Morgunblaðið - 09.04.1999, Síða 52

Morgunblaðið - 09.04.1999, Síða 52
&2 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ólöf Bjarnadótt- ir fæddist í Reykjavík 11. nóv- ember 1919. Hún lést á Droplaugar- stöðum 31. mars síð- astliðinn. Foreldrar liennar voru hjónin séra Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur og vígslubiskup, f. í Reykjavík 21. októ- ber 1881, d. 19. nóv- -vember 1965, og Ás- laug Ágústsdóttir, f. á Isafirði 1. febrúar 1893, d. 7. febrúar 1982. Ólöf átti tvö systkini, Ágúst, f. 30. apríl 1918, d. 22. júlí 1994, og Onnu, f. 23. júlí 1927. Ólöf giftist 29. janúar 1944 Agnari Klemens Jónssyni, sendiherra og ráðuneytisstjóra, f. í Reykjavík 13. október 1909, d. 14. febrúar 1984. Foreldrar hans voru hjónin Klemens Jóns- son landritari, f. 27. ágúst 1862, d. 20. júlí 1930, og Anna María Schiöth, f. 1. júní 1879, d. 8. nóv- ember 1961. Börn Ólafar og Agnars eru: 1) Bjarni, f. 26. nóv- ember 1945, d. 24. mars 1946. 2) Anna sagnfræðingur, f. 14. maí 1947. Maki hennar er Ragnar Árnason hagfræðingur. Dætur þeirra eru: Ásgerður og Anna Elsku amma. Núna þegar þú ert farin frá okkur og hefur fengið lang- þráða hvíld þá rifjast upp margar góðar minningar. Okkar fyrstu minningar tengjast Tjamargötunni og því hversu gott var að koma — þangað að heimsækja þig. Þau eru öteljandi fjölskylduboðin þegar við hittumst hjá þér en sérstaklega munum við eftir aðfangadagskvöld- unum þar sem við slógumst um möndluna, opnuðum gjafirnar og söfnuðumst svo öll saman í kringum píanóið þar sem þú spilaðir jólalögin. En það var ekki bara við veislu- höld sem við komum til þín. Það var alltaf spennandi að fá að gista og sofa í stóra rúminu uppi á lofti og þú sagðir okkur sögur um hana Maggý og baðst með okkur bænimar. Ekki fækkaði heimsóknunum þótt við yrð- um eldri, við gátum setið lengi og talað um allt sem okkur datt í hug. Það var alltaf gaman að fara eitthvað með þér, við vorum ætíð jafn undr- ^úndi hversu marga þú þekktir og við vorum stolt að eiga svona glæsilega ömmu eins og þig. Þrátt fyrir veikindi þín síðustu ár- in hélst þú alltaf andlegri reisn þinni og þótt þú gætir ekki tekið beinan þátt I samræðunum, hlustaðir þú alltaf á okkur af skilningi. En það sem mun ætíð sitja eftir er hlýja brosið þitt sem gladdi okkur alltaf jafn mikið. Elsku amma, takk fyrir allt, við vitum að þér líður vel núna og að afi hefur tekið vel á móti þér. Við viljum kveðja þig með bæninni sem þú baðst með okkur fyrir svefninn: Vertu, Guð faðir, faðir minn, —y í frelsarans Jesú nafni. hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Fyrir hönd barnabarnanna, Ólöf, Agnar og Ásgerður. Það var á kyrru vetrarkvöldi fyrir næstum tuttugu árum að ég hitti þau Ólöfu og Agnar Klemens, tilvonandi tengdaforeldra mína, í fyrsta sinn. Mig minnir hálfvegis að ég hafi verið dálítið kvíðinn að stíga inn í þetta stóra og virðulega hús fjöskyldunnar TÖð Tjörnina. En sá ótti reyndist auð- vitað ástæðulaus og þegar Áslaug hafði kynnt mig fyrir foreldrum sín- um þóttist ég fljótt skynja að hér yrði mér alltaf vel tekið. Og sú varð raunin á - og nú þegar ég lít til baka sé ég hvað það er dýrmætt að hafa kynnst fólki eins og þeim hjónum, Ólöfu og Agnari. Ég man að þetta kvöld sátum við Guðrún. 