Morgunblaðið - 09.04.1999, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.04.1999, Qupperneq 28
í 28 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Einari Braga veitt þýðing- arverðlaun EINAR Bragi rithöfundur hlýtur þýðingarverðlaun árs- ins 1999 hjá Sænsku aka- demíunni. Þau eru samkvæmt reglugerð: „til þess ætluð að heiðra menn sem leyst hafa af hendi EinarBragi aíbragðs þýðingar á eða úr sænsku“. Viðurkenningu Akademí- unnar fylgir verðlaunafé að upphæð 40 þúsund sænskar krónur sem Stofnunin Natur oeh Kultur leggur fram í þessu skyni og eru verðlaun- in við hana kennd. Þau eru veitt árlega einstaklingi sem Akademían velur óháð þjóð- emi. Margar þýðingar að baki Einar Bragi hefur þýtt úr sænsku skáldsögur, leikrit og ljóð eftir mörg skáld. Meðal þýðinga hans er 21 leikrit eftir August Strind- berg, skáldsagan Sonur minn og ég eftir Söru Lidman og Ijóðasafnið Létta laufblað og vængur fugls eftir Gunnar Björling. Magnús Kjartansson Morgunblaðið/Golli MEÐ tímanum eftir Magnús Kjartansson. Samtíminn líður hratt FYRIR fimm árum sýndi Magnús Kjartansson myndlistarmaður flokk mynda á Norrænu menningarhátíð- inni á Spáni. Öll verkin eru unnin með olíu og blandaðri tækni á striga 1994. Hluti þessarar sýningar er nú í Galleríi Sævars Karls, Banka- stræti 9. Myndirnar kallar Magnús Col Að mati Magnúsar Kjartanssonar líður samtíminn hratt og það gengur nærri hon- um. Hann sýnir nú nokkrar myndir í Gall- eríi Sævars Karls og sagði Jóhanni Hjálm- arssyni frá því hvernig tíminn birtist okk- ur aftur og aftur og því hvernig aldurinn speglast í nýju myndunum. Aöalfundur Granda hf. veröur haldinn föstudaginn 9. apríl 1999, kl. 17:00 í matsal fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík. DAGSKRA <- '?mm íss: í. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins, þar sem félagsstjórn verður heimilaö aö gefa út hlutabréf meö rafrænum hætti í verðbréfamiðstöð í samræmi viö lög nr. 131/1997, um rafræna eignaskráningu verðbréfa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði tekin til meðferðar á aöalfundinum, þarf skrifleg beiðni um þaö að hafa borist félagsstjórn með nægjanlegum fyrirvara, þannig að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Hluthafar, sem ekki geta mætt á fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega. STJÓRN GRANDA ÍIF. GRANDI HF. NORÐURGARÐI, 101 REYKJAVIK tempo eða Með tímanum. Hann segir að myndirnar séu tilbrigði samnefnd við verk eftir Giorgione (d. 1510). Hann hreifst mjög af verkinu þegar hann sá það fyrst í Feneyjum fyrir mörgum árum. „Þetta er renesansmynd, mjög norræn, verkið er jarðbundið og raunsætt,“ segir Magnús, „getgátur eru um að Diirer hafi verið á ferð í Feneyjum og séð það. Giorgione lést fyrir aldur fram, um þrítugt, og skildi eftir sig mörg verk. Lista- stefna var kennd við hann. Verk hans eru kveikjan að þessu.“ Þessar myndir voru þó ekki það sem boðaði breytingu hjá þér? „Nei, ég var með stóra sýningu 1994 þar sem ýmis áhugaefni komu fram. Eg var í skóla hjá Richard Mor- tensen á Akademíunni í Kaup- mannahöfn. Hann tók þessu vel. Okkur lenti fyrst saman og rifumst heiftarlega, en hann hringdi í mig og reyndist mér hinn besti. Menn héldu að ég yrði rekinn. Hann kann- aðist aftur á móti við svipað úr eigin fari. Ég var hjá honum í 3 ár. Þegar ég kom heim sýndi ég klippimyndir, snifsi úr veruleikanum. Þær hefðu alveg getað komið inn í „áttunda áratuginn", sýninguna í Listasafn- inu nú. Ég hef þó alltaf verið með symbólík, tákn. Plastískur áhugi víkur ekki. Meðan eitthvað heitir myndlist skiptir máli hvemig það er gert. Ég hef viljað losna við að sýna en get það ekki. Sýni þó ekkert hér heima fyrr en nú. Fimm ára gamlar myndir hljóta að duga. Sýningin á Spáni var stærri og í tímaröð. Ég hef sýnt í Svíþjóð og það gengur vel að sýna Svfum þótt ekki sé mikið upp úr því að hafa. Ég sendi mynd- irnar. Ég mála á Laugarnestanga, fæddist rétt hjá, í Kleppsholtinu, heima. Það er erfitt að vera nútímamað- ur, vildi ekki sjá allt það sem aðrir eru að gera. Reyni þó að fylgjast með, kaupi eitt þýskt tímarit í því skyni.