Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. HÆKKUN GRUNNLÍFEYRIS RÍKISSTJÓRNIN hefur tilkynnt um aðgerðir af sinni hálfu til að bæta kjör lífeyrisþega í landinu. Þær fel- ast í 7% hækkun á grunnlífeyri tryggingabóta frá 1. apríl nk. og verður hann 16.820 krónur á mánuði. Þá hækka vasapeningar lífeyrisþega á stofnunum um 34%, eða um 4 þúsund krónur á mánuði, og verða þeir þá jafnháir grunnlífeyri. Hækkunin nær til um 30 þúsund bótaþega, jafnt til ellilífeyrisþega sem öryrkja, og kostnaður ríkis- sjóðs nemur um 520 milljónum króna á ári. Akvörðun ríkisstjórnarinnar er tekin í framhaldi af samráðsfundum hennar og eldri borgara, en það var sam- eiginleg niðurstaða að hækkun grunnlífeyris almanna- trygginga væri forgangsverkefni. Davíð Oddsson forsæt- isráðherra sagði m.a. þegar hann tilkynnti ákvörðun rík- isstjórnarinnar, að endurskoðuð þjóðhagsspá sýndi, að undirstöður efnahagslífs og ríkisfjármála væru traustar. „Því hyggst ríkisstjórnin nýta svigrúm í fjármálum ríkis- sjóðs til að koma til móts við sjónarmið lífeyrisþega um að raunkaupmáttaraukning lífeyrisbóta verði ótvírætt sambærileg við það sem orðið hefur hjá öðrum,“sagð Da- víð. Hann sagði jafnframt, að kerfi almannatrygginga verði áfram til skoðunar, ekki sízt í samráði við eldri borgara, og litið yrði til annarra leiða í þágu bótaþega, sem stjórnvöld hafa yfír að ráða. Stefnt verði að því inn- an hallalausra fjárlaga, að einfalda almannatrygginga- kerfíð, auka jafnræði bótaþega og huga áfram sérstak- lega að hag þeirra sem lakast standa. Á því er ekki vanþörf og vonandi að vel takist til. SAMKEPPNI Á SÍMAMARKAÐI REIKNINGAR Landssíma íslands hf., sem birtir voru á þriðjudag, sýna að fyrirtækið stendur á traustum grunni og rekstur þess hefur gengið vel á liðnu rekstrarári. Hagnaður af rekstrartekjum nemur 18,2% og sé farsímakerfíð tekið út úr er hagnaður þess hvorki meiri né minni en 33,6% af rekstrartekjum GSM-kerfís- ins eins. Póstur & sími hafði frá upphafi einkaleyfi á rekstri síma. Einkaleyfíð var afnumið og öðrum aðilum veitt rekstrarleyfí. Stofnuninni var skipt í tvö hlutafélög, Landssímann og íslandspóst, og fyrir dyrum stendur sala á hlutabréfum ríkisins. Samkeppnin á símamarkaði hefur leitt til verðlækkunar eins og búizt var við, en Sam- keppnisstofnun hefur staðið í vegi fyrir frekari lækkun- um af samkeppnisástæðum, svo sem fram kom í bréfi stofnunarinnar frá 2. október 1998. Þar voru Landssím- anum send „eindregin tilmæli" um að ráðast ekki í frek- ari verðlækkun á meðan rannsókn samkeppnisyfirvalda stæði yfír. Það er varla hlutverk Samkeppnisstofnunar að koma í veg fyrir lækkun á verði þjónustunnar til neytenda og alla vega ekki þegar þær upplýsingar liggja fyrir sem fram komu á aðalfundi Landssímans. Reikningar Lands- símans sýna glögglega, að verulegt svigrúm er til verð- lækkunar og engin ástæða er til annars en að neytendur njóti þess. Ekki sízt í verði GSM-símtala, þar sem þriðja hver króna skilar sér í hagnaði. Einnig leyfír afkoma Landssímans umtalsverða lækkun á millilandasímtölum, en þau hafa löngum verið allt of dýr miðað við tilkostnað. Þau hafa raunar lækkað mikið eins og annað á undan- förnum árum en betur má ef duga skal. Það er ekki verjandi fyrir Samkeppnisstofnun að standa lengur gegn verðlækkunum Landssímans. Þeir sem voru reiðubúnir til að hefja hér starfrækslu í sam- keppni við Landssímann gátu ekki og geta ekki búizt við því að kostnaður þeirra við að ná viðunandi markaðshlut- deild verði borinn uppi af símnotendum í formi hærri símagjalda en nokkur efnisleg rök eru fyrir. Farsíma- gjöld Landssímans verða að lækka nú þegar. Síðasti dafflir þingsins á þessu kjörtíma NÍU þingmenn láta af þingmennsku í vor. Hér eru átta þeirra. Frá vinstri: Egill Jónsson, Guðmundur Bjarnason, Krii Ólafur G. Einarsson, Ragnar Arnalds, Stefán Guðmundsson og Gunnlaugur M. Sigmui Níu þing'- menn láta af þing- mennsku ALÞINGI Islendinga var í gær frestað fram yfír alþingiskosningarnar 8. maí nk. Níu þnig- menn láta nú af þingmennsku. Auk þess skipa nokkrir sitjandi þingmenn ekki eitt af efstu sætum viðkomandi framboðslista og því óvíst hvort þeir ná kjöri á næsta þing. FJÓRIR þingmenn hafa afsalað sér þingmennsku á kjörtíma- bilinu. Þeir eru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra ís- lands í Washington, Friðrik Sophus- son, forstjóri Landsvirkjunar, og Svavar Gestsson, sendiherra íslands í Kanada. Þá