Morgunblaðið - 09.04.1999, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 611
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reykjavík. Opiö
þriðjud. og miðvikud. kl. 16-19, fimmtud. kl. 17-21,
föstud. og laugard. kl. 15-18. Sími 561-6061. Fax: 552-
7570._________________________________________
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarflarðar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.__
KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum._________________
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22, föst. kl. 8.15-19. Laugd.
9-17. Sunnud. kl. 11-17. Handritadeild er lokuð á laug-
ard. og sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615._
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.__________
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Safnið er opið laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14-17.______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opiö daglega kl. 11-17, lokaö
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga ki. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is_________________________
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 nema mánud._________________________
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Tekið á
móti gcstum skv. samkomulagi. Upplýsingar í síma 553-
2906.________________________________________
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Sími 563-2530.______
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar
verður opið á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard.
milli kl. 13 og 17. _________________________
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. scptember. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is.______________________
MINJASAFN RAFMAGNSVEITU Reykjavíkur v/rafstöð-
ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eða eftir sam-
komulagi. S, 567-9009.________________________
MINJASAFN SLYSAVARNARFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öðrum
tímum í síma 422-7253.____________________
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI: Aðalstræti 68 er lokað I
vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuð
verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfs: 461-2562.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið framvegis
á sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahóp-
ar og bekKjardeildir skóla haft samband við safnvörð í
síma 462-3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara
umtali.______________________________________
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tíma eftir samkomulagi.__________________
NÁTTÍIRUFRÆDISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 564-0630._
NÁTTÚRUGRIPASAFNII), sfningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30- 16. _________________________________
NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safnið einungis
opið samkvæmt samkomulagi.____________________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hatnar-
fírði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Sími 5554321.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin Iaugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16. _________________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi fyrir skólanema og aðra hópa. S: 565-4242,
bréfs. 565-4251._____________________________
SJÓMINJA- OG SMIÐJIJSAFN JÓSAFATS
HINRIKSSONAR, Súðan'ogi 4. Opið þriöjud. - Iaugard.
frákl. 13-17. S. 581-4677.__________________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EVRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. i s: 483-1165,483-1443.________________
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR: Handritasfning opin
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14-16 til
14. maí,______________________________________
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Sími 431-5566.__________
SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafélags íslands,
Garðinum: Opið um helgar frá kl. 13-16._____
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17. _________________________
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga tii föstu-
daga kl. 10-19. Laufiard. 10-16.______________
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14- 18. Lokað mánudaga. ____________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÍ) Á AKUREYRI: Lokað I vetur
nema eftir samkomulagi. Simi 462-2983._____
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega I sum-
arfrákl. 11-17._____________________________
ORÐ PAGSINS _______________
Reykjavík stml 551-0000.
Akureyrl s. 462-1840. _____________
SUNDSTAÐIR___________________________________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opiö í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl.
8-20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-15.
þri., mið. og föstud. kl. 17-21.____________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-föst. 7-21. Laugd. og
sud. 8-18. Sölu hætt hálftíma íyrir lokun.____
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád.-
föst. 7-21. Laugd. 8-12. Sud. 9-12.___________
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18._
SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opið alla virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-15 um helgar. Sími 426-7555.___
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22,
helgar 11-18._________________________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-föstud. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16.____
SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-föst. kl. 7-9 og 15.30-
21, Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sími 461-2632.___________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._______
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVIST ARSVÆÐI
FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARIHÍRINN er opinn alla
daga kl. 10-17, lokað á miðvikudögum. Kaffihúsiö opið á
sama tíma. Sími 5757-800.___________________
SORPA_________________________________________
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar
á stórhátíöum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520-
2205.
vg) mbl.is
_A.LLTAf= eiTTH\SAÐ NÝTT
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
ÁRNI Sigfússon, formaður FÍB, aflienti Signýju Þórarinsdóttur gjafa-
bréf fyrir ferðinni til Bandaríkjanna.
Vann tveggja vikna ferð
með Flugleiðum til Flórída
Stofnun Félags kvenna
í atvinnurekstri
SIGNÝ Þórarinsdóttir, Reykjavík,
varð sú heppna í úrdrætti FIB
sem efnt var til í tengslum við fé-
lagskynningu í upphafi árs. Vinn-
ingurinn er ferð fyrir tvo full-
orðna og tvö böm með gistingu í
íbúð með tveimur svefnherbergj-
um. viku í Orlando og í sambæri-
legri íbúð aðra viku í Sarasota
auk þess sem bílaleigubíll í C-
flokki er innifalinn allan tímann.
Meðal næstu átaksverkefna
FIB er kynning á skattlagningu
ríkisins á bifreiðaeigendur og
áframhaldandi barátta gegn
óréttlátri skattlagningu.
