Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
,SOUL-STELPURNAR“, Femi Taylor, Louise Marshall og Hazel Fernandes, verða áber-
andi á sviðinu meðan á sýningunni stendur.
SEX manna rokkhljómsveit tekur þátt í flutningnum. I henni eru meðal annarra gítarleik-
ararnir Friðrik Karlsson og Guðmundur Pétursson.
Frelsarinn
á fjölunum
Sinfóníuhljómsveit Islands, nítján ein-
söngvarar frá West End International
í Lundúnum, rokkhljómsveit og fjörutíu
manna kór flytja eina vinsælustu rokk-
óperu allra tíma, Jesus Christ Superstar,
í Laugardalshöll í kvöld og á morgun.
Orri Páll Ormarsson kynnti sér þessa
„tónleikasýningu“ sem Sinfónían segir
að sé stórbrotnari útgáfa „en þú hefur
nokkru sinni upplifað!“
Morgunblaðið/Halldór
„SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands er án efa eitt best varðveitta leynd-
armál heims,“ segir stjórnandinn Martin Yates sem hér drekkur í sig
leik hljómsveitarinnar á æfingu.
FÁIR menn, lífs eða liðn-
ir, hafa átt sér jafn
marga fylgjendur í
gegnum tíðina og frels-
ari mannkyns, Jesús
Kristur. Það fer því vel á því að ein
ástsælasta rokkópera aldarinnar -
og þar af leiðandi allra tíma - skuli
vera samin um píslarsögu hans. Er
hún rakin frá sjónarhóli Júdasar,
postulans sem sveik meistara sinn í
hendur óvininum. Er honum lýst
sem vonsviknum hugsjónamanni
sem skilur illa mótsagnakennda
hegðun Krists. Úr vonbrigðunum
eru svikin sprottin.
Jesus Christ Superstar kallast
verkið og er eftir tónskáldið sir
Andrew Lloyd Webber og texta-
höfundinn Tim Rice. Að uppfærsl-
unni í Laugardalshöll standa Sin-
fóníuhljómsveit íslands, kór, rokk-
hljómsveit og einsöngvarar frá
musteri söngleiksins, West End
International í Lundúnum.
Þegar rokkóperan var frumsýnd
í Lundúnum árið 1971 féll hún í
grýtta jörð hjá gagnrýnendum,
sem voru ekki undir formbylting-
una, sem í verkinu fólst, búnir, auk
þess sem geistlegir menn gripu
andann á lofti. Almenningur tók
Superstar eigi að síður opnum
örmum og andúðin varð, ef eitt-
hvað er, vatn á myllu verksins sem
lagði upp í sigurfór um heiminn -
sigurför sem engan endi ætlar að
taka.
Sem dæmi má nefna að fyrsta
uppfærslan í Lundúnum gekk í
átta ár samfellt, alls 3.358 sýning-
ar, og sló öU aðsóknarmet. Þetta
afrek hyggjast Sinfóníuhljómsveit
Islands og gestir hennar ekki leika
eftir en munu þó endurtaka „tón-
leikasýninguna" á morgun kl. 17.
í auglýsingu frá Sinfóníuhljóm-
sveit Islands sem birst hefur í fjöl-
miðlum síðustu daga segir: „Fræg-
asta rokkópera allra tíma í stór-
brotnari útgáfu en þú hefur nokkru
sinni upplifað!" Blaðamanni lék
forvitni á að fræðast betur um
þessa staðhæfingu!
Fullskipuð
sinfóníuhljómsveit
„Þetta er sannleikanum sam-
kvæmt vegna þess að hvert sem
fólk fer í leikhús til að horfa á
Jesus Christ Superstar, hvort sem
er á West End eða Broadway,
myndi það ekki upplifa svona stór-
brotna uppfærslu með svona stórri
hljómsveit. Við gerum þetta með
fullskipaðri sinfóníuhljómsveit,
sem er yfirleitt ekki gert, rokk-
sveit, um fjörutíu manna kór og
nítján einsöngvurum," segir Helga
Hauksdóttir tónleikastjóri Sinfón-
íuhljómsveitarinnar.
