Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 47 lega og lifandi frá því sem þú hafð- ir reynt og séð. Daginn sem Jónas Ingi, bróðir okkar, fæddist brunaðir þú með okkur systurnar fímm í bæinn til að sjá hann á fæðingarheimilinu í Reykjavík. Við störðum á hraða- mælinn sem steig hærra og hærra en þorðum ekkert að segja. Þá heyrðist í þér afí: „Þið segið ömmu ykkar ekki frá þessu.“ Kæri afí, þú varst alltaf svo hress og það var svo gott að vera nálægt þér. Við kveðjum þig með söknuði og munum ávallt minnast þín með þakklæti. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þem tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hulda Björg, Hanna Rut, Hrönn, Halla, Þóra Björg og Jónas Ingi. „Dauðinn er uppsvelgdur í sigur. Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar er broddur þinn?“ (I. Korintu- bréf 15:55.) Þakkir séu Drottni fyrir frels- unaráfonn hans og þann sigur sem hann hlaut yfir dauðanum með krossdauða og upprisu frelsara okkar Jesú Krists. Við þökkum fyrir loforð Guðs sem gefa okkur þá von að fá að hittast aftur að jarðnesku lífí loknu. „Ekki viljum vér, bræður, láta yður vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von. Því að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesú leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru.“ (I. Þessalóníkubréf 4:13-14.) Astkær afí okkar sefur nú svefn- inum langa. Við höfðum líklegast öll gert okkur gi’ein fyrir að kallið gæti komið á hverri stundu þar sem hjartað hafði nokkrum sinnum sagt til sín og árin færðust yfír. Þegar afí lagðist inn á sjúkrahúsið á fimmtudeginum gátum við engan veginn grunað hvað verða vildi en síðar kom í ljós að meinið var ill- kynja. Við erum þakklát fyrir hversu heilsuhraustur afi var allt sitt líf og það að hann þurfti ekki að berjast lengi við kvalafullan sjúkdóm, því það hefði hann ekki viljað. Hvíldina fékk hann síðan fimm dögum síðar, umkringdur ástvinum. Okkur langar til að minnast hans afa í nokkrum línum enda þótt öll okkar fátæklegu orð geti ekki tjáð hve mikils við mátum hann og elskuðum. Við eldri systurnar minnumst þess hve gaman var að koma til ömmu okkar og afa á Akureyri og dvelja í húsinu þeirra í Klettaborg með stóra fallega garð- inum þeirra. Eftir að þau fluttust suður í Hveragerði gátum við heimsótt þau mun oftar og nutum næiveru þeirra svo mjög. Fimmtu- dagskvöldin eni ofarlega í huga okkar því þá fóram við svo oft í heimsókn til þeirra, spiluðum kana og spjölluðum saman. Á langri ævi hefur afí okkar upplifað svo margt, en hann hefði orðið níræður á þessu ári. Við fengum öll að njóta frásagna hans og minnumst þeirra með gleði, sérstaklega þegar hann sagði okkur frá lífí sínu og því sem gerðist í gamla daga. Það var svo gaman að heyra afa segja frá því þegar hann fór til Svíþjóðar og sýndi fimleika fyrir kónginn, þegar skipið hans varð innlyksa í Noregi á stríðsáranum og hann komst ekki heim, og einnig frá ævintýi-um sem gerðust þegar hann var sendur sem lítill drengur í sveitina á Narfastöðum. Þegar amma okkar veiktist af erfiðum sjúkdómi stóð hann afí rétt eins og klettur við hlið hennar allan tímann. Okkur er svo minnisstætt hversu einlæglega og af alúð hann hugsaði um ömmu í veikindum hennar. Eftir að amma varð að leggjast inn á hjúkrunarheimili á Selfossi keyrði afí á hverjum degi frá Hveragerði og jafnvel tvisvar á dag til þess að vera hjá henni. Á þessum erfiða tíma í lífi hans sást svo vel hve umhyggjusamur og hjartahlýr hann var. Á þessum sama tíma greindist yngsti sonur hans, Svenir, með banvænan sjúk- dóm og erfiður tími gekk í garð. Afí missti síðan konu sína og son á sama árinu og var það honum erfið raun og mikill missir. Við munum sakna hans afa svo sárt þar sem hann var svo stór hluti af lífi