Morgunblaðið - 29.04.1999, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
h
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Oddur Sigurðsson
HORFT til vesturs að jökulbrún Langjökuls sem skríður fram rétt innan við Jarlhettur.
Foreldrafélag geðsjúkra barna vekur athygli á vanda þeirra
Léleg þjónusta bitnar
á geðheilsu foreldra
Langjök-
ull skríð-
ur enn
fram
FRAMHLAUP heldur enn
áfram í suðurhluta Langjökuls,
nánar tiltekið í eystri Haga-
fellsjökli, en þess varð vart á
iiðnu hausti. Oddur Sigurðsson
jarðfræðingur, sem flaug yfir
jökulinn nýverið, teiur að hann
eigfi eftir innan við einn kfló-
metra fram á jökulsporðinn og
að hann gæti skriðið út í Haga-
vatn og geti þá valdið flóði.
Hreyfíngar jökulsins hafa
verið rannsakaðar síðustu tvö
árin. Helgi Björnsson jökla-
fræðingur, sem annast þær,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið á síðastliðnu hausti að búast
mætti við framskriði næstu
mánuði sem nú er komið á dag-
inn, að því er Oddur kveðst
hafa séð er hann flaug tvisvar
yfir jökulinn í síðustu viku.
Oddur segir engar almennt
viðurkenndar skýringar á fram-
hlaupi jökla, það sé eitt af
leyndarmálum jöklafræðinnar.
Það sé óháð veðurfari, eldsum-
brotum, jarðskjálftiun en talið
hugsanlegt að breytingar á
vatnsrásum og vatnsþrýstingi
undir jökli geti valdið því að
hann fari af stað.
Hlaupi jökullinn fram í Haga-
vatn gæti komið flóð í Sandá og
Hvítá en Ijóst er að aurburður
mun aukast mjög í afrennsli
jökulsins og óttast laxveiðimenn
til dæmis neikvæð áhrif þess á
lífríkið í Hvítá.
FORELDRAFÉLAG geðsjúkra
barna boðaði til fundar með fram-
bjóðendum þar sem athygli þeirra
var vakin á málefnum og aðstæðum
geðsjúkra bama. Með fundinum
vildi félagið vekja athygli á málstað
félagsins og voru t.a.m. sagðar
þijár dæmisögur úr daglegu lífi
geðsjúkra bama. Fram kom á fund-
inum að samkvæmt niðurstöðum
nýrrar rannsóknar eru lífsgæði for-
eldra, sem bíða eftir þjónustu fyrir
börnin og geðheilsa mæðranna, í
allt að helmingi tilfella slæm.
í fyrrnefndum dæmisögum kem-
ur m.a. eftirfarandi fram:
„Ellefu ára gamalt bam sem
greint er geðsjúkt, kveikir í sér við
eldhúsborðið heima hjá sér. Það er
alvarlega veikt og ætti að komast
strax inn á sjúkrahús en þarf að
bíða í 18 sólarhringa eftir plássi. Ef
barnið hefði verið fótbrotið hefði
það aldrei þurft að bíða í 18 sólar-
hringa!
Ellefu ára gamalt barn er greint
geðsjúkt og er þunglynt, gerir
margar sjálfsmorðstilraunir sama
daginn. Algert neyðarástand -ríkir,
það verður að koma barninu inn á
spítala, en það er sunnudagur og
BUGL er lokuð! (Bömin okkar
geta ekki verið veik á rauðum dög-
um)! Að lokum vom barnið og faðir
þess lögð inn á fullorðinsdeild
Landspítalans í tæpan sólarhring.
A mánudagsmorgni er útskrifað af
BUGL svo hægt sé að taka bráða-
tilfelli inn. Hefði barnið verið með
bráða botnlangabólgu hefði vart
„Börnin okkar
geta ekki verið
veik á rauðum
dögum“
talist eðlilegt að leggja inn á hjarta-
deild og bíða eftir að skurðstofan
yrði opnuð á mánudagsmorgni."
90 börn á biðlista
Að sögn Jennýjar Steingríms-
dóttur, forsvarsmanns Foreldrafé-
lags geðsjúkra barna, var félagið
stofnað fyrir um mánuði. Um 50
foreldrar eru þegar skráðir í félagið
og era helstu markmið þess að
kynna málstað foreldra geðsjúkra
barna og berjast fyrir bættri að-
stöðu þeirra. Jenný segir að
ástandið sé hrikalegt og nauðsyn-
legt sé að finna úrræði í þessum
málum sem fyrst. Segir hún nauð-
synlegt að komið verði á fót bráða-
móttöku og fleiri innlagnarplássum,
sérhæfður skóli taki til starfa, lang-
tíma meðferðarúrræði verði fundin,
.stofnað verði til hvíldarvistunar og
verði spítalinn opinn alla daga árs-
ins. „Við viljum einnig fá að vera
með í nýja barnaspítalanum, að
tryggingalöggjöfin verði skoðuð
sérstaklega fyrir þennan hóp og
stuðningur inn í almenna skóla
verði stórefldur,“ segir Jenný.
Jenný bendir á að 90 börn séu á
biðlista eftir að komast inn á al-
menna deild. Hún segir að þessi
börn séu ííklar framtíðarinnar og
bregðast verði skjótt við eigi að
bjarga þeim frá því að fara út í eit-
urlyfjaneyslu.
