Morgunblaðið - 29.04.1999, Qupperneq 1
95. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
FRÉTTAMENN og íbúar bæjarins Surdulica í Serbíu skoða það sem eftir er af húsi sem gjöreyðilagðist þeg-
ar sprengja féll á bæinn í árás NATO í fyrradag.
20 Serbar falla
í árás NATO
Surdulica. Reuters.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
viðurkenndi í gær að leysistýrð
sprengja hefði misst marks og
sprungið í íbúðahverfi í bænum
Surdulica í suðurhluta Serbíu í
fyrradag. Embættismenn í bænum
sögðu að lík tuttugu óbreyttra borg-
ara, þar af sex bama, hefðu fundist í
rústum húsa, sem eyðilögðust í
sprengjuárásinni, og óttast væri að
fieiri hefðu beðið bana.
Talsmaður NATO, Jamie Shea,
sagði að sprengjan hefði átt að
lenda á þjálfunarstöð Júgóslavíu-
hers í Surdulica en breytt um
stefnu og sprungið um 200-300 m
frá skotmarkinu.
Erlendir fréttamenn sáu sextán
lík eftir árásina. íbúar bæjarins
söfnuðust saman til að mótmæla
sprengjuárásum NATO og for-
dæma leiðtoga bandalagsins, sem
þeir kölluðu „fasista“.
Eitt íbúðarhúsa bæjarins gjör-
eyðilagðist í árásinni og bæjarbúar
sögðu að þar hefðu verið sextán
manns, aðallega aldrað fólk og böm,
sem höfðu leitað skjóls í kjallara
hússins. Stór gígur myndaðist þar
sem húsið stóð og þök húsa í ná-
grenninu eyðilögðust og allar rúður
þeirra brotnuðu, að sögn frétta-
manna á staðnum. NATO hafði
tvisvar áður gert árásir á verk-
smiðjur og herbúðir í bænum.
Talsmaður júgóslavneska utanrík-
isráðuneytisins sagði að um 100 íbúar
bæjarins hefðu særst, sex hús eyði-
lagst og 100 skemmst. „Þriðjungur
bæjarins eyðilagðist," sagði bæjar-
stjóri Surdulica, Miroslav Stojilkovic.
Stjómvöld í Júgóslavíu hafa sagt
að um þúsund óbreyttir borgarar,
þeirra á meðal mörg börn, hafi beð-
ið bana í árásum NATO frá 24.
mars.
Ný vísbending um að samstaða ráðamanna í Belgrad sé að bresta
Vuk Draskovic vikið úr
ríkisstjórn Júg’óslavíu
Dregur úr líkunum á að Milosevic
fallist á málamiðlun á næstunni
Belgrad, Brussel, Berlín. Reuters.
Reuters
VUK Draskovic á blaðamannafundi í Belgrad eftir að honum var vikið
úr embætti aðstoðarforsætisráðherra í gær.
VUK Draskovie, aðstoðarforsætis-
ráðherra Júgóslavíu, var vikið úr
stjóm sambandsríkisins í gær, dag-
inn eftir að hann hvatti til þess að er-
lent friðargæslulið undir stjóm Sam-
einuðu þjóðanna yrði sent til Kosovo.
Stjóm Júgóslavíu sagði að Draskovic
hefði verið leystur frá störfum vegna
þess að hann hefði látið í ljós skoðanir
sem væm í andstöðu við afstöðu
hennar í Kosovo-deiiunni. Þrír flokks-
bræður Draskovic sögðu af sér ráð-
herraembættum sínum eftir að hon-
um var vikið úr stjóminni. Brottvikn-
ingin dregur úr líkunum á því að
Slobodan Milosevic, forseti Júgó-
slavíu, fallist á málamiðlun í Kosovo-
deilunni á næstunni og talsmenn Ati-
antshafsbandalagsins sögðu hana til
marks um að samstaða ráðamann-
anna í Belgrad væri að bresta.
Draskovic lýsti þvi yfíi- í fyrradag
að Rússar og leiðtogar Vesturlanda
þyrftu að semja um að alþjóðlegt her-
lið undir stjórn Sameinuðu þjóðanna
yrði sent til Kosovo. Hann skoraði
einnig á stjómvöld í Belgrad að fall-
ast á málamiðlun í deilunni um
Kosovo og sakaði ríkisfjölmiðlana í
Júgóslavíu um að hafa gefið
serbnesku þjóðinni ranga mynd af
Kosovo-deilunni og afleiðingum henn-
ar.
Draskovic vai- einn af helstu leið-
togum stjómarandstöðunnar í Serbíu
þar til hann gekk í júgóslavnesku
stjórnina í janúar. Hann skýrði frá
því að þrír flokksbræður sínir - Milan
Komnenic upplýsingamálaráðherra,
Slobodan Nenadovic, sem fór með
innanríkisviðskipti, og Milan Bozic,
ráðherra án ráðuneytis - hefðu allir
sagt sig úr stjóm Júgóslavíu eftir
brottvikninguna. Sérfr'æðingar í
júgóslavneskum stjómmálum sögðu
að afsögn ráðherranna þriggja myndi
ekki hafa mikil áhrif þai- sem valdið
væri að mestu leyti í höndum Milos-
evic ög ríkisstjómar Serbíu en ekki
stjómar júgóslavneska sambandsrík-
isins.
