Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Umhverfísverkefni ungmenna vekur athygli í Þorlákshöfn Jón H. Sigurmundsson HLUTI hópsins við skilti sem sett var upp við íþróttamiðstöð Þorlákshafnar. vinna hefði farið að mestu leyti fram í myndmenntatímum hjá Þórhildi Helgu síðan hlupu þær á brott til að festa upp fleiri spjöld. Þeir Finnur og Stefán sem voru á fullu að hjálpa smíðakennaran- um að festa upp spjöld, sögðu að upphaflega hefði verið ákveðið að búa til 8 spjöld en þegar búið var að selja þau upp hefðu komið ósk- ir frá atvinnurekendum um önnur 8 þannig að þeir héldu að nú væri búið að búa til 16 spjöid. Þeir sögðu að áróðurinn hefði greini- lega góð áhrif því nú sæist varla nokkur bíll í lausagangi fyrir utan verslanir og fyrirtæki, og allir töl- uðu um þetta átak á jákvæðan hátt. Dagur umhverfisins Skólanefnd Grunnskólans í Þor- lákshöfn samþykkti á fundi ný- lega að skora á alla Þorlákshafn- arbúa að leggja bflum sínum og ganga eða hjóla síðasta sunnudag á degi umhverfisins. Með þessu vildi skólanefndin sýna nemend- um 9. bekkjar Grunnskólans í Þorlákshöfn stuðning í verkefni og viðleitni til að sporna gegn óþarfa mengun. Auk þess að vekja fólk til aukinnar umhugsun- ar um umhverfi sitt. Þorlákshöfn - Undanfarnar vikur hafa nemendur 9. bekkjar Grunnskólans í Þorlákshöfn unn- ið að verkefni sem miðar að því að draga úr óþarfa mengun af völdum bfla sem ganga lausa- gang. Hugmyndin er að vekja bæjarbúa til umhugsunar um umhverfi sitt og ekki væri verra ef áhrifin næðu út fyrir bæjarfé- lagið. Markmiði sínu hyggjast börnin ná með því að setja upp vegg- spjöld á verslanir og önnur fyrir- tæki víða um bæinn og hvetja bif- reiðaeigendur til að drepa á bfl- um sínum. „Umræðan hófst í tíma hjá umsjónarkennara okkar, henni Ástu Júlíu,“ sögðu þeir Brynjólfur, Ævar og Svanur þeg- ar fréttaritari tók þá tali. „Skóla- stofan okkar snýr út að bflastæð- unum og í hægri norðanátt leggur mengunarfýluna inn um opna glugga.“ Strákarnir sögðu að fljótlega hefði komið upp sú hugmynd að búa til áróðursspjöld til að festa upp víða um bæinn. Krakkarnir heimsóttu vinnustaði og kynntu átak sitt. Atvinnurekendur tóku yfirleitt vel í hugmyndina og pöntuðu sumir tvö spjöld á sitt húsnæði að sögn strákanna. Varla nokk- ur bíll í lausagangi lengur Samstarf þriggja fagkennara „Umsjónarkennarinn okkar fékk smíða- og myndmenntakenn- ara skólans til að vinna með okk- ur,“ sögðu þær Eva Dögg, Mar- grét og Eva Rún. Þær sögðu að verkefnið hefði verið mjög skemmtilegt og fræðandi, auk þess væri greinilegt að það skilaði jákvæðum árangri. í upphafi fór fram hugstormun í íslenskutíma um slagorð, sum var hægt að nota beint, önnur varð að laga til og nokkrum var steypt saman í eitt. I smíðatimum voru búin til spjöld úr krossviði, söguð og slípuð. Myndir og textar voru ýmist hannaðir í tölvu eða á blaði. Síðan var útkoman brennd á glærur og varpað með myndvarpa á spjöld- in. Stúlkurnar sögðu að þessi Félag skógarbænda á Vesturlandi heldur aðalfund Tíu bændur eru byrjaðir að rækta skóg Reykholti - Um 45 manns mættu á annan aðalfund Félags skógai’bænda á Vesturlandi sem haldinn var í Reykholti. Félagið er nú tæplega tveggja ára gamalt og hefur vaxið ört á þeim tíma, og nú eru í því lið- lega 90 eigendur eða ábúendur lög- býla. Sigvaldi Ásgeirsson, formaður fé- lagsins, sagði í samtali við Morgun- blaðið að tíu bændur á Vesturlandi væru þegai- byrjaðir að rækta skóg. Þetta er síðasti landsfjói'ðungurinn til að hrinda í framkvæmd þessu verkefni og byggir því á reynslu hinna þriggja, og mun bændur fyrst og fremst fara í smiðju til Suður- landsskóga með framtíðaráform. Sigvaldi starfar sem skógfræðing- ur hjá Skógrækt ríkisins að Mógilsá, en er jafnframt skógarbóndi á Vil- mundarstöðum í Reykholtsdal þar sem hann hóf ræktun á skógi fyrir fimm árum. Hann segir að skilyi-ðin á Vesturlandi séu talin best í innan- verðum Hvalfirðinum og í suðurdöl- um Borgarfjarðar. Unnið er með ýmsar trjátegundir en mest áhersla er lögð á ræktun sitkagrenis og stafafuru. Reiknað með 20-30 ársverkum innan nokkurra