Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Blóðbaðið í framhaldsskóla í Colorado Hugsanleg'ir vitorðsmenn yfirheyrðir Golden, Littleton. AP, Reuters. LÖGREGLUMENN, sem rann- saka fjöldamorðin í skóla í Colorado í Bandaríkjunum í síðustu viku, eru nú að kanna hvort þrír unglingar, sem voru handteknir rétt eftir morðin, hafi ætlað að taka þátt í ódæðinu. Við handtökuna voru þeir í hermannaklæðnaði og sögðust hafa flýtt sér á vettvang er þeir heyrðu sagt frá atburðinum í út- varpi. Þá voru útvarpsstöðvarnar þó ekki búnar að segja frá voða- verkunum. Þá er einnig verið að yf- irheyra 18 ára gamla stúlku, sem keypti tvö vopnanna, sem notuð voru. John P. Stone, lögreglustjóri í Jefferson-sýslu þar sem rannsóknin fer fram, sagði, að ungu mennirnir þrír væru að svo komnu ekki grun- aðir um aðild að morðunum en þeir voru handteknir við skólann meðan á þeim stóð. Vora þeir óvopnaðir en hafa allir verið orðaðir við „Frakkamafíuna" svokölluðu, fé- lagsskap, sem morðingjarnir tveir, Eric Harris, 18 ára, og Dylan Kle- bold, 17 ára, vora í. Þeir myrtu 12 skólafélaga sína og einn kennara áður en þeir sviptu sig lífi. Jim Parr, talsmaður lögreglu- stjórans, sagði raunar á þriðjudag, að unglingamir þrír hefðu verið hreinsaðir af allri sök og stangast Lögregla talin viðriðin íkveikju RÍKISSTJÓRN Frakklands beið álitshnekki í vikunni er þrír lögreglumenn vora kallað- ir til Frakklands eftir að hafa setið í varðhaldi á Korsíku vegna grans um aðild þeirra að brana sem varð í veitingahúsi á eyjunni. Aðskilnaðarsinnar á Korsíku halda því fram að lög- reglan hafi staðið að baki íkveikjunni í því augnamiði að skella skuldinni á skæraliða- sveitir sem starfræktar hafa verið á eyjunni. Lögreglu- mennimir komu til Parísar í fyrradag, en gert er ráð fyrir að mál þeirra verði tekið fýrir hjá dómara á næstu dögum. Prefect Claude Bonnet, stjómarerindreki franska ríkis- ins á eyjunni, hefur einnig verið kallaður til Frakklands til skrafs og ráðagerða, að sögn talsmanna ríkisstjómarinnar, en hann er þó ekki talinn hafa átt þátt í íkveikjunni. Talsmaður Jacques Chirac, forseta Frakk- lands, sagði Chirac hafa lagt til að rannsókn á málinu hæfist hið fyrsta, en atvik þetta er talið vera mikið reiðarslag fyrir frönsku stjómina sem haldið hefur á lofti áætlunum um að koma á lög og reglu á eyjunni eftir að fyrirrennari Bonnets var myrtur þar fyrir 15 mánuð- um. það á við yfirlýsingar Stones og saksóknarans Dave Thomas einnig. Hann telur, að ungu mennirnir hafi frá einhverju að segja og bendir á, að það sé ekki rétt, að þeir hafi heyrt sagt frá atburðunum í skólan- um í útvarpi og auk þess hafi þeir getað nefnt ódæðismennina með nafni áður en búið var að upplýsa um það. Reyndu að flýja Stone segir, að þeir Klebold og Harris hafi reynt að flýja út úr skól- anum en svipt sig lífi þegar þeir sáu að hann var umkringdur. í dagbók EKKERT hefur enn komið fram, sem bendir til þess hver hafi myrt bresku sjónvarpskonuna Jill Dando, en lögreglan vinnur með ýmsar kenningar. Ein er sú, að morðinginn sé geðtraflaður maður, sem hafi fengið Dando „á heilann"; að um hafi verið að ræða misheppnað rán annars þeirra kemur fram, að þeir hafi hugsað sér að flýja land, til Mexíkó eða eitthvað annað, eða ræna flugvél og steypa henni til jarðar í New York. Eftirlitsmyndavélar í skólanum tóku upp allt blóðbaðið. Þær sýna þegar Klebold kastaði frá sér heimatilbúnum sprengjum og skaut á skelfingu lostna nemendurna. Réðust þeir fyrst inn í mötuneytið og hlupu þaðan inn á bókasafnið þar sem margir vora við lestur. Síðan fóra þeir í skiifstofumar og skutu þar allt í sundur þótt enginn væri þar staddur. og nú síðast, að serbneskir öfga- menn hafi verið að verki. Breska dagblaðið The Daily Mail birti í gær forsíðufrétt undir fyrirsögninni „Myrti Serbi Jill?