Morgunblaðið - 09.04.1999, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 09.04.1999, Qupperneq 62
f 62 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ÞAÐEIZBKKl'' HÆ6TAE> &ÆTA) H'ATTOfZUbJA MAWM A4ÍA.' t-ÍTTU A klokxuHa! > letí - Caugar- \ ctaqsrrtorguria \ í pfssu íiúsc-_^-'iL MFfi, góði S^Horgtinuerbarinr^ ^ fer I/Qiicu Áó/'ruo ' ^ þegarkominn. e*~ JlcL égfix. J gQvar rkzfnsp/ajcCth a& gefip fntt 'ma/imnm •PúrÁííjKs Ferdinand Ég geri ekki ráð fyrir að þú Sérðu, það eru stór rauð Hundar gefa ekki kort. yjð tökum við viljir kaupa nokkur handmál- hjörtu á þeim. þeim, en við gefum uð gjafakort, eða hvað? þau ^kki. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Vinstristj órnir eru samnefnari verðbólgu Frá Karli Ormssyni: MJÖG áríðandi er fyrir okkur sem komin erum yfir miðjan aldur, og vitum hvað verðbólga er, að aðvara og upplýsa unga kjósendur um að kasta ekki atkvæði sínu á þá flokka sem kenna sig við vinstristefnu. í átta ár hefur nær engin verðbólga verið hér, og því eru þúsundir kjós- enda sem vita ekki hvað þetta fyrir- bæri í efnahagslífinu er, nema af af- spurn. Vinstriflokkarnir hafa aldrei komist til valda hér nema skrúfa verðbólguna upp úr öllu valdi, og vinstristjórnir hafa aldrei setið út heilt kjörtímabil. Ungu kjósendur! Vitið þið að fyrir 10-12 árum voru verðbætur af lánum oft meiripart- urinn af greiðslunni, vextir aðeins smáhluti. í dag eru verðbætur af lánum vart mælanlegar síðan ríkis- stjórnir Davíðs Oddssonar tóku við stjórnartaumunum. Árin 1991-1999 hefur verðbólgan verið með því lægsta sem mælst hefur í vestræn- um löndum og stundum hefur ríkt verðhjöðnun. Þeir sem skulda námslán, húsnæðislán eða önnur verðtryggð lán eru nánast að missa eigur sínar með því að kjósa vinstriöflin. Ef ég tek mið af láni frá árinu 1980 þá var það í upphafi 75 þúsund krónur, árið 1991 var þetta lán komið upp í 640 þúsund krónur, þá fór það að lækka og í dag er það 292 þúsund krónur og verðbólgan er rétt 2%. Eg vil birta hér verðbólgutölur sem hafa að jafnaði verið á tímum vinstristjórna, samkvæmt upplýs- ingum Seðlabankans. 1956-1958 11,6% 1971-1974 12,0% 1978-1979 46,3% 1980-1983 82,6% - fór í 130% 1988- 1989 25,7% 1989- 1991 23,3% Þessar hrikalegu tölur taka af all- an vafa um hvað skapar verðbólg- una; einfaldlega stjómleysi vinstri- stjórna. Með þessum skrifum sjáið þið hvað tæki við ef skapaðist að- staða hér fyrir vinstristjórn. Engar ríkisstjórnir aðrar en ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar hafa náð tökum á verðbólgunni, og þar með tökum á efnahagslífinu. Það er alveg sama hvað vinstriflokkarnir segja; kjós- endur geta kynnst því með því að lesa söguna til 1991. Vinstristjómir hafa allar hrökklast frá við lítinn orðstír en með þjóðarbúið í rúst, síðan hefur það komið í hlut Sjálf- stæðisfiokksins að rétta við þjóðar- búið með ærnum kostnaði. Það er forkastanlegt að sjá vinstri- fiokkana lofa öllu fogm, en leiða svo hundruð lántakanda fram á hengiflug gjaldþrots, í skjóli þess að kjósendur gleymi svo fljótt. Við meg- um ekki gefa vinstriöflunum fleiri tækifæri til að setja hér allt í rúst í stöðugu efnahagslífi. Sú takmarka- lausa hræsni vinstiTflokkanna að þeir geti leitt ríkisstjóm sem geti gert allt fyrii' alla eru öfugmæli af hæstu gráðu. Ég þykist hafa fært hér tölu- leg rök fyrir því að vinstristjómir skilja eftir sig spor sem hræða. KARL ORMSSON, fv. deildarfulltrúi. Þekkingarótti Frá Jóni Hufsteini Jónssyni: OFT undraðist ég á sl. ári yfir þeirri andúð á ástundun erfðavís- inda, sem fram kom í blaðaskrifum margra annars mætra manna. Nú finnst mér gengið enn lengra og ósæmilegar til verks, þegar skorað er á fólk að leggja stein í götu vís- indarannsókna, sem færa mann- kyninu aukinn skilning á lífríkinu og eigin tilverulögmálum. Hvað gengur þessum sjálfskip- uðu siðmenningarforkólfum til með því að skera upp herör gegn þekk- ingaröflun og reyna að skapa fóiki ótta við að vitneskja um erfðamengi þess verði notuð til að valda því skaða eða gera því hneisu? Hvaða veilur skyldu það vera í erfðamengi einstaklings, sem æskilegt væri að fela fyrir vísindamönnum, heil- brigðisstofnunum, og honum sjálf- um? Hvaða erfðaþættir skyldu það vera, sem okkur væri best að skilja ekki og vita ekkert um? Ekki er þörf að telja upp þann ávinning, sem erfðarannsóknir hafa haft og geta haft. Til þess eru dæmin of mörg, of augljós og auð- skilin. Hitt er torskildara, hver hættan er. Hvaða ástæða er til að óttast að aukin þekking geti valdið slíkum skaða að rétt sé að leggja stein í götu erfðarannsókna, og hræða fólk til að leyna fyi-ir vís- indamönnum verðmætri vitneskju um sjúki-asögu og arfgerð sína eig- in og ættar sinnar? Hinar háværu áskoranir um þátttöku í hópaðgerð til að hefta þekkingaröflun eru ósæmilegar. Þær minna helst á for- dóma kirkjunnar gagnvart nútíma- vísindum á upphafsskeiði þeirra. Þessi herferð er ekki samboðin fólki sem tilheyrir virtum háskóla- samfélögum. JÓN HAFSTEINN JÓNSSON, fv. menntaskólakennari, Stangarholti 7, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.