Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 67 FÓLK í FRÉTTUM Barneignir 1. janúar árið 2000 hefst í dag áb Malarhöfða 8 BARNAFATNAÐUR DÖMUFATNAÐUR HERRAFATNAÐUR NÆRFÖT GLERVARA o.fl. Opið virka daga kl. 13-18, laugardaga kl. 10-16 ATH. útsölunni lýkur 17. apríl BUXNADAGAR Eyrna- stórir yrð- lingar GÆSLUKONAN Shona Wessely faðmar nýfæddan yrðling í Dýragarði Sydney í Astralíu. Þrír wðlingar af refategundinni fennec fædd- ust fyrir átta vikum en for- eldrar þeirra eru refimir Emi og Tokar sem voru flutt- ir til Astralíu frá eyðimerkur- garði í Kaliforníu í Banda- ríkjunum. Fennec refir eru smæsta refategundin, með löng og oddmjó eyru og lifa villttr í Sahara eyðimörkinni í Norður-Afn'ku. Kringlunni - Laugavegi Hringlar í eggjastokkum víða um heim SVMUMþykiv „sva.lt" acl Janúar árið 200(f“‘ISt harn að breyta tíðahringnum og aðrar reyna að koma sér vel við lækni sem viljugur væri að hjálpa þeim að ná takmarkinu. Samt má ráða af umræðum á Netinu að mörgum hafi snúist hugur vegna yfirvofandi hættu á hruni tölvukerfa jafnt á sjúkra- húsum sem annars staðar. Frú Nashif er ein þeirra og hefur hún í samráði við eiginmanninn ákveðið að reyna fremur getnað þriðja barnsins í maí. Þau hjónin eru kaþólskrar trúar og taka undir með páfanum í Róm, sem hefur lýst árið 2000 sérstakt há- tíðarár, ineð aðal- áherslu á fyrir- gefningu, sátt, breytingu og syndabót. Liz Haddon lét segjast að áeggjan eiginmanns síns, tölvufræðings, sem sér fyrir ýmis vandamál í tengslum við tölvukerfi í upp- hafi næsta árs. Hún segir að sér sé að meinalausu að hætta við fyrirætl- an sína um að eignast barn 1. janúar árið 2000. „... enda bara tískubóla og fyrir þá sem hafa þörf fyrir að vera miðpunktur at- hyglinnar í fimmtán mínútur," segir hún og lætur sér nú fátt um finnast. Oðru máli gegnir um frú House, sem heldur fast við áform sitt um að takast á við móður- hlutverkið við upphaf nýs árþús- unds. „Vá - það verður æðis- legt,“ er haft eftir frúnni í San Franscico Chronicle. ÞRÁTT fyrir hrakspár margra spakra manna um afleiðingar 2000-vandans eru dæmi um að konur vinni að því öllum árum að fæða barn 1. janúar árið 2000. Á netútgáfu San Francisco Chron- icle segir að líkurnar á að þeim takist ætlunarverkið séu mestar ef getnaður verður í dag, 9. apr- fl. Bara lfluir, árétta læknar og segja getnað í dag alls ekki tryggja fæðingu barns á nýárs- dag. Auk þess finnst þeim var- hugavert að þjóna duttlungum væntanlegra foreldra með því að grípa inn í náttúrulegt ferli og flýta fyrir fæðingum. Fortölur læknanna og sá möguleiki að tölvukerfi spítal- anna hrynji, þegar nýtt árþúsund gengur í garð, virðast ekki hafa mikil áhrif. Sumir eru harðá- kveðnir í að reyna allt hvað af tekur að eignast barn á þessum tímamótum. Líkt og Cameron House, rannsóknarmaður í Texas, telja þeir að nýtt árþús- und boði betri tíð með blóm í haga. „Allt breytist og kaflaskil verða í lífi okkar,“ segir frú Hou- se, en hún og eiginmaður hennar hyggjast geta barn fyrstu vikuna í aprfl. Gangi getnaður með gamla laginu ekki eftir ætla þau að reyna gervifrjóvgun í vikunni á eftir. Hvergi bangin Gagnstætt þeim sem lítt hugn- ast spítalavist í janúar vegna ótta um að allt fari úrskeiðis í tækja- búnaði, eru House-hjónin hvergi bangin. Þau eru þó ekki ein um að vilja gleðjast yfir foreldra- hlutverkinu um leið og nýju ár- þúsundi. Fleiram finnst tilhugs- unin þekkileg og hafa lagt.orð í umræðuna í San Francisco Clironicle og öðrum bandarísk- um fiölmiðlum. Frú ein í Kali- forníu sagði að sjálfa langaði sig einfaldlega að eignast barn en stefndi þó að fæðingu þess 1. jan- úar árið 2000 vegna þess að manninum sínum þætti það svo „svalt“. Lögmál markaðarins koma að venju við sögu í margvíslegum myndum. Á heimasiðu í San Francisco er t.d. boðið upp á hjálpartæki til getnaðar á 49,99 dollara. Búnaðurinn sam- anstendur af leiðbeiningarbæk- lingi um frjósemi, tækjum til að spá fyrir um egglos, öðram til að gera þungunarpróf, nuddol- íu og kertum. Fyrirtæki í Nýja-Sjálandi kostar keppni þar sem þátttakendur giska á kyn og þyngd fyrsta barns landsins árið 2000. Af öðrum sem gera út á barn ársins 2000 má nefna breska sjón- varpsstöð, sem kallaði yfir sig reiði kaþólsku kirkjunn- ar vegna heimildarþátta um hjón í sömu hugleiðing- um og House-hjónin. Fæðingarlæknar eru heldur ekki yfir sig hrifnir af írafárinu kringum barn nýja árþúsundsins. Sérstaklega líst þeim illa á að barnshafandi konur fái hjálp til að flýta fyrir för barnsins í heim- inn rétt fyrir miðnætti aðfara- nótt 31. desember. Þeir vara við og segja slíkt auka bæði áhættu og kostnað. „Þótt fólk setji sér alls konar brjálæðisleg takmörk er ekki við hæfi að læknavísindin hjálpi því við að ná þeim,“ segir kvensjúkdómafræðingur í Atl- anta. Innan við 1% líkur Konur geta farið í glasafrjóvg- anir og ýmsar Iæknismeðferðir á tilteknum tíma án þess að auka líkurnar á að fæða barn á fyrir- fram ákveðnum degi. Jafnvel þær sem samkvæmt læknisráði þurfa að gangast undir keisara- skurð geta ekki reitt sig á að læknarair sinni öðru en brýnustu tilfellum 1. janúar, sem er laug- ardagur. „Möguleikar á getnaði eru 20%, enda frjósemisskeið fiestra kvenna óreglulegt. Lík- urnar á að mök í byijun næsta mánaðar leiði til fæðingar á ný- ársdag era innan við 1%. Öllu lík- legra er að fæðingin verði ein- hvern timann á allt að sex vikna tímabili sitt hvora megin við áætlaðan fæðingardag," segir kvensjúkdómafræðingurinn í Atl- anta. Þessar staðreyndir hindra þær gallhörðustu ekki í ákvörðun sinni um að eignast barn á nýárs- dag. Sumar ganga jafnvel svo langt að taka inn frjósemislyf til *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.