3) Áslaug bókavörður, f. 9. maí 1949. Fyrri maki hennar var Viktor Maslennikov. Dóttir þeirra er Ólöf. Þau skildu. Maki hennar er Óskar Árni Óskars- son, skáld og bóka- vörður. Dætur þeirra eru: Álfrún og Nína. 4) Bjarni Agnar læknir, f. 5. ágúst 1952. Maki hans er Sigríður Jónsdóttir meina- tæknir. Börn þeirra eru Agnar, Ólöf og Kjartan Jón. Ólöf varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1938. Eftir að hún gifti sig dvaldist hún lengi erlendis vegna starfa eiginmanns síns í utanríkisþjón- ustunni og var sendiherrafrú í London, París, Ósló og Kaup- mannahöfn. Eftir að Ólöf fluttist heim var hún um árabil sjálf- boðaliði á bókasafni Rauða kross fslands á Landspítalanum. Árið 1996 veiktist Ólöf og naut umönnunar á hjúkrunarheimil- inu Droplaugarstöðum síðustu tvö ár ævinnar. Útför Ólafar Bjarnadóttur fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. og spjölluðum í bókastofunni þar sem allir veggir voru þakktir bókum og að fyrir utan gluggann féll snjór á ísilagða Tjömina. Mig minnir að fljótlega hafi talið borist að bókum og rithöfundum, en bæði voru þau Olöf og Agnar víðlesin og gagn- menntuð. Hugur Ólafar hneigðist einkum að fagurbókmenntum, hvort sem það var íslensk skáldsagnagerð eða frönsk nútímaljóðlist, en Ólöf hafði yndi af Ijóðum. Þama í bóka- skápunum mátti m.a. sjá afbragðs- gott safn af íslenskum þjóðsögum og sagnfræðiritum, erlendar ferðabæk- ur Islandsfara, myndlistarbækur, Laxness og þórberg og ljóðabækur Tómasar og Sigfúsar Daðasonar. Og ekki má gleyma frönsku hillunum hennar Ólafar, en frönsku hélt hún meira upp á en önnur útlend mál. Já, það var menning í Tjamargötu 22, og ekki aðeins í bókmenntum, mynd- list og tónlist, heldur bar allt viðmót og heimilishald með sér mikinn og góðan menningarbrag, jafnt í stóru sem smáu. Ólöf fylgdist náið með bamabörnum sínum og fyrir dætur okkar Áslaugar var ekki ónýtt að eiga ömmu sem bjó við sjálfa Tjörn- ina í Reykjavík; eiga þar athvarf í garðinum á heitum sumardögum og koma rauðnefjaður af skautum á vet- uma inn í hlýjuna til ömmu Ólafar og setjast í eldhúskrókinn og fá heitt kakó í bolla. Öðru fremur finnst mér það hafa verið heiðarleiki, hlýja og glaðværð sem einkenndi allt fas og athafnir tengdamóður minnar Ólafar Bjarna- dóttur. Og nú þegar hún er horfin frá okkur eftir langvinn og erfið veikindi, kveð ég hana með söknuði, en mun ávallt minnast hennar með gleði og þakklæti. Óskar Árni Óskarsson. Elskuleg tengdamóðir mín hefur nú kvatt þennan heim eftir nærri þriggja ára erfið veikindi og langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Er ég kynntist tengdaforeldrum mínum voru þeir búsettir í Ósló vegna starfa Agnai-s í utanríkisþjón- ustu íslands. Samverustundimar vom því fremur fáar fyrstu árin en ég komst þó fljótt að því að Ólöf tengdamóðir mín ver vel gefin kona, traust og viljasterk. Meðal minna bestu minninga eru heimsóknir til þeirra hjóna erlendis, fyrst í Ósló og síðan í Kaupmannahöfn. Ólöf studdi mann sinn dyggilega í störfum hans og voru það ófáir sem nutu gestrisni þeirra bæði heima og erlendis. Ég minnist þess með þakklæti þegar Ólöf kom í heimsókn til íslands stuttu eftir andlát móður minnar 1975 og var mér þá mikill styrkur. Eftir að Ólöf og Agnar fluttust heim til Islands urðu samverustund- irnar fleiri og varð þá heimili þeirra í Tjarnargötu nokkurs konar mið- punktur stórfjölskyldunnar þai’ sem fjölskylduböndin voru treyst. Gott var þá að geta leitað til Ólafar með hin margvíslegustu mál, smá og stór. Fyrir nokkrum árum, eftir að Agnar lést, fórum við Ólöf tvær sam- an til London. Þar áttum við saman góðar stundir enda gaman að vera með henni þar því hún þekkti borg- ina vel frá þeim tíma er hún bjó þar. Mér leið ávallt vel í návist tengda- móður minnar enda var