Morgunblaðið - 26.03.1999, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
AKUREYRI
I-
MORGUNBLAÐIÐ
Bæjarstjori Dalvfkurbyggðar eingöngu með konum í bæjarráði
Morgunblaðið/Kristján
KONURNAR í bæjarráði Dalvíkurbyggðar og bæjarritarinn, létu sig ekki muna um að
taka Rögnvald Skíða Friðbjörnsson bæjarstjóra í fangið á fundi bæjarráðs í gær. F.v.
Ingileif Ástvaldsdóttir, Svanhildur Ámadóttir, Guðrún Pálína Jóhamisdóttir og
Katrín Sigurjónsdóttir.
Parf að gefa eftir
í flestum málum
TÖLUVERÐ umræða hef-
ur verið undanfarin miss-
eri um áhrif og völd
kvenna í stjórnmálum og
þar sýnist sitt hverjum. I
Dalvíkurbyggð eru konur
hins vegar fyrirferðar-
miklar í stjórnkerfi bæj-
arins og eru allir þrír að-
alfulltrúar sveitarfélags-
ins í bæjarráði konur,
auk þess sem bæjarritar-
inn er kona. Hér er mjög
líklega um einsdæmi að
ræða og það má með
sanni segja að Rögnvald-
ur Skíði Friðbjörnsson
bæjarstjóri sé í iniklum
kvennafans.
„Þessi staða þýðir að
maður þarf að gefa eftir í
flestum málum, því annars
ráðast þær á mig,“ sagði
Rögnvaldur Skíði í samtali
við blaðamann Morgun-
blaðsins á fundi bæjarráðs
í gær. Bæjarstjóri sagði
þetta ljúft en svolítið ógn-
vekjandi umhverfi og hann
væri því svolítið óöruggur
með sig á köflum. Konurn-
ar töldu hins vegar að
hann hefði ekki yfir neinu
að kvarta.
Katrín Sigurjónsdóttir,
bæjarfulltrúi Framsókn-
arflokks, er formaður
bæjarráðs og skipar meirihluta
í ráðinu ásamt Ingileif Ást-
valdsdóttur, fulltrúa S-lista.
Svanhildur Árnadóttir, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, til-
heyrir því minnihluta báejar-
ráðs. Bæjarritari er Guðrún
Pálína Jóhannsdóttir.
Bæjarstjóri ekki
beittur ofríki
Katrín sagði þetta mjög nota-
Iega stöðu og að þeim konunum
gengi mjög vel að starfa saman.
Þá væri bæjarstjórinn ekki
beittur neinu ofríki og hún
sagðist ekki sjá annað en hann
nyti sín vel í hópnum. Aðspurð
sagði Katrín fundi bæjarráðs
ekki snúast eingöngu um hin
svokölluðu mjúku mál. „Við er-
um lika með hörðustu rnálin á
okkar herðum, eins og atvinnu-
og ferðamál og fjármálaum-
sýslu.“
Ingileif tók undir með
Katrínu og sagði samstarfið
hafa gengið vel. Hún þekkti
reyndar ekki annað en þetta
fyrirkomulag frekar en Katrín
formaður. Svanhildur sagði
ágætt að vinna með þessum
konum, þótt hún væri í minni-
hluta en hins vegar væri nokkur
biæbrigðamunur á að vinna með
konum og körlum.
Svanhildur, sem hefur hins
vegar mikla reynslu af sveitar-
stjórnarmálum sagði öll mál
mjúk og að fjölskyldumálin
snertu alla fleti opinberra
mála. „Það þótti ekki álitlegur
kostur þegar ég ruddist
inn í bygginganefnd
ásamt Þóru Rósu Geirs-
dóttur árið 1986 og tók
meira að segja að mér
formennsku. Bygginga-
nefnd hafði verið mikið
karlaveldi og þarna voru
menn sem höfðu setið þar
í yfir 20 ár. Við vorum
fljótar að falla inn í hóp-
inn og gerðum ágætis
hluti í nefndinni að okkur
fannst," sagði Svanhild-
ur.
Svanhildur farin
á togara
Þegar hér var komið
við sögu skaut Rögnvald-
ur Skíði því fram, að
reynslan hafl verið fljót
að sanna sig og menn
hafi snúið til baka frá
þessari þróun. „Við héld-
um að við hefðum verið
að fella karlavígi en
þetta hefur snúist við aft-
ur og sérstaklega varð-
andi bygginga-, skipu-
lags- og hafnamál,“ sagði
Svanhildur.
