Morgunblaðið - 09.04.1999, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Sala bréfa í Baugi
hefst 19. apn1
Morgunblaðið/Kristinn
ÓSKAR Magnússon, stjórnarformaður Baugs hf., flytur skýrslu stjórn-
ar á fyrsta aðalfundi félagsins sem haldinn var í Viðskiptaháskólanum.
Railfllir hf Úr ársuppgjöri 1998
1/7-31/12 1998 1/1-31/12 1998
Rekstrarreikningur Muijónir króna
Vörusala 10.178,7 18.663,0
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 2.372,0 (1.899,0) 4.120,2 (3.409,3)
Hagnaður án afskr. og fjárm.kostn. Afskriftir 471,9 (104,8) 711,0 (192,4)
Rekstrarhagnaður fyrlr fjárm.liði Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 367,1 (40,8) 518,6 (62,0)
Hagnaður fyrir tekjuskatt Tekjuskattur Áhrif dótturfélaga Áhrif hlutdeildarfélaga 326,3 (77,8) 53,9 (2,6) 456,6 (108,6) 53,5
Hagnaður tímabiisins 299,8 401,5
Efnahagsreikningur Miiuónir króna 31/12 '98 1/7 '98
Fastafjármunir Veltufjármunir 2.614,1 3.781,4 1.365.7 2.868.8
Eignir samtals 6.395,6 4.234,5
Eigið fé 1.426,5 1.174,0
Tekjuskattsskuldbinding 152,6 93,9
Langtímaskuldir 676,3 770,1
Skammtímaskuldir 4.140,3 2.196,5
Skuldir og eigið fé samtals 6.395,6 4.234,5
Sjóðstreymi 1/7-31/12 1998
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 252,0
SALA á hlutabréfum Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins hf. og Kaup-
þings hf. í Baugi hf. hefst á al-
mennum markaði 19. apríl næst-
komandi, en gert er ráð fyrir að
bréfin verði seld á gengi í kringum
10. Um er að ræða 16% hlut í
Baugi hf. og áætlað er að hluta-
bréfin seljist fyrir um 1,5 milljarða
króna. Þegar sala bréfanna hefst
verður Baugur hf. skráður á Verð-
bréfaþingi.
Hagnaður Baugs hf. og þeirra
félaga sem sameinuðust í Baug hf.
á síðasta ári var 401,5 milljónir
króna og rekstrartekjur námu 1,7
milljörðum króna.
Baugur hf. var stofnaður 1. júlí
1998 og yfirtók félagið þá rekstur
matvöruverslana Hagkaups, Ný-
kaups, Bónus og Hraðkaups, auk
innkaupa- og dreifingarfélagsins
Aðfanga. í október 1998 sameinuð-
ust Hagkaup hf., Boðið heim ehf.
og Eignarhaldsfélagið Gaumur
ehf. félaginu og í nóvember voru
dótturfélög Baugs hf., Aðföng ehf.,
Bónusbirgðir ehf. og ísþor ehf.
sameinuð félaginu, auk þess sem
rekstur Bónuss sf. var yfirtekinn.
I desember var svo gerður samn-
ingur um kaup Baugs hf. á 50%
hlutafjár í verslunarfyrirtækinu
P/f SMS í Færeyjum og um sölu á
öllum hlutabréfum Baugs hf. í P/f
Föris til P/f SMS.
Hagnaður Baugs hf. frá
stofndegi félagsins 1. júlí til árs-
loka 1998 var 299,8 milljónir króna
og námu rekstrartekjur tímabilsins
10.179 milljónum króna, en rekstr-
artekjur þeirra félaga sem samein-
uðust námu samtals 18.663 milljón-
um króna fyrir allt árið 1998. Eigið
fé félagsins í árslok nam 1.426,5
milljónum að meðtöldu hlutafé að
fjárhæð 1.000 milljónir króna.
Hlutaféð skiptist í árslok á 46
hluthafa og þá áttu þrír hluthafar
yfir 10% eignarhluta í félaginu, en
þeir eru Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins hf. með 36,5%, Fjár-
festingarfélagið Gaumur ehf. og
tengdir aðilar með 25% og
Compagnie S.A., Luxembourg með
20%. Á síðari hluta ársins í fyrra
gerði alþjóðlega verslunarkeðjan
Reitangruppen samning um kaup á
20% hlut í Baugi hf. af FBA og
Kaupþingi, og er Reitangruppen
nú næststærsti hluthafinn á eftir
Gaumi ehf.
