Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 MINNINGAR SIG URBJÖRN INGIMUNDARSON + Sigwbjörn Ingi- mundarson fæddist á Reykja- völlum í Biskups- tungum 10. janúar 1925. Hann lést á hjúkrunardeild elli- heimilisins Grundar 25. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Ingi- mundur Ingimund- arson, f. 10. septem- ber 1889 á Reykja- völlum, d. 17. mars 1928, og Vilborg Guðnadóttir, f. 11. febrúar 1891 á Hlemmiskeiði í Skeiðahreppi í Árnessýslu, d. 14. janúar 1970 á Selfossi. Börn þeirra auk Sigurbjörns voru: Guðmundur, f. 5. október 1921, trésmiður í Reykjavík, d. 22. ágúst 1977; Guðni Frímann, f. 1. aprfl 1923, sjómaður; Ingimund- ur, f. 7. aprfl 1926, lést af slys- förum 27. desember 1958; Björn, f. 6. júlí 1927, bóndi á Reykjavöllum, d. 18. ágúst 1994. Hinn 19. október 1929 giftist Vilborg seinni manni sín- um, Jakobi Erlendssyni frá Breiðabólsstöðum á Álftanesi, f. 11. júní 1892, d. 8. júní 1975. Hinn 13. desem- ber 1963 kvæntist Sigurbjörn Hansínu Guðrúnu Elísabetu Vilhjálmsdóttur, _ f. 28. aprfl 1926 á ísa- firði. Foreldrar hennar voru Vil- hjálmur Jónsson skósmiður og bæj- arpóstur á Isafirði, f. 25. maí 1888 á Höfða í Grunnavík, d. 24. nóvember 1971, og Sesselja Sveinbjarnardóttir, f. 11. febrúar 1893 á Suðureyri við Súgandafjörð, d. 11. desember 1950. Fóstursonur Sigurbjörns og sonur Hansínu er Guðjón Guðlaugsson, f. 1. desember 1956. Sigurbjörn vann við almenn sveitastörf og ók vörubflum sem hann átti sjálfur. Hann þótti laginn við ýmis iðnaðarstörf og vann lengst við pípulagningar hjá Einari Bæringssyni og Tómasi Jónssyni, sem báðir eru látnir. Hjá Bifreiðum og land- búnaðarvélum starfaði hann frá árinu 1980 til 1994. Utför Sigurbjörns fór fram frá Árbæjarkirkju 5. mars. Faðir minn Guðmundur á Reykjavöllum var elstur fimm bræðra, fæddur 1921 og dáinn 1977. Afi minn Ingimundur Ingimundar- son á Reykjavöllum fórst í sjóróðri 1928. Þriðji í röð þessara fóðurlausu bræðra var Sigurbjörn sem nú er minnst og alltaf var kallaður Bjössi. Vilborg Guðnadóttir móðir þeirra var af Fjallsætt. Hún stóð uppi með iillan þennan drengjahóp og þurfti að sjá um bú og buru. Þá kom Jak- ob Erlendsson frá Breiðabólstað á Álftanesi og gekk þeim í fóðurstað og byggði upp bú á Reykjavöllum ásamt Vilborgu, sem hann tók fyrir konu sína. Ég hef þekkt Bjössa allt mitt líf eða meira en í hálfa öld. Hann hef- ur reynst mér ákaflega vel og rétt mér hjálparhönd, m.a. við hitalagn- ir í gróðurhúsunum á Reykjavölt- um. Af honum hef ég lært m.a. pípulagnir og logsuðu. Mér er það minnisstætt þegar hann settist á hitalögn inni í gróðurhúsi eftir að okkur hafði tekist að koma hita á og stóð ekki upp fyrr en allt var orðið sjóðandi heitt. Þá var hann ánægður með vel unnið verk. Bjössi var ákaflega barngóður og löðuðust bömin að honum. Bjössi var vörubílstjóri hér í Biskupstungum. Hann var mjög farsæll bílstjóri og vel liðinn af sveitungunum. Á þeim tíma þurftu bílstjórarnir að útrétta ýmsa hluti í Reykjavík, m.a. kaupa tvinnakefli fyrir húsfreyjurnar eða fara í Rík- ið og sækja brjóstbirtu fyrir rétt- irnar. AUtaf var Bjössi jafn greið- ugur. Ekki smakkaði Bjössi vín eða notaði tóbak og kaffí drakk hann ekki seinni árin. Bjössi var svo lánsamur að hug- ir hans og ráðskonu á Reykjavöll- um, Hansínu Vilhjálmsdóttur, náðu saman. Hann giftist henni og þau stofnuðu heimili