ára Tímamót urðu í starfsemi félags- ins um miðjan mánuð þegar Guð- mundur Bjarnason landbúnaðarráð- herra skipaði þriggja manna starfs- hóp til að undirbúa Vesturlands- skóga. En Sigvaldi segir að verið sé að leita fjármagns til að gera fram- tíðaráætlanir raunhæfar. „Það hefur staðið nokkuð í vegi fyrir okkur að úttekt á landi er ekki frágengin fyrir þetta svæði, og því þurfum við að taka mið af 25 ára gamalli úttekt á skógræktarskilyrðum. Á aðalfundin- um var samþykkt samhljóða ályktun um úttekt á skilyrðum til skógrækt- ar þar sem skorað er á alþingi að tryggja fé til að ljúka landsúttekt á næstu tveimur árum. Ræktun nytjaskóga í þessari mynd fjölgar störfum og styrkii' ^ Morgunblaðið/Sigríður SIGVALDI Ásgeirsson á Vil- mundarstöðum við lundinn. byggð í dreifbýli, en við væntum þess að á fimm árum vaxi umfang verkefnisins og nái allt að 20-30 árs- verkum í heildina, sem dreifast muni á margfalt fleiri aðila. Þetta getur því orðið heppileg viðbót íyrir bænd- ur með kvótalitlar jarðii'." Á fundinum var einnig samþykkt samhljóða ályktun um mikilvægi skógræktai- í bindingu koltvísýrings, þar sem fundurinn „telur mikilvægt að íslendingar skrifi undii’ og full- gildi Kyoto-samninginn um varnir gegn loftslagsbreytingum af manna- völdum, svo að íslendingar megi verða fullgildir þátttakendur í loka- ferli samningsins, þar sem m.a. verð- ur tekist á um nánari útfærslu á þætti skógræktar í kolefnisbindingu og umbun greinarinnar fyrir þetta mikilvæga hlutverk sitt“. Að auki var ályktað um gjald á jarðefnaeldsneyti og sérstakt mer.gunargjald á stór- iðjuver. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson KRAKKAR úr Flúðaskóla héldu tombólu til að (jármagna Eyjaferð. Tombóla til styrkt- ar tónleikaferð Opið hús hjá Samvinnuháskólanum á Bifröst Morgunblaðið/Sigríður SKRIFAÐ undir afsal við afhendingu sumarhúss fyrrverandi nem- enda: Sigrún Jóhannesdóttir, Vilhjálmur Þór yilhjálmsson, formaður skólafélagsins, Árni Geir Þórmarsson og Ágúst Jónatansson. Hrunamannahreppi - Krakkar úr Flúðaskóla seldu blóm og héldu tombólu við verslunina Grund á Flúðum einn góðviðrisdaginn fyrir skemmstu. Börnin voru að safna fyrir Vestmannaeyjaferð og söfn- uðu vel en einstaklingar og fyrir- tæki í sveitinni styrkja einnig ferðina. Þangað ætla þau að fara 1. maí og gista í heimahúsum eina nótt. Það eru þriðja til áttunda bekkja nemendur sem fara í ferðina, alls 45. Þetta er barnakór og nemendur úr Flúðadeild Tónleikaskóla Ár- nesinga, með þeim verða í fórinni 7 fullorðnir. Sóknarnefnd og barna- kór Landakirkju taka á móti kóm- um. Bamakórinn syngur við messu í Landakirkju kl. 14 á sunnudaginn og heldur tónleika kl. 15. Þá er meðal annars á dagskránni að kíkja á Keikó og líta á hvernig hann hefur það í kví sinni. Er mikil tilhlökkun meðal bamanna að sjá þennan heimsfræga hval. Skóflu- stunga tek- in að sund- laugarsvæði Reykholti-Á árlegum kynningar- degi Samvinnuháskólans á Bifröst um helgina var tekin fyrsta skóflustungan að nýju sundlaugar- svæði sem á að hefja framkvæmdir við á næstunni. Árni Geir Þórmars- son, fyrrverandi formaður nem- endasambandsins, tók skóflustung- una, en reiknað er með að fyrsta áfanga framkvæmdanna, setlaug og vaðlaug, verði lokið fyi’ir sumar- ið, með tengingu við búningsklefa sem fyrir em í húsnæði skólans. I framhaldi af því verður svo byggð sundlaug. Hugmyndir hafa verið uppi í all- mörg ár um sundlaug og útivistar- svæði og hafa fyrrverandi og nú- verandi nemendur við skólann safnað fé til þessara framkvæmda, en háskólinn hefur átt mjög gott og vaxandi samstarf við eldri nem- endur. Við þetta tækifæri afhenti Sigrún Jóhannesdóttir, formaður Nemendasambands Samvinnu- skólans og Samvinnuháskólans - Hollvinasamtaka, lykla að sumar- húsi sem verið hefur í eigu sam- takanna, en ætlunin er að andvirði hússins renni í byggingu sundlaug- arinnar. Til sýnis á þessum degi voru einnig nýir kennarabústaðir sem verið er að taka í notkun, en um er að ræða fjórar 3^4 herbergja fjöl- skylduíbúðir í raðhúsi. ! í \ |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.