Morgunblaðið - 26.03.1999, Síða 72
72 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja. Passíusálmalest-
ur og orgelleikur kl. 12.15.
Langholtskirkja. Opið hús kl. 11-
13. Létt hreyfíng og slökun.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
12.10. Eftir stundina er súpa og
brauð. Passíusálmalestur og
bænastund k. 18.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Laugarneskirkja. Mömmumorg-
unn kl. 10-12. Sjálfshjálparhópur
um sorg kl. 20.
Hofskirkja. Kirkjuskóli kl. 13.30.
Jakka- peysu- úrvalið er í Glugganum
Glugginn Laugavegi 60, sími 551 2854
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Kl.
20 sýning á leikritinu Hlið himins,
logar vítis. Húsið opnað kl. 19. Að-
gangur ókeypis og allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Sjöunda dags aðventistar á ís-
landi: A laugardag:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19:
Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón-
usta kl. 11.15. Ræðumaður Frode
Jakobsen.
Safnaðarheimili aðventista,
Blikabraut 2, Keflavík: Söfnuður-
inn fer í heimsókn til Selfoss.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíu-
rannsókn kl. 10. Útvarpsguðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð-
mundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla
kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Samkoma kl. 11. Umsjón:
Börnin í kirkjunni.
Ljóðasafn Einars Benendiktssonar
Mál og mynd
Bræðraborgarstíg 9 • 101 Reykjavik
• Glæsileg fjögurra binda
útgáfa í skinnbandi
• Tilvalin fermingargjöf
• Tilvalin tækifærisgjöf
• Aðeins kr. 12.900
Panta má bókina í
síma 552 8866.
Aðeins 100 sett óseld.
Bókinni verður ekki dreift
í bókaverslanir.
•>
UT ANKJ ÖRST AÐ ASKRIFSTOF A
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð, 105 Reykjavík
Símar: 515 1735,515 1736
Bréfasfmi: 515 1739
Farsími: 898 1720
Netfang: utankjorstada@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá Sýslumanninum
í Reykjavík, Skógarhlíð 6, 3. hæð, virka daga kl. 9.30 - 15.30.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar.
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um stuðningsmenn sem ekki verða heima
á kjördag, t.d. námsfólk erlendis.
Iðnbúð 4 - Garðabæ
brúnir
m/haldi
höfum á lager
Nr.1 175 x 90 x 270mm
Nr.2 220 x100 x 300 mm
Nr.3 260 x150 x 350 mm
Nr.4 290 x150 x 430 mm
Nr.5 356 x168 x 441 mm
SAGA
HEILDVERSLUN
Simi 565 8330
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
„Hlánar“ í
veðurfregnum
ÞAÐ gladdi mín gömlu
eyru að heyra í veður-
fregnum að það ætti að
hlána. Ekki bara vegna
þess að þá mundi hlýna og
blota heldur að heyra
þetta orð notað. Ég hélt
satt að segja að þetta væri
eitt af „dánu“ orðunum
þeirra sem semja veður-
fregnir. Þeir sem fylgjast
með veðrinu í útvarpi og
sjónvarpi vita að það er
hætt að hvessa og lygna á
Islandi, það bætir í vind
eða dregur úr vindi. Það er
af og frá að það stytti upp,
nei - það dregur úr úr-
komu. Að maður ekki nefni
að það fari að súlda, rigna
eða snjóa eins og í gamla
daga, nú bætir í úrkomu.
Ætli það muni nokkuð
hlýna eða kólna framar?
Mun ekki bara draga úr
eða auka í hita? Engu að
síður, kærar þakkir fyrir
hlákuna.
Sveitakona.
Listaverkafalsarar
HINN 11. mars var viðtal
við málverkafalsara í sjón-
varpinu, í þættinum „Kol-
krabbanum". Þáttastjórn-
andi ræddi þar við mann
sem er listaverkafalsari og
kom hann fram nafnlaust
og sást ekki andlitið á hon-
um. I Ijós kom að hann
hafði stundað listaverka-
fölsun í þrjú ár, var í sam-
bandi við gallerí hér í bæn-
um, en ekki sagt hvaða
gallerí. I þættinum voru
sýnd sýnishorn af myndum
sem hann hafði falsað,
fannst mér persónulega
þetta ekki góðar falsanir.