í Reykjavík. Þau bjuggu fyrst á Karlagötu 9 og síðan í Hraunbæ 126. Hansína kom með son sinn þriggja ára gamlan, Guðjón Guðlaugsson, í bú- ið. Bjössi hafði sjálfur kynnst því að vera föðurlaus og tók hann Guð- jóni sem hann væri hans eigin son- ur. Bjössi vann hjá Ofnasmijðu Reykjavíkur við suðuvinnu á ofn- um. Hann var við pípulagnir hjá Kristni Auðunssyni, Einari Bær- ingssyni og Tómasi Jónssyni. Síð- ustu starfsárin vann hann hjá Bifreiðum og landbúnaðai-vélum við þrif á nýjum bflum. Bjössi var ákaflega snyrtilegur maður. Það mátti best sjá á því að bíllinn hans var alltaf eins og nýr. Allt umhverfi hans og heimili þeirra Hansínu ber vott um þessa sérstöku snyrti- mennsku. Bjössi var ávallt heilsuhraustur og þurfti einungis tvisvar að fara á spítala. I seinna skiptið var það vegna smávægilegs kviðslits. Bjössi þurfti að fara í svæfingu í þeirri aðgerð og er eins og hann hafi aldrei náð sér að fullu eftir þá aðgerð. Síðasta árið var Bjössi á Elli- heimilinu Grund en hann vildi þó fá að fara heim um helgar. Það reyndist þó erfitt upp á síðkastið því jafnvægisleysið háði honum við gang. Ég og fjölskylda mín vottum Hansínu, Guðjóni og hans fjöl- skyldu okkar innilegustu samúð við aridlát Bjössa. Sigurður á Reykjavöllum. SIGRIÐUR AÐALHEIÐUR PÉTURSDÓTTIR + Sigríður Aðal- heiður Péturs- dóttir fæddist í Hnífsdal 15. sept- ember 1915. Hún lést á Landakots- spitala 11. mars síð- astliðinn og fór út- för hennar fram 17. mars. Elskuleg frænka mín er látin. Síðast þegar ég heimsótti hana á spítalann fann ég að ekki var langt í hinstu hvfldina. Og sjálfsagt hefur hún verið henni kærkomin. Þrot- inn var kraftur og maður hennar nýlátinn. Það hefur verið erfitt fyrir hana að geta ekki fylgt hon- um til grafar get ég trúað en það verður ekki við allt ráðið. Hjálmar stóð við hlið Siggu í 53 ár og voru þau einstök hjón. Hann var góður tenór og þau sungu saman alla tíð. Hann var listhneigður með af- brigðum og gerði gullfagra hluti sem hann sýndi mér. Við Sigga frænka hittumst fyrst þegar ég var á fjórða ári sumarlangt á Kleifum í Seyðisfirði hjá móður kennar Petrínu S. Skarphéðins- dóttur og Magnúsi Péturssyni manni hennar sem þar bjuggu. Skarphéðinn afi okkar var þá hjá þeim og man ég að hann tók mig oft á hné sér og kallaði mig litlu konuna sína en amma Siggu hét Pálína og heiti ég eftir henni en mma mín hét Petrína eins og móðir Siggu. Sigga minnti mig á það þeg- ar ég var að telja upp stelpurnar á Kleifum, hefði ég talið sjálfa mig oft upp í þeirri upptalningu. Hún hló svo oft að þessu síðar þegar við rifjuðum eitthvað upp síðan í gamla daga, hún mundi svo vel eftir veru minni þar og sagði mér frá ýmsu en ég man eftir börnun- um sem þar voru og auðvitað eftir Evu systur hennar sem er jafnaldra mín. Sigga var afskaplega hláturmild enda gerð- um við gaman úr mörgu. Til dæm- is þegar við báðar vorum eitt sinn hjá Evu í heimsókn og ég sagði að ég hefði þurft að sofa með hálsinn um trefilinn á nóttunni og hún byrjaði að skellihlæja en ég horfði bara á hana en áttaði mig síðan og hló ekki minna. Við vorum líkar að sumu leyti, báðar höfðum við yndi af Ijóðum og gamanvísum, við vor- um báðar við stofnun Kórs eldri borgara í Reykjavík og sungum við þar saman í þrjú ár en ég færði mig yfir í kirkjukór. Við höfðum sungið frá barnæsku og vona ég að við eigum eftir að syngja