Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 51 MINNINGAR LOFTUR JÓNSSON + Loftur Jónsson fæddist í Reykjavík hinn 10. aprfl 1937. Hann lést á Landspítalan- um hinn 21. aprfl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jón Sigurður Lofts- son, forstjóri, f. 11. desember 1881, d. nóvember 1958, og Brynhildur Þórar- insdóttir, húsmóðir, f. 14. maí 1905, d. ágúst 1994. Systkini hans eru Ingibjörg, látin, eiginmaður Arni Björns- son, látinn, Sigríður, eiginmað- ur Ásgeir Guðmundsson, Katrín, Gunnhildur, eiginmaður Gunnar Hansson, og Þórarinn, eiginkona Anna Þórðardóttir. Loftur var kvæntur Ástu Mar- gréti Hávarðardóttur, f. 27. ágúst 1936. Foreldrar hennar voru Hávarður Valdemarsson, stórkaupmaður, f. 23. ágúst 1905, d. ágúst 1993, og Ingi- björg Kjartansdóttir, húsmóðir, f. 24. desember 1913, d. febrúar 1986. Börn Lofts og Ástu Margrétar eru: 1) Jón Sigurð- ur, framkvæmda- stjóri, f. 1963 og 2) Ingibjörg, sjúkra- þjálfari, f. 1964; eig- inmaður Ágúst Guðjón Arason, kerfisfræðingur, f. 1960. Börn þeirra eru Sonja Hrund, f. 1988, og Ásta Karen f. 1992. Loftur ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík. Hann lauk Verslunarskólaprófi 1955, stundaði síðan nám í versl- unarháskóla í Leeds í Englandi. Hann tók við fyrirtæki föður síns, Jóni Loftssyni hf., árið 1958 og var forstjóri þess þar til í maí 1998 að hann varð að láta af störfum vegna veikinda. Útför Lofts fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú sit ég hér þinn dánarbeð við, og bíð þess að Herrann þig leiði á æðra svið. Guð minn, hjálp mér sterk að vera, er sorgaröldur mig með sér bera. Mannanna sorg mikil ætíð verið hefur, er sálin sitt musteri yfirgefur. En huggun og kærleikur Guðs um mig flæðir, því ég veit að Kristur þig engilskarti klæðir. (Arason Inga) Elsku pabbi. Þá er samfylgd okk- ar hér á jörðinni lokið. Þú átt æðra verk fyrir höndum þar sem hæfi- ieikar þính- og tní munu nýtast vel. Eftir sitjum við hin með dýrmætar minningar sem munu koma til með að lýsa okkur á dimmum sorgar- stundum. Þú varst mín stoð og stytta í gegnum allt mitt líf. Þitt trausta handtak og hlýja faðmlag veittu mér meir en nokkur orð. Krossmarkið á ennið, sem var þín sérstæða kveðja, verndaði mig í lífsins ólgu sjó. Þakka þér fyrir ómetanlegar stundir á Hnausum þegar við ræddum tilgang lífsins með fegurð Snæfellsness sem undirspil. Þar varst þú konungur í ríki þínu, þar varst þú sæll. Þakka þér fyrir allan stuðninginn, alla væntumþykjuna, alla viskuna og heilræðin. Það er ekki efi í mínum huga að í dag er hátíð í himnaríki. Þln dóttir Ingibjörg. Það var um haust árið 1980 að ég hitti Loft í fyrsta skipti. Við höfð- um verið að draga okkur saman, ég og dóttir hans, Ingibjörg, í nokkrar vikur. Það var ekki annað hægt en að bera virðingu fyrir þessum há- vaxna og glæsilega manni. Þá, að- eins tvítugum að aldri, fannst mér Loftur heldur strangur á dóttur sína en í dag er ég þakklátur fyrir að hafa kynnst hernaðarlist hans í að vernda einkadóttur sína fyrir ágengum aðdáanda. Ég mun án efa koma til með að ganga í þann viskubrunn þegar kemur að því að vernda mínar eigin dætur. Það var svo ekki fyrr en við Ingibjörg trú- lofuðumst ári síðar að Loftur tók mig í sátt, þá loks sannfærður um heiðai-legan ásetning minn. En þá eignaðist ég líka traustan vin sem gott var að leita til með hin ýmsu vandamál. Þær eru ógleymanlegar hinar ófáu ferðir sem voru farnar til Hnausa og þá ekki síst þegar við skutumst bara tveir að veti-arlagi. Tímanum var þá varið í að dytta að húsinu en ekki síst