Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Þökkum af alhug auösýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR LAUFEYJAR ÁRNADÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkr- unarheimillnu Seli fyrir frábæra umönnun og félögum í Gamla Geysi fyrir söng við útförina. Kári S. Johansen, Gunnar Kárason, Svana Þorgeirsdóttir, Gréta Aðalsteinsdóttir, Kári Árnason Johansen, Herborg Árnadóttir Johansen, og barnabarnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTJÁN RÖGNVALDSSON skipstjóri og hafnarvörður, Hávegi 58, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju föstu- daginn 30. apríl kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast Kristjáns, er bent á Minningarsjóð um drukkn- aða sjómenn frá Siglufirði. Lilja Jóelsdóttir, Marteinn Kristjánsson, Ásta Óla Halldórsdóttir, Jóel Kristjánsson, Helga Bergsdóttir, Bryndís Kristjánsdóttir, Þórólfur Tómasson, Kristján Kristjánsson, Margrét Þorvaldsdóttir, Guðni Kristjánsson, Kristbjörg Kemp, Jónína Kristjánsdóttir, Guðmundur Magnússson, Hildur María Pedersen, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna veikinda, andláts og útfarar GUÐBJARGAR VILBORGAR STEFÁNSDÓTTUR, Sólheimum 30, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær söfnuðurinn í Fíladelfíu og starfsfólk á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, deild A-7, spítalans. Guð blessi ykkur öll. Kristján R. Kristjánsson, Stefán R. Kristjánsson, Þorvaldur Kristjánsson, Sóley B. Kjartansdóttir og barnabörn. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug við andlát og aðstoðuðu okkur við útför föður okkar, tengdaföður og afa, BENÓNÝS FRIÐRIKS FÆRSETH skipstjóra, Keflavík. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Gísli Benónýsson. og kvennadeild Land- t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and- lát og jarðarför SIGURÐAR H. GUÐMUNDSSONAR flugvirkja, Ásgarði 77. Elísabet Marfa Víglundsdóttir, Ásdís Sigurðardóttir, Víglundur Sigurðsson, Margrét Rósa Sigurðardóttir, Þórhildur Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðarson, Halldór Sigurðsson, Gfsli Geir Jónsson, Ólafur Viðar Birgisson, Kolbrún S. Jóhannesdóttir, Guðmundur Þorkelsson, Eyrún Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Arína Margrét Sigurðardóttir, húsfreyja og versl- unarmaður, fæddist í Enni í Refsborgar- sveit í Engihlíðar- hreppi í A-Húna- vatnssýslu hinn 10. september 1919. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 16. apríl síðastliðinn. A. Margrét ólst upp í Enni og bjó þar til 19 ára aldurs þegar hún fluttist til Reykjavíkur þar sem hún bjó síðan alla tíð til dauðadags. For- eldrar hennar voru Halldóra Sigríður Ingimundardóttir, hús- freyja í Enni, f. 15.5. 1896, d. 23.11.1967, og Sigurður Sveins- son, bóndi í Enni, f. 2.12. 1883, en hann drukknaði í Blöndu 25.2. 1924. Seinni maður Halldóru Sig- ríðar og stjúpfaðir A. Margrétar var Guð- mundur Þorsteinn Sigurðsson, bóndi í Enni, f. 1.3. 1901, d. 7.1. 1967. A. Margrét var fjórða í röð fimm alsystkina. Elstur og yngstur þeirra systk- ina voru þeir bræður Sveinn Helgi og Ingi- mar Sigurberg er dóu sem kornabörn. Auk A. Margrétar komust á legg Hólmfríður Krist- ín, húsmæðrakennari, Preston, Englandi, f. 20.9. 1916, d. 4.7. 1995, og Sveinn Helgi, húsgagna- smiður, Reykjavík, f. 7.6. 1918, d. 10.10. 1970. Hálfsystkini A. Mar- grétar eru: Elsa Guðbjörg, f. 3.5. 1930, húsfreyja og vefnaðarkenn- ari, Ketilsstöðum, Vallahreppi í S-Múlasýslu, Sigurður Heiðar, f. 14.6. 1934, viðgerðarmaður, Blönduósi, og Ingimundur Æv- ar Þorsteinsson, f. 1.3. 1937, bóndi í Enni. Hinn 21. febrúar 1948 giftist A. Margrét Hálfdani Helgasyni, stórkaupmanni, f. 24. mars 1908, d. 25. janúar 1972. For- eldrar hans voru Helgi Jónsson, kaupfélagssljóri á Eyrarbakka, f. 16.12. 1868, d. 24.3. 1950, og Guðrún Torfadóttir, húsfreyja, f. 23.10. 1869, d. 3.5. 1950. Þau A. Margrét og Hálfdan eignuð- ust tvo syni og eru þeir: 1) Sig- urður, verslunarmaður. Dætur hans eru Margrét, lögfræðing- ur, og Gunnþórunn, læknanemi. 