Ég er hissa á því að fólk
skuli láta blekkjast af
slæmu handverki, t.d.
Kjarvalsverkum o.fl. verk-
um. I þættinum var hann
spurður að því hvort hann
væri ekki afbrotamaður en
hann virtist Uta á þetta
sem eins konar aukavinnu,
þetta væri ekkert mál. En
maðurinn er auðvitað af-
brotamaður og gengur
laus, búinn að stunda
þessa iðju í þrjú ár og hafa
fé af fólki og hálfeyðileggja
listaverkamarkaðinn. Fyr-
ir fólk sem er að fjárfesta í
verkum eftir gömlu meist-
arana er allt hálfónýtt eftir
að þessi mál komu upp.
Þessi maður er greinilega
einn af þeim stóru í þess-
um bransa.
Finnst mér að þeir sem
tóku við hann þetta viðtal
ættu að segja til hans. Þeir
skulda þjóðinni það að
segja til hans og láta lög-
regluna vita hver hann er
því það er refsivert athæfi
að hylma yfir með afbrota-
mönnum.
Sigurður Eyþórsson,
listmálari
Tapað/fundið
Gyllt úr týndist
við Faxafen
GYLLT Raymond-Weil úr
týndist sl. fimmtudag fyr-
ir utan Barnaríki við
Faxafen. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
564 1398.
Eyrnalokkur
týndist
AÐFARANÓTT sunnu-
dagsins 21. apríl týndist
eyrnalokkur neðarlega á
Laugaveginum. Lokkuiinn
er gylltur hringur með
fjólubláum steinum. Finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band í síma 552 0202.
Dýrahald
STÓR grár páfagaukur
með topp á gulu höfði
fannst í Hlyngerði í
Reykjavík sl. miðvikudag.
Upplýsingar hjá Fríðu í
síma 698 1049.
Óska eftir
kettlingi
ÓSKA eftir kettlingi, hvít-
um, svörtum og gulbrún-
um. Upplýsingar hjá
Sveinveigu Guðmunds-
dóttur í síma 555 2447 og
vs. 565 3000.
SKAK
llmxjón Margeir
Pétnrxson
m I *
áW 4 i §p i
Á i i
W, á u A
& A
B H
s s
HVÍTUR leikur og vinnur.
STAÐAN kom upp í þýsku
fyrstu deildar keppninni um
síðustu mánaðamót. Peter
Pichler (2.395), Passau,
hafði hvítt og átti leik gegn
Christian Maier (2.345),
Freiburg-Záhringen.
26. Rxf7!! - Kxf7 27. Hxe6 -
Kxe6 28. Hel+ - Kf7 29.
Dxc4+ - Kf8 30. Df4+ -
Kg8 31. He7 - Dd5 32. Dh6
- Ddl+ 33. Kg2 - Dd5+ 34.
f3 og svartur gafst upp.
Yíkverji skrifar...
INFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands hefur staðið í stórræðum að
undanfórnu. Fyrst færði hljómsveitin
upp hina nafnkunnu óperu Puccinis
Turandot í Laugardalshöll og um
helgina mun hljómsveitin efna til
„tónleikasýningar" á einni vinsæl-
ustu rokkóperu ailra tíma, Jesus
Christ Superstar eftir Andrew Lloyd
Webber og Tim Rice, í sömu höll.
Hvort tveggja eru þetta metnaðarfull
verkefni og ekki á hverjum degi sem
tónelskum íslendingum gefst tæki-
færi að sjá svo veglegar uppfærslur á
þessum þrekvirkjum. Víkverji ber lof
á þetta framtak Sinfóníuhljómsveit-
arinnar, þessa máttarstólpa í ís-
lensku menningarlífi, og vonar að
henni verði gert kleift að glíma við
fleiri slík verkefni á komandi árum.