Sala bréfa fyrir
1,5 milljarða króna
Þann 19. apríl næstkomandi
hefst almennt hlutafjárútboð í
Baugi hf. þar sem FBA og Kaup-
þing munu selja enn frekar af eign-
arhlut sínum í félaginu, en sam-
hliða því verður Baugur hf. skráð-
ur á Verðbréfaþingi. Bréf í félaginu
voru seld íjárfestum fyrr í vetur á
genginu 8,5, en búist er við að
gengi bréfanna sem fara á almenn-
an markað verði um 10 og þannig
verði um að ræða sölu fyrir 1,5
milljarða króna.
Óskar Magnússon, stjórnarfor-
maður Baugs hf., sagði á aðalfundi
félagsins í gær að mikið hefði verið
um að vera í rekstri félagsins á
fyrsta starfsári þess. Vitað hafi
verið að félagið myndi mæta mikl-
um erfiðleikum, en þeir hafi hins
vegar ekki verið meiri eða svo
óvæntir að það hafi ekki verið við
þá ráðið, og markaðshlutdeild
þein-a verslana sem Baugur rekur
hefði aukist umtalsvert á þessum
tíma. Samruni félaga í keppni við
Baug á matvörumarkaðnum hafi
verið fyrirsjáanlegur og eigendur
Baugs hræddust ekki samkeppn-
ina.
FBA um reglur Seðlabankans um lausafjárskyldu lánastofnana
Viðskipti með hanka-
víxla nánast engin
Álstjóri í
Rússlandi
látinn sæta
rannsókn
Moskvu. Reuters.
RANNSÓKN er hafin í máli Anatolíj
Bykov, stjórnarformanns næst-
stærsta álvers Rússa í Krasnoyarsk
(KrAZ), samkvæmt fréttastofu-
fregnum.
Vladimír Kolesnikov varainnan-
ríkisráðherra sagði á blaðamanna-
fundi að Bykov væri grunaður um
peningaþvætti.
Fréttastofumar sögðu að Bykov
væri í Bandaríkjunum, en hann neit-
aði því í yfirlýsingu, þar sem hann
kvaðst vera undir læknishendi án
þess að tiltaka hvar hann væri niður-
kominn. „Kostnaðarsöm leit að mér
er óþörf því að ég mun gefa mig
fram,“ sagði Bykov. Hann sagði að
rannsóknin gæti beint grunsemdum
að fyrrrverandi stjóm álversins, en
ekki sér. Svipaður málarekstur er
hafinn gegn kaupsýslumanninum
Borís Berezovskíj og bankastjóran-
um Alexander Smolenskíj. Bykov
hefur deilt um yfirráð yfir orku- og
málmgeira Síberíu við héraðsstjór-
ann í Krasnoyarsk, Alexander
Leþed.
I Krasnoyarsk vom framleidd
807.000 tonnafáli 1998.
REGLUR Seðlabankans um
lausafjárskyldu lánastofnana hafa
haft mikil áhrif á viðskipti með
banka- og ríkisvíxla á Verðbréfa-
þingi íslands. Viðskipti með
bankavíxla heyra nú nánast sög-
unni til en þau voru blómleg á síð-
asta ári, að því er fram kemur í
mánaðarskýrslu Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins fyrir apríl.
Þar kemur fram að í janúar sl.
hafi viðskipti með bankavíxla
numið 3,8 milljörðum króna, 1,9
milljörðum króna í febrúar en að-
eins 605 milljónum króna í mars
þrátt fyrir að ávöxtunarkrafa
bankavíxla hafi hækkað mjög mik-
ið. Á sama tíma hafa viðskipti með
ríkisvíxla aukist úr 690 milljónum
króna í febrúar upp í 2,7 milljarða í
mars.
Yfirsýn Seðlabankans yfír
peninganiarkaðinn horfin
„Ástæðu þessa má rekja til þess
að samkvæmt reglum Seðlabank-
ans þá telst bankavíxlaeign ekki til
lauss fjár en hins vegar hafa ríkis-
víxlar jákvæð áhrif á laust fé.
Mismunandi viðmiðunar-
vextir í viðskiptum
Ekki er mikilla breytinga að
vænta á peningamarkaði á næstu
vikum. Vextir munu áfram vera
háir og viðskipti með minna móti.
Ljóst er að Seðlabankinn hefur
misst yfirsýn yfir innlendan pen-
ingamarkað, það eru fáir sem vita
hverjir eru raunverulegir skamm-
tímavextir á Islandi í dag. Reibor-
vextir voru besti mælikvarðinn á
skammtímavexti en Reibor-mark-
aðurinn er óvirkur í dag.