2) Gunnar Helgi, rekstrarhag- fræðingur og forsljóri, kvæntur Gunnhildi J. Lýðsdóttur, við- skiptafræðingi. Synir þeirra eru: Hálfdan Guðni, vélaverk- fræðingur, Lýður Heiðar, fram- haldsskólanemi, og Helgi Már. Utför A. Margrétar fór fram í kyrrþey 23. apríl, að ósk henn- ar sjálfrar. ARÍNA MARGRÉT SIG URÐARDÓTTIR Með þessum fáu orðum langar mig til að minnast elskulegrar tengda- móður minnar sem nú er látin. Margrét var ein af þessum sterku konum sem ávallt hélt fullri reisn þrátt fyrir ágjöf í lífsins ólgusjó. Margrét var dæmi um þolgóðan einstakling sem nýtti mótbyr til þess að draga lærdóm af og þannig efla sjálfa sig og þá sem lögðu við hlustir þegar hún miðlaði af reynslu sinni á sinn hæverska hátt. Margrét ólst upp við erfiðar að- stæður eins og ekki var ótítt á þeim dögum. Hún missti ung föður sinn sem drukknaði í Blöndu þegar hún var fimm ára. Óhætt er að fullyrða að sú reynsla markaði djúp spor í lif þeirra systkina en hún minntist eitt sinn á við mig það hræðilega ástand sem ríkti á meðan leitin að föður hennar stóð yfir. A árunum á eftir reyndi mjög á móður hennar og systkini við búreksturinn þegar styðjast þurfti við hjálp vina og mis- áreiðanlegs lausafólks. Breyting varð þó hér á þegar Guðmundur Þorsteinn, síðar stjúpi Margrétar, réðst sem ráðsmaður til móður hennar haustið 1925 en hann átti eftir að reynast þeim vel. A æskuárunum starfaði Margrét í Enni við alhliða sveitastörf og að- stoðaði móður sína við rekstur heimilisíns og uppeldi þriggja hálf- systkina sinna. Aisystkini hennar fóru ung að heiman og það féll því snemma í hlut Margrétar að tengja saman eldri og nýja tíma á heimil- inu. Hugur Mai-grétar stóð til náms, t.d. í Verslunarskólanum eða í hjúkrun, en ekki varð úr þeim áformum. Hún sótti þó Húsmæðra- skólann á Blönduósi í tvo vetur, 1936-38. Margrét fluttist 19 ára gömul til Reykjavíkur þar sem hún vann ýmis störf, s.s. á bókbands- stofu og við saumskap, þar til hún giftist Hálfdani Helgasyni í febrúar 1948. Eftir 1961 starfaði hún sleitu- laust við hlið manns síns við rekstur heildverslunar sem hún þurfti oft að axla ábyrgð á vegna erfiðrar heilsu Hálfdanar. Eftir andlát Hálfdanar 1972 starfaði Margrét áfram við heildverslun þeirra hjóna til ársins 1991 þegar hún dró sig í hlé. Margrét var ávallt vinmörg og vel liðin. Þess ber merki stór hópur vina sem hún myndaði sterk tengsl við á hinum ólíku æviskeiðum. Hún var í eðli sínu dul kona sem hafði þó til hins síðasta skýra hugsun sem elli kerling hafði á engan hátt náð að vinna á. Hún hafði einlægan áhuga á öðrum, spurði margs og var góður hlustandi, sem vinir hennar kunnu að meta. Hún var dugleg að heimsækja vini og ijölskyldu á litla bílnum sínum sem hún ók til hinsta dags. Hún naut þess að vera innan um strákana okkar Gunnars Helga ög sýndi mikinn áhuga á þvi sem þeir höfðu fyrir stafni hverju sinni. Sex vikum fyrir andlátt sitt varð Margrét fyrir því að missa svilkonu sína, Hönnu Helgason, en þær höfðu verið samferða í yfir 50 ár og bjuggu hlið við hlið síðustu sjö árin á Aflagrandanum. Við fundum það glöggt að hún saknaði hennar sárt. Haustið 1995 fékk Margrét svo slæmt hjartaáfail að henni var ekki hugað líf. I stað þess að óska eftir hjálp tók hún sig upp og hélt á fund heimilislæknis síns. Eftir heimilis- t Ástkær móðir. okkar, AÐALHEIÐUR ÞÓRARINSDÓTTR frá Hjaitabakka, síðar húsmóðir á Ytra-Ósi, Steingrímsfirði, er látin. Jarðarförin auglýst síðar. Þóra Magnúsdóttir, Marta Magnúsdóttir, Nanna Magnúsdóttir, Þórarinn Magnússon. t Elsku drengurinn okkar, ástkær bróðir okkar og barnabarn, VILHJÁLMUR GÍSLASON, lést á Landspítalanum mánudaginn 26. apríl. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. maí kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Barnaspítala Hringsins. Kristín Jónsdóttir, Gísli Vilhjálmsson, Anna Ýr Gfsladóttir, Sindri Freyr Gíslason, Stefanía Sigurjónsdóttir, Jón Guðnason, Nanna Gunnarsdóttir, Vilhjálmur Gíslason. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ARÍNA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Aflagranda 40, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 16. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát hennar. Gunnar Helgi Hálfdanarson, Gunnhildur J. Lýðsdóttir, Sigurður Hálfdanarson, barnabörn og makar. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför HÖNNU ANDERSEN, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11- 32-A, Landspítalans. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Kristjánsdóttir, Ágústa Þ. Kristjánsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.