Hugmyndin að uppfærslunni er,
að sögn Helgu, runnin undan rifj-
um Runólfs Birgis Leifssonar fyrr-
verandi framkvæmdastjóra SÍ.
„Þessi uppfærsla var honum hjart-
ans mál og lagði hann þetta til
skömmu áður en hann lét af störf-
um. Það verður að segjast að ekki
leist öllum jafn vel á hugmyndina
en hún var þó samþykkt og ég efast
um að nokkur maður sjái eftir því
núna. Runólfur reyndist sannspár -
þetta verður glæsileg sýning."
Ekki er um konsertuppfærslu á
rokkóperunni að ræða heldur „tón-
leikasýningu" líkt og þegar ópera
Puccinis, Turandot, var færð upp á
sama stað á dögunum. „Við lítum á
þetta sem sýningu," segir Helga.
„Söngvararnir verða í búningum
og hreyfa sig um á sviðinu. Þarna
verða líka þrjár „soul-stelpur“,
sem dansa um sviðið. Þá verður
vitaskuld komið upp sviðsmynd í
Höllinni, þó hún verði einfóld, og
mikið lagt upp úr lýsingu. Hana
annast Jóhann Bjarni Pálmason og
Kjartan Freyr Vilhjálmsson sem
gerðu svo góða hluti í Turandot
um daginn.“
Helga staðhæfir að Superstar sé
eitt umfangsmesta verkefni sem
Sinfónían hefur tekist á hendur,
slagi nánast upp í Turandot. „Það
hefur verið afskaplega mikið fyrir-
tæki að koma þessu í kring - af-
skaplega dýrt líka. Við höfum til
dæmis lagt í miklar framkvæmdir
til að bæta aðstöðu fyrir áhorfend-
ur í Höllinni. Hljóðtæknin, sem
fyrirtækið Exton og Ríkisútvarpið
sjá um, er líka mjög flókin. Við höf-
um aldrei lent í öðru eins. Að því
leyti er þetta stærra verkefni en
Turandot. Eg er hins vegar sann-
færð um að allt á þetta eftir að
verða erfiðisins virði.“
Nýir tónleikagestir
Einn helsta kostinn við að færa
upp rokkóperu segir Helga vera að
Sinfónían laði til sín nýja tónleika-
gesti. „Ég geri ráð fyrir að allir
aldurshópar muni sækja þessa sýn-
ingu og meðalaldurinn verði tals-
vert lægri en á hefðbundnum tón-
leikum hjá okkur. Það er ekkert
nema gott um það að segja enda er
það markmið hljómsveitarinnar að
ná til eins breiðs áheyrendahóps og
unnt er. Við erum Sinfóníuhljóm-
sveit Islands og lítum á það sem
skyldu okkar að þjóna sem flestum
án þess að slá af kröfum."
Fyrst Turandot, nú Superstar.
Sinfónían hefur ekki ráðist á garð-
inn þar sem hann er lægstur síð-
asta kastið. Skyldi fleira af þessu
tagi vera á döfinni? „Nei, nú látum
við staðar numið í bili. Snúum okk-
ur aftur að venjulegum tónleikum.
Ætli manni finnist þá nokkuð vera
að gera,“ segir Helga og hlær. „Við
höfum fengist við stæm verkefni
nú á einum mánuði heldur en við
komum líklega til með að gera á
næstu áram. I raun erum við kom-
in út fyrir okkar verksvið. Þetta
era meira sýningar en tónleikar og
segja má að við höfum farið í hlut-
verk Þjóðleikhússins þegar við
sýndum Turandot. Það var ópera-
uppfærsla með öllu tilheyrandi.“
Flutningi Superstar verður
stjómað af breska hljómsveitar-
stjóranum Martin Yates. Segir
hann sýninguna leggjast vel í sig.