Þar sem út- og innlán til mis-
munandi aðila hafa mismunandi
áhrif á laust fé samkvæmt skil-
greiningum Seðlabankans gilda
mismunandi viðmiðunarvextii- í
viðskiptum við mismunandi aðila.
Óvissa um réttan mælikvarða á
skammtímavexti ásamt tilkomu
reglnanna sjálfra hafa slæm áhrif
á afleiðumarkað hér á landi,“ að
því er fram kemur í skýrslu FBA.
Þann 29. mars tilkynnti Seðla-
bankinn að lausafjárreglunum
hefði verið breytt afturvirkt.
Breytingarnar fólust aðallega í því
að lengja aðlögunartímabilið,
lýmka hlutföll á aðlögunartímabil-
inu og afnema takmarkanir á leyfi-
legri dagsstöðu. Um leið og breyt-
ingar þessar voru tilkynntar ítrek-
aði Seðlabankinn vilja til þess að
þróa nýjar reglur um laust fé í
samstarfi við lánastofnanir. „Mikil-
vægt er að sú vinna hefjist sem
fyrst og að útkoman verði nútíma-
legri og betri lausafjáiTeglur
þannig að markaðir komist sem
fyrst í samt lag aftur.
Sú óvissa sem hefur verið í
kringum þessar lausafjárreglur
frá upphafi og er enn hefði ein-
hvers staðar haft neikvæð áhrif á
trúverðugleika Seðlabankans en
ekki skal dæmt um áhrif þess
hér,“ að því er fram kemur í mán-
aðarskýrslu FBA.
Olivetti
þarfað
greiða háan
reikning
London. Reuters.
KOSTNAÐUR af 65 milljarða
dollara tilboði ítalska fjarskipta-
fyrirtækisins Olivetti í Telecom
Italia er kominn upp í meira en
100 milljónir dollara.
Tilboð Olivetti er komið undir
30,5 milljarða evra láni, mesta fyr-
irtækjaláni sem um getur í Evr-
ópu, og greiðslur til banka og lög-
fræðifyrirtækja til að útvega lánið
hafa rokið upp úr öllu valdi.
100 milljóna dollara þóknun
Reikningurinn er hærri en 90
milljóna dollara reikningur, sem
Exxon þurfti að greiða ráðgjöfum
sínum áður en félagið sameinaðist
Mobil eins og nú hefur verið upp-
lýst. BP Amoco þurfti að greiða
hjálparmönnum sínum 100 millj-
óna dollara þóknun til að komast
yfir Atlantic Ricthfeld.
Olivetti kom mörkuðum á óvart
með því að tryggja loforð fyrir
gífurlegu láni sínu á aðeins þrem-
ur vikum með tilstyrk Chase,
DLJ, Lehman Brothers og Medi-
obanca.
Varnaráætlun
Sjálft ætlar Telecom Italia-fé-
lagið að afla 20 milljarða evra láns
og það er liður í varnaráætlun
gegn fjandsamlegu tilboði Olivetti.
Telecom virðist hafa komizt að
betra samkomulagi við banka-
stjóra sína.
Þeir sem komu Olivetti-láninu í
kring fengu liðsinni 21 annars
banka, sem hafa verið beðnir að
ábyrgjast 1 milljarð evra hver
samkvæmt frétt í Ewoweek, tíma-
riti um lánsfjármarkaði. Talið er
að þeir muni fá 15 milljóna dollara
þóknun hver.
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐ1NN =
Stórás 6 »210 Garðabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
Gucci visar tilboði
LVMHábug
London. Reuters.
STJÓRN ítalska tízkufyrirtækisins
Gucci hefur vísað síðasta tilboði
franska lúxusvörufyrirtækisins
LVMH á bug og verð hlutabréfa í
Gucci snarhækkaði í verði.
Samkomulag var talið í nánd þeg-
ar LVMH hækkaði 8 milljarða doll-
ara tilboð sitt í Gucci um 9% í 85
dollara á bréf.
Gucci hafnaði tilboðinu án þess að
greina frá ástæðu en kvaðst til við-
ræðu um frekari tilboð frá franska
fyrirtækinu.
Fyrirtækin samþykktu að taka
upp viðræður þegar LVMH hækk-
aði fyrsta tilboð sitt. Gucci hafði áð-
ur reynt að koma í veg fyrir tilboðið
og sakað franska fyrirtækið um til-
raun til yfirtöku með brögðum.
LVMH hafði eignazt 34% hlut í fyr-
irtækinu.