Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 63 AÐ undanfömu hafa verið að birtast fréttir og umsagnir um frum- varp til laga um að banna notkun handfar- síma í bílum, það er að segja væntanlega öku- mönnum í akstri. Vissu- lega getur skapast hætta ef ökumaður er ekki með fulla athygli við akstur. En því mið- ur eru ekki allir öku- menn með athyglina í lagi hvort sem þeir eru að tala í farsíma eða ekki og hafa jafnvel ekki farsíma í bílnum. Það er alltof algengt að ökumenn séu að aka hálf sofandi, og þyrfti að koma upp búnaði til að mæla athygli öku- manna. Það er ekki í samræmi við Islenskt stjórnarfar að vera með boð og bönn við öllum hlutum eða vildu menn sjá að bannað væri að aka rauðum bflum því þeir taka of mikla athygli frá öðrum ökumönnum. Hvernig væri að banna notkun geisladiskaspilai'a eða jafnvel reyk- ingar við akstur svo eitthvað sé nefnt. Til dæmis ætti að banna með öllu að reykja í bílum, því bæði reyk- urinn getur hindrað útsýni öku- mannsins, valdið honum krabba- meini eða ótímabærum astmaköstum og síðast en ekki síst eldhættu. Það gerðist um daginn að farþegi sem var í framsæti bíls missti logandi vindling úr höndum sínum, og það var ekki að sökum að spyrja að eitt- hvað var farið að sviðna og upp kom þessi líka ógeðslegi reykur. Ekki mátti miklu muna að ekki varð stór- slys af, því ökumaðurinn var farinn að leita að stubbnum ásamt farþeg- anum, og missti við það næstum stjórn á bílnum. Eitt augnablik og örlögin hefðu verið ráðin hjá þessu unga fólki í blóma lífs síns. Hægt er að ganga lengra í boðum og bönnum, ef menn vilja fara þá leiðina, með því að banna að aka bíl í tréklossum því þá hefur maður ekki eins góða tilfinningu fyrir stjórnun bílsins, eins er hægt að banna notk- un á derhúfum því þær geta hindrað útsýni, og það mætti lengi halda áfram að telja upp allskyns tilfelli sem gætu verið hættuleg. Að mínu áliti er það höfuð regla við akstur að vera vakandi og aka ekki þannig að það valdi öðrum töfuni, óþægindum og eða slysi. Það er orðin alltof algeng sjón að sjá ökumenn aka lang- ar leiðir hægar en leyfður hámarkshraði á vinstri akrein, til dæm- is á Hringbrautinni á leið vestur í bæ og þá ekki síst um helgar, þá eru um 7-8 af hverjum 10 bílum á vinstri akrein. En hvað er gert við því? Lögreglan hefur aldrei svo ég viti til, stöðvað ökumenn fyrh að aka hægt á vinstri akrein, heldur hamast þeh við að stöðva og sekta þá sem aka eilítið greiðar en aðrir, og er ég þá ekki að Umferðaröryggi Það er of algeng sjón, segir Jón Svavarsson, að sjá ökumenn aka langar leiðir á vinstri akrein hægar en leyfð- ur hámarkshraði er. mæla með ofsaakstri en þessi undra- tæki eru upphaflega framleidd til að greiða fyrir samgöngum og koma fólki á milli staða á sem skemmstum og öruggustum tíma eða allavega svo fljótt sem auðið er. Því fínnst mér hraðatakmarkanir oft vera á skjön við þann tilgang sem góð sam- göngutæki eru framleidd fyrh. Hins vegar er ég fylgjandi því, að í íbúð- argötum og inní hverfum þar sem umferð gangandi vegfarenda og barna til og frá skólum er fyrh hendi, eigi að virða hraðatakmark- anh sérstaklega vel. Því að gang- andi vegfarandi hefur ekki sama svigrúm og viðbragð og akandi veg- farandi. Það veldur mér vonbrigðum hvernig Borgarskipulagið og um- ferðarnefnd hafa eyðilagt greiðfær- ar umferðargötur, eins og Lauga- veg við Hlemm, Skeiðarvog