Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 33 Tónleikar til styrktar krabbameinssjúkum börnum „Lög eftir okkar ást- sælustu höfunda“ SIGRÚN Jónsdóttir mezzósópran- söngkona heldur á morgun, laug- ardag, þriðju tónleika sína til stuðnings Styrktarfélagi krabba- meinssjúkra barna. Tónleikarnir verða í Laugarneskirkju í Reykja- vík kl. 17 og meðleikari á píanó er Olafur Vignir Albertsson. Um síð- ustu helgi koniu þau fram á tón- leikum á Selfossi og sl. miðvikudag á Akranesi. „Meginástæðan er sú að ég hef sjálf lent í því að eiga mjög veikt barn og geri mér þess vegna kannski betur grein fyrir því hvað það er erfitt að vera tekin úr vinnu og hafa stöðugar áhyggjur, lifa í stöðugum ótta við að missa barnið sitt. Það fer í rauninni allt úr skorðum," segir Sigrún, spurð um tilefni tónleikaraðarinnar. Hún segir að það ekki verið fyrr en eft- ir að hún átti son sinn að hún fór að læra að syngja og raunar hefði hún sennilega ekki farið út í söng- námið annars. „Söngurinn gaf mér svo mikið á þessum erfiðu tímum - eiginlega má segja að hann hafi bjargað lífí nn'nu,“ segir hún. Hugljúf og falleg lög „Eftir að ég lauk námi og hafði haldið nu'na fyrstu tónleika hugs- aði ég með mér að það væri frá- bært ef ég gæti fyllt hús eins og ég gerði á lokatónleikunum mínum í Sehjarnarneskirkju 1997 og gefið allan aðgangseyrinn til styrktar þessu fólki,“ heldur hún áfram. A efnisskrá tónleikanna eni 22 íslensk sönglög. „Þetta eru lög eft- ir okkar ástsælustu höfúnda, öll mjög hugljúf og falleg. Sum þeirra eru um börn en önnur eni dramat- ískari og tregafyllri," segir Sig- rún, sem syngur lög eftir Árna Thorsteinsson, Sigvalda Kalda- lóns, Karl O. Runólfsson, Pál ís- ólfsson, Fjölni Stefánsson, Jón Ás- geirsson, Þórarin Guðmundsson og Arna Björnsson. Sigrún hóf söngnám hjá John Speight og lauk 8. stigs prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1995. Næstu tvö árin stund- aði hún nám í burtfararprófsdeild skólans, hjá aðalkennara sínum, Sieglinde Kahmann. Sigrún hefur einnig notið leiðsagnar Virginiu Zeani, Anthony Hose, André Or- lowitz og Ians Parsons, sem sér- hæfir sig í barrokktónlist. Hún hélt sína fyrstu opinberu tónleika í júní 1998 í Seltjarnarneskirkju við góðar undirtektir. Hún hefúr kom- ið fram sem einsöngvari í Messíasi eftir Handel, með Sinfóníuhljóm- sveit Islands í júnf 1992, þar sem ungir einsöngvarar skiptu með sér aríuin úr verkinu. Hún kom einnig fram á Myrkum músíkdögum 1992 ásamt skosku kammei-sveitinni „Paragon ensemble of Scotland". Sigrún hefur komið fram sem ein- söngvari við ýmis tækifæri hér- lendis og í Norejgi, m.a. á Lýðveld- isafmælishátíð Islendinga í Bergen 1994. Hún tók einnig þátt í upp- færslu Þjóðleikhússins á Valdi ör- laganna eftir Verdi 1994. Nú syng- ur hún nánast daglega við kirkju- Iegar athafnir. Morgunblaðið/Ásdís SIGRÚN Jónsdóttir og Ólafur Vignir Albertsson koma fram á tónleikum til styrktar krabba- meinssjúkum börnum í Laugar- neskirkju á morgun. Myndin var tekin á æfingu í vikunni. Ólafur Vignir Albertsson lauk burtfararprófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík árið 1961 undir handleiðslu Ásgeirs Beinteinsson- ar. Síðan stundaði hami fram- haldsnám við Royal Academy of Music í London og hafði meðleik sem aðalgrein. Aðalkennarar hans þar voru Rex Stephens og Max Pirani. Auk ótal tónleika á íslandi hefur Ólafúr Vignir um langt ára- bil komið fram með íslenskum ein- söngvurum. Hann starfar nú sem píanóleikari við Söngskólann í Reykjavík. Tónleikai'nir verða sem fyrr sagði í Laugarneskirkju á morgun og hefjast kl. 17. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn og rennur ágóði af tónleikunum óskertur til Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna. STORSVEIT Reykjavíkur í sveiflu. Bræðrahljóð í Haukshúsum BRÆÐURNIR Sveinbjörn I. Baldvinsson rithöfundur og Tryggvi M. Baldvinsson tón- skáld standa fyrir dagskrá í tali og tónum á vegum Dægradval- ar í Haukshúsum á Álftanesi á morgun, laugai’dag kl. 21. Bræðurnh’ munu flytja þai’ frumsamið efni af ýmsu tagi, ýmist saman eða hvor í sínu lagi; ljóð, lög og sögur. Efnið verður blanda af gömlu og nýju, sumt áður flutt eða útgefið, en annað óbirt og hefur jafnvel aldrei heyrst áður opinberlega, segir í fréttatilkynningu. Af nýlegum verkum þeh’ra bræðra má nefna fimmtu ljóða- bók Sveinbjarnar, Stofu ki’afta- verkanna og barnabókina Tár úr steini, sem báðar komu út sl. haust og tónverk Tryggva, Köld sturta, sem frumflutt var á Myrkum músíkdögum og Adagio fyrh’ einleiksfiðlu. Aðgangseyrir er 600 kr. Stórsveit í STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur tónleika á morgun, laugardag, kl. 14 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Stjórnandi er Sæbjörn Jónsson. Stórsveitin býður þremur skóla- hljómsveitum að taka þátt í tón- leikunuin, það eru Léttsveit Tón- menntaskóla Reykjavíkur undir stjórn Sigurðar Flosasonar; Létt- KÓRFÉLAGAR í kór Fjölbrauta- skóla Suðurlands á Selfossi komu saman í æfingabúðum um síðustu helgi á Hellu, þar sem tíminn var nýttur til æfinga fyrir Þýskalandsför kórsins í sumar. Kórnum hefur boðist að vera full- trúi Islands á evangelísk-lútersku kirkjuþingi sem haldið verður i Stuttgart 16.-20. júní nk. Kórinn mun syngja þar við tónleika og Ráðhúsinu sveit Tónlistarskóla Keflavíkur, stjórnandi Ólafur Jónsson, og Stórsveit Tónlistarskóla FÍH, sljórnandi Edward Frederiksen. Leikin verður hefðbundin stór- sveitartónlist að en stjórnendur þessara sveita eru allir starfandi hljóðfæraleikarar í Stórsveit Reykjavíkur. messur, en upphaf málsins má rekja til þess að kórinn söng við þýska messu í Hveragerðiskirkju fyrh’ tveim árum. Kórfélagar hafa æft stíft í vetur og verið ötulh’ við fjáröfl- un til farai’innar. Æfingatörninni lauk með tónleikum í Oddakirkju á Rangárvöllum á sunnudaginn. Jón Ingi Sigurmundsson er stjórnandi kórsins og hefur verið frá stofnun hans, eða í 16 ár. Kór FS æfír fyrir Þýskalandsför Hella. Morgunblaðið. Komdu og sjóðu nýju sumarlitina frá MARBERT Þeir undirstrika fegurð þína. ViS kynnum sumarlifina ásamt fleiri spennandi nýjungum frá MARBERT. VeriS velkomin. Föstudag Evíta, Suðurkringlu og Húsavíkur Apótek Stór-Reykjavikursvseðið: Libia Mjódd, Nana Hólagarði, Snyrtivörudeild Hagkaups, Skeifunni, Evíia Kringlunni, Snyrlivöru- deild Hagkaups, Kringlunni, Holts Apótek Glæsibæ, G.E. Snyrlivörur, Laugavegi 61, Snyrtihöllin Garöatorgi, Garóabæ, Snyrtivörud. Hagkaups, Smáratorgi og Sandra Smáratorgi, Kópavogi. Landlð: Gallery Förðun Keflavík, Árnes Apótek Selfossi, Apótek, Vestmannaeyja, Krisma isafirði, Tara Akureyri, Húsavíkur Apótek. Þó veturinn sé að verða búinn, þýðir það ekki að rokið og rigningin séu búin! Léttur, vatnsþolinn vindþéttur anorakkur úr sérlega sterku og vönduðu efni. Kr. 6.990.- m Sportswear Company, Arrow Rock anorakkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.