Morgunblaðið - 26.03.1999, Page 62

Morgunblaðið - 26.03.1999, Page 62
62 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 < MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Höfnum skráningu RÉTT fyrir síðustu jól samþykkti meiri hlutinn á Alþingi lög, sem heimila heilbrigð- isráðherra að veita „íslensku“ fyrirtæki í eigu útlendinga (í Bandaríkjunum) sér- leyfi til að fénýta heil- brigðisgögn um ís- lendinga án samþykk- is þeirra og skerða þannig mannhelgi þeirra sem ekki senda landlækni beiðni um úrsögn úr gagna- grunni á heilbrigðis- sviði fyrir þjóðhátíðar- daginn, 17. júní n.k. Lögin voru samþykkt þrátt fyrir mótmæli mikils meiri hluta óháðra vísindamanna og samtaka sem sendu heilbrigðis- og trygginga- nefnd alþingis umsagnir um laga- frumvarpið. Þessir aðilar bentu á nauðsyn upplýsts samþykkis þeirra, sem safna átti gögnum um, og nauðsyn þess að tölvunefnd og óháð vísindasiðanefnd (skv. lögum um réttindi sjúklinga) fjallaði um allar rannsóknir sem stæði til að gera og allar fyrirspurnir, sem bærust rekstraraðila gagnagrunnsins, áður en vinnsla hæfist. Þessu var eins og kunnugt er hvoru tveggja hafnað vegna þess að rekstrarleyfis- hafinn fengi ekki frjálsar hendur til að nota gögnin eins og honum sýndist og selja hæstbjóðanda upplýs- ingar úr grunninum. Notum sjálfsákvörð- unarréttinn og verndum fjölskyldu okkar í frumvarpinu eins og það var lagt fram síðastliðið vor var ekki gert ráð fyrir neinum möguleikum fólks til að komast hjá því ofríki sem í lögunum felst, enda frumvarpið lagt fram til að víkja til hliðar nýsamþykktum lögum um réttindi sjúklinga. Inn í lögin komst loks ákvæði sem gefur fólki kost á að hafna því að gögn um það verði skráð í grunninn ef það setur fram slíka ósk innan sex mánaða frá gildistöku laganna. Eftir það verður ekki aftur snúið, gögnin Gagnagrunnur Okkur ber siðferðileg skylda til, sjálfra okkar vegna og barna okkar, segir Tómas Helgason, að senda landlækni strax tilkynningu um úrsögn okkar úr gagna- grunninura. hafa verið tekin og þeim fæst ekki eytt, jafnvel þótt þau séu röng. Ekki má leita upplýsts samþykkis vegna þess að búist er við að fáir muni veita það. Nýlega hefur landlæknir látið gera eyðublað, sem allir þurfa að fylla út, sem vilja vernda eigin per- sónu og bama sinna og ráða því sjálfir hvað gert er með þau gögn, sem til eru um þá á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum eða hjá sum- um sjálfstætt starfandi læknum. Þetta eyðublað liggur frammi í ap- ótekum og hjá framangreindum Tómas Helgason aðilum og þarf að sendast land- lækni útfyllt sem fyrst, eitt eyðu- blað fyrir hvem fjölskyldumeðhm. Dulkóðun marklaus - ótrygg persónuvernd Eins og fram hefur komið telur tölvunefnd gögnin persónugreinan- leg þrátt fyrir dulkóðun, sem gefur hverjum einstaklingi nýtt númer í stað kennitölu. Með hliðsjón af því offorsi, sem beitt var við afgreiðslu laganna, má gera ráð fyrir að meiri hlutanum sem samþykkti lögin verði ekki skotaskuld úr því að breyta þeim og afnema dulkóðun- ina, ef það kæmi sér betur fyrir rekstrarleyfishafann. Því skyldi enginn láta blekkjast og trúa því að persónuverndinni sé borgið með dulkóðun eða öðm því sem væntan- legur rekstrarleyfishafi ber á borð. Mannfyrirlitning I Morgunblaðinu birtist viðtal þ. 18. mars við bandarískan augn- lækni undir fyrirsögninni „Snilld- arleikur hjá Kára Stefánssyni". Þar er m.a. haft eftir augnlæknin- um að í augum Bandai'íkjamanna sé einstaklingurinn mikilvægari en heildin. Einmitt þetta viðhorf er hornsteinn þeirra siðfræðilegu reglna um læknisfræðilegar rann- sóknir sem til urðu eftir Númberg réttarhöldin. Það sem svo er eftir honum haft sýnir furðulega lítiLs- virðingu gagnvart fólki: „Ég tel að upp geti komið aðstæður þar sem það er réttlætanlegt að fórna ein- staklingsréttinum fyrir heildina og í þessu tilfelli er heildin ekki bara Island, heldur allur heimurinn.