í að deila draum- um okkar og innstu hugsunum. Það var svo nú einu sinni þannig með Loft að hann var heldur dulur og sparsamur á að láta tilfinningar sín- ar í ljós, en á Hnausum varð hann oft annar maður og við þróuðum með okkur trausta vináttu. Það var ýmislegt sem var rætt á þeim stundum en ekki síst velt 'fyrir sér tilgangi lífsins og guðstra sem var hans uppáhalds umræðuefni og þar var ekki aldeilis komið að tómum kofunum hjá Lofti. Þessar samveru- stundir voru mér ómetanlegar og kenndu mér margt um tilgang lífs- ins auk þess sem þá var oft slegið á létta strengi. Fráfáll Lofts varð mér þung- bært, ekki síst vegna þess að að- stæður höguðu því þannig að ég var víðs fjarri þegar hann kvaddi þenn- an heim. Ég hafði nú samt kvatt hann hinstu kveðju í huga mínum um jólin þegar vitað var hvert stefndi. Ég er þakkklátur fyrir að Loftur fékk að halda reisn sinni og dvelja á heimili sínu fram að síðustu dögum þar sem hann naut kærleiksríkrar umönnunar tengdamóður minnar. Minningarnar um Loft mun ég geyma um aldur og ævi. Ágúst Arason. Ég var ekki oft hjá honum af því að ég bý í Ameríku en þegar ég kom til hans var mjög gaman. Sérstak- lega var gaman að vera með afa á Hnausum. Þar fannst honum afa svo^ gaman að tína bláber. Ég gleymi því aldrei hvað afi var gjafmildur. I fyrrasumar sátum við tvö fyrh’ utan söluskála í Borgar- nesi á leið til Hnausa. Hann gaf mér pening og ég var svo leið að ég hafði ekkert að gefa honum svo að ég sagði honum að ég ætlaði að gefa honum ástina mína. Mér líður vel núna að vita að ég hafi sagt þetta við hann af því að amma segir að hann hafi aldrei gleymt því. Elsku afi, ég mun alltaf muna hvað þú varst góður við mig og hve trúaður þú varst. Þú kvaddir mig alltaf með krossmaríd og nú er ég að kveðja þig með krossmarki líka. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Þín Sonja Hrund Ágústsdóttir. Mágur minn, Loftur Jónsson, andaðist á Landspítalanum síðasta vetrardag eftir langa og harða bar- áttu við erfiða sjúkdóma. Hinn 10. apríl sl. varð hann 62 ára og áttum við systkini hans og makar þá ánægjulega stund á yndislegu heimili þeirra Ástu í Blikanesi 19 í Garðabæ. Umræðurnar fóru vítt um svið, við ræddum stjórnmál, ástandið í fyrrverandi Júgóslavíu og atburði í fjölskyldunni og tók Loftur þátt í þeim umræðum með svipbrigðum sem sýndu að hann fylgdist vel með þjóðmálum og því sem hæst bar í heimsfréttunum þótt ekki gæti hann tjáð sig með orðum. Á þeirri stundu datt engum í hug að hann yrði kallaður til ann- arra heima aðeins nokkrum dögum síðar. Það eru um 45 ár síðan ég sá hann fyrst. Loftur var 13 ára, hár og grannur unglingur með bjartan svip og glettni í augum. UndÚTÍtaður gerðist á þeim árum tíður gestur á Hávallagötu 13, aðeins fjóram áram eldri en unglingurinn. Loftur var þriðja barn heiðurshjónanna Bryn- hildar Þórarinsdóttur og Jóns Lofts- sonar, stórkaupmanns, stofnanda og eiganda Jóns Loftssonar hf. Jón var, eins og eldri menn muna, þjóðkunn- ur athafnamaður og brautryðjandi á sviði byggingariðnaðar og verslun- ar. Heimilið á Hávallagötu, þar sem Brynhildur réð ríkjum, var hinn trausti heimur elsku og atlætis á uppvaxtai’áram systkinanna sex sem ólust þai- upp í einstakri um- hyggju Brynhildar og Jóns. Leið Lofts lá í Verslunarskólann og á sumrin vann hann í fyrirtæki föður síns þar sem við áttum sam- leið um skeið. Ég man eftir honum sem sendisveini, í byggingarvinnu, í afgreiðslu, á skrifstofunni og á stóra Mack International, sem var einn glæsilegasti vörabíll þess tíma. Á honum lá leiðin á Snæfellsnesið