sam- an þegar við hittumst næst. Mér þótti vænt um Siggu Pé frænku og minnist hennar með kærleik í huga. Nú kveð ég hana þar til við sjáumst aftur. Ég bið Ásgeiri, börnum hans Emblu Dís, Guðmundi, Sigríði Lí- bu og börnum þeirra Guðs bless- unar. Pálína Magnúsdóttir. Elsku Sigga mín. Mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Nú ert þú horfin mér frá og ég mun sakna þín mikið. Þú varst mér svo góður vinur alla tíð síðan við vorum börn fyrir vestan og eins aftur eftir að við fluttumst báðar til Reykjavikur. Það vildi svo skemmtilega til að við áttum báðar heima á Langholtsveginum og þá tókum við upp þráðinn aftur og hann hefur haldist alla tíð síð- an. Það er ekki svo langt síðan ég talaði við þig í síma. Þá varst þú komin vestur á Landakot og ég var að votta þér samúð mína þegar þú misstir manninn þinn, hann Hjalla, og þú sagðir að heilsa þín væri ekki góð. Mér hefði ekki dott- ið í hug að það væri í síðasta skipti sem ég heyrði í þér. Ég veit að þú varst ástrík og góð eiginkona, móðir og amma og ég veit að sonur þinn og ömmubörn sakna þín sárt. Það var alltaf gam- an að koma yfir til þín og sjá hvað þú varst búin að sauma fín föt á ömmubörnin og baka fínar kökur fyrir afmælin þeirra. Og eins minnist ég þess þegar þú tókst að þér að hugsa um heimilið fyrir pabba þinn og ganga systkinum þínum í móður stað. Ég sendi syni þínum og bömum hans mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Soffía Jónsdóttir. JAKOBÍNA JÓNSDÓTTIR + Jakobína Jóns- dóttir fæddist í Hafnarnesi við Fá- skrúðsíjörð 29. des- ember 1915. Hún lést á Sjúkrahúsinu í Neskaupstað 5. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Níelsson og Guðlaug Halldórs- dóttir. Jakobína var Ijórða í röð tíu systkina og eru þijár systur á lífi. 10. maí 1941 giftist hún Andrési Sigurðssyni járnsmið á Fáskrúðsfirði. Hann lést 13. febrúar 1969. Fóstursonur þeirra er Sigurður Jakobsson f. 20,nóvember 1947. Útför Jakobínu fór fram 13. febrúar frá Fáskrúðsfjarðar- kirkju. Því fækkar óðum eldra sam- ferðafólkinu í mínum gamla heimabæ Búðum í Fáskrúðsfirði. Þann 13. febrúar sl. fór fram útför Jakobínu Jónsdóttur húsmóður í Odda 83 ára að aldri, að viðstöddu fjölmenni. Bínu í Odda, en það var hún ávallt kölluð, kynntist ég fyrst þegar ég nýgift settist að á Búðum haustið 1942, en þá vorum við ásamt nokkrum fleiri ungum konum saman í saumaklúbb í nokkur ár. Mörgum árum síðar áttum við eftir að kynnast betur þegar ég réðist til starfa í heimil- ishjálp fyi-ir eldri borgara. Þegar ég lít til baka þá er eitt sem er mér ofarlega í huga en það er brosið hennar Bínu og hennar létti hlátur á góðum stundum. En það var ekki bara á slíkum stund- um sem hún gat miðlað brosinu sínu. I mótlæti og erfiðleikum var einnig stutt í brosið og vafalaust hefur það létt henni gönguna gegnum lífið. Lífshlaup Bínu var líkt og hjá flestu alþýðufólki þessa tíma. Hún fæddist í litlu sjávarplássi og ólst þar upp í stórum systkinahópi og þegar aldur leyfði fór hún að vinna fyrir sér, var í vist sem kallað var, bæði í Vestmannaeyjum og einnig fyrir austan. Að vera í vist á mynd- arlegum heimilum var á vissan hátt skóli fyrir verðandi húsmæð- ur og bar heimili hennar því ávallt vitni. Þau Bína og Andrés settust að á neðri hæð í húsinu Odda og þar var heim- ili hennar til dauða- dags. Eitt af því sem prýddi heimili þeirra