“ Það má sem sagt fórna Islending- um fyrir það sem ekki er leyft í Bandaríkjunum. Fórnuni ekki mannréttmdunutn Snilldarleikurinn var fólginn í því að fá meiri hluta alþingis- manna til að samþykkja lög um að fórna sjálfsögðum mannréttindum og gefa einum aðila heimild til að safna ótilteknum persónulegum gögnum okkar í miðlægan gagna- grunn til þess að vinna úr ein- hverjar upplýsingar, sem ekki er látið uppi hverjar séu. Það er þekkingarleitinni ekki til fram- dráttar að láta af hendi gögn um heilsufar sitt eða sinna nánustu án þess að vita að hverju sé verið að leita og hvernig eigi að fara að því, og án þess að hafa fengið tryggingu fyrir því að gögnin verði ekki notuð til annars. Því ber okkur siðferðileg skylda til, sjálfra okkar vegna og barna okk- ar, að senda landlækni strax til- kynningu um úrsögn okkar úr gagnagrunninum. Höfundur er prófessor em., dr.med. Vinningaskrá 44. útdráttur 25. mars 1999 Bifreiðavinningur Kr. 2.000.000_____________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 37526 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 18012 28525 42294 75684 | Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 21909 37289 55845 59227 68613 77984 27470 47365 56128 66508 71736 78792 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10,000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) 2199 12281 23351 32444 43085 49830 63323 73840 3347 13518 23958 32518 43138 49868 64236 77039 3531 13697 25268 32525 43169 51144 64499 77604 4697 14406 25965 35445 44052 51674 64536 77862 4927 16661 26698 36133 44588 52393 64712 78069 5681 17295 27189 36951 44971 53560 65465 78282 7069 17739 27741 37888 45557 53799 65742 78706 7090 18029 27868 38252 45793 55159 67979 79325 7457 19617 28260 38826 46358 55422 68221 79474 7921 19922 29211 39863 47078 57571 70735 9489 20775 29722 39995 47461 59669 71595 10428 20971 31130 40895 48751 61641 72401 10974 21059 31189 40967 49760 63032 72703 Húsbúnaðarvinningur Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur) 107 12773 20850 30135 40287 50507 60193 71360 412 13034 20972 30304 40354 50629 60225 71846 437 13157 20974 30588 40588 51302 60305 72040 444 13473 21205 30640 40879 51458 60316 72242 730 13526 22110 30956 41367 51605 60823 72287 1210 13889 22314 31194 42042 52715 61369 72336 1747 14186 22512 31208 42449 53043 61372 72337 2057 14284 23426 31303 42474 53343 62564 72761 2217 14586 23552 31484 42504 53651 62642 72845 2617 14658 24451 31755 42565 54094 62970 72993 2731 15036 24682 32349 43028 54421 63206 73223 4702 15190 24862 32606 43451 55383 63375 74355 5011 15233 25132 32616 43474 55700 63810 74677 5598 15660 25533 32908 43675 55806 64103 74805 5663 15724 25543 33200 44100 55841 64220 74996 5974 16384 26217 33961 44713 55913 64259 75479 6010 16766 26220 34612 44719 56039 64437 75923 6674 17142 26821 35035 44816 56174 64509 76200 6760 17344 27300 35119 45009 56492 64606 77062 7010 17369 27850 35643 46337 57078 64622 77278 7468 17660 