Morgunblaðið - 26.03.1999, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
s
Hagnaður ISAL nam 2.146 milljónum króna
Besta afkoman frá upphafí
HAGNAÐUR ÍSAL nam 2.146
milljónum króna á síðasta ári,
fyrsta rekstrarárið eftir fulla
stækkun álversins, sem er 11%
aukning frá árinu 1997 er hagnaður
fyrirtækisins nam 1.940 milljónum
króna eftir skatta. Að sögn Rann-
veigar Rist, forstjóra ISAL, er
þetta besta afkoma ISAL frá upp-
hafi.
Rekstrartekjur ÍSAL jukust um
20% á síðasta ári, í 18.115 milljónir
króna úr 15.097 milljónum króna.
Rekstrargjöldin jukust um 22%, í
14.980 milljónir króna úr 12.278
milljónum króna. Önnur gjöld námu
304 milljónum króna og reiknaðir
skattar nema 685 milljónum króna í
ár. Efnahagsreikningur ÍSAL verð-
ur kynntur á aðalfundi fyrirtækisins
í júlí.
Rannveig segist vera mjög
ánægð með afkomu ISAL á síðasta
ári, þá sér í lagi með tilliti til þess
að heimsmarkaðsverð á áli hafí
lækkað um 15% á árinu auk þess
sem verksmiðjan lenti í orkuskerð-
ingu á síðasta ársfjórðungi og
slökkva þurfti á um 50 kerjum af
480.
Ails voru framleidd 162.360 tonn
af áli hjá ISAL á síðasta ári saman-
borið við 123.562 tonn árið 1997.
Seld voru 159.534 tonn en árið 1997
voru seld 123.356 tonn af áli frá
ÍSAL.
Fjárfest fyrir milljarð 1999
Að sögn Rannveigar er áætlað að
fjárfesta fyrir 1.010 milljónir króna
hjá ÍSAL. Þar af er ráðgert að fjár-
festingar vegna umhverfismála
nemi 515 milljónum króna. Má þar
nefna endurbætur á loftræstingu á
kerskálum, endurbætur á þurr-
hreinsistöðvum fyrir kerskála,
hreinsistöð fyrir skautleifar, ker-
brotastöðvarhús og endurbætur á
þekjum.
Um 495 milljónum króna verður
Morgunblað/Þorkell
RANNVEIG Rist, forstjóri ISAL, kynnti afkoniu félagsins
á blaðamannafundi í gær.
varið í aðrar fjárfestingar, s.s. að ný
barravél verður keypt fyrir 230
milljónir króna auk ýmissa annarra
framkvæmda.
A síðasta ári lækkaði meðalverð
á áli úr 1.700 dollurum á tonnið í
1.450 dollara á tonnið. í ár er spáð
enn frekari verðlækkunum á áli og
að sögn Rannveigar er því spáð að
meðalverðið verði um 1.200 dollarar
á tonnið. Hún segir að samfara
lækkun á álverði hafí verð á aðföng-
um lækkað en hagkvæmni stærðar-
innar geri ÍSAL kleift að nýta
framleiðslugetu verksmiðjunnar.
„Við værum í mjög vondum málum
ef við hefðum ekki bætt kerskála
þrjú við.“ Að hennar sögn er ekki
búist við jafn góðri afkomu í ár.
„Við teljum okkur góð ef við höld-
um okkur réttum megin við strikið í
ár.“
Forsvarsmenn ISAL sjá ekki
fram á annað en að sameining Ai-
group, móðurfyrirtækis Alusuisse
og þýsku fyrirtækjasamsteypunnar
Viag muni hafa góð áhrif á rekstur
ÍSAL þar sem verksmiðjum þeim
er ÍSAL framleiðir fyrir í Evrópu
muni fjölga í kjölfar sameiningar
sem fyrirhuguð er í ágúst á þessu
ári verði hún samþykkt á aðalfund-
um fyrirtækjanna í maí.
GRIMUR Sæmundsen, stjórnarformaður Lyfjaverslunar Islands.
Morgunblaðid/Kristinn
Aðalfundur Baugs hf.
Nýkaup
HAGKAUP
Aðalfundur Baugs hf. verður haldinn í stofu 201 Viðskiptaháskólanum
í Reykjavík Ofanleiti 2, fimmtudaginn 8. apríl kl. 15.
Dagskrá:
t. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins á eftirfarandi hátt:
A. Tillaga um hækkun hlutafjár um kr. 40 millj.
B. Tillaga um tvo varamenn í stjórn.
C. Tillaga um heimild til rafrænnar skráningar hlutabréfa
skv. lögum 131/1997.
3. Tillaga um heimild til stjórnar til að kaupa hlutabréf í Baugi hf.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Þeir hluthafar sem kjósa geta fengið dagskrá, endanlegar tillögur og
ársreikning Baugs hf. á skrifstofu félagsins, Skútuvogi 7, Reykjavík, viku
fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað.
Stjórn Baugs hf.
