;
næði á viðráðanlegum kjörum. í
það heila tekið er staða tekju-
lægstu hópanna til þess að komast
í sitt eigið húsnæði eða öruggt hús-
næði til muna verri, með því að
byggingasjóður verkamanna og fé-
lagslega íbúðalánakerfið er lagt
niður og tekjulægstu hópum sam-
félagsins er att út á markaðinn.
Sjálfstæðisflokkurinn
skilar auðu
Það er fróðlegt að fylgjast með
því sem hinn stjómarflokkurinn
aðhefst eða öllu heldur ekki að-
hefst á sama tíma og Framsóknar-
flokkurinn ryðst fram með þessum
hætti. Enn sem komið er felst
kosningastefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins í einu orði, orðinu „góð-
æri“. Það er hins vegar nokkuð ör-
ugglega Islandsmet og stysta
kosningastefnuskrá allra tíma.
Hvort hún verður síðan krydduð
með fallegum myndum af foringj-
anum Davíð úti að ganga með
hundinn Tanna eins og síðast vit-
um við ekki ennþá.
Þeir sjálfstæðismenn hljóta að
lesa með nokkurri athygli hvernig
samstarfsflokkurinn Framsókn
eignar sér hiklaust það sem þeir
telja til vinsælda fallið af verkum
úr ráðuneytum Sjálfstæðisflokks-
ins. Má þar nefna t.d. þær skatt-
kerfisbreytingar sem fjármálaráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins hafa
borið ábyrgð á að framkvæma.
Látum vera þó eitthvert helminga-
félag sé um að skipta hagnaðinum
ef menn trúa því að slíku sé til að
dreifa. Hitt er öllu merkilegra að
þegar það á við þá sverja fram-
sóknarmenn með öllu af sér önnur
verk ráðherra Sjálfstæðisflokksins
og nota það hiklaust sem skýringu
á því að þeim hafi ekki tekist að
efna einstök kosningaloforð að þeir
fari ekki með viðkomandi mál.
Þetta á t.d. við um atriði í aug-
lýsingu þeirra sem birtist í Morg-
unblaðinu sl. miðvikudag. Þar var,
undir liðnum menningarmál, fjallað
um það loforð framsóknarmanna
að menningarstarfsemi yrði undan-
þegin virðisaukaskatti. Utkoman á
prófinu var, „ekki efnt“ og skýring;
Framsóknarflokkurinn fer hvorki
með menningarmál né skattamál í
núverandi ríkisstjórn. Sem sagt í
því tilviki eru sökudólgarnir
menntamálaráðherra og fjármála-
ráðherra Sjálfstæðisflokksins en
þegar það hentar Framsókn að
eigna sér eitthvað sem þeir telja til
vinsælda fallið úr viðkomandi ráðu-
neytum stendur ekki á því að það
góða sé þeim að þakka.
Nema þetta sé allt í góðu og birt
með leyfi Davíðs og yfirlesið af
honum eins og setningarræða for-
manns Framsóknarflokksins á
flokksþinginu í haust.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Norðurlandskjördæmi eystra.
Samfylkingin og
samtök launafólks
- fyrir fjölskylduna
ÞAÐ er stundum
sagt að stjómmálum
sé ekkert óviðkom-
andi, í öllu megi finna
pólitík. Samt sem áður
er það svo að málefni
fjölskyldunnar og
bamafólks era ekki
þau mál sem helst
koma upp í hugann
þegar viðfangsefni
stjórnmálanna eru
skoðuð. Utanríkismál,
efnahagsmál, sam-
göngumál, byggðamál,
menntamál og heil-
brigðismál era til að
mynda mun oftar til
umræðu á pólitískum
fundum en réttur fólks til fæðing-
arorlofs, fjárhæð barnabóta og
réttindi barna. Sem betur fer era
áherslur þó óðum að breytast að
þessu leyti og fjölskyldumálin
svokölluðu era sífellt sett framar á
forgangslistann.
Breytum áherslunum
Samfylkingin vill færa stjórn-
málin nær fólkinu og leggja
áherslu á að á Islandi verði til sam-
félag sem er barnvænt og fjöl-
skylduvænt. Hin áratugalöngu
áhrif Sjálfstæðisflokksins í gegnum
valdatíð hans í ríkisstjórnum hafa
verið fjölskyldufólki óhagstæð og í
samanburði við nágrannasamfélög
okkar mörg, þar sem jafnaðar-
menn hafa haft meiri áhrif í gegn-
um tíðina, eigum við langt í land.