okkar allra og gaf okkur svo mikið. Afí var svo góður við börnin okkar litlu, hann hafði mjög gaman af að tala við þau og gerði allt til þess að gleðja þau. Þeim þótti svo innilega vænt um hann langa-afa og í hvert sinn sem börn- in hittu hann hlupu þau upp um háls hans og föðmuðu hann. Áfí var einnig alltaf tilbúinn til að rétta okkur hjálparhönd, gefa okkur góð ráð og styðja. Við þökkum Guði fyrir allai- þær dásamlegu stundir sem við fengum að njóta með afa, bæði heima í Hveragerði og einnig þegar hann kom og heimsótti okk- ur norður og vestur á land. Við biðjum Guð að blessa minningu afa og alla ástvini sem syrgja hann. Við felum afa í hendur Drottins. Ella Björk, Hulda Geirfinna, Harpa, Þórunn Ösp og fjölskyldur. Elsku afi okkar, í dag er við fylgjum þér í hinsta sinn þá viljum við minnast þín með örfáum orð- um. Minningarnar hrannast upp í hugum okkar og það væri margt ef ætti að telja það allt hér. Minnisstæðast yrðu þó að vera minningarnar um langdvalir okkar heima hjá þér og Huldu ömmu í Borgarheiðinni, þar sem við gátum leikið og gleymt okkur tímum sam- an. Stundum gistum við líka eða að við litum bara rétt inn til að heilsa uppá ykkur og alltaf var jafn hlý- lega tekið á móti okkur. Eftir að amma dó varðst þú tíður gestur á heimili okkar og var þá oft glatt á hjalla er við ræddum um öll heimsins mál. Þú sagðir okkur margar skemmtilegar sögur frá æsku þinni og gafst okkur mörg heillarík ráð, sem við munum varð- veita í hugum okkar. Þó að árin liðu og aldurinn færð- ist yfir þá varst þú alltaf jafn hress og kátur og það var fátt sem þú tókst þér ekki fyrir hendur. ÁJlt brunaðir þú á litla bílnum þínum hvort sem það var í næsta hús eða alla leið til Akureyrar að heim- sækja vini og ættingja, því aldrei gast þú setið aðgerðarlaus og alltaf varst þú til í að hjálpa ef þess var þörf. Við munum minnast þín með hlýju og þakklæti fyrir að hafa fylgt okkur á lífsleið okkar. Minn- ing þín mun lifa í hjörtum okkar. Nú þegar þú ert farinn frá okkur til æðri staðar þá er það með sár- um söknuði sem við kveðjum þig, en nú vitum við að þú ert þar sem þér líður vel og að þú ert kominn til ömmu. Eg sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt. Þig umve^i blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Kn minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þ.S.) Þín barnabörn Hulda, Rannveig og Berglind. + Sigurlaug Elín Guðmundsdóttir fæddist í Garðs- horni í Glæsibæjar- hreppi 29. septem- ber 1912. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 18. mars síðastliðinn. For- eldrar liennar voru Magðalena Jónína Baldvinsdóttir hús- freyja, f. 23. sept- ember 1889, d. 30. desember 1971, og Guðmundur Tryggvason skip- stjóri, f. 31. júlí 1880, d. 20. febrúar 1945. Sigurlaug var elst fjögurra systkina. Hin eru: Tryggvi, f. 9. nóvember 1914, d. 15. febrúar 1969, Guðrún, f. 13. júlí 1920, d. 19. mars síðastlið- inn, og Anna, f. 27. mars 1925. Fyrri maður'Sigurlaugar var Baldur Svanlaugsson bifreiða- smíðameistari, f. 24. júlí 1909, d. 15. júní 1970. Börn þeirra eru: 1) Svanlaug bókasafnsfræðingur, f. 31. júlí 1940. Eig- inmaður hennar var Vilhjálmur Bergs- son, f. 2. október 1937, sonur þeirra er Baldur, f. 21. mars 1975. 2) Magni arki- tekt, f. 17. janúar 1942, kvæntur Bryn- hildi Þorgeirsdóttur, f. 22. mars 1944, dætur þeirra eru Vala, f. 10. janúar 1968, og Nanna, f. 10. mars 1973. 3) Hall- gerður bankastarfsmaður, f. 6. október 1945, gift Svend Ornskov, f. 11. september 1948. 