Draskovie sagði á blaðamannafundi
eftir brottvikninguna að hann hefði
talið ummæli sín í fyrradag í sam-
ræmi við afstöðu júgóslavnesku
stjórnarinnar.
Bratislav Gmbacic, ritstjóri óháða
fréttabréfsins VTP í Belgrad, sagði að
viðhorf Draskovic ættu sterkan
hjjómgrann hjá serbneskum almenn-
ingi, sem hefði fengið nóg af árásum
NATO. „Margir venjulegir Serbar
töldu að Milosevic væri að nota Dra-
skovic til að senda NATO skilaboð.
Brottvikning hans hefur gert þær
vonir að engu.“
Merki um klofning
Rudolf Scharping, vamarmálaráð-
herra Þýskalands, sagði brottvikn-
ingu Draskovic benda til klofnings
meðal ráðamanna Júgóslavíu og sýna
að Milosevic hygðist reyna að halda
völdunum eins lengi og kostm- væri.
„Það er Ijóst að Milosevic hefur
einangrast, jafhvel innan eigin stjóm-
ar,“ sagði David Leavy, talsmaður
Þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna.
„Ljóst er að jafnvel æðstu embættis-
menn hans telja að hann eigi að hætta
kúguninni, hætta blekkingum sínum,
hætta að misnota fjölmiðlana og
verða við kröfum alþjóðasamfélags-
ins.“
„Þetta sýnir að ekkert andóf er lið-
ið [í Júgóslavíu]," sagði embættis-
maður hjá NATO í Brassel um brott-
vikninguna. „Þetta er enn ein vís-
bendingin um að samstaða pólitísku
leiðtoganna sé að bresta eins og við
höfum sagt.“
Ekkert bendir til þess
að Milosevic gefi eftir
Brottvikning Draskovic bendir til
þess að Milosevic hyggist ekki hvika
frá andstöðu sinni við friðarskilmála
NATO og dregur úr líkunum á því að
Rússum og NATO-ríkjunum takist að
finna pólitíska lausn á Kosovo-deil-
unni á næstunni.
Goran Matic, einn af forystumönn-
um Sameinaða vinstriflokksins,
flokks eiginkonu Milosevic, sagði í
viðtali við The New York Times í gær
að hann teldi að samkomulag gæti
náðst síðar í vikunni um meginatriði
hugsanlegs friðarsamnings.
Strobe Talbott, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði þó
ekkert benda til þess að Milosevic
myndi gefa eftir og fallast á skilmála
NATO íyrir friðarsamningi.
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, og Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, tóku í
sama streng eftir viðræður þeirra í
Berlín í gær og sögðu ekkert benda til
þess að deilan yi'ði leyst á næstunni.
Annan fór tii Moskvu í gærkvöldi
og ræðir í dag við Borís Jeltsín for-
seta, Jevgení Prímakov forsætisráð-
herra og Viktor Tsjernomyrdín, sér-
legan sendimann rússnesku stjórnar-
innar í Kosovo-deilunni. Gert er ráð
fyrir því að Tsjernomyrdín fari til
Þýskalands, Ítalíu og Júgóslavíu eftir
fundinn með Annan.
■ Árásir NATO/26
PLO frest-
ar því að
stofna ríki
Gaza. Reuters.
ÞING Frelsissamtaka Palestínu-
manna (PLO) ákvað í gær að lýsa
ekki yfir stofhun sjálfstæðs Palest-
ínuríkis í næstu vilni, eins og hótað
hafði verið, og_ fresta því fram yfir
kosningamar í Israel.
Palestínski embættismaðurinn Na-
bii Amr, sem á sæti á þingi PLO,
sagði að ákveðið hefði verið að fram-
lengja umræðu um stofnun Palestínu-
ríkis fram yftr kosningamai' 17. maí.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, hafði hótað að stofna Palest>
ínuríki 4. maí, þegar friðarviðræðum
ísraela og Palestínumanna á að Ijúka
samkvæmt bráðabirgðasamningum
þeirra. Arafat flutti ræðu á þinginu í
fyrradag þar sem hann mæltist til
þess að stofnun ríkisins yrði frestað
eftir að Bandaríkjaforseti hvatti ísra-
ela og Palestínumenn til að reyna að
ná varanlegu friðarsamkomulagi inn-
an árs.
Þing PLO hafði einnig verið varað
við því að stofnun Palestínuríkis gæti
aukið sigurlíkur Benjamins Netanya-
hus, forsætisráðherra Israels, í kosn-
ingunum.
------------------
Mikil spreng-
ing í Sofíu
Sofíu. Reuters.
ÖFLUG sprenging varð í gærkvöldi í
tveggja hæða íbúðarhúsi í einu af út-
hverfum Sofiu, höfuðborgar Búlgaríu,
og forseti landsins og innanríkisráð-
herrann flýttu sér á staðinn.
Yftrvöld í Búlgaríu greindu ekki frá
orsök sprengingarinnar en margir
íbúar hverfisins sögðust óttast að eitt
af flugskeytum NATO í árásunum á
Júgóslavíu hefði lent á húsinu, en Sof-
ía er um 60 km frá Júgóslavíu. Tals-
maður NATO kvaðst ekki vita til þess
að sprengingin tengdist árásum
bandalagsins.
Ekki var vitað til þess að spreng-
ingin hefði valdið manntjóni.