Auk þess að sitja í
bæjarstjórn og bæjar-
ráði Dalvíkurbyggðar
hefur Svanhildur verið
varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á kjörtímabil-
inu sem nú er að ljúka. Hún
mun þó ekki sitja fundi bæjar-
ráðs á næstunni þar sem hún
hefur ráðið sig sem háseta á
frystitogarann Björgvin EA
næsta túr. Togarinn hélt til
veiða í gærkvöld og reiknaði
Svanhildur með að framundan
væri 25-30 daga veiðiferð. Það
er eiginmaður Svanhildar,
Vigfús R. Jóhannesson, sem
einmitt er skipstjóri á Björg-
vini EA.
Islands-
gangan í
Hlíðarfjalli
GANGA Sparisjóðs Norðlendinga
sem er liður í Islandsgöngunni fer
fram í Hlíðarfjalli á morgun, laug-
ardaginn 27. mars og hefst við
Strýtu kl. 14 en lýkur við göngu-
húsið.
Gengnir verða 20 kílómetrar en
einnig er göngufólki boðið upp á
styttri vegalengdir, 5 og 10 kíló-
metra. Forskráning er á Skiðastöð-
um og á mótsdaginn milli kl. 12 og
13.30 í gönguhúsinu í Hlíðarfjalli.
Þáttökugjald er 1.000 krónur fyr-
ir þá sem ganga 20 kflómetra, en
500 fyrir aðra þátttakendur.
Okeypis er íyrir börn yngri en 12
ára. Þátttakendur geta tekið sér far
með skíðalyftum upp í Strýtu án
endurgjalds. Verðlaunaafhending
og veitingar verða í Hamri, félags-
heimili Þórs við Skarðshlíð, að lok-
inni keppni.
Nýstofnuð hagsmunasamtök í Dalvíkurbyggð
Aðild að Atvinnuþróun-
arfélaginu verði hætt
NYSTOFNUÐ hagsmunasamtök
ferðaþjónustuaðila og kaupmanna í
Dalvíkurbyggð sendu bæjarráði
nýlega áskorun þess efnis að hætta
aðild að Atvinnuþróunarfélagi
Eyjafjarðar b.s. og ráða þess í stað
atvinnu- og ferðamálafulltrúa fyrir
byggðarlagið.
Erindið var tekið fyrir í gær og
sagði Katrín Sigurjónsdóttir, for-
maður bæjarráðs, að áskoran sam-
takanna hafí verið hafnað. Atvinnu-
þróunarfélag Eyjafjarðar varð til
eftir sameiningu Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar og Ferðamálamið-
stöðvar Eyjafjarðar á síðasta ári.
„Við samþykktum fyrir fímm
mánuðum að ganga í Atvinnuþró-
unarfélagið en það er ekki komin
tfFUJIFILM
FERMINGARTILBOÐ
FOTONEX 210ix APS
Aðdráttarlinsa 22.5-45mm
Sjálfvirkur fókus
Sjálvirkt Ijósop og hraði
Einföld filmuþræðing
Dagsetning
Taska fylgir
FUJIFILM NEXIA filma fylgir
Verð aðeins kr.15.725
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850
nein reynsla á félagið enn. Okkar
vilji er að starfsmenn Atvinnuþró-
unarfélagsins hafi hér reglubundna
viðveru og höfum rætt það mál við
þá. Þannig eiu hægari heimatökin
fyrir heimaaðila að nýta sér þeirra
þjónustu,“ sagði Katrín.
Ingveldur Bjarnadóttir, sem
rekur gistiheimili í Árgerði í Dal-
víkurbyggð, á sæti í stjórn hags-
munasamtakanna. Hún sagði að
fram hafi komið mikil óánægja með
hvernig staðið var að rekstri og
framkvæmd Norðurpólsins á
Akureyri og að fólk á hennar svæði
hafi ekkert komið nálægt því. Eins
og fram hefur komið varð tæplega
níu milljóna króna tap af rekstri
Norðurpólsins og þurfa sveitarfé-
lögin á Eyjafjarðarsvæðinu að
standa undir því tapi.
Ótrúlegir möguleikar
Ingveldur sagði að víða væri ver-
ið að ráða atvinnumálafulltrúa,
enda væri mjög gott að hafa slíka
starfsmenn í nálægð. Hún sagði til-
ganginn með stofnun samtakanna
að þjappa fólki saman og vinna
sameiginlega að markaðsmálum á
svæðinu. Ingveldur hefur búið í
rúmt ár í Árgerði og hún sagði að í
Dalvíkurbyggð væru ótrúlegir
möguleikar í ferðaþjónustu.
Einleiksverk á selló
SIGURÐUR Halldórsson sellóleik-
ari leikur einleiksverk sem spanna
alla 20. öldina á tónleikum í Akur-
eyrai-kirkju á morgun, laugardag-
inn 27. mars, kl. 17.