að vorlagi til að flytja vikurinn úr fjall- inu og ekki ósennilegt að þá hafi tryggð hans við landið undh- Jökli mótast. En skjótt skipast veður í lofti. Jón Loftsson andaðist árið 1958 og var ljóst að Loftur myndi taka við stjórn fyrirtækisins, enda hafði hann síð- ustu árin verið við hlið föður síns við stjórn þess. Mikil ábyrgð var því lögð á herðar hins unga manns er hann á vegum fjölskyldunnar tók við viðamiklum rekstri eins af stærstu fyrirtækjum landsins. Loftur var gæddur athafnaþrá og dugnaði föður síns og lagði á næstu árum í ýmsar nýjungar í verslunarrekstri. Má þar til nefna tilraunir hans með að veiða ál í gildrar og koma honum með flugi á markað í Hollandi. Jafnframt flutti hann til landsins með sama hætti ferska ávexti, sem var nýjung hér á landi. Viðamesta verk hans var þó uppbygging vöruhúss í stórhýsi Jóns Loftssonar við Hringbraut 121 sem opnað var 1972. JL-húsið skyldi það heita í minningu Jóns en það hafði eimitt verið draumur hans að koma á fót alhliða vöruhúsi með byggingaivörar og húsbúnað. Tengsl Lofts við Snæfellsnesið áttu eftir að verða varanleg því þar byggði fjölskyldan glæsilegt hús í landi Hnausa þar sem Snæfellsjök- ull blasti við. Varð það allt til síð- ustu missera hinn eftirsótti griða- staður til hvfldar og uppbyggingar og átti fjölskyldan þar óteljandi ánægjustundir í stórþrotnu en um leið friðsömu umhvei’fí. Það er í fersku minni er við Sirrý komum fyrst í heimsókn og Loftur sýndi okkur landið, ræddi um umhverfið og kraftinn frá jöklinum. Um kvöldið sátum við í turnherberginu og heilluðumst af tign landsins. I mörg ár átti Loftur við erfiða sjúkdóma að stríða og vakti Ásta yfir hverju hans fótmáli til hinstu stundar af ást og kærleika með að- stoð barnanna Jóns og Ingibjargar og systkina Lofts. Ingibjörg, Ágúst og börnin tvö hafa dvalið erlendis um nokkurra ára skeið við nám og störf en á síðustu jólum var fjöl- skyldan sameinuð í síðasta skipti og nutu börn, tengdasonur og barna- börnin samverunnar í ríkum mæli, því einmitt í faðmi fjölskyldunnar átti Loftur sínar bestu stundir. Barnabörnin Sonja Hrund og Ásta Karen voru í miklu uppáhaldi, enda elskuðu þær afa sinn og gerðu sitt til að stytta honum stundirnar og hjálpa honum til að ná heilsunni aftur. Lofts er sárt saknað af fjöl- skyldu, systkinum og mökum þeirra, venslafólki og fjölmörgum samstarfsmönnum í gegnum árin. Margir þeirra minnast hans fyrir örlæti og hjálpsemi en einmitt þessa eiginleika áttu foreldrai’ hans í ríkum mæli. Loftur var trámaður mikill og iðkaði trá sína af einlægni og sann- færingu um langt skeið. í söfnuði kirkjunnar vora þau Ásta aufúsu- gestir og Biblían þeirra stoð og styrkur. Loftur vissi að hverju stefndi og kveið ekki förinni yfir móðuna miklu og var friður og ró yf- ir hægu andláti hans á Landspítal- anum í návist fjölskyldu og systkina. Elsku Ásta og fjölskylda. Við Sirrý og börn okkar sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Megi minningin um elskulegan eigin- mann, föður, tengdaföður og afa ylja ykkur um hjartarætur á ókomnum áram. Blessuð sé minning hans. Ásgeir Guðmundsson. Hann afi var alltaf mjög góður. Það eru ekki margir dagar síðan nánasta fjölskylda Lofts var saman komin í Blikanesinu til að halda upp á 62. afmælisdag hans. Það var óvenjulega bjart yfir honum þenn- an dag þar sem hann sat í stól sín- um og hlustaði og fylgdist með því sem fram fór. Sjúkdómurinn sem á hann herjaði gerði það að verkum að hann var frekar áheyrandi en þátttakandi, en stutt var í brosið ef umræðumar gáfu tilefni til