Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 72
ThinkPad Aðsendar greinar á Netinu MeHseldo og vetölauimðo laitölva iheimimim <0> NÝHERJI S: 569 7700 #mb l.is ALLTAf= eiTTH\SAÐ A/YT7 MOROUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Um 1200 litrar af áfengi fundust í Hvítanesinu í Hafnarfírði Ellefu handteknir vegna smyglmáls TOLLGÆSLAN í Hafnarfirði, rík- istollstjóri, Tollgæslan í Reykjavík og lögreglan í Hafnarfírði yinna að rannsókn máls sem tengist innflutn- ingi á um 1200 lítrum af sterku áfengi sem flutt var til landsins í fíutningaskipinu Hvítanesi. Ellefu manns voru handteknir í gær og yf- irheyrðir vegna málsins, þar af níu manna áhöfn skipsins. Tollgæslan í Hafnarfírði hafði fylgst með skipinu frá því að það kom til landsins á mánudag og lét til skarar skríða snemma í gær- morgun. Um 1200 lítrar af áfengi fundust um borð, en skipið, sem er í eigu SÍF, var að koma frá Torrevie á Spani. I áhöfn skipsins eru Pólverjar og Islendingar og voru skipverjar færð- ir til yfirheyrslu til lögreglunnar í Hafnarfirði. Búist var við að yfir- heyrslur stæðu yfír fram eftir nóttu. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfírði hafa tveir menn auk áhafnarinnar verið handteknir vegna málsins og voru þeir einnig yfirheyrðir í gær. Grunsemdir um smygl um nokkurt skeið Að sögn tollgæslunnar hafði hún haft vissar grunsemdir um nokkurt skeið um að smygl væri um borð og lét til skarar skríða í morgunsárið í gær þegar verið var að lesta skipið til brottfarar. Leit var hætt að sinni um borð í skipinu skömmu fyrir klukkan 22 í gærkvöldi. Síðustu tvær viðkomuhafnir skipsins áður en það kom til íslands voru á Spáni, en skipið sinnir eink- um saltútflutningi til Spánar og Portúgals. Rúmar sjö vikur eru síðan stórt smyglmál kom upp í Reykjavík þeg- ar um 700 lítrar af áfengi fundust í Goðafossi, skipi Eimskipafélagsins, auk bjórs og vindlinga. Pað mál er enn í rannsókn lögreglunnar í Reykjavík. Mj altavélmenni í íslensk fjós NÝ TÆKNI í mjöltum gæti á næstu árum gjörbreytt vinnu kúabænda. Hópur Islendinga kynnti sér þessa nýju tækni, mjaltavélmenni, í Hollandi í síðasta mánuði. Þóroddur Sveinsson, forstöðumaður Til- raunabúsins á Möðruvöllum, hefur kynnt mjaltavélmennin í Eyjafirði að undanförnu og segir hann áhugann mikinn. Búnaðurinn með öllu tekur um 15 fermetra gólfpláss. Eitt tæki annar um 60 mjólkandi kúm sem að meðaltali eru mjólkaðar þrisvar á dag. Arm- ur tækisins fer undir kúna og þvottabúnaður strýkur af spenanum, þá setur armurinn hylki á spenana, en sérstakur geislaskynjari finnur þá. Vinnusparnaður er veruleg- ur með þessari mjaltatækni og vinnutími frjálsari, þar sem bændur eru ekki bundnir föst- um mjaltatímum. Eftirlit og skráning á upplýsingum er vel skipulagt, kýrnar hafa sérstök merki um hálsinn sem gerir tækinu kleift að þekkja hvaða kýr er að koma til mjalta hveiju sinni. Hollenskur mjaltabúnaður af þessari gerð kostar um 12 milljónir króna. Allt stefnir í að fyrstu tækin komi hingað á næsta ári. Benedikt Hjaltason, bóndi á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit, var með í Hollandsferðinni og sagðist hann hafa mikinn áhuga á að kaupa mjaltavél- menni. „Eg er að at.huga mál- ið, þetta kostar mikið,“ sagði Benedikt. Faghópur heilbrigðis- ráðuneytis Tillaga um að leggja niður stjórnir í SKÝRSLU faghóps heilbrigðis- ráðuneytisins um málefni sjúkrahúsa er því varpað fram hvort nauðsyn- legt sé að sjúkrastofnanir hafí sér- staka stjórn, hvort ekki sé nægilegt að forstjóri og framkvæmdastjómir beri fulla ábyrgð á rekstrinum gagn- vart eiganda. Davíð A. Gunnarsson, ráðuneytis- stjóri heilbrigðisráðuneytisins, sagði þessa hugmynd hafa komið nokkrum sinnum til umræðu og ætti hún við um stjórnir í fyrirtækjum ríkisins al- mennt en ekki aðeins sjúkrastofnan- ir. Taldi hann nokkuð