Tónleikarnir hefjast á verki Haf-
liða Hallgrímssonar „Solitaire" sem
skrifað var 1970 og endurskrifað
1991. Það var frumflutt á Listahátíð
í Reykjavík sumarið 1992 af Gunn-
ari Kvaran. Þá flytur hann tvö verk
eftir danska tónskáldið Hans Abra-
hamsen, „Hymne“ og „Storm og
Stille". Verkið „Ego is Emptiness"
eftir Svein Lúðvík Björnsson og er
það fyrsti lifandi flutningur verks-
ins, en það hefur komið út á hljóm-
diski. Loks leikur Sigurður „Klin-
gende Buchstaben" eftir Alfred
Schnittke og elsta verkið og það
viðamesta er Sónata op. 8 eftir
Zoltán Kodály, en hún hafði ómæld
áhrif á tónsmíðar íyrir selló og þar
með sellóspilatækni. Verkið er
skrifað.árið 1915.
Sigurður nam sellóleik í Reykjavík
hjá Gunnari Kvaran og einnig í
Lundúnum, hann hefur víða komið
fram sem einleikari, m.a. á tónlistar-
hátíð í Evrópu, í kvikmyndum, leik-
húsverkum og með hljómsveitum.
Efnisski'áin sem hann flytur í
Akureyrarkirkju verður einnig flutt
í einleikstónleikaröð Caput hópsins
í Salnum í Kópavogi 11. apríl næst-
komandi.
Finnur Bjarnason
og Gerrit Schuil
Söngvar
Schumanns
FINNUR Bjarnason og Gerrit
Schuil verða með ljóðatónleika
á vegum Tónlistarfélags Akur-
eyrar í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju í kvöld, föstudags-
kvöldið 26. mars kl. 20.30.
Á efnisskránni eru söngvar
eftir Robert Schumann við ljóð
eftir Justinus Kerner og Hein-
rich Heine, en Schumann var
án efa mesta sönglagaskáld
tónlistarsögunnar við hlið
Schuberts.
Finnur Bjarnason baritón-
söngvari er ungur að árum en
hefur unnið til margfaldra
verðlauna fyrir ljóðasöng og
komið fram sem einsöngvari
hér heima og í Englandi. Ger-
rit Schuil píanóleikari hefur
tekið virkan þátt í íslensku tón-
listarlífi frá árinu 1993, sem pí-
anóleikari, hljómsveitarstjóri
og þá hefur hann skipulagt
tónlistarhátíðir og leikið inn á
hljómplötur. Þeir gáfu út
geisladisk með sönglögum
Schumanns fyrir síðustu jól.
Cirkus
Cirkör sýnir
og kynnir
„CIRKUS Cirkör" verður með
sýningu og heldur kynningu á
nýsirkushreyfingunni í Kvos-
inni í Hólum, samkomusal
Menntaskólans á Akureyri, í
dag, föstudaginn 26. mars, kl.
14.
Nýsirkus er um 20 ára göm-
ul sirkusbylgja sem fylgir því
alþjóðlega listmáli sem ungt
fólk skapar sífellt um allan
heim. Lagt er upp úr því að
tengja saman og spinna kring-
um sameiginlegt þema þar sem
eitt leiðir af öðru en dýraatriði
tilheyra ekki sýningum sem
kenna sig við nýsirkus. „Cirkus
Cirkör" kemur til Akureyrar
um mitt næsta sumar og er
kynningin nú hugsuð tii að
leggja grundvöll að þeirri
heimsókn. Að kynningarsýn-
ingu lokinni verður málstofa
þar sem m.a. leikstjórinn svar-
ar spurningum um starfsem-
ina.
Skákmót
SKYLDULEIKJAMÓT Skák-
félags Akureyrar verður haldið
í kvöld, föstudagskvöldið 26.
mars, kl. 20 í skákheimilinu við
Þingvallastræti 18.
Hraðskákmót Akureyrar
fyrir 15 ára og yngri verður
haldið á sama stað á morgun,
laugardag, og hefst það kl.
13.30. Þátttökugjald er 100
krónur. Á skírdag verður hald-
ið svonefnt þriggja mínútna
mót í skákheimilinu kl. 20 og
Páskahraðskákmótið verður
þar kl. 14 annan páskadag.
Skíðaferð í
Þorvaldsdal
FERÐAFÉLAG Akureyrar
efnir til skíðagönguferðar í
Þorvaldsdal á morgun, laugar-
daginn 27. mars, kl. 9. Ferðin
um Þorvaldsdalinn tekur 6-7
klukkustundir en er fremur
létt. Skráning í ferðina er á
skrifstofu félagsins við Strand-
götu í dag, föstudag, frá kl.
17.20 til 19.