hún skemmtileg kona sem gaf mikið af sér og reyndist mér alltaf vel. Fyrir tæplega þremur árum veikt- ist Ólöf skyndilpga og náði ekki heilsu eftir það. Á þessum tíma hafa börnin og barnabörnin staðið við hlið hennar og stutt hana eftir bestu getu. Síðastliðin tvö ár hefur Ólöf dvalið á Droplaugarstöðum og notið þar frábærrar aðhlynningar og á starfsfólkið þar miklar þakkir skild- ar fyrir það. Ég kveð Ólöfu með söknuði og þakka fyrir þær stundir sem ég átti með henni. Sigríður Jónsdóttir. Þann 31. mars lést sæmdarkonan Ólöf Bjarnadóttir, bernskuvinkona mín og náfrænka. Minningamar eru margar og ljúf- ar frá nær átta áratuga samleið. Æskuheimili mitt og fæðingarstað- ur, Thorvaldsenstræti 2 (Sjálfstæðis- húsið), var aðeins steinsnar frá æskuheimili hennar í Lækjargötu 12b. Áslaug Ágústsdóttir, móðir Ólafar, og ég vorum bræðradætur og faðir minn var svaramaður Áslaugar þegar hún giftist séra Bjama. Það voru mörg prestsverkin sem séra Bjami gerði á heimili mínu og Gunn- ars, mannsins míns, og það brást ekki að hann rifjaði það upp að hinn 10. nóvember hefði Hallgrímur Benediktsson hringt í sig og sagt að hann hefði eignast dóttur en næsta morgun, hinn 11., gat séra Bjarni hringt til baka og sagt hróðugur að hann ætti líka dóttur. Bernskuár hjá Ólöfu vinkonu vom ljúf. Hún ólst upp í kristilegu og kærleiksríku andrúmslofti á heimili foreldra sinna með Ágúst eldri bróð- ur sínum og Önnu yngri systur sinni. Á heimilinu dvöldu einnig amma Anna og amma Ólöf að ógleymdri Guðríði og undu þvi þrír ættliðir þar glaðir við sitt undir sama þaki. Árin liðu í vináttu og kærleika og árið 1938 urðum við stúdentar 42 að tölu sem enn í dag halda vináttu- böndum. Ólöf var góðum gáfum gædd og nýtti þær vel enda varð hún dúx máladeildar með glæsibrag. Ekki var síður um vert hversu næm hún var og háttvís og hversu lagið henni var að gefa fólki sem á vegi hennar varð tækifæri til að njóta sín. Átti það jafnt við um olnbogabörn þjóðfé- lagsins og þá sem hærra vom settir. Árin liðu í gleði og ánægju með bekkjarfélögum og góðum vinum. Hinn 29. janúar 1944 giftist hún Agnari Kl. Jónssyni. Þar fóru hjón sem ræktuðu jarðveg sinn vel. Álin upp á líkan hátt þar sem skylda, ræktarsemi og ást réðu ríkjum. Minnist ég þess að á sjálfan brúð- kaupsdaginn tilkynnti utanríkisráð- herra að hann hefði verið skipaður ráðuneytisstjóri. Seinna fylgdu önn- ur störf, sendiherra í London, París og Ósló. Starfsferil sinn endaði hann svo sem sendiherra í Kaupmanna- höfn þar sem hann hafði hafið hann sem fulltrúi í dönsku utanríkisþjón- ustunni fjörutíu árum fyrr. Öll þessi ár stóð Ólöf vinkona sterk og hjálpfús við hlið eiginmanns síns. Þau voru frumkvöðlar í utanrík- isþjónustunni og ræktu starf sitt þar með heiðri og sóma. Hinn 26. nóvember 1945 eignuðust þau fyrsta barn sitt og er mér minn- isstæð skírnarveislan þegar afi Bjarni skírði litla Bjarna. Hamingj- an blasti við ungu hjónunum en það stóð ekki lengi. Hinn 24. mars 1946 misstu þau Bjama og fer ekki úr huga mér þeg- ar við fylgdum litlu kistunni frá Tjarnargötu 22 í gamla kirkjugarð- inn. Saman stóðu þau Ólöf og Agnar í sorginni og með ást og gagnkvæmri umhyggju tókst þeim að milda sorg- ina og hugsa til þess sem þau áttu. Seinna birti og þau eignuðust þrjú mannvænleg börn, Önnu sagnfræð- ing, Áslaugu bókavörð og Bjarna Agnar lækni. Börnin þrjú ásamt tengdabörnun- um Ragnari, Óskari og Sigríði og barnabömunum, veittu þeim ómælda hamingju og stóðu sem klettur við hlið þeirra þegar á þurfti að halda. Snögg