BAUGUR
s
Lyfjaverslun Islands greiðir 40% arð
Arðurí
formi hluta-
hréfa í Delta
Á AÐALFUNDI Lyfjaverslunar
Islands hf. í gær var samþykkt sú
tillaga stjórnar að greiða hluthöfum
félagsins 40% arð í formi hlutabréfa
í lyfjafyrirtækinu Delta, en Lyfja-
verslunin fékk bréfín sem greiðslu
íyrir framleiðslu- og þjónustuein-
ingu fyrirtækisins sem seld var
Delta hf. seint á síðasta ári.
Bréfin sem dreift verður til hlut-
hafa eru um fjórðungur af hluta-
bréfum Lyfjaverslunarinnar í Delta
hf. en við sölu framleiðslu- og þró-
unareiningarinnar eignaðist Lyfja-
verslunin 23,5% hlut í félaginu. Fer
Lyfjaverslunin með 16% hlut í
Delta eftir arðgreiðsluna.
Grímur Sæmundsen stjómarfor-
maður Lyfjaverslunar íslands hf.
sagði að þetta svaraði til þess að
hluthafar fái nú arð sem svarar til
rúmlega þriðjungs stofnfjár félags-
ins.
Á fundinum var auk þessa sam-
þykkt að greiða arð í peningum að
upphæð rúmlega 12 milljónir króna
en upphæðin svarar til þess fjár-
magnstekjuskatts, sem ella hefði
fallið á hluthafa að greiða vegna
dreifingar hlutabréfanna í Delta til
þeirra, að því er fram kom í máli
stjómarformannsins.
„Sú ákvörðun að greiða arð til
hluthafa Lyfjaverslunar með þeim
hætti sem hér er lýst, hefur ekki
einungis þann tilgang að koma
verðmætum, sem skapast hafa
vegna rekstrar félagsins, til hlut-
hafa, þeim til frjálsrar ráðstöfunar,
heldur einnig til að auðvelda Delta
að stækka hluthafahóp sinn og upp-
fylla þannig skilyrði til ski-áningar á
Verðbréfaþing Islands, en það mun
styrkja félagið.
Síðast en ekki síst munu hluthaf-
ar Lyfjaverslunar nú einnig sem
hluthafar í Delta geta tekið beinan
þátt í starfsemi öílugasta lyfjafram-
leiðslufyrirtækis landsins, þar sem
gert er ráð fyrir miklum vexti á
næstu árum,“ sagði Grímur Sæ-
mundsen.
Starfsmönnum fækkaði
um helming
Grímur rakti í ræðu sinni sölu
framleiðslu- og þróunareiningarinn-
ar, sem að hans sögn bar hæst í
starfsemi fyrirtækisins á síðasta
ári.
Á meðal þess sem kom fram í
máli hans var að ein afleiðing af sölu
einingarinnar hefði verið sú, að
starfsmönnum Lyfjaverslunar Is-
lands hefði nú fækkað um helming.
Um lyfjaheildsölur, sem eru 6 á
landinu í dag, sagði Grímur að
þrýstingur um hagræðingu í heild-
söludreifingu lyfja færi mjög vax-
andi. „Helsta svar við þessum
þrýstingi er aukin samkeppnishæfni
sem fyrst og fremst verður sótt í
stærðarhagkvæmni. Gera má ráð
fyrir, að á næstu misserum muni
lyfjaheildsölum fækka í tvær og að
jafnvægi skapist. Lyfjaverslun Is-
lands hefur nú sterka fjárhagslega
stöðu og er vel í stakk búin að
takast á við þá samkeppni sem
framundan er í íslenskri lyfjadreif-
ingu og vera í forystu um þá hag-
ræðingu sem mun halda áfram í
þessum geira.“
Lyfjaverslun íslands hefur tekið
þátt í uppbyggingu lyfjaverksmiðju
til framleiðslu dreypilyfja í Litháen,
Ilsanta UAB, í samvinnu við ís-
lenska, sænska og litháíska aðila og
á nú tæplega 25% hlut í henni.
Verulegt tap varð á rekstri verk-
smiðjunnar í fyrra en vöxtur er
hinsvegar mikill í umsvifum fyrir-
tækisins.
Talið er, að mikill vöxtur muni
einkenna lyfjamarkaðinn í Eystra-
saltslöndunum á næstu árum og
sagði Grímur að fyrirtækið hefði
ekki gefíð upp von um að Ilsanta
gæti orðið verðmæt eign. ,Áhugi
fjárfesta er að aukast á þátttöku í
lyfjageiranum á þessu svæði en auk
vaxtarmöguleika hans er hægt að
sækja í austur með lágmörkun
áhættu. Lyfjaverslun hefur því síð-
ur en svo gefíð upp von um að
Ilsanta geti orðið verðmæt eign,
sem geti skilað arði eða megi síðar
selja með hagnaði.“
Hagnaður af rekstri Lyfjaversl-
unar Islands árið 1998 nam rúmum
55 milljónum króna. Er þá búið að
taka tillit til niðurfærslu eignar-
hlutar félagsins í Ilsanta um 95
milljónir króna, en sú aðerð var
ákveðin í kjölfar taps Usanta á síð-
asta ári.
-
l'
f
w
i
!
I
i