4) Ásgerður skrifstofumaður, f. 6. október 1945, dóttir hennar af fyrra hjónabandi er Lísa, f. 10. júní 1968. Seinni maður hennar er Jóhann Kroll, f. 14. septem- ber 1939. Hinn 20. janúar 1956 giftist Sigurlaug Höskuldi Egilssyni verslunarmanni, f. 9. júlí 1909. Dóttir þeirra er Sigurlaug Ást- dís sérkennari, f. 18. júlí 1953. Börn hennar af fyrra hjóna- bandi eru Arnlaug Borgþórs- dóttir, f. 4. febrúar 1976, og Höskuldur Borgþórsson, f. 10. nóvember 1978. Hans sonur er Höskuldur Árni, f. 30. júlí 1997. Sambýlismaður Sigurlaugar er Sturla Þór Guðmundsson, f. 4. janúar 1957, dóttir þeirra er Bryndís, f. 11. maí 1990. Sigurlaug var við Héraðs- skólann á Laugum veturinn 1930-31 og í húsmæðranámi á Hallormsstað veturinn 1932. Sigurlaug bjó og starfaði á Akureyri til ársins 1954. Þá fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún bjó til æviloka. Sigur- laug vann við verslunar- og skrifstofustörf, m.a. var hún skrifstofustjóri hjá Samtökum frjálslyndra og vinstri manna. títför Sigurlaugar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. SIGURLAUG ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR Elsku amma. Nú ert þú farin frá okkur og langar okkur systkinin að minnast þín í nokkrum orðum. Þú reyndist okkur ávallt vel og hafðir alltaf svo mikinn áhuga á því hvað við vorum að gera með líf okkar. Þú hlustaðir af áhuga og komst svo með góðar ábendingar ef með þurfti. Við munum aldrei gleyma ljúf- fengu pönnukökunum þínum en það var fátt betra en að koma til ykkar afa og sjá að þú varst búin að baka pönnukökur. Settumst við þá gjarn- an öll niður, borðuðum pönnsur, drukkum kók í dós og spjölluðum um daginn og veginn. Einnig eru okkur minnisstæð jóla- boðin sem þú stóðst íyrir á meðan heilsan leyfði. Þau voru ómissandi hluti af jólunum og ævinlega mjög hátíðleg. Fjölskyldan kom þá öll sam- an heima hjá ykkur afa og snæddi hangikjöt og Ijúffengt meðlæti. Þú hafðir mikinn metnað fyrir okkar hönd, að okkur gengi vel í námi og vildir ekkert frekar en að við menntuðum okkur til fulls. Ef eitthvað dró af okkur þá hvattir þú okkur jafnharðan áfram og fórum við tvíefld út aftur með það eitt fyrir augum að klára skólann. Okkur fannst nú heldur ekki leiðinlegt að koma til þín og sýna þér einkunnirn- ar okkar ef vel hafði gengið og hrós- aðir þú okkur þá í bak og fyrir. Amma mín, þín er sárt saknað. Við systkinin eigum þó margar góð- ar minningar um allar samveru- stundirnar með þér sem við munum ávallt geyma í hjarta okkar. Arnlaug og Höskuldur. Sigurlaug Guðmundsdóttir kvaddi þetta líf hinn 18. mars sl., aðeins sól- arhring áður en systir hennar og tengdamóðir mín andaðist. Það var okkur þungt högg að frétta af láti hennar á þeim tíma sem við vorum í biðstöðu með að líf systur hennar fjaraði út. Lauga frænka, eins og hún var alltaf kölluð í okkar fjölskyldu, var fríð sýnum, myndarleg og greind kona með ákveðnar skoðanir og sjálfstæðan hug. Hún var elst systk- inanna frá Garðshorni í Kræklinga- hlíð við Eyjafjörð og var að mínu mati alltaf eins konar leiðtogi þeirra systra. Þær systur þrjár, Sigurlaug, Guðrún og Anna, sem kemur nú frá Akureyri til að kveðja báðar systur sínar, voru allar mjög sterkir per- sónuleikar og allar einstaklega myndarlegar húsmæður og gest- risnar. Efalaust hafa þær mótast svo af móður sinni, Magðalenu, sem mér skilst að hafi stjórnað búi ein langtímum saman þar sem faðir þein'a var skipstjóri og trúlega mik- ið að heiman. Heyrt hef ég að í Garðshorni hafí verið mjög gest- kvæmt og þar oft þröngt setinn bekkurinn og mikið um næturgesti. Allir vora alltaf velkomnir í Garðs- horn og það veganesti bára þær systur með sér út í lífið. Um lífshlaup Laugu frænku ætla ég ekki að fjalla en veit að þar skipt- ust á skin og skúrir eins og hjá flest- um. Hún fylgdi ávallt hjarta sínu og sterk kom hún úr flestum þeim raunum sem á henni mæddu. Lauga átti stóra fjölskyldu, mörg og mynd- arleg börn sem ég veit að tengda- móðir mín öfundaði hana hálfpartinn af, en þótt fjölskylda Laugu væri mannmörg