umskipti urðu hjá frænku minni og vinkonu 14. febrúar 1984 þegar Agnar dó. En þá eins og áður sinnti hún nánustu fjölskyldu sinni sem hún elskaði og dáði og náði einnig til annarra sem þurftu á hjálp að halda. Systur sinni Önnu og fjöl- skyldu var hún sérstök. I maí 1996 veiktist Ólöf fyrirvara- laust. Lamaðist hún og missti málið en hélt fullri skynsemi og fylgdist með gangi mála. Þurfti hún þá enn að gangast undir stóran uppskurð. Kjarkur hennar og æðruleysi í öllum raunum var einstakur. Vænt þótti mér að fylgjast með börnum hennar, tengdabörnum og bamabörnum, hversu þau með ómældri ást sinni og umhyggju um- vöfðu hana kærleika og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að létta henni sporin. Hún lést sannkölluð hetja, sem tók hlutskipti sínu með æðruleysi og reisn. Elsku Ólöf mín, ég þakka þér beint frá hjartanu ómetanlega trygga vináttu og frændsemi sem aldrei bar skugga á. Um leið votta ég Önnu, Áslaugu og Bjama Agnari og þeirra fjöl- skyldum og Ónnu systur hennar innilega samúð við fráfall yndislegr- ar móður, tengdamóður, ömmu og systur. Megi hún gefa þeim styrk og al- góður Guð og Ijúfar endurminningar milda sorgina og söknuðinn. Hugur minn er hjá ykkur úr fjar- lægð. Ég fel Ólöfu vinkonu mína og frænku Guði og þakka fyrir allt. Ingileif Bryndís Hallgríms- dóttir (Inga), Brussel. Það var fyrir tæpum þremur ár- um, að blessuð Ólöf Bjarnadóttir missti hæfileikann til að tjá sig á venjulegan hátt. Þetta var 11. maí 1996. Síðan hefur hún verið á heilsu- hælum og sjúkrahúsum. Lengi vel fær um að taka á móti gestum, sem hún bauð velkomna með augunum og sínu fallega brosi og með veikum þrýstingi með vinstri hendi en meira var það ekki. Þessi viðbrögð voru dvínandi eftir því sem árin liðu og henni hrakaði meir og meir uns yfir lauk. Mig langar til að minnast Ólafar. Leiðir okkar lágu svo víða saman, sérstaklega eftir að þau Agnar, hálf- bróðir móður minnar, Önnu Guðrún- ar, og Ólöf höfðu náð saman og stofnað sitt heimili í Tjarnargötu, sem hafði um árabil verið annað heimili okkar systkina í Laufási. Þarna hafði móðir okkar slitið barns- skónum hjá fóður sínum. Móðir hennar, fyrri kona Klemensar, var dáin. Föðursystir hennar var Guð- rún Borgfjörð, dóttir Jóns Borgfirð- ings, er sá um heimilið fram að því að Klemens gengi í hjónaband við Önnu Schiöth frá Akureyri, sem við systkinin þegar fram í sótti kölluðum ömmu. Guðrún reyndar stóð með bróður sínum Klemensi fram yfir fráfall hans. Hún féll frá nokkrum dögum eftir lát hans. Til þess að lýsa tengslum okkar við Tjarnargötu- heimilið, þá er freistandi að skjóta hér inn frásögn móður okkar um hversdagslegan atburð árið 1917. Foreldrar okkar voru flutt frá Hesti í Borgarfirði í Laufás sunnarlega á móts við suðurenda Tjarnarinnar, sem er þá í einu lagi, þ.e. brúin ekki komin og veglaust. Frásögnina ritar hún í stílabók 1968, þá 78 ára að aldri. Þeim hafði verið boðið í heim- sókn á páskunum í Tjarnargötuna. Mamma lýsir aðstæðum svona: „Við vorum boðin í mat með börn- in þangað, en það var erfið fór í háa roki og kulda. Þá var brúin ekki komin, né auðvitað ekki vegur svo það þurfti að sjálfsögðu að fara norð- ur fyrir tjörnina. Auðvitað áttum við alls ekki að fara en jeg var friðlaus. ÓLÖF , BJARNADÓTTIR Skemmst frá að segja að við komumst við illan leik í Tjarnargöt- una. Tryggvi mátti selflytja mig og bömin. Man ég að við komumst að Fríkirkjunni. Þar húkti jeg með ann- að barnið meðan hann bar svo hitt niður að Iðnó í skjól þar og sótti svo hitt og mig og svo komumst við í næsta skjól við Bárana og svo síð- asta áfangann í Tjarnargötu en hvernig gekk heim er jeg búin að gleyma.