Fæðingarorlof er hér óhemju stutt
og greiðslur á tímabilinu lágar,
bamabætur eru að fullu tekju-
tengdar sem þýðir að þær virka í
raun sem láglaunauppbót en ekki
sem greiðsla til barnsins. Fá úr-
ræði eru til staðar úti í atvinnulíf-
inu til að auðvelda fólki að sam-
ræma fjölskyldulíf sitt og atvinnu-
þátttöku að ekki sé taiað um slakan
aðbúnað þeirra sem eiga böm með
sérþai-fir eða veik börn.
Samstarf við samtök
launafólks
Það er mikilvægt að gera breyt-
ingar á þeim þáttum sem hér hafa
verið nefndir og gera þannig að-
búnað bamafjölskyldna betri.
Verkalýðshreyfingin hér á landi og
í Evrópu hefur þegar lagt tölu-
verða vinnu í hugmyndir til að auð-
velda fólki atvinnuþátttöku sam-
hliða fjölskyldulífi og þær hug-
myndir ber að styðja við. Mikil-
vægt er að stjórnvöld beiti sér sér-
staklega fyrir því að mótuð sé skýr
fjölskyldustefna í atvinnulífinu,
sjónarmið fjölskyldufólks séu tekin
Bryndís
Hlöðversdóttir
Lágt lyfjaverð
getur shipt shöpum...
Apwtekið
Brautrydjendur að
Itegrá lyfjaverði
4 til 6 vikna hóreyðing
Páshatilboð
One Touch vaxlieki með öllu
1 @4Sl®kr.
One Touch vaxfylling, stór
S®®kr.
One Toueh háreyðingarkrem ineð 20% afshetli
Æfgreiðslustaðir Apóteksins: 0
Að Iðufelli 14 við hliðina á ItÓM S
Spönginni í Grafarvogi við hliðina á Itónus
Að Smiðjuvegi 2 við hliðina á ItÓM S
Smáratorgi 1, SMÁRATOKGI
Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi við hliðina á ItÓM S
FIRÐI, Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði
til greina við skipu-
lagningu vinnunnar.
Vinnutímann þarf að
sníða meir að þörfum
hvers og eins, auka
þarf valfrelsi og gera
vinnutímann sveigjan-
legri. Þá þarf að leggja
áherslu á að stytta
vinnutímann hér á
landi sem er með því
lengsta sem gerist
meðal þjóða. Foreldra-
orlof er eitt úrræði
sem hefur ekki verið
mikið í umræðunni hér
á landi en um það hafa
Evrópusamtök launa-
fólks og atvinnurek-
anda gert samning. Sá samningur
hefur ekki tekið gildi hérlendis en
að því þarf að huga hið fyrsta.
Stjórnmál
Samfylkingin vill færa
stjórnmálin nær fólk-
inu, segir Bryndfs
Hlöðversdóttir, og
leggja áherslu á að á
*
Islandi verði til samfé-
lag sem er barnvænt
o g fjölskylduvænt.
Samvinna stjórnvalda og samtaka
launafólks er mikilvæg við endur-
uppstokkun leikreglnanna á vinnu-
markaði í þessum efnum sem öðr-
um en samfylkingarfólk leggur
mikla áherslu á gott samstarf við
verkalýðshreyfinguna.
Breytum rétt
Samfylkingin hefur á stefnuskrá
sinni veralega uppstokkun á um-
hverfi barnafólks á Islandi. Við
viljum 12 mánaða fæðingarorlof á
fullum launum sem foreldrar skipti
með sér og að minnsta kosti 3 mán-
aða sjálfstæðan rétt fyrir feður.
Breytingar verði gerðar á tekju-
tengingu barnabóta þannig að þær
nýtist öllum nema þeim allra tekju-
hæstu. Við leggjum áherslu á að
börnum og unglingum sem stunda
nám í grunn- og framhaldsskólum
verði tryggð ókeypis sálfræðiþjón-
usta sem tengist skólakerfinu. Þá
leggjum við áherslu á að réttur
barna til samvista við foreldra sína
verði tryggður meðal annars með
vandaðri skilnaðarráðgjöf, áður en
gengið er frá forsjá og umgengni.
Samræming fjölskylduþátttöku og
atvinnulífs er auk þess forgangs-
verkefni sem ábyrg stjórnmála-
hreyfing þarf að leggja sérstaka
áherslu á og Samfylkingin vill
stuðla að slíkri vinnu í nánu sam-
starfi við samtök launafólks og at-
vinnurekendur. Þannig leggjum
við grunn að betra samfélagi fyrir
komandi kynslóðir á íslandi.
Höfundur er þingmaður fyrir
Samfylkinguna í ltcykjavík.
LÍMM1ÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða
Skemmuvegi 14,200 Kópavogi. S. 587 0980. Fax 557 4243
•O' ''7
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.