skiptar skoð- anir um þessa hugmynd og sagði þetta atriði vera til skoðunar um þessar mundir, eins og önnur atriði skýrslunnar. Faghópurinn tók til athugunar fjölmörg atriði varðandi fjárveiting- ar til sjúkrahúsa, rekstraráætlanir, þjónustusamninga og verkaskipt- ingu. í kafla um skipulag og stjórnun er lagt til að lög um heilbrigðisþjón- ustu verði endurskoðuð meðal ann- ars með tilliti til skipunar og hlut- verks stjóma og flokkunar sjúkra- húsa eftir tegund og þeirri þjónustu sem þeim er ætlað að veita. Bent er á að sjúkrastofnanir landsins séu fjölmargar og að eðli- legt þyki að heilbrigðisráðherra skipi meirihluta stjórnarmanna og fylgi seta stjórnarmanna starfstíma ráðherra. Síðan segir í skýrslunni: „Vaxandi efasemdir em um hvort að hlutverk þeirra við núverandi kringumstæður sé raunhæft og er stjórnarmönnum í raun gert erfitt fyrir að sinna hlutverkum sínum sem skyldi. Alþingi skipar fulltrúa í stjórn ríkisspítala en á jafnframt að gegna eftirlitshlutverki um rekstur spítalans. Eiga sveitai’félögin að skipa í stjórn sjúkrastofnana á veg- um ríkisins? Er nauðsynlegt að hafa þennan millilið, er ekki nægilegt og jafnvel nauðsynlegt að forstjóri og framkvæmdastjórnir stofnananna beri fulla fjárhagslega og faglega ábyrgð á rekstrinum gagnvart eig- endum stofnananna?“ Morgunblaðið/Ásdís TOLLGÆSLAN leitaði í Hvítanesi í Hafnarfjarðarhöfn fram til klukkan 22 í gærkvöldi. Ellefu manns voru handteknir vegna smyglmálsins í gær. * Urvalsvisitala aðallista Verðbréfaþings lækkaði um 2,73% Bréf í 21 hlutafélagi lækkaði í verði í gær Varnarliðsflutningar Útboð innan tíu daga VONIR standa til að útboð vegna vamarliðsflutninganna verði eftir tíu daga eða jafnvel skemur, að sögn Williams Merrigan, lögfræðings hjá flutn- ingadeUd bandaríska hersins. I viðtali í gær við Stefán Kjæmested, framkvæmdastjóra Atlantsskipa ehf., kom fram að flutningadeild Bandaríkjahers hefði ákveðið að fresta útboði þar tU deUur íslensku skipafé- laganna hefðu verið leystar. Merrigan var ósammála þeirri skoðun Stefáns Kjæmesteds að útboðið gæti hugsanlega dregist í nokkur ár. ■ Útboð/C4 ÚRVALSVÍSITALA aðallista Verð- bréfaþings íslands lækkaði um 2,73% í gær, sem er næstmesta lækkun sem átt hefur sér stað á ein- um viðskiptadegi frá því að þingið tók til starfa. Mesta lækkunin átti sér stað á síðasta ári, er vísitalan lækkaði um 2,76%. Á aðallista lækkaði gengi bréfa í 21 hlutafélagi í gær en fjögur stóðu í stað. Einungis tvö félög hækkuðu í verði, Opin kerfi um 1,0% og Búnað- arbanki Islands um 0,3%. Hlutabréf Baugs voru skráð á aðallista Verð- bréfaþings í gær. Viðskipti með bréf félagsins námu tæplega 12 mUljón- um króna. Engin breyting varð á markaðsvirði Baugs sem endaði í genginu 10. „Andrúmsloft á hlutabréfamörk- uðum hefur breyst mjög á skömmum tíma. Fyrir tveimur til þremur vik- um voru allir reiðubúnir að kaupa, en núna er mikið framboð af bréfum á markaðnum og fæiri sem bera sig eftir þeim sem leiðir til verðlækkun- ar,“ segir Almar Guðmundsson hjá markaðsviðskiptum Fjárfestingar- banka atvinnulífsins. Lækkun úr- valsvísitölu Verðbréfaþings Islands nemur 4,1% á tólf daga tímabili frá 16. apríl til 28. apríl. Frá byrjun jan- úar á þessu ári til 16. apríl hafði úr- valsvísitalan hækkað um 10,7%. Tryggvi Tryggvason, forstöðu- maður markaðsviðskipta hjá við- skiptastofu Landsbankans, segist telja að þessi þróun til lækkunar hlutabréfaverðs geti jafnvel haldið áfram næstu vikur og mánuði. „Ef milliuppgjör fyrirtækja gefa tilefni til bjartsýni gæti það eitthvað breyst, en að óbreyttu finnst mér fleira benda til þess að þetta haldi áfram heldur en að þróunin snúist við. En hér er ég að tala um markað- inn í heild þótt ég sé einna svartsýn- astur á sjávarútvegsfyrirtækin," sagði hann. ■ Ástæðan/C2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.