Tvær sýningar verða á Superstar
og skilst Víkverja að mikil eftirspurn
hafi verið eftir miðum - þeir runnið
út eins og heitar lummur. Fyrir vikið
mun handagangur hafa verið í öskj-
unni á skrifstofu Sinfóníunnar vestur
í Háskólabíói síðustu dagana eftir að
út spurðist að lausum sætum færi
fækkandi. Þannig heyrði Víkverji að
konu einni hefði legið svo mikið á að
hún hrasaði og rak höfuðið í hurð
skrifstofunnar. Hlaust áverki af og
dreif að fólk til að huga að konunni.
Hafði einhver á orði að vænlegast
væri að koma henni undir læknis-
hendur. Það vildi hún ekki hafa, ekki
strax að minnsta kosti. „Fyrst verð
ég að sækja miðann minn!“
XXX
ÍKVERJI fylgdist með úrslita-
leik Tottenham Hotspur og
Leicester City í ensku deiidabikar-
keppninni síðastliðinn sunnudag.
Seint verður sá leikur skráður í sögu-
bækur fyrir knattlist, hvorugt lið
náði sér á strik, þótt sigur Totten-
ham væri verðskuldaður. Á hinn bóg-
inn verður leikurinn lengi í minnum
hafður vegna framgöngu eins leik-
manna Leicester, Robbies Savage,
sem virtist eitthvað illa stemmdur,
svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Langt er síðan Víkverji hefur séð
annað eins á knattspyrnuvelli, mann-
greyið stakk jafn mikið í stúf þama á
vellinum og nafni hans í Fögru ver-
öld Huxleys gerir í því ágæta samfé-
lagi sem þar er lýst. Hann flengdist
um flötina, eins og stjórnlaus sláttu-
vél, klippti niður mann og annan, eins
og sagt er, og skammaði þá svo eins
og hunda á eftir, þar sem þeir lágu
vamarlausir í sverðinum.
Svo var komið í síðari hálfleik að
Savage hafði fengið þorra áhorfenda
og allt Tottenham-liðið upp á móti
sér. Kom þá nokkrum sinnum til
handaiögmála og var einum leik-
manni Tottenham, Justin Edinburgh,
vikið af velli fyrir að heilsa Savage að
sið sjómanna eftir að sá síðamefndi
hafði brotið gróflega á honum. Ekk-
ert við því að segja en hvers vegna
Savage hékk inná, uns Martin
O’Neill, knattspymustjóri Leicester
ákvað að lina þjáningar hans og
kippa honum af velli í biálokin, fær
Víkverji ekki skilið. Svo margar, svo
ljótar vom tæklingamar.
Stuðningsmenn Leicester reyndu,
eins og vera ber, að hughreysta sinn
mann í öllu mótlætinu og sungu há-
stöfum þegar leið á leikinn: „Það er
aðeins einn Robbie Savage!“ Víkverji
tekur hins vegar undir orð skeleggs
sparkrýnis þar ytra sem sagði í um-
sögn sinni um leikinn: „Guði sé lof!“
Annar ólátabelgur í ensku knatt-
spyrnunni, Dennis Wise fyrirliði
Chelsea, kom mönnum einnig í opna
skjöldu síðastliðna helgi. Ekki vegna
þess að hann fengi áminningu, það
era ekki tíðindi þegar Wise á í hlut,
heldur fyrir hvað hann var áminntm-
af dómaranum í leik gegn Aston Villa
- að brúka munn við sjúkraþjálfara
Villa. Sá hafði lagt leið sína inn á völl-
inn til að hlúa að leikmanni sem lá í
valnum og lenti einhverra hluta
vegna í orðaskaki við Wise, með fyrr-
greindum afleiðingum. Er það mál
manna að þarna hafi Wise numið nýj-
ar lendur. Þess má geta að hann fær
leikbann fyrir vikið.