þá gaf hún líka gaum að systrabörnum sínum svo og barna- börnum þeirra. Það liðu engin jól svo að einhver glaðningur kæmi ekki frá Laugu frænku til barnanna og ég veit að hún fylgdist með þeim af áhuga. Hin seinustu ár átti Lauga við töluverða vanheilsu að striða sem fór alltaf vaxandi þar til ljós hennar slokknaði svo skyndilega hinn 18. mars sl., en þannig dauðdagi er trú- lega von okkar flestra þegar okkar tími er kominn. Höskuldi, börnum Laugu og þeirra fjölskyldum sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur frá fjölskyldu Gunnu frænku. Guðlaug M. Jónsdóttir. Elsku amma, okkur systurnar langar til að skjóta að þér nokkrum orðum í kveðjuskyni. Við vitum að þú myndir ekki þakka okkur fyi-ir að vera með neina væmni þegar við minnumst þín. Aldrei varstu væmin eða hjálparlaus sjálf, þótt þú hafir haldið því fram síðastliðin tuttugu ár að þú værir „löngu orðin gömul og ónýt“. Við systurnar vorum nú aldrei sammála því, enda hafði lífs- kraftur þinn sterk áhrif á okkur báðar. Á allan hátt hefur þú reynst okkur mjög góð fyrirmynd. Okkur fannst þú alltaf langt á undan þinni samtíð, þú fylgdist af áhuga með þjóðmálum, menningu og listum og hvattir okkur til að gera slíkt hið sama. Má segja að þii hafir kennt okkur samræðulistina með því að tala við okkur sem jafn- ingja frá unga aldri. Jafnframt ætl- aðist þú til þess að við hefðum okkar eigin skoðanir og kæmum þeim vel til skila. Þannig hvattir þú okkur ávallt til menntunar og kenndir okk- ur að taka jafnrétti kynjanna sem sjálfsögðum hlut í þeim efnum. Þér fannst engin ástæða til þess að Nanna (þá átta ára gömul) stefndi á það að verða flugfreyja þegar hún gat allt eins orðið flugmaður. Eins fannst þér alveg sjálfsagt að kjósa Kvennaframboðið samkvæmt tillögu Völu, löngu áður en hún fékk kosn- ingarétt. Þú varst einatt glöð að sjá okkur og tókst á móti okkur af mikilli hlýju. Því var það að sækja ykkur afa heim sífellt tilhlökkunar- og gleðiefni. Ávallt gafst tími til að spjalla, áður fyrr yfir ís og pönnu- kökum, síðar yfir sherríglasi og paprikuskrúfum, eða þá bjór og harðfiski. Aldrei hittist illa á, og þú hafðir alltaf jafnmikinn áhuga á lífi okkar og þeirra í kringum okkur. Þótt við söknum þín, þá búum við að þeim uppörvandi og jákvæðu áhrif- um sem samneytið við þig hafði á okkur. ^ Elsku amma, við minnumst þín sem skarprar og ákveðinnar konu sem bjó yfir lúmskri kímnigáfu, en fyrst og fremst minnumst við þín sem þeirrar konu sem hafði óbilandi trú á okkur. Við erum heppnar að hafa átt þig að. Vala og Nanna Magnadætur. OSKAR JÓNSSON + Óskar Jónsson fæddist í Merki í Norðfirði 18. 1916. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað 13. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Norð- íjarðarkirkju 20. mars. Einn stoltasti málsvari Austíjarða og sérstaklega Norðfjarð- ar, Oskar Jónsson, er nú fallinn frá. Þótt lík- aminn væri löngu farinn að gefa sig hélt lifandi áhugi á umhverfinu og fólkinu um kring honum gangandi langt umfram það sem búast mátti við. Hann sannaði fram undir það síðasta að andinn er sterkari en efn- ið. Ég man eftir notalegum rabb- stundum á Norðfirði um pólitíkina, sjávar- útveginn og veðrið. Sérstaklega kemur mér í hug lognið Og veðursældin á staðn- um. Það hafði ein- hvem veginn allt aðra og meiri merkingu eft- ir að Oskar Jónsson var búinn að lýsa því. Eins og það væri úr einhverju allt öðru efni en lognið annars stað- ar. Saga Oskars er órjúfanlega tengd sögu Neskaupstaðar, Alþýðubandalags- ins og uppbyggingar staðarins og setti hann sitt mark skýrt þar á. Það er mikil eftirsjá að Óskari, en þó er ekki hægt annað en að vera ánægður fyrir hans hönd, hann skil- aði sínu, og vel það. Kjartan Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.