“ Tíminn bii'tist í okkur og birtir okkur óendanleikann eins og Sig- urður Pálsson skáld skrifar í sýn- ingarskrá? „Tilfinning gagnvart myndum og texta. Ég er sammála því. Það er stutt síðan við íslendingar fórum að velta fyrir okkur myndlist. Afi minn, Guðbrandur Jónsson, sá mann mála í fjörunni á Seyðisfirði og ávarpaði hann á dönsku.“ Þú fórst gamla námsleið, til Dan- merkur. „Ég hef alltaf viljað fara eitthvað annað. Þar var ekkert að gerast. Opnar mál- verkasýningu hjá Bílum & list SARA Vilbergsdóttir opnar málverkasýningu í sýningar- salnum Bflar & Iist, Vega- mótastíg 4, Reykjavík, laugar- daginn 10. aprfl, þar sem hún sýnir akrýlmálverk unnin á þessu ári og hinu síðasta. Sara stundaði nám í Mynd- listar- og handíðaskóla íslands á ánmum 1981-85 og fram- haldsnám í Statens Kunstaka- demi, Ósló, árin 1985-87. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum EITT verka Söru Vilbergsdóttur. hérlendis sem erlendis. Sýningin verður opin virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16 og sunnudaga kl. 13-16. Hún stendur til 29. aprfl. Hér voru áhrif frá Súmurum og tengsl við Hollendinga. Dieter Roth var guðfaðir ís- lenskrar nútímalistar. Ég bíð eftir að sjá stóra sýningu með verkum Dieters Roths hér.“ Hér var sterk afstraktlist þegar Dieter kom hingað? „Hann gerir ýmsar tilraunh- og hefur úrslitaáhrif á Súm. Það eru sterkar höfuðlínur í gangi nú. Kári Stefánsson valdi myndir eftir mig til sýningar. Hann lét svo ummælt að tegundum fækk- aði í myndlist eins og annars staðar. Línur myndlistarinnar eru harðar eins og í tískuheiminum.“ Veðrun fólksins Hvað viltu segja frekar um myndimar Með tímanum. Það er aldurí þeim? „Þetta er veðrun fólksins. Maður sér tilveruna ganga aftur. Hvernig lífið er margslungið. Tíminn kemur aftur og aftur. Hann gengur í hring, kemur aftur á sömu slóðum, ekki sama mynd heldur glíma við sama drauginn. Þegar ég er að mála er eins og margar persónur séu að ræða saman. Ég hef eina mælistiku, þegar mér finnst ég vera næmari. Ég er að borga reikninga núna og vinn mikið með Kolbrúnu Björgólfs- dóttur, konu minni. Vinn annars lít- ið. En ég ætla að sækja í mig veðrið, annars er maður sleginn út. Hrað- inn er mikill í öllu. Gengur nærri mér. Ég á reyndar heilu tímabilin ósýnd. Samtíminn líður andskoti hratt og ekki nógu miklu komið í verk. Maður hefur þó alltaf bækurnar að halla sér að. Ég hef verið að lesa ævisögu Bergmans. Kundera talar um frægðina fyrir og eftir ljós- myndavélina í Með hægð. Frægðin var áður sögusögn. Allir vissu nafn- ið en ljósmyndavélin dreifði mynd- um.“ Magnús segir að best sé að kom- ast í gegnum viðtal án þess að minn- ast á myndlist! Nú langar hann til að halda sögusýningu sem nái yfir tímabilið 1925-2000. „Sýningin á að vera um lykilverk og lykilmenn. Við höfum átt einn meistara, Svavar Guðnason. Hann stendur sterkur. Við hin erum bara bergmál. En það er ljótt að segja þetta! Einn stór- merkur myndlistarmaður og einn ritsnillingur, Halldór Laxness. Það er afbragðs árangur. Ég hef frekar spurt hvert sé eðli íslenskrar mynd- listar en ekki hver hún sé. Við erum próvins og það er engin skömm að því. Einangruð lengst úti í Ballar- hafi.“ Magnús Kjartansson verður fimmtugur á þessu ári og kveikja verkanna á sýningu hans er 500 ára. Ekki fer illa á því.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.