þess. Þegar hugsað er til baka þá eru vafalaust allmörg ár síðan hrörnun- arsjúkdómur sá sem lagði hann að velli gerði fyrst vart við sig. Hægt og bítandi náði hann yfirhendinni á þessum sterka manni. Það var ekki fyrr en síðustu tvö árin sem maður gerði sér raunverulega gi-ein fyrir því að hann gekk ekki heill til skóg- ar. Það var á árinu 1965 sem ég kynntist Lofti fyrst en á því ári steig ég stærsta gæfuspor lífs míns er yngsta systir hans, Gunnhildur, og ég trúlofuðum okkur. Strax gerði ég mér grein fyrir því að verðandi mágur minn var sérstakur maður, dulur og alls ekki allra. En hjartahlýjan var ekki langt undan og þau tvö næstu sumur er ég varð þeimar gæfu aðnjótandi að vinna fyrir hann kynntist ég harðdugleg- um og framsýnum athafnamanni, eiginleikar sem hann átti ekki langt að sækja til föður síns. Þessir eigin- leikar komu sér vel er hann mjög ungur tók við fyrirtæki föður síns að honum látnum. Það kom m.a. í minn hlut að selja notaða bfla, en Loftur hafði verið framkvöðull í því að taka bfla upp í nýja, sem nú er talinn sjálfsagður viðskiptamáti. Hann lagði allt kapp á að hafa umgjörð bílasölunnar að- laðandi og man ég vel eftir því að fólk hafði oft á orði að þarna fyndist því það vera komið inn í alvöra, traustvekjandi bflasölu. Og við- skiptin vora eftir því. Annað verkefni er mér mjög hugleikið en Loftur taldi mikla möguleika í rekstri bílaleigu sem byði upp á ameríska bíla. Var hann búinn að gera góða samninga við bílaframleiðendur þá sem hann var umboðsmaður fyrir. Var mér falið að annast allan undirbúning að gangsetningu þessarar hliðarbú- greinar sem átti mjög vel heima með þeim rekstri sem fyrir var. Ég man eftir því að stuttu eftir að ég hafði látið prenta bæklinga til dreifingar hérlendis og erlendis og allur undirbúningur á lokastigi kom Loftur til mín og tjáði mér að hann þyrfti þvf miður að hætta við allt saman þar sem leigubflstjórar, sem voru þá stórir viðskiptavinir Jóns Loftssonar hf., kröfðust þess að hann hætti við þessi áform sín þar sem slík bílaleiga myndi hafa veruleg áhrif á þein-a viðskipti. Þetta eru aðeins dæmi um fram- sýni Lofts. Margar nýjungar sem mörkuðu tímamót kom hann með í tímans rás en aðrir kunna betri skil á þeim en ég. Ásta mín, Jón, Ingibjörg, Ágúst, hnáturnar tvær sem og Sirrý, Kata, Gulla og Þórarinn. Eg bið góðan Guð að styrkja ykkur og blessa í ykkar miklu sorg. Eftir lifir minn- ingin um góðan dreng. Gunnar M. Hansson. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR KRISTBJÖRNSSON, Víðivöllum 14, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju á morgun, föstudaginn 30. apríl, kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Halldóra Kristrún Hjörleifsdóttir. t Hjartans þakkir færi ég frændum og vinum, venslafólki, kunningjum, nemendum, félögum og fyrirtækjum fyrir auðsýnda samúð við and- lát og útför INGVARS KRISTINS ÞÓRARINSSONAR. Sérstakar þakkir sendi ég starfsfólki sjúkra- hússins á Húsavík fyrir einstaka hlýju og um- önnun. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Björg Friðriksdóttir. + Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR H. SIGURÐSSONAR, Hólmagrund 13, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á deild 5 við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki fyrir góða umönnun og vinsemd. Sigurlaug Magnúsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Unnur Elfa Guðmundsdóttir, Jón Viðar Magnússon, Alfa Lára Guðmundsdóttir, Guðmundur Víðir Guðmundsson, Sigurlaug Rún Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.