voru blómin. Bína elskaði blóm og oft var líkast að koma í gróðurhús að koma í stofumar hennar. Hún var afskaplega heimakær og mátti segja að heimilið var hennar heimur og þar undi hún best. Vorið 1949 tóku Bína og Andrés lítinn dreng, Sigurð Jakobsson í fóstur, þá á öðru ári. Þessi litli drengur varð þeirra sólargeisli og yndi og síðar meir þeirra mikla stoð og stytta þegar veikindi knúðu dyra, en Andrés átti við langvar- andi veikindi að stríða og lá sein- ustu árin lamaður heima í Odda og lést þar árið 1969. Bína sýndi ein- stakt þrek og æðruleysi í þessum veikindum manns síns og hjúkraði honum af mikilli alúð uns yfir lauk. Gestrisni var mikil á heimili þeirra hjóna og margir sóttu þau heim og alla tíð naut Bína þess að taka á móti gestum og þótt hún ætti við mikla vanheilsu að búa um margra ára skeið þá kom hún ávallt til dyra með bros á vör. Ekki vil ég láta þess ógetið hve barngóð Bína var. Hún hændi að sér börn og til hennar sóttu þau til sumar- dvalar, ár eftir ár, systkinabörn hennar og fleira frændfólk. Seinustu árin hefur hún notið þess að á efri hæðinni búa ung hjón og hennar mikla gleði var að oft komu litlu systkinin og bönk- uðu á dyrnar hjá Bínu sinni og nutu hennar hlýju og góðvildar. Otaldar eru þær ferðir sem Bína þurfti á sjúkrahús í lengri og styttri tíma, en hún mætti erfið- leikum sínum með miklu þreki og fagnaði hverri heimkomu, þar þráði hún að vera og njóta kær- leika og umhyggju fóstursonarins sem annaðist hana eins og framast var unnt til hinstu stundar. Bína lést á Sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað . 5. febrúar sl. Siggi minn, við Steini sendum þér innilegar samúðarkveðjur, minningin um góða móður mildar söknuðinn. Guð blessi þig. Aðalbjörg Magnúsdóttir. SOFFÍA JÚNÍA SIGURÐARDÓTTIR + Soffía Júnia Sigurðardóttir fæddist á Bratta- völlum á Árskógs- strönd 22. júlí 1906. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 5. mars siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Stærri-Árskógs- kirkju á Árskógs- strönd 13. mars. Elsku amma mín, nú ert þú farin og eftir lifa yndislegar minningar í huga mér. Kallið kom skjótt og mér finnst skrítið til þess að hugsa að nú eigi ég enga ömmu í Sólvöllum. Margar góðar stundir átti ég með þér og man ég sérstaklega vel eftir þvi þegar ég hjálpaði þér í garðin- um, vökvaði blómin, tíndi fíflana af lóðinni og síðast en ekki síst alla súkkulaðibitana sem þú verðlaun- aðir mig með. Nú er ég viss um að þú situr ekki auðum höndum frekar en hér í lif- anda lífi, þú hafðir alltaf eitthvað fyrir stafni og aldrei man ég eftir þér dapri, alltaf hlæjandi og syngjandi og man ég sérstaklega eftir því þegar þú söngst fyrir mig Fljúga hvítu fiðr- ildin og Afi minn og amma mín. Þessi lög sitja enn svo föst í huga mér vegna þess hve mikla áherslu þú lagðir á að við krakk- amir lærðum þau, og í dag nota ég þau á sama hátt og þú gerðir. Þegar ég skrifa þessi orð fara um mig mjög blendnar tilfinning- ar, annars vegar mikil sorg yfir því að þú sért farin en hins vegar hamingja því ég tiúi því að þér líði vel og þú sért búin að hitta Konna afa. Elsku amma, ég sakna þín sárt en ég geymi minninguna um þig í hjarta mínu, ég þakka fyrir að hafa þekkt þig og fengið að njóta þeirra yndislegu stunda sem við áttum saman. Soffía Gunnlaugsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.