Að sögn Jennýjar tóku frambjóð-
endur vel í hugmyndir félagsins og
segir hún það einlæga trú félagsins
að veraleiki foreldra breyttist ef
stjórnvöld tækju málefni þessa
hóps upp á arma sína. Aðalfundur
Foreldrafélags geðsjúkra barna
verður haldinn þriðjudaginn 4. maí
á bama- og unglingageðdeild Land-
spítalans, Dalbraut 12.
Geðheilsa helmings
mæðra slæm
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir-
læknir barna- og unglingageðl-
deildar Landspítalans, segir stofn-
un félagsins mikið framfararspor
og nauðsynlegt að rödd þeirra sem
fái ónóga þjónustu heyrist, og fylli-
lega tímabært að þessar raddir nái
eyram yfirvalda.
Ólafur tók undir með Jennýju
um þá þjónustu sem vantar til þess
að vandamálum geðsjúkra barna
yrði sinnt eins'og nauðsynlegt er.
Þá benti hann á niðurstöður nýrrar
rannsóknar sem sýndi að slæmt
ástand er farið að bitna á geðheilsu
foreldra.
„Niðurstöður nýrrar rannsóknar
sýna að lífsgæði foreldra sem bíða
eftir þjónustu og geðheilsa mæðr-
anna er, í allt að helmingi tilfella,
slæm. Það er mjög brýnt að bregð-
ast við því hverjum þetta kemur
niður á,“ sagði Ólafur.
Mjdlkinn- f
kölluð
vegna
bragðgalla
MJÓLKURBÚ Flóamanna þurfti ||
að innkalla nokkur hundrað lítra af w
mjólk vegna bragðgalla, sem fannst
við eftirrannsókn. Mjólkinni hafði
verið dreift um svæðið austur af Vík.
Birgir Guðmundsson mjólkurbús-
stjóri sagði að ákvörðunin hefði alfar-
ið verið í höndum Mjólkurbúsins, því
ekki hefði borist nein kvörtun vegna
þessa. Hann sagði að eftirlit og
gæðakröfur væra alltaf að verða k
strangari og að eftir svokallaða eftir-
rannsókn hefði verið ákveðið að inn- m
kalla mjólk sem dagsett var á mánu- p
daginn. Hann sagði að eftirrannsókn-
in færi þannig fram að eftir pökkun
væri mjólkin geymd við hátt hitastig
og síðan rannsökuð tveimur dögum
seinna, en þá kom í Ijós að það vott-
aði fyrir bragðgalla í mjólkinni.
Birgir sagði að bragðgallar á
mjólk fylgdu oft fóðurbreytingum
og sérstaklega væri það algengt á |
haustin, þegar kýr væru settar inn.
Hann sagði þetta þó geta gerst all- 1|
an ársins hring.
Birgir sagði málið í raun léttvægt
og efaðist um að nokkur hefði fund-
ið sérkennilegt bragð, en sagði fyr-
irtækið setja sér mjög strangar
kröfur og því hefði verið ákveðið
kalla mjólkina inn. Birgir sagði fjár-
hagslegt tjón mjólkurbúsins óveru-
legt enda sagði hann það ekki
skipta máli heldur væri öryggi neyt- |
endanna fyrir öllu.
----------------
Mýrdalshreppur
Sýknaðir af
ákæru vegna
lausagöngu
hrossa |
FIMM ábúendur í svokallaðri Sól-
heimatorfu í Mýrdalshreppi í V-
Skaftafellsýslu voru sýknaðir af
ákæra sýslumanns í Héraðsdómi
Suðurlands á þriðjudag. Var
ákærðu gefið að sök að hafa ekki
haft hross sín í öruggri vörslu,
þannig að þau gengu margoft, um
það bil 30 saman, laus við þjóðveg
nr. 1, þar sem hann liggur fyrir neð-
an bæinn Framnes í Mýrdals- %
hreppi, á tímabilinu frá 1. ágúst f
1998 til 26. október 1998.
í dóminum segir að beitiland
þeirra sjö bæja sem teljast til Sól-
heimatorfunnar sé afgirt og að það
sé í óskiptri sameign eigenda torf-
unnar, en þjóðvegurinn liggi yfir
beitarlandið. I 37. gr. vegalaga nr.
45/1994 segir að sé vegur lagður
gegnum girt beitiland skuli veg- k
haldari girða báðum megin vegarins
eða leggja ristarhlið ásamt grindar- |
hliði ef hann telur það hentugra.
Taldi dómurinn m.a. að veghald-
ara, þ.e. Vegagerð ríkisins, hafi bor-
ið að girða veginn eins og gert sé
víða um land.
í framburði ákærðu kom fram að
það væri tvímælalaust í þeirra huga
að veghaldara bæri skylda til að
girða meðfram þjóðveginum, en
Vegagerð ríkisins hafi hins vegar L
aldrei haft samband við þá vegna |
þess.
------♦-♦-♦-----
Harður árekstur
í Hafnarfírði
TVEIR vora fluttir á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir harð-
an árekstur tveggja bifreiða á mót-
um Flatahrauns og Bæjarhrauns í 1
Hafnai-firði skömmu eftir klukkan
14 í gær.
Að sögn læknis á slysadeild voru J
meiðsl hinna ekki alvarleg. Bifreið-
imar skemmdust töluvert og voru
íluttar á brott með kranabifreið.
heimilisbankinn
a rettri
ókeypis aðgangur til ársins 2000
® ®BÚNAÐARBANKINN
S k í in a
mánaða
internettenging fylgir
Traustur honki