lést Ásta B. Þorsteinsdótt- ir, þingmaður jafnaðarmanna, síðast- liðið haust. Þeir þingmenn sem ekki gefa kost á sér til Alþingis að nýju eru: Guðrún Helgadóttir, þingflokki óháðra, Gunn- laugur M. Sigmundsson, þingmaður Framsóknarflokks, Guðmundur Bjai-nason, umhverfísráðherra, Kristín Ástgeirsdóttir, þingflokki óháðra, Þor- steinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, Ólafur G. Einarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, Stefán Guðmundsson, þingmaður Framsóknarflokks, Egill Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, og Ragnar Árnalds, þingmaður Sam- fylkingarinnar. Af þessum hópi hefur Ragnar Arnalds setið lengst á þingi eða í 32 ár sem aðalmaður en þrjú ár sem varaþingmaður. Ólafur hefur setið á Alþingi frá árinu 1971, en Egill, Stef- án og Guðmundur hafa setið á Alþingi í tuttugu ár eða frá haustinu 1979. Þor- steinn hefur setið á þingi í sextán ár, Kristín í átta ár, Gunnlaugur í fjögur ár og Guðrún kom aftur til þings nú fyrir skömmu er Svavar Gestsson af- salaði sér þingmennsku. Hitti gömlu kempurnar Þegar Ragnar Amalds er beðinn að rifja upp minnisstæðasta atburðinn á þingi síðustu 32 árin nefnir hann fyrsta þing- fundinn sem hann sat, þá nýorðinn 26 ára, haustið 1963. Hann kom inn á þing fyrir Alþýðubandalagið á Norðurlandi vestra. „Það var auðvitað mjög skemmtilegt fyrir mig sem komungan mann að hitta þessar gömlu kempur sem þá sátu enn á þingi, menn eins og Ólaf Thors, Hermann Jónasson, Eystein Jónsson og Einar Olgeirsson. Menn sem höfðu hafið sinn pólitíska feril á ámnum í kringum 1930 og voru um það bil að kveðja um þetta leyti,“ segir Ragnar. Aðspurður segir hann að margt hafí breyst á Alþingi frá því hann settist þar fyrst. „Fjöldamargt jákvætt hefur gerst á þessum tíma og má auðvitað nefna það að þegar ég kom inn haustið 1963 var aðeins ein kona á þingi. Nú em þær um þriðjungur þingmanna." Ragnar segir einnig að samvinna stjórnar og stjórnarandstöðu sé allt önnur nú en áður. „Það er miklu meiri sanngimi í samskiptum stjómar og stórnamarandstöðu og menn vinna á miklu skynsamlegri hátt að málum en áður var. Harkan er ekki eins mikil og hún var hér áður fyrr og menn sýna meiri tillitssemi og sanngimi, þótt auð- vitað mætti hún vera miklu meiri,“ seg- ir hann. „Nefndarstörfin em líka miklu stærri og veigameiri þáttur þingstarf- anna en áður var og þar hefur orðið gríðarleg breyting. Menn eru núna í miklu færri nefndum en áður vegna þess að nú er þingið í einni deild en var áður skipt í tvær deildir," segir hann og bætir við að af þeim sökum geti þing- menn nú einbeitt sér betur að nefndar- störfum Alþingis. Ragnar segir að það sem hafí hins vegar færst til verri vegar á þessum rúmu þrjátíu áram sé það að saman- lagður fundartími sé alltaf að verða lengri og lengri. „Málgleðin fer vaxandi og menn halda miklu fleiri og lengri ræður en áður var ög þetta er í raun og vera orðið séríslenskt vandamál,“ segir Þingfrestun fram yfír kosningar 405 mál afgreidd á nýliðnu þingi DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra frestaði fundum Alþingis, í umboði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Islands, skömmu fyrir hádegi á Al- þingi í gær. Þar með er 123. löggjaf- arþingi lokið. Áður hafði Alþingi samþykkt frumvarp til nýrra stjórn- skipunarlaga, þar sem kveðið er á um breytta kjördæmaskipan. Nýtt þing á að koma saman eigi síðar en fjórum vikum eftir alþingiskosning- ar 8. maí nk. Ólafur G. Einarsson, forseti Al- þingis, sagði skömmu fyrir þing- frestun að alls 200 frumvörp hefðu verið lögð fram á Alþingi á 123. lög- gjafarþingi þess. Þar af voru stjórn- arfrumvörp 114 og þingmannafrum- vörp 86. Alls urðu 82 stjómarfrum- vörp að Iögum og 13 þingmanna- frumvörp. Auk þess voru alls 105 þingsályktunartillögur lagðar fram og af þeim voru sljómartillögur 11 og þingmannatillögur 94. 28 tillögur vom samþykktar sem ályktanir Al- þingis, ein var felld, sex var vísað til ríkisstjórnarinnar og 70 eru óút- ræddar. Þá vom lagðar fram 27 skýrslur og 285 fyrirspurnir bornar fram. „Alls vora til meðferðar í þing- inu 618 mál. Þar af voru 405 afgreidd og tala prentaðra þingskjala var ÓLAFUR G. Einarssoi l. 233,“ sagði Ólafur. Ólafur fór nokkram orðum um störf Alþingis að öðru leyti og sagði m. a. að miklar og góðar breytingar hefðu orðið á störfum þess á seinustu tveimur áratugum. Hann sagði að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.