“ Við fluttum í ráðherrahúsið 1927 og vorum þar til 1932. Samgangur varð þá enn nánari. Ólöf var fædd 1919, dóttir lands- frægs manns, séra Bjarna Jónsson- ar, sem var einn af fremstu kenni- mönnum kirkjunnar og -frægur húmoristi. Móðir hennar var Áslaug Ágústsdóttir, komin af miklu og merkilegu ‘söngfólki. Systir hennar var með eina skærustu röddina í kirkjukór Dómkirkjunnar og sonur hennai- Kristinn, óperusöngvari. Ágúst, bróðir Ólafar, var einnig við- urkenndur söngmaður. Ólöf var bekkjarsystir Agnars bróður míns. Háðu þau og fleiri bekkjarsystkini þeirra í máladeild hins lærða skóla mikla keppni um efsta sæti á stúd- entsprófi vorið 1938, sem lauk með sigri Ólafar. Agnar frændi var í danskri utan- ríkisþjónustu frá 1934, fyrst í Dan- mörku og síðan vestan hafs í Was- hington. Hann var kominn í þjónustu við íslenska utanríkisþjónustu frá upphafi hennar í New York árið 1940. Hann flutti heim árið 1942 í starf hér í utanríkisráðuneytinu. Samdráttur Agnars og Ólafar hófst fljótlega eftir það og þau gefin saman 29. janúar 1944. Efnt var til glæsilegs brúðkaups á Hótel íslandi. Man ég, að sessunautur minn í þeirri veislu var bekkjarbróðir og æskufé- lagi, Geir Hallgrímsson, náfrændi Ólafar, við yngstir veislugesta að því er mig minnir. Hjónaband þeirra hélt vel til enda og var hamingju- samt. Ég var heimilismaður hjá þeim í sendiráðinu í London í tæpt ár að Buckinghamgate 17 rétt hjá Kon- ungshöllinni. Anna og Áslaug, dætur þeirra, komnar á legg. Þetta var árið 1957 og Agnar kominn í fyrstu sendi- herrastöðu sína fyrir Island. Ólöf var glæsilegur fulltrúi á er- lendum sem innlendum vettvangi. Framkoma hennar var fáguð og óþvinguð. Hún var hrífandi og há- menntuð kona, hleypidómalaus og gerði sér ekki mannamun, jafnvíg á öll helstu tungumál og hafði afar sterkan persónuleika. Upphefðin steig henni ekki til höfuðs, sem bar vitni um mannkosti hennar. Eftir að Agnar frændi var dáinn reyndi ég að aðstoða Ólöfu við að halda við hinu gamla glæsilega húsi sem Klemens afi lét byggja við Tjarnargötu 22 á Tjamarbakkanum. Ólöf var staðráðin í að búa áfram í húsinu og halda því vel við og brúa það bil sem yrði á því að eitt barna hennar tæki við. Þetta tókst. Nú er Bjami Agnar þar búsettur með konu og börn. Megi þeim, Önnu og Ás- laugu farnast vel með sínum nán- ustu. Fyrir hönd okkar Laufássystkina og Guðrúnar Steingrímsdóttur, ekkju Klemensar bróður okkar, flytjum við þeim okkar hlýjustu sam- úðarkveðjur. Minning Ólafar verður okkur einkar kær. Björn Tryggvason. Ólöf Bjarnadóttir var föðursystir mín og þau faðir minn voru mjög ná- in meðal annars vegna þess að það var ekki nema rétt um ár á milli þeirra. Þeim þótti vænt hvoru um annað og þeim báðum um litlu syst- ur sína Önnu. Vináttan milli þeii’ra pabba og Ólafar náði yfir á okkur börnin þeirra og pabba þótti sannar- lega alltaf mikið koma til bama syst- ur sinnar. Á sama hátt urðum við Bjarni bróðir minn sannarlega vör við væntumþykju og áhuga Ólafar á öllu lífi okkar og störfum. Bæði fór- um við Bjarni í heimsóknir til Ólafar og barna hennar og voru það ekki stuttar heimsóknir; Bjarni fór til London og var svo með þeim í sum- arleyfi á Isle of White og ég var send, barnið, alla leið til Parísar og fór svo með þeim Ólöfu og Agnari og krökkunum til Suður-Frakklands. I þeirri ferð kynntist ég Ólöfu föður-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.