“ og lögreglan er nú að kanna hvort hugsanlegt sé, að serbneskir öfga- menn hafi myrt Dando til að hefna Lögreglan er nú að yfirheyra Ro- byn Anderson, 18 ára gamla vin- stúlku Klebolds, en sannað er, að hún keypti „að minnsta kosti“ tvær byssnanna, sem notaðar vora við manndrápin. Þótt hún hafi ekki tek- ið þátt í þeim þá vill lögreglan kom- ast að því hvort hún hafi vitað til hvers átti að nota vopnin. Herinn hafnaði Harris Dagblaðið The New York Times sagði í gær, að Eric Harris hefði viljað komast í bandaríska land- gönguliðið en verið visað frá aðeins fimm dögum áður en þeir Klebold réðust inn í skólann. Atti hann fyrst símaviðtal við starfsmann hersins og hitti hann síðan augliti til auglitis og gekk það allt vel. Atti fulltrúi hersins síðan fund með Harris og foreldrum hans á heimil þeirra og þá sögðu þeir frá því, að sonur þeirra væri á geðlyfjum. Var honum þá hafnað sem landgöngu- liða. Denverbúar minntust hinna látnu með þagnarstund á þriðjudag og út- sendingum útvarps og sjónvarps var hætt á meðan. Lauk henni með því, að kirkjuklukkum var hringt 15 sinnum, einu sinni f'yrir hvern nem- anda, kennarann og ógæfumennina ungu. árásar NATO-flugvéla á serbneska sjónvarpsstöð í síðustu viku. Tals- menn lögreglunnar leggja mikla áherslu á, að þetta sé þó bara ein hugmynd af mörgum, sem verið sé að rannsaka. í blaðinu sagði, að Dando hefði ef til vill verið valin sem fulltrúi bresks sjónvarps og vegna þess, að hún hefði gert hörmungum flóttafólksins frá Kosovo mikil skil. Dagblaðið Mirror hélt líka þess- ari kenningu á loft en í The Daily Telegraph sagði, að lögreglan teldi morðið líkjast mest verki geðtrafl- aðs manns. Varð hún fyrir ásókn slíks manns á síðasta ári og var um tíma farin að óttast um öryggi sitt. Unnið að tölvumynd Að minnsta kosti sjö manns sáu morðingjann og er honum lýst sem hvítum karlmanni, 35 til 40 ára, snyrtilega klæddum og með farsíma í hendi. Er nú verið að setja saman tölvumynd af honum samkvæmt lýsingunni. Það er 10 ára gamall drengur, sem sá hann einna best, en móðir hans var að aka honum í skóla er hann sá „undarlegan" mann á vappi fyrir framan heimili Dando. Elísabet drottning, Tony Blair forsætisráðherra og hundruð þús- unda Breta hafa vottað ættingjum Dando samúð sína og gatan fyrir framan heimili hennar er þakin blómum. Halonen fer fram TARJA Halonen, utanríkis- ráðherra Finnlands, tilkynnti í gær að að hún myndi gefa kost á sér sem forsetaefni í forkosningu innan Jafn- aðaimanna- flokksins. Kom yfir- lýsing hennar í kjölfar yfir- lýsingar Martti Aht- isaari, forseta Finnlands, um að hann muni ekki bjóða sig fram í forskosningunum innan flokksins, þótt hann hafi ekki beinlínis útflokað framboð. Paavo Lipponen forsætisráð- herra sagði í gær að frambjóð- andi jafnaðarmanna yrði sá er sigraði í forkosningunum og var hann með því talinn útiloka að Ahtisaari yrði frambjóðandi flokksins. Forsetinn gæti boðið fram óháð flokknum en ólík- legt er talið að af því verði. Tillögum SÞ hafnað LEIÐTOGI vopnaðra her- sveita á Austur-Tímor, sem berjast gegn aðskilnaði frá Indónesiu, lýsti því yfir að menn hans myndu ekki sam- þykkja tillögur Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um að kosið yrði um sjálfstjórn Austur- Tímor 8. ágúst næstkomandi. „Við munum berjast í önnur 23 ár... jafnvel lengur, gerist þess þörf,“ sagði hann. Sprengja verður konu að bana KONA lést og karlmaður slasaðist alvarlega er sprengja sprakk á Athens Intercontinental hótelinu í Aþenu í gær. Lýsti skæruliða- hreyfingin Byltingarkjarninn sig ábyrgt fyrir tilræðinu og sagði ódæðisverkið hafa verið framið til að mótmæla loft- árásum Atlantshafsbanda- lagsins á Júgóslavíu. Kólerufarald- ur í Sómalíu SKÆÐUR kólerafaraldur hefur leitt a.m.k. 240 manns til dauða í Suður-Sómalíu á sl. vikum og eykst fjöldi sjúkra á degi hverjum, af því.er íbúar í bænum Dinsor sögðu frá í gær. Heilbrigðisyfirvöld segja viðbrögð hjálparsam- taka ekki hafa verið nægiiega góð til að spoma gegn hraðri útbreiðslu faraldsins, auk þess sem skortur á sóttvarn- araðstöðu væri ríkjandi. Lestarslys í Indlandi AÐ MINNSTA kosti 39 manns létu lífið og 35 slösuð- ust alvarlega er lest skall á rútu, sem var yfirfull af far- þegum, í Uttar Pradesh í norðurhluta Indlands í vik- unni. Áreksturinn varð er rút- an, með 74 farþegum innan- borðs, var að keyrði yfir gatnamót þar sem jámbrauta- teinar og akvegur skerast. Or- sakir slyssins era raktar til þess að við gatnamótin var ekkert umferðarhlið. finndu frelsið í fordfiesta á aðeins miiljón og tólf www.brimborg.is Morðið á bresku sjónvarpskonunni Jill Dando Reuters TÆKNIMENN bresku lögreglunnar hafa fínkembt svæðið fyrir framan heimili Dando í von um að finna ein- hverjar vísbendingar. Hér er verið að flytja burt bflinn hennar til rannsóknar. Voru serbneskir öfgamenn að verki? London. Reuters. Tarja Halonen I I , I 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.