Morgunblaðið - 09.04.1999, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsvarsmenn skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli ánægðir með veturinn
Lygilega góður
skíðavetur
SKÍÐAVETURINN hefur verið
með besta móti að sögn forsvars-
manna skíðasvæðanna í Skálafelli og
Bláfjöllum.
„Petta hefur verið lygilega góður
vetur, veðrið hefur leikið við okkur
og snjór hefur verið jafn og nokkuð
öruggt að treysta á hann,“ sagði
Haukur Stefánsson, rekstrarstjóri
skíðasvæðisins í Skálafelli.
Að sögn Hauks hefur svæðið verið
opið frá því snemma í janúar og frá
þeim tíma hefur það verið opið í um
60 daga, en meðaltal síðustu tíu
vetra er um 30 dagar á vetri. Arið í
fyrra var samt eitt það allra versta
enda var þá ekki opið í nema 4 daga
allan veturinn, því annaðhvort var
snjólaust eða vont veður.
Gísli Páll Jónsson, yfirmaður
vetrarstarfs í Bláfjöllum, tók undir
orð Hauks, og sagði veturinn í heild
hafa verið mjög góðan í Bláfjöllum,
þrátt fyrir frekar slakan febrúar.
Gísli sagði að skíðasvæðið hefði ver-
ið opið í um 60 daga á vetrinum, líkt
og í Skálafelli, en í fyrra hefði ekki
verið opið nema í 30 til 40 daga.
Snjóbrettaiðkendur
hrein viðbót
Haukur sagði að snjóbrettaiðkun
væri á mikilli uppleið og væri um
hreina aukningu að ræða, því í flest-
um tilfellum væru þar á ferð ung-
lingar, eða krakkar, sem aldrei
hefðu prófað venjuleg skíði. Þá sagði
Gísli að einnig væri töluvert um að
menn væru á nýrri tegund skíða
sem væru breið að framan og aftan
og nokkuð styttri en hefðbundin
svigskíði. Hann sagði að kosturinn
við þessi skíði væri sá að auðveldara
væri fyrir fólk að taka beygjur á
þeim.
Haukur sagði að það sem helst
skyggði á þennan skíðavetur væri
mikil umræða fjölmiðla um aukna
slysatíðni í skíðabrekkunum. Að
sögn Gísla á slysaaukningin sér
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HONDA HR-V verður frumsýndur um helgina.
Frumkynning
á Hondu HR-V
HONDA HR-V fjórhjóladrifsbíll-
inn verður frumsýndur hjá Honda
á Islandi um helgina. Með Honda
HR-V kemur á markaðinn nýr
flokkur bíla. HR-V er tiltölulega
hár en útlitshönnun og breidd gefa
honum kraftalegt og sportlegt út-
lit. Vélin er 105 hestöfl. Bíllinn
fæst bæði beinskiptur og með
hinni nýju þreplausu CVT sjálf-
skiptingu sem Honda hefur þróað.
HR-V er búinn ABS bremsukerfi
og tveimur loftpúðum, hita í sæt-
um og speglum og kostar hann frá
1.749.000 kr.
Einnig verður kynnt ný gerð
Honda CR-V, sem kom á markað í
júní 1997. Helstu nýjungarnar er að
vélaraflið hefur verið aukið úr 128 í
147 hestöfl. Einnig verður kynnt ný
útgáfa, CR-V Advance, sem er
lúxusútgáfa fyrir fagurkera búinn
miklum aukabúnaði. Honda CR-V
kostar frá 2.249.000 kr. Sýning
Honda verður opin frá 10-17 á
morgun og sunnudag.
Morgunblaðið/Halldór
FORSVARSMENN skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli eru sam-
mála um að veturinn liafi verið óvenju góður fyrir skíðaiðkendur.
ósköp eðlilegar skýringar því hún
helst í hendur við aukna aðsókn á
skíðasvæðin. Gísli sagði hins vegar
að ákveðin breyting hefði orðið á
tegundum slysa, því snjóbrettafólkið
hlyti annarskonar meiðsl en hinir,
sem væru á hefðbundnum skíðum.
Hann sagði að snjóbrettaiðkendur
væru meira að stökkva og því væri
meira um að þeir meiddu sig á efri
hluta líkamans, t.d. væri þónokkuð
um að þeir brytu rifbein eða hand-
leggi, þeim sem nota venjuleg skíði
er hættara við að snúa sig á fæti eða
fótbrotna.
Rólegt
eftir páska
Haukur sagði að þrátt fyrir að bú-
ið væri að rigna töluvert væru enn
allar lyftur opnar í Skálafelli og
sagðist hann vonast til að svæðið
yrði opið til 30. apríl. Gísli sagði að
færið í Bláfjöllum væri dálítið blautt
um þessar mundir, en að stefnt væri
að því að hafa svæðið opið til 1. maí.
Báðir voru þeir sammála um að
skíðaaðsókn dvínaði almennt eftir
páska. Gísli bætti því við að um
næstu helgi væru Andrésar andar
leikarnir á Akureyri og þá yrði ef-
laust rólegt á skíðasvæðunum ná-
lægt höfuðstaðnum.
Áfrýjun Stangaveiðifélags Reykjavíkur vísað frá
Lagaskilyrði til
kæru ekki fyrir hendi
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
isaðila vísaði, samkvæmt úrskurði
hinn 30. mars, frá áfrýjun Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur vegna álits
samkeppnisráðs og tilmælum þess
til Skattstjórans í Reykjavík frá því
í janúar á þessu ári. Ekki var talin
lagaforsenda fyrir kærunni þar
sem um óbindandi álit var að ræða.
