Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar
Mikið rót á kúabændum
Sýning
á kirkju-
munum
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
HEIGI Steinsson, bóndi á Syðri-Bægisá, veitti viðurkenningunni við-
töku úr hendi Guðmundar Steindórssonar.
Lögreglu- og slökkviliðsmenn köfuðu
niður að bíl í Sandgerðisbót
Ekki um annað að
ræða en stinga sér út
*
í
ÞRÍR menn, tveir lögreglumenn
og einn slökkviliðsmaður, stungu
sér í sjóinn við Sandgerðisbót í
fyrrakvöld en þá hafði bíll lent í
sjónum. Ökumaður var einn í
bflnum og komst hann sjálfur út.
Hann var í mikilli geðshræringu
eftir atburðinn og þótti því ekki
annað óhætt en að athuga hvort
fleiri hefðu verið í bílnum að sögn
varðstjóra lögreglunnar á Akur-
eyri.
Annar lögreglumannanna,
Friðrik Sæmundur Sigfússon,
var hætt kominn en líkamshiti
hans mældist 26 gráður þegar
hann kom upp úr sjónum. Lík-
amshiti hinna mannanna, Kjart-
ans Helgasonar lögreglumanns
og Ingimars Eydal slökkviliðs-
manns, var 32 gráður. Allir voru
mennimir fluttir á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri.
Skjálfandi af
kulda undir sæng
„Við Kjartan komum fyrstir á
staðinn og Ingimar skömmu
seinna. Það sást í skottlokið á
bílnum, en hann seig hægt niður.
Við fengum þær upplýsingar að
enginn hefði farið út úr bílnum og
því var ekki um neitt annað að
ræða en stinga sér út í,“ sagði
Friðrik. Farið var að dimma þeg-
ar atburðurinn varð og sagði
Friðrik að lítið hefði sést niðri í
sjónum.
„Sjórinn var mjög kaldur en
við gátum með herkjum opnað
bflinn og þreifað á sætunum og
gengið þannig úr skugga um að
enginn væri þar inni. Við fengum
svo öruggar upplýsingar um að
ökumaður hefði verið einn í bíln-
um og þá fórum við á land, við
vildum ekki yfirgefa bílinn íyrr
en við væram öruggir um að eng-
inn væri í honum,“ sagði Friðrik.
Hann kom heim af sjúkrahús-
inu síðdegis í gær og sagðist vera
mjög slappur. „Ég verð sjálfsagt
einhverja daga að ná í mig hita,“
sagði hann, „en það sem skiptir
auðvitað mestu, er að enginn
slasaðist í þessu óhappi, það er
mest um vert.“
Gistirýmum fjölgar á Akureyri
Reyklaust gisti-
heimili opnað
í göngugötunni
Morgunblaðið/Kristján
HJÓNIN Erling Ingvason, t.v., og Margrét Thorarensen ræða við Þór-
arin Arinbjarnarson yfirsmið í húsnæði Gistiheimilis Akureyrar við
Hafnarstræti. Margrét heldur á dóttur sinni, Sunnu Björk, sem vildi
alls ekki horfa til ljósmyndarans.
AÐALFUNDUR Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar var haldinn á
Sveitahótelinu í Sveinbjarnargerði
í vikunni. Fram kom í máli Sigur-
geirs Hreinssonar á Hríshóli, for-
manns BSE, að í samningi sem
gerður var milli ríkisvaldsins og
Bændasamtaka Islands verði ráðu-
nauta- og ráðgjafarþjónusta færð á
fimm leiðbeiningarmiðstöðvar víðs-
vegar um land.
Sigurgeir sagði að stjórnin hefði
velt fyrir sér hvort taka ætti upp
samvinnu við önnur búnaðarsam-
bönd eða ráðgjafarþjónustu sem
starfað hefur á öðram vettvangi,
hvort komi til greina að tengjast
Háskólanum á Akureyri á einhvern
hátt eða ná meiri tengslum við
Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins.
Sigurgeir sagði að mikil um-
ræða hefði farið fram í stjórninni
um breytingar á afurðavinnslu á
Norðurlandi. Þá er helst átt við
sameiningu afurðastöðva og
breytingu yfir í hlutafélag. A fundi
með forsvarsmönnum KEA var
fyrirhuguðum breytingum á
rekstrarformi KEA fagnað, en
einnig lögð áhersla á „að tryggja
áhrif og aðkomu bænda að stofnun
Unglinga-
kór í söng-
ferð um
Norðurland
UNGLINGAKÓR Selfosskirkju
syngur á þremur stöðum norðan-
lands um helgina. Kórinn syngur á
Kirkjulistarviku í Akureyi’arkirkju
á morgun, fostudag, kl. 17.15 og í
Vesper, aftansöng, í kirkjunni kl.
18.
Laugardaginn 1. maí heldur kór-
inn tónleika í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit kl. 20.30 og sunnudaginn
2. maí kl. 15 í félagsheimilinu Hnit-
björgum, Raufarhöfn. Tónleikamir
þar era sérstaklega tileinkaðir
minningu systranna Guðrúnar og
Auðar Jónsdætra.
A efnisskrá kórsins eru fjölbreytt
kirkjuleg verk, íslensk þjóðlög og
vorlög. Einnig syngja nokkir kórfé-
lagar einsöng og tvísöng.
I kórnum eru 25 stúlkur á aldrin-
um 12-17 ára. Stjórnandi kórsins er
Margrét Bóasdóttir og píanóleikari
er Lára Rafnsdóttir.
----------------
Jesus Christ
Superstar
sýnd í
Borgarbíói
AF óviðráðanlegum orsökum verð-
ur að fresta sýningu á kvikmynd-
inni Jesus Christ Superstar sem
vera átti í kvöld, fimmtudagskvöld,
en hún verður þess í stað sýnd á
sunnudag, 2. maí, kl. 17 í Borgar-
bíói.
Þetta er ein af stórmyndum átt-
unda áratugarins, var framsýnd
árið 1973 og naut mikilla vinsælda.
Hún er byggð á söngleikshandriti
að rokkópera eftir Tim Rice. Tón-
listina samdi Andrew Lloyd
Webber og André Previn sá um
tónlistarstjóm.
Myndin var kvikmynduð í heild á
söguslóðum Biblíunnar í Israel, en
hún lýsir síðustu ævidögum Jesú
Krists, svikráðum og krossfestingu
frá sjónarhóli Júdasar.
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
stendur að sýningunni sem er liður
í Kirkjulistaviku sem nú stendur
yfir í Akureyrarkirkju.
og rekstri fyrirtækisins með eign-
arðaild".
Guðmundur Steindórsson ráðu-
nautur sagði í ræðu sinni að
óvenjumikið rót væri á kúabænd-
um og þessa dagana væra 8-10
mjólkurframleiðendur að hætta.
Hann spáði því að árið 2005 yrðu
aðeins um 100 mjólkurframleið-
endur á svæðinu, en þeir era nú
um 160. Meðalframleiðsla yrðiþá
að öllum líkindum um 195 þúsund
h'trar á bú, en hún var tæplega 123
þúsund lítrar á síðasta ári.
Kristján fékk
hvatningarverðlaun
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
veