Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 25
Eldur undir Mont Blanc
Reuters
Bandarísk öryggiseftirlitsstofnun
Slys rakin til
galla í B-737
REKJA má tvö flugslys til galla í
hliðarstýri á Boeing 737 og auk þess
lá við, að hann ylli því þriðja. Kom
þetta fram hjá talsmanni banda-
rísku samgönguöryggisstofnunar-
innar í fyrradag og sagði hann, að
þær breytingar sem verið væri að
gera á hliðarstýrinu á þessari al-
gengustu farþegaþotu í heimi væru
ekki nægilegar til að tryggja öryggi
farþega og áhafnar.
I yfirlýsingu frá Boeing og
bandarísku flugmálastofnuninni
kemur fram, að verið sé bæta úr
þessum galla en talsmaður öryggis-
eftirlitsins hvatti til frekari lagfær-
inga. Charlie Higgins, aðstoðaryfir-
maður öryggismála hjá Boeing,
sagði hins vegar, að öryggisferill B-
737 væri einstakur en alls hafa ver-
ið skráð 77 milljón flugtök síðan
þotan kom á markað 1967. „Við er-
um með öðrum orðum að tala um
tvö tilfelli af 77 milljónum,“ sagði
hann.
Niðurstaða öryggiseftirlitsins er
byggð á rannsókn á flugslysi, sem
varð við Pittsburgh 1994 en þá fór-
ust allir, sem með vélinni voru, 132
talsins. Auk þess voru skoðuð gögn
um slys, sem varð 1991 við Colorado
Springs, þá fórust einnig allir, 25
manns, og að síðustu um vandræði,
sem flugmenn á vegum Eastwind
Airlines lentu í 1996, en þeim tókst
að lenda heilu og höldnu.
Var það einróma niðurstaða, að
ástæða slyssins 1994 væri sú, að
flugmennirnir hefðu misst stjórn á
vélinni vegna þess, að vökvaloki,
sem stjórnar hliðarstýrinu, hefði
staðið á sér.
ELDUR, sem varð fjórum að
bana í fyrradag, logaði enn
glatt í gær í göngum í gegnum
Mont Blanc-fjall, heilum sólar-
hring eftir að eldur hafði kvikn-
að í matvælaflutningabíl, sem
var staddur í göngunum. A
mjög skömmum tíma barst eld-
urinn yfir í að minnsta kosti
átta aðra flutningabfla Ítalíu-
megin í þessum ellefu kflómetra
löngu göngum í gegnum hæsta
fjall Vestur-Evrópu, með fyrr-
greindum afleiðingum.
Slökkviliðsmenn börðust við
eldinn í alla fyrrinótt og tókst
þá að slökkva eld í fímm bfl-
anna en þykkur reykur og gíf-
urlegur hiti gerðu þeim ókleift
að athafna sig í hluta gang-
anna. Einn slökkviliðsmaður og
þrír ökumenn létu lífíð í elds-
voðanum og auk þess slösuðust
tuttugu og sjö manns, þar af
þrír alvarlega. Jean-Claude
Gayssot, samgönguráðherra
Frakklands, heimsótti í gær
slysstaðinn og sagði þá við
blaðamenn að afar mikilvægt
væri að átta sig á því hvað
gerðist, svo tryggja mætti að
slíkt slys endurtæki sig ekki.
Cubas sakaður um morð
Asuncion. Reuters.
MIKIL ólga er í Paragvæ en í
fyrradag samþykkti þing landsins
að sækja forsetann, Raul Cubas, til
saka fyrir embættisafglöp. Saka
sumir hann um að hafa staðið að
baki morðinu á varaforsetanum sl.
þriðjudag en þeir tókust hart á um
völdin í stjórnarflokknum.
Mikill meirihluti þingmanna sam-
þykkti, að öldungadeildin skyldi
efna til réttarhalda yfir Cubas fyrir
að hafa sleppt úr haldi Lino Oviedo,
íyrrverandi yfirmanni hersins, en
hann hafði verið dæmdur í 10 ára
fangelsi fyrir að reyna að ræna völd-
um í landinu árið 1996.
Boðaði öldungadeildin Cubas á
sinn fund í gær en flest bendir til, að
stjórnarandstaðan og stuðningsmenn
Luis Maria Argana, varaforsetans
heitins, hafi styrk til að sakfella hann.
Cubas mætti ekki á fund öldunga-
deildarinnar í gær, kvaðst vera of
önnum kafinn, en réttarhöld yfir hon-
um eiga að hefjast í næsta mánuði.
Fimm ákærar um glæpsamlega
misnotkun á valdi hafa verið bornar
fram gegn Cubas en í gær reyndi
hann að bæta um fyrir sér með því
að láta setja vin sinn Oviedo í varð-
hald. Eru þeir báðir grunaðir um að
hafa fyrirskipað morðið á Ai-gana en
hann lést er menn í herbúningi létu
kúlunum rigna yfir bíl hans. Morðið
á Argana hefur verið fordæmt víða
en segja má, að Paragvæ sé svarti
sauðurinn í samfélagi Suðui-- og
Mið-Ameríkuríkja hvað stjómarfar-
ið varðar.
Hann Jóhannes Pétursson hefur ekið sama leigubílnum,
Nissan Cedric, frá því árið 1985 og kílómetrarnir að baki eru
orðnir milljón, hvorki meira né minna.
Hvernig er þetta hægt?
Með reglulegu viðhaldi og smurolíunum frá ESSQ
ulíufélagiðhf
www.esso.is