Upphaf málsins má rekja til er-
indis Lax ehf. frá því 18. maí í fyrra
þar sem kvartað er yfir ójafnri
samkeppnisstöðu aðila sem taka
laxveiðiár á leigu og selji veiðileyfi.
Fyrirtækið taldi sig ekki sitja við
sama borð og Stangaveiðifélag
Reykjavíkur sem keppti á sama
markaði án þess að greiða tekju- og
eignarskatt, þrátt fyrir að selja
fleiri en félagsmönnum sínum leyfi.
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 75/1981
er kveðið á um almennar undan-
þágur og sagt að lögaðilar skuli
ekki greiða tekju- né eignarskatt ef
þeir verja hagnaði sínum einungis
til almenningsheilla og hafi það að
einasta markmiði sínu.
Að áliti samkeppnisráðs stríðir
undanþága SVFR frá greiðslu
tekju- og eignarskatti gegn mark-
miðum samkeppnislaga. Það taldi
vafa á að SVFR uppfyllti skilyrði til
undanþágu frá lögunum, að hagnaði
af stai'fi virtist ekki hafa verið varið
til almenningsheilla í raun. I fram-
haldi beindi ráðið „tilmælum til
Skattstjórans í Reykjavík að hafa
hliðsjón af framangreindu áliti í
túlkun embættisins“ á ofangreindu
undanþáguákvæði. Þetta gerði sam-
keppnisráð í samráði við ákvæði 2.
mgr. 5. gr. samkeppnislaga.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
kærði ákvörðun samkeppnisráðs til
áfrýjunarnefndar samkeppnismála
og krafðist þess að álit ráðsins yrði
fellt úr gildi. Að mati áfrýjanda
hafði samkeppnisráð farið út fyiir
lagaheimildir sínar og inn á svið
skattyfirvalda.
Ennfremur taldi áfrýjandi að
samkeppnisráð hefði gerst sekt
um „valdaþurrð og brot á rann-
sóknarskyldu" með því að senda
álit til Skattstjóra. Um hafi verið
að ræða „óeðlilega íhlutun" í störf
skattyfirvalda. Að ekki sé til þess
ætlast að önnur stjórnvöld en
skattstjórar komi að ákvörðun
skattskyldu.
Áfrýjandi kvað sölu leyfiveiða til
utanfélagsmanna undantekningu
og að tilgangur SVFR sé fyrst og
fremst „að stangaveiði sé unnt að
vinna í anda íþrótta og umhverfis-
verndar".
Úrskurðarorð áfrýjunarnefndar
voru þau að vísa málinu frá þar sem
„lagaskilyrði brestur til að kæra
þetta mál“, eins og segir í niður-
stöðu. Álit samkeppnisráðs hafi
ekki verið bindandi að lögum og
það sé eitt af úrræðum samkeppn-
isráðs að „lýsa skoðunum um sam-
keppnisatriði".
Andlát
INGVAR KRISTINN
ÞÓRARINSSON
INGVAR Kristinn
Þórarinsson, bóksali á
Húsavík, lést á Húsa-
vík miðvikudaginn 7.
apríl síðastliðinn. Hann
var á 75. aldursári.
Ingvar Kristinn Þór-
arinsson fæddist á
Húsavík 5. maí 1924 og
voru foreldrar hans
Sigríður Oddný Ingv-
arsdóttir, ljósmyndari
og húsmóðir, og Þórar-
inn Stefánsson, bóksali
og hreppstjóri. Ingvar
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á
Akureyri vorið 1945. Hann starfaði
við bókaverslun fóður síns á Húsavík,
Bókaverslun Þórarins Stefánssonar,
frá árinu 1945 og tók síðar við rekstri
hennar. Hann var kennari við Gagn-
fræðaskóla Húsavíkur árin 1945 til
1966 og stundakennari þar til ársins
1973. Hann dvaldi um tíma í Banda-
ríkjunum veturinn 1962 til 1963 til að
kynna sér nýjungar í stærðfræði-
kennslu sem var sérgrein hans. Ingv-
ar hætti störfum við
verslun sína fyrir
nokkrum árum vegna
heilsubrests og dvaldi
síðustu misserin á
Heilsustofnun Húsa-
víkur.
Af félagsstörfum
Ingvars má nefna setu
hans í bæjarstjórn fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn
árin 1966 til 1970, hann
var um árabil formað-
ur sóknamefndar og
var formaður Sjálf-
stæðisfélags Húsavík-
ur 1973 til 1979. Þá var
Ingvar tónlistarlífi á Húsavík mikil
stoð, m.a. með því að gangast fyrir
tónleikahaldi innlendra sem erlendra
listamanna þar. Ingvar var einn fjór-
menninganna í Tónakvartettinum og
lék eiginkona hans, Björg Friðriks-
dóttir, undir með kvartettinum.
Böm þeirra em tvö, Stefán Öm,
verslunarmaður, búsettur í Noregi,
og Sigríður, sjúkraliði, búsett í
Reykjavík.
Snjóflóðarannsóknir með ratsjám
ÞEKKT er að nota ratsjár við
mælingar og athuganir á siyó-
flóðum en varðskipsmenn námu
snjóflóðatungurnar þrjár efst á
ratsjánni sem féllu ofan við
byggðina á Flateyri 21. febníar
síðastliðinn. Magnús Már
Magnússon, snjóflóðafræðingur
á Veðurstofu Islands, segir að
með því að nota ratsjá við snjó-
flóðarannsóknir megi öðlast,
ýmsa þekkingu á hraða og
hegðan flóðanna og eðlisfræði
þeirra. Hefur Veðurstofan m.a.
komið fyrir ratsjá í Siglufírði
til snjóflóðarannsókna og
Magnús segir hafa koinið til
tals að setja slíkan búnað á
garðana við Flateyri. Ljós-
myndin er tekin af ratsjá skips-
ins.