þar sem önnur akreinin var tekin af vegna þess að svo margh bílar aka þar um. Vissulega getur mikil umferð verið hættuleg börnum sem þurfa að fara yfír þungar umferðargötur en mörg ár eru síðan að settar voru hraðahindranir á Skeiðarvog við Vogaskóla. En það keyrh um þver- bak hvernig búið er að eyðileggja götuna milli Langholtsvegar og Sæ- brautar. Það þarf alltaf að vera með sömu þröngsýnina, þegar gott skipulag ætti að ganga út á greiðar samgönguleiðir þarf sífellt að þrengja og hindra greiða umferð með öllum mögulegum hætti. Hvernig væri að fara að skipuleggja íbúða- og iðnaðarbyggð þannig að allir gætu búið í sátt og samlyndi, að skólahverfi væru þannig skipu- lögð að þau væru ekki tekin í sund- ur með stórum umferðargötum, að staðsetning stofnbrauta og stóira gatnamóta væri þannig fyrh komið að hægt væri að byggja alvöru mis- læg gatnamót, en ekki eins og fór fyrir gatnamótum Höðabakka og Vesturlandsvegar þar sem vandin var fluttur uppá aðra hæð. Ef við ætlum að halda áfram að geta kom- ist leiðar okkar þá þarf alvarlega að fara að hugsa um þessa hluti, ann- ars getum við tekið frumstæðari að- ferðh við að komast á milli staða. Því gleymum ekki að í velferðar- þjóðfélagi eins og okkar þá kostar tími peninga og mannsævin er stundum alltof stutt. Það er von mín og ósk, að stjórnvöld, skipulag og forsvarsmenn umferðarmenningar hugi að þessum þáttum og láti til skarar skríða í að endurbæta þessi mál og löggæslan hugi að sofandi ökumönnum og hægfara akstri á vinstri akreinum. Höfundur er ökumaður með aukin réttindi. O X bv. J Vafnshreinsibúnaöuf www.velaverk.is s. 568 3536 Bann, bann og aftur bann Jón Svavarsson 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. spron M SPAMSIÓBUR ítfYKJAV VÍKUB OG NÁGHENNI& AÐALFUNDUR Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldinn á Hótel Loftleiðum, Þingsölum 1-4, kl. 16:30, föstudaginn 26. mars 1999. Dagskrá: Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 1998 Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur sparisjóðsins fyrir árið 1998, ásamt tillögu um ráðstöfun tekjuaf gangs fyrir liðið starfsár Kosning stjórnar Kosning endurskoðanda Tillaga um ársarð af stofnfé Tillaga um þóknun stjórnar Tillaga um breytingar á 4. og 5. gr. samþykkta sparisjóðsins Önnur mál Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað í fundarbyrjun. Sparisjóðsstjórnin. Ert þú meö ■ flösu þurrt hár ■ feitt hár hárlos Þá er Ducray lausnin fyrir þig! Ducray eru ofnæmisprófaðar vörur gegn vandamálum í hári eða hársverði. 12000 BANKI FJARGÆSLUAÐILI: SPARISJOÐUR HAFNARFJARÐAR ölskyldunni Landssöfnun Jptefurfram í fjölmiðlum var heimil| ^o Langeyrarvegi 9 í Hafnarfirði ' *ennt til kaldra kola þann 6. mars og skemmda af völdum veggja- Stæðu hefur fjölskyldan orðið að M, bókum og fleiru úr innbúi sínu. Eins og konj® fjölskyldunS fjarlægt og|® vegna útbrei® titlu. Af sömrn eyða húsgögn Fjölskyldan hefur þvi misst aleigu sína, hús og heimili, án þessfað fá rönd við reist og vilja aðstandendur þfessa átaks því hér með skora á íslensku þjóðin'áíað'taka höndum saman og sýna stuðning í verki með því að styrk-ja** • þau til endurbyggingar heimilisins að Langeyrarvegi. Sparisjóður Hafnarfjarðar er fjárgæsluaðijií söfnunarinnar og tekur á móti framlögum á reikning númer 12000. Alltaf rífaadi sala
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.