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðherra
skipaði nefnd árið 1997 sem fékk það
hlutverk að meta þörf fyrir stuðn-
ingsaðgerðir sem tækju mið af þörf-
um kvenna í atvinnurekstri. Nefndin
lauk störfum í nóvember 1998 og vai'
það niðurstaða hennar að stuðnings
væri þörf. Meginforsendan fyrir
mati nefndarinnar var sú að hlutur
kvenna í eigin atvinnurekstri væri
ekki sem skyldi, segir í fréttatil-
kynningu frá viðskiptaráðuneytinu.
Ennfremur segh-: Lagði nefndin
m.a. til að stofnað yrði félag eða
„tengslanet“ kvenatvinnurekenda
með stuðningi stjórnvalda sem hefði
það að meginmarkmiði að efla sam-
vinnu og samstöðu þeirra m.a. með
það fvrir augum að þær verði áhuga-
verður markhópur fyrir banka og
lánastofnanir.
I ljósi niðurstaðna og tillagna
nefndarinnar skipaði iðnaðar- og við-
skiptaráðherra starfshóp í byrjun
janúar 1999 sem hafa skyldi for-
göngu um stofnun félags kvenna í at-
vinnurekstri. Iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneyti mun létta undir rekstri fé-
lagsins fyrstu árin með starfsmanni
hjá IMPRU, þjónustumiðstöð frum-
kvöðla og fyrirtækja sem sjá mun
um útgáfu fréttabréfa, uppfæra fé-
lagatal, innheima félagsgjöld og að-
stoða við rekstur félagsins.
Stofnfundur Félags kvenna í at-
vinnurekstri verður haldinn á Hótel
Loftleiðum, Víkingasal, fóstudaginn
9. apríl og hefst fundurinn kl. 14.
A dagskrá fundarins mun Finnur
Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, flytja ávarp, Jónína Bjart-
marz lögmaður ræðir niðurstöður
nefndar um atvinnurekstur kvenna,
Halldór J. Rristjánsson, bankastjóri
ræðir fjármögnun atvinnufyrirtækja
og þátttöku Landsbanka Islands hf. í
nýsköpun og atvinnuþróun, Agústa
Johnson framkvæmdastjóri og Sig-
fríð Þórisdóttir iðnrekandi flytja er-
indi frá sjónarhóli tveggja atvinnu-
rekenda, Betsy Myers, Ass. Deputy
Administrator for Entrepreneurila
Development and Welfare to Work,
Brynhildur Bergþórsdótth', rekstr-
arhagfræðingur, Iðntæknistofnun
Islands, ræðir um IMPRA, þjón-
ustumiðstöð fyrir frumkvöðla og fyr-
h-tæki og að lokum verður stofnyfir-
lýsing, samþykktir félagsins og
kosning stjórnar.
Varðveita
ber hálendið
AÐALFUNDUR Samtaka ferða-
þjónustunnar sem fram fór 17. og 18.
mars sl. samþykkti eftirfarandi
ályktun um hálendið:
„Hálendi Islands er einn mesti
fjársjóður íslensku þjóðarinnar.
Hvergi í Evrópu fínnast jafn ósnort-
in samfelld víðerni og þar.
Island er í augum erlendra ferða-
manna villt og óbeisluð náttúrupara-
dís. Þá ímynd landsins ber okkur að
varðveita því þar felast verðmæti
ferðaþjónustu framtíðarinnar.
Ferðaþjónusta hefur vaxið jafnt
og þétt, þrátt fyrir erfið innri vaxtar-
skilyrði. Það er staðreynd að ferða-
þjónustan er helsti vaxtarbroddur ís-
lensks atvinnulífs og færir þjóðarbú-
inu meiri gjaldeyristekjur en nokkur
önnur atvinnugrein að sjávarútvegi
undanskildum.
Samtök ferðaþjónustunnar skorar
á stjórnvöld að beita sér fyrir því að
ekki verði farið í neinar frekari
framkvæmdir á hálendinu án þess að
fullt samráð verði haft við Samtök
ferðaþjónustunnar. Ennfremur
skora Samtök ferðaþjónustunnar á
stjórnvöld að endurskoða fyrri áætl-
anir um mannvirkjagerð með fram-
tíðarhagsmuni ferðaþjónustunnar í
huga.
Lönd sem búa yfir ósnortnum víð-
ernum eiga vaxandi vinsældum að
fagna sem áfangastaðir ferðamanna.
Það skapar Islandi því algera sér-
stöðu á samkeppnismörkuðum er-
lendis að geta boðið ferðamönnum
aðgang að slíku umhverfi.
Bæta þarf aðbúnað og aðgengi að
fjölförnustu stöðunum á jaðarsvæð-
um hálendisins. Hálendinu þarf að
halda sem mest ósnortnu og leggja
áherslu á vistvænan ferðamáta.
Orkuverum þarf að finna stað þar
sem mannvirki eru fyrir og þar sem
rask af þeirra völdum á náttúru og
umhverfí verði sem minnst."
• •
Oryrkjabanda-
lagið lýsir yfír
vonbrigðum
EFTIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt á fundi aðalstjórnar ÖBÍ 18.
mars sl.:
„Öryi'kjabandalag íslands lýsir yf-
ir vonbrigðum vegna þeirrar myndar
sem forsætisráðherra hefur kosið að
draga upp af kjörum öryrkja. Sér-
staka undrun vekur að hann skuli í
skýrslu sinni til Alþingis um stöðu,
aðbúnað og kjör öryrkja leggja til
grundvallar að hinn dæmigerði ör-
yi'ki fái 87 þúsund krónur á mánuði í
greiðslur úr lífeyrissjóði og fyrir
bragðið séu kjör öryrkja almennt
betri hér en á hinum Norðurlöndun-
um. Staðhæfingar þessar eru ekki
aðeins fjarri öllum sanni heldur næg-
ir að vísa í sömu skýrslu til að sjá
hve fráleitur málflutningur hér er á
ferð.
Öryrkjabandalag íslands fer þess
vinsamlegast á leit við forsætisráð-
herra að hann opni augun fyrir þeirri
neyð sem við blasir og bregðist við
með uppbyggilegri málflutningi en
viðhafður var gagnvart þingi og þjóð
hinn 11. mars sl.
Öryrkjabandalagið mun innan
skamms gera nánari gi-ein fyrir af-
stöðu sinni til skýrslu forsætisráð-
herra.“
Rauða smiðjan
fjallar um
gagnagrunninn
RAUÐA smiðjan, jafnrétti til lífs,
heldur fund nk. laugardaginn 10.
apríl í kosningamiðstöðinni á Suður-
götu 7. Fundurinn hefst kl. 10.
Fundarefni er miðlægur gagna-
grunnur á heilbrigðissviði.
Framsögumenn verða Birna Þórð-
ardóttir blaðamaður sem ræðir lögin
um miðlægan gagnagi'unn og rétt-
indi sjúklinga og Skúli Sigurðsson
vísindasagnfræðingur sem greinir
frá þeirri umræðu sem átt hefur sér
stað erlendis um gagnagrunninn
meðal lærðra sem leikra; erlendra
sem íslenskra vísinda- og fræði-
manna. Að loknum framsögum verða
umræður.
Allir eru velkomnir.
Athugasemd frá
V erkfræðing-a-
félagi Islands
MORGUNBLAÐINU hefur verið
send eftirfarandi athugasemd frá
stjórn Verkfræðingafélags Islands:
„Vegna greinar Ragnars Halldórs-
sonai' verkfræðings um Lífeýrissjóð
verkfræðinga 30. mars sl. vill stjórn
Verkfræðingafélags íslands taka
fram að samskipti VFÍ og Lífeyris-
sjóðs verkfræðinga hafa ávallt verið
og eru hin vinsamlegustu. Það á ekki
síst við um formann stjórnar lífeyris-
sjóðsins, Þórólf Árnason, forstjóra
Tals hf., þótt hann hafi kosið að vera
utan félagsins.
Lífeyi'issjóður verkfræðinga er
sjálfstæð stofnun og lýtur ekki
stjórn félagsins. Sá ágreiningur sem
uppi hefur verið innan sjóðsins um
nokkurt árabU varðar gi-undvallarat-
riði í rekstri sjóðsins og ber að forð-
ast að persónugera hann með
nokkrum hætti.“
Trípólí á
Grand Rokk
GLEÐISVEITIN Trípólí leikur á
skemmtistaðnum Grand Rokk við
Smiðjustíg föstudags- og laugar-
dagskvöld auk þess sem óvæntar
uppákomur verða bæði kvöldin.
Uppákoma þessi er liður í eflingu
staðarins á tónlistarmenningu á höf-
uðborgai'svæðinu.
Kosningaskj álft-
inn í Inghóli
SKEMMTUNIN Kosningaskjálftinn
fer fram í Inghóli, Selfossi, laugar-
daginn 10. apríl en ekki Hótel Sel-
fossi eins og kom fram í blaðinu í
gær.
Þai- koma fram ýmsir skemmti-
ki'aftar, frambjóðendur í komandi al-
þingiskosningum, tískusýning og
snyrtivörukynning. Hljómsveitin
Kjörseðlarnir leika fyrir dansi tU kl. 3.
Föstudagsfyrir-
lestur Líffræði-
stofnunar
EIRÍKUR Steingrímsson rannsókn-
arprófessor flytur erindi sem nefn-
ist: Erfðafræði microphthalmia á
fóstudagsfyrirlestri Líffræðistofnun-
arinnar 9. apríl.
Erindið verður haldið að Grensás-
vegi 12, stofu G-6, og hefst klukkan
12.20. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfii'.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
RANGT var farið með nafn Vignis
Arnar Arnarsonar á mynd af veiði-
mönnum með veiði úr Eldvatni á
Brunasandi í Morgunblaðinu á mið-
vikudag. Beðist er velvirðingar á
þeim mistökum.
REGNFATNAÐUR Á
32mah
á jo Ua
66°N
SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 552 7425
FAXAFENI 12 SlMI 588 6600