„Undanfarin þrjú ár hef ég stjórn-
að flutningi sinfóníuhljómsveita á
Superstar víðsvegar um Evrópu en
reiknaði satt best að segja ekki með
því að gera það á íslandi. Hélt ein-
faldlega að svona lítið land réði ekki
við svona viðamikla uppfærslu. Það
breyttist þegar ég kom hingað í
fyrsta sinn um svipað leyti í fyrra,
til að stjóma tónleikum með efni úr
söngleikjum, og kynntist Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Hún er án efa
eitt best varðveitta leyndarmál
heims. Spilar ekki aðeins frábær-
lega, heldm- einnig af ástríðu.“
Vitrun stjórnandans
Á æfingunum fyrir tónleikana í
fyrra segir Yates að rannið hafi
upp fyrir sér ljós. „Ég hugsaði með
mér: Ég verð að setja Jesus Christ
Superstar upp með þessari hljóm-
sveit. Og hingað er ég kominn.
Þetta verður einstök upplifun!"
Yates segir sinfóníuhljómsveit-
irnar sem hann hefur stjómað á
liðnum misseram undantekningar-
lítið hafa notið glímunnar við Jesus
Christ Superstar. „Stóru söngleik-
h-nir og rokkóperarnar era um
margt ástríða samtímans, fersk
áskorun fyrir sinfóníuhljómsveitir,
sem geisla jafnan af gleði meðan á
æfingum og tónleikum stendur.
Þetta er Hka góð leið til að ná eyr-
um nýrra áheyrenda, nýrra kyn-
slóða, og smita þær vonandi af sin-
fóníubakteríunni, ef svo má að orði
komast. Þá era yngri tónleikagest-
ir, rokk- og poppkynslóðirnar, oft
gjamari á að sleppa fram af sér
beishnu að flutningi loknum. Það
getur svo sannarlega haft góð áhrif
á hljómsveitir."
Yates segir lykilinn að velgengni
Superstar í gegnum árin öðra
fremur vera tónhstina og uppbygg-
ingu verksins. „Þetta frábæra verk
var á sínum tíma algjör framsköp-
un hjá Lloyd Webber, brautryðj-
andaverk, sami-uni sinfómu og
rokks, sem raddi veginn fyrir
margar aðrar rokkóperur. Tónlist-
arannendur höfðu aldrei kynnst
neinu í líkingu við Superstar. Nú er
bara til eitt orð yfir þetta: Klassík."
Superstar verður, eins og svo
oft, færð fram á okkar daga í Höll-
inni enda segir Yates verkið tíma-
laust hstaverk, aldrei hafi staðið til
af hálfu höfunda að sviðsetja Biblí-
una. „Auðvitað heita aðalpersón-
urnar Jesús Kristur, Júdas Iskarí-
ot og María Magdalena en gætu
rétt eins heitið eitthvað allt annað
- verið allt annað fólk. Nútíma-
fólk.“
Einsöngvarar í sýningunni verða
David Shannon, sem fer með hlut-
verk Jesú, Simon Bowman, sem
syngur Júdas, Jacqui Seott, sem
syngur Maríu Magdalenu, James
Graeme, Junix Inocian, Magnus
Rongedal, Stephen Garner, Philip
Griffiths, Gavin Carr, William Al-
lenby, John Hancorn, Femi Taylor,
Louise Marshall, Hazel Femandes,
Matthew Little, Andrew Newey og
Adam Le Clair.
Allt era þetta, að sögn Yates,
nafnkunnir söngvarar í leikhúsun-
um á West End sem sveit íslend-
inga sækir á ári hverju. Flestir
hafa þeir margsinnis tekið þátt í
flutningi Superstar en inn á milli
era nokkrir sem kljást nú við verk-
ið í fyrsta sinn.
Kórinn sem syngur í Höllinni er
sérstaklega settur saman af þessu
tilefni og hefur vahð sér nafnið
Jónsbörn, stjórnanda sínum Jóni
Kristni Cortez til heiðurs. Megin-
uppistaða kórsins era fyrrverandi
nemendur Jóns ásamt félögum úr
Karlakórnum Þröstum og söng-
hópnum Brooklyn 5 sem kom við
sögu þegar Superstar var færð upp
í Borgarleikhúsinu árið 1995.
Rokkhljómsveitina skipa gítar-
leikaramir Friðrik Karlsson og
Guðmundur Pétursson, hljóm-
borðsleikararnir Eyþór Gunnars-
son og Kjartan Valdimarsson,
Gunnlaugur Briem sem leikur á
trommur og Richard Korn á bassa.