28019 37187 46875 57412 65414 77355 8045 17670 28332 37804 47247 57464 65680 77863 8219 17682 28381 37862 47874 57583 66154 78574 8651 18120 28486 37872 48009 57630 67342 78894 8675 18490 28600 37969 48038 57674 67369 79513 8817 19124 28693 38023 48099 58896 67914 79888 9041 19372 28786 38104 48215 59618 69265 9431 19397 28946 38330 48967 59629 69923 9497 19464 29556 38722 49037 59716 70632 10160 20211 29761 39361 49166 59740 70910 11632 20429 30045 39812 49348 59886 71261 12011 20457 30111 40072 50243 59957 71334 Næstu útdrættir fara fram 8.15.22. & 29 aprfl 1999. Heimasíða á Interneti: www.itn.is/das % Af skipulagspyttum ÞAÐ ER með hrein- um endemum, hve auð- velt er að falla í pytti vanans. Nú ætla menn að leggja fé í að viðhalda fingurbrjót í skipulags- málum Reykjavíkur. Á vagnhesta vora settar hlífar við augu, til að minnka þá örvun og áreiti sem kom frá um- hverfinu. Nú virðist þesskonar hlífar hafa verið brúkaðar til þess að skipulagsmenn verði ekki fyrir áreiti frá um- hverfi fagmanna erlend- is frá. Hugsanlega hefur þeim, sem um fjárveit- ingar véla, farist illa að setja blöðkurnar á téða fagmenn, þannig að alveg hefur byrgt fyrir sjónir þeirra. Það virðist allavega vera ef tekið er mið af tillögum þeirra um færslu Hringbrautar og flugvöll- inn í Vatnsmýrinni. Einnig virðist sýnt að tappar hafa verið látnir í eyra þessara manna, því þeii' heyra ekki nokkurn skapaðan hlut í þeim sem við Hringbraut búa og hafa kvartað sár- an um hávaða, svifryk, útblástursfnyk og aðra óáran sem fylgir nábýli við umferðaræðar sem byggðar eru til flutnings veralegs hluta umferðar milli austurs og vesturs í Reykjavík. Nú ætla blessaðir mennimir að búa íbúum við Sóleyjargötu sömu vand- ræði. Einnig virðast þessir ekki heyra kvint frá þeim sem orðið hafa fyrir barðinu á tíðum og alvarlegum um- ferðarslysum á homi Sóleyjargötu og Njarðargötu. Mér er ekki með nokkra móti mögulegt að álykta öðravísi eftir að hafa ígrundað tengingu Hringbraut- ar við Sóleyjargötu. Þar virðist vera farin hin sama troðna sauðatröð og vinsælust hefur verið í skipulagi vega og gatna á íslandi. Fyrst voru reiðgötur, svo kom Ford-T, síðan malbik og nú verður að halda við því sem áður var gert, skítt með allar framfarir og betri þekkingu á um- ferðarvandanum og nýjungar í sam- göngum. Þetta er að vísu algerlega óskiljanlegt, þar sem vitað er, að hjá Skipulagi Reykjavíkur vinna vel- gerðir og gagnmenntaðir menn, af báðum kynjum. Starfsmennirnir eru hugsanlega að leggja eitthvað annað til grundvallar í leiðbeiningum sínum til stjómmálamannanna en þeir vita bestu og óbrotgjömustu lausnina. Svo virðist sem viljinn til þess að taka á mengunarvanda og öðmm umferðartengdum óþægindum íbúa við umferðaræðar nái aðeins til há- tíðarræða og undirbún- ings kosningabai'áttu. Sama á við um flug- völlinn, Bretinn lagði þennan völl sem bráða- birgðavöll, og þm-ftu að eigin áliti hvorki að spyrja kóng né prest leyfis, þar sem um hem- aðarmannvirki væri að ræða og okkur í sjálfs- vald sett að fjarlægja tildrið að loknum ófriði. En við lítum á þessa framkvæmd þeirra sem það eina sem hægt er að hafa, - notumst við það sem blessað stríðið færði okkur. Helvíti erum við heppin að foreldrar okk- ar voru ekki eins hugsandi um veiði og skipatækni. Nú ætla menn að fara að flytja aur og mýraijarðveg bm't undan Skipulagsmál Svo virðist sem viljinn til að taka á mengunar- vanda, segir Bjarni Kjartansson, nái aðeins til hátíðarræða og undirbúnings kosningabaráttu. vellinum og flytja þangað jafnmikið magn af grjóti og möl í staðinn, til þess að brautimar þoli þá umferð sem ætl- ast verður til. Flutningar þessir verða einhveijir þeir mestu í sögu Reykja- víkur - og auðvitað eftir gatnakerfi borgarinnar að mestu. Spakvitrir og íhugulfr menn hafa oft bent á, að aðrir og betri kostir eru í stöðunni, nú síðast Om Sigurðsson arkitekt. Om bendir á skemmtilega og ódýra leið út úr því öngstræti sem skipulagsmál miðbæjarins er komin í. Með nútíma tækni er bæði ódýrt og auðvelt að fylla upp undir völl úti í Skerjafirði, þar sem hægt væri að koma fyrir flugvelli sem í stakk væri búinn til að taka við nánast öllu flugi til meginlandsins, þ.e. flugi 2 hreyfla þotna. Þar sem völlurinn hefði ekki lengur kverkatak á þróun miðbæjar- ins og Reykjavíkur sem heildar, fengist heildstæðari og fyllri nýting þeirra mannvirkja sem í miðbænum eru og hnignunartíma gömlu Reykja- víkur lyki loksins. Bent skal á kostn- að sem ekki þyrfti að fara út í ef vell- inum væri fundinn staður í Skerja- fírði. Líklega mætti bíða lengi áður en tvöfalda þyrfti Keflavíkm'veginn, þar sem umferð minnkaði veralega ef lengd brauta væri nægjanleg fyrfr' flug til meginlands Evrópu. Einnig mætti ætla, að ekki þyrfti að rjúka til og stækka flugstöðina og svona mætti lengi telja. Ef ekki væri af öðrum sökum en viðskiptalegum, liggur ljós fyrir aula- háttur þeiiTa sem þessu vilja ráða. Reykjavík hagnaðist á þessu, frá hvaða sjónarhóli sem litið væri. Lóð- imar sem fengjust til úthlutunar næðu alldeilis að greiða fyrir flutn- inginn. Byggingamar sem ekki eru að hruni komnar við völlinn héldu sínu eðli og notum, þar sem þekkt er, að ekki þarf að vera með tækjastýrða flugleiðsögn á sama stað og sjón- stýrða leiðsögn í vallarsviði. Þetta gerir rök manna um, að fyrri upp- bygging mannvirkja við völlinn séu einhver veruleg verðmæti sem halda beri í og hamli því flutningi, léttvæg. Hávaði frá flugumferð á þessum stað væri hverfandi, þar sem vélamar hafa „klifrað“ í það mikla hæð þegar nálgast byggð að ekki heyrist mikið í hreyflum þeirra. Einnig era vélamar í það mikilli hæð þegar þær hefja lækkun í aðflugi, að ekki verður vart við umferðina að neinu marki. Bent skal á nákvæma úttekt Ómars Ragn- arssonar í sjónvarpi fyrir skemmstu. Margar stórborgir hafa lagt í gífur- legan kostnað til þess eins að halda opnum möguleika manna til þess að geta lent sem næst miðju viðskipta- lífsins á hverjum stað. Nægir að benda á London, þannig að sýnt er að áætlaðar endurbætur á núverandi velli nægja aldeilis ekki, þótt rándýr- ar séu, þar sem brautir styttast og breytt aðflugshom lagar ekkert hætt- una, hávaðann eða annan ama af flug- umferðinni fyrir þá sem dvelja í mið- bænum um lengri eða skemmri tíma. Auk þess takmarkaðist notkunin við litlar og fremur litlar vélar. Það þarf í raun ekki að eyða meira bleki í að sannfæra svona meðal- greinda menn um hve skelfilega þessi afdalamennska kemur til með að koma í bakið á þeim sem eiga eftir að búa í Reykjavík framtíðarinnar. Það liggur í augum uppi og öllum klárt, sem nenna að hugsa eitthvað fram fyrir tærnar á sér. Aulaháttur- inn blasir við og ekkert er til máls- bóta þeim sem ekki nenna að hugsa og hlusta á raddir þeirra sem benda á betri og ódýrari kosti - til lengri tíma litið. Höfundur er verkefnisstjóri. Bjarni Kjartansson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.