Morgunblaðið - 09.04.1999, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fallegu
ævintýrin
KVIKM¥]\PIR
Itegnbogínn, Sagaliíó
AÐ EILÍFU „EVER AFTER“ ★ ★
Leikstjóri: Andy Tennant. Handrit:
Susanna Grant, Andy Tennant, Rick
Parks. Kvikmyndataka: Andrew
Dunn. Tónlist: Georg Fenton. Aðal-
hlutverk: Drew Barrymore, Anjelica
Huston, Dougray Scott, Patrick God-
frey, Timoty West, Jeroen Krabbé.
20th Century Fox. 1998.
DISNEYFYRIRTÆKIÐ hefur
búið til nýja kvenhetju í teiknimynd-
um sínum sem er sjálfstæð og gáfuð
og búin öllum helstu vopnum kven-
réttindabaráttu síðustu áratuga; hún
er eins fjarri þvi að vera hin þjón-
ustuiipra Mjallhvít og hægt er að
hugsa sér. Ur þeim jarðvegi sprettur
líklega ný Öskubuska í ævintýi’a-
myndinni Að eilífu eða „Ever After“
eftii’ Andy Tennant. Hún virðist mót-
uð úr kvenhetjum nýlegra Dis-
neyteiknimynda sem fijálshuga ung
stúlka og ákveðin. Hún kann fullt eins
vel með sverð að fara og prinsinn, er
íluggáfaðpr bókaormur sem vitnar
einatt í Utópíu Thomas More og fær
einmitt athygli prinsins út á það.
Því miður er tilbúningur þessi tals-
vert gegnsær og ætlun höfundanna
fullaugljós, svo skapast nokkur vand-
ræði, en reynt er að bæta fyrir það
með hamagangi, sverðaglamri og elt-
ingaleikjum svo úr verður viðunandi
afþreying fyrir ungviðið. Ævintýrið er
nokkuð jarðbundið að því leyti að
myndin er ekki tekin í upptökuveri og
hvergi eru neinar töfradísir eða
talandi dýr og tæknibrellur eru engar.
Að eilífu notar hið kunna ævintýri
aðeins sem grunn að ástarsögu frá
sautjándu öld. Drew Barrymore
leikur Öskubusku, þótt hún sé aldrei
kölluð það í myndinni, sem á heldur
lánlaust líf fyrir höndum eftir að fað-
ir hennar deyi- og stjúpa tekur við
stjórninni ásamt tveimur dætrum
sínum. Prinsinn í nágrenninu leitar
sér að kvonfangi og stjúpa gerir
hvað hún getur til þess að hann falli
flatur fyrir fallegri dóttur hennar.
Barrymore hefur meira aðdráttai’afl
fyrir prinsinn en margar hindranii’
eru í vegi fvrir því að þau geti búið
saman að eilífu.
Barrymore ræður sæmilega við
hlutverk sitt og Dougray Scott er
skemmtilega uppreisnargjam sem
prinsinn en það er Anjelica Huston
sem stelur senunni í hlutverki
stjúpu og gerir hana að dásamlegu
illfygli; minnir svolítið á þegar hún
lék pestina í Nornunum.
Arnaldur Indriðason
U mh verfis vænn
listviðburður
BOÐIÐ verður til sérstæðrar dag-
ski’ár í Listakiúbbi Leikhúskjaiiar-
ans mánudaginn 12. apríl. Gestum
klúbbsins er boðið á umhverfisvæn-
an listviðburð sem hlotið hefur yfír-
skriftina: Par sem hjartað slær,
hjartasögur af hálendinu.
Meðal þeirra sem segja sögur af
sambandi sínu við hálendið eru:
Elísabet Jökulsdóttir, skáld, Hai-pa
Arnardóttir, leikkona, Haraldur
Nýjar bækur
• KÆRLEIKURINN mestur,
er nafn á nýútkominni bama-
og fjölskyldubók eftir
Sigurbjöm Porkelsson,
framkvæmdastjóra KFUM og
KFUK.
I bókinni
eru ellefu
frum-
samdar
smásögur
sem fjalla
um börn,
einkum
stráka 6-14
ára, og
glímu
þeima við atvik sem upp hafa
komið í lífi þeirra og samskipti
við foreldra, bekkjarsystkini,
vini og aðra samferðamenn.
Höfundur vonast til þess að
sögurnar geti orðið farvegur
til samræðna barna og
foreldra og leið til að koma á
trausti og ómetanlegri vináttu
bama og foreldra. Eins sér
hann fyrir sér að sögumar
megi nota í hvers konar
æskulýðsstarfi.
Sögumar ættu að vekja til
umhugsunar um lífíð og
tilveruna, náungann og Guð.
í lok bókarinnar íylgja
nokkur orð frelsarans um
kærieikann og breytni við
náungann.
Útgefandi er höfundur.
Kærleikurinn mestur, er
fimmta bók höfundar á jafn
mörgum árum. Bókin er 118
blaðsíður. Um útlit, umbrot,
filmuvinnslu og prentun sá
Offsetþjónustan ehf.
Jónsson, myndlistarmaður, og Andri
Snær Magnússon, skáld.
Umsjón dagskrár er í höndum
Kolbrúnar Halldórsdóttur leik-
stjóra og veitir hún aliar frekari
uppiýsingar um efnistök og inni-
hald.
Dagskráin hefst kl. 20.30 en Leik-
húskjallarinn verður opnaður kl.
19.30. Aðgangseyrir er 800 kr. og
dagskráin er öllum opin.
Nemendur
Tónskóla
Eddu Borg
í Bolungarvík
HÓPUR af eldri nemendum Tón-
skóla Eddu Borg heldur tónleika í
Bolungai-vík sunnudaginn 11. apríl
í Félagsheimili Bolungarvíkur kl.
14.
Tilgangur ferðarinnar er að
heimsækja nemendur tónlistar-
skólanna fyrir vestan, spila með
þeim, sækja námskeið og halda
tónleika.
A efnisskránni verða bæði ein-
leiksverk og samleikur nemenda.
Einnig verður flutt tónverk sem
unnið verður á námskeiðinu.
----------------
Fyrirlestur um
menningarlífíð
í Glasgow
FRÆÐSLUDEILD Myndlista- og
handíðaskóla íslands stendur fyrir
fyrirlestri mánudaginn 12. apríl
þar sem Francis MacKee flytur
fyrirlestur í húsnæði MHÍ í Laug-
arnesi.
MacKee er sýningarstjóri
„Cities of Glasgow“ og fjallar um
menningarlífið í Glasgow og þann
hóp listamanna er taka þátt í sýn-
ingunni „If I ruled the world“ sem
opnuð verður í Nýlistasafninu
laugardaginn 10. apríl.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og hefst kl. 12.30.
EITT verka Ólafs Lárussonar.
VERK eftir Birgi Andrésson.
Tveir syna í Lista-
safni Arnesinga
BIRGIR Andrésson og Ólafur
Lárusson sýna í Listasafni Arnes-
inga frá 10. apríl til 2. maí. Opið
er frá flmmtudegi til sunnudags
frá kl. 14-17.
Birgir Andrésson fæddist í
Vestmannaeyjum 1955. Hann út-
skrifaðist frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1977 og
Jan van Eyck Akademie í Ma-
astrich í Hollandi 1979. Birgir er
með atkvæðameiri myndlistar-
mönnum hérlendis í þeirri hreyf-
ingu sem hlotið hefur nafnið ný-
listj segir í kynningu.
Ólafur Lárusson fæddist í
Austur-Meðalholtum 1951. Lauk
hann námi við Myndlista- og
handfðaskóla íslands 1974 og
Atelier ‘63 í Hollandi 1976. Olaf-
ur kenndi við MHI á árunum
1976-80 og starfaði mikið að fé-
lagsmálum listamanna, einkum
Nýlistasafnsins.
Burtfarartón-
leikar í píanóleik
STEINUNN Halldórsdóttir, nem-
andi við Tónlistarskóla Kópavogs,
heldur burtfarartónleika sunnu-
daginn 11. apríl kl. 16 í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs.
Á efnisskrá er: J.S. Bach -
Krómatísk fantasía og fúga, L.v.
Beethoven - Sónata í As-dúr op.
26, F. Liszt - Sex huggunarljóð og
M. Ravel - Sónatína.
Steinunn hefur stundað nám við
Tónlistarskóla Kópavogs undanfar-
in ár og er nemandi Kristins Gests-
sonar. Steinunn Halldórsdóttir.
JAZZMENN Alfreðs.
Nýjar bækur
• ISLANDS Historie fra bosætt-
elsen til vore dage er eftir Jón R.
Hjálmarsson. Bókin byggist á sam-
svarandi bókum
á ensku og þýsku
frá sama útgef-
anda. Pessi
handhæga bók
er við allra hæfi
og spannar Is-
landssöguna, allt
frá landnámi til
okkar daga. Is-
lands Historie er
sambæileg Hi-
stori of Iceland
og Die Geschichte Islands, sem hafa
svarað brýnni þörf og selst vel á síð-
ustu árum. Texti dönsku útgáfunnar
hefur verið aðlagapur nánum sam-
skiptum Dana og Islendinga í ald-
anna rás.
í kynningu segir: „Textinn er
hnitmiðaðm- og aðgengilegur, skrif-
aður með hinn almenna lesanda í
huga. Með lifandi lýsingum og
greinargóðri frásögn lyftir höfundur
hulunni af landinu og sögu þess, allt
frá víkingatímanum til nútímans."
Höfundurinn, Jón R. Hjálmarsson
sagnfræðingur og íyn’um fræðslu-
stjóri Suðuriandsumdæmis, hefur
starfað sem leiðsögumaður erlendra
ferðamanna á sumrin um áratuga
skeið. Sá mikli áhugi sem ferðalang-
arnir höfðu á þeim brotum úr sögu
landsins sem hann sagði þeim, varð
kvejkjan að tilurð þessarar bókar.
Útgefandi er Iceland Review.
Bókin sem er 206 síður og prýdd
hátt á annað hundrað myndum er
einnig fáanleg á ensku og þýsku,
eins og að framan greinir. Verð
1.992.
Jón R.
Hjálmarsson
Jazzmenn
Alfreðs
í Múlanum
JAZZMENN Alfreðs leika
sunnudagskvöldið 11. apríl í
Múlanum og heíjast tónleikarn-
irkl. 21.30.
Fluttir verða ýmsir djass-
dansar eftir þekkta höfunda úr
heimi djassins ásamt því að
frumfluttir verða nokkrir dans-
ar meðlima Jazzmanna.
Kvintettinn skipa: Alfreð Al-
freðsson, trommur, Þorleifur
Gíslason, tenórsax, Carl Möller,
pfanó, Stefán Ómar Jakobsson,
básúnu og Birgir Bragason,
bassa.
Tríó tónleikar á Höfn
MIKLÓS Dal-
may, píanóleik-
ari, Armann
Helgason, klar-
inettleikari og
Guðmundur
Kristmundsson,
víóluleikari,
halda tónleika
sunnudaginn
11. apríl í Hafn-
arkirkju á Höfn í Hornafirði og
hefjast þeir kl. 20.30.
Þeir munu leika tríó eftir
W.A. Mozart, Robert Schumann
og Þorkel Sigurbjörnsson en
tónleikar þessir eru liður í tón-
leikaröð sem er samstarfsverk-
Miklós Árinann
Dalmay Helgason
efni Félags íslenskra tónhstar-
manna og tónlistarfélaga víðs
vegar um landið. Þeir félagar
hafa leilkið saman sem tríó m.a.
á tónleikum Camerarctica á veg-
um Háskólans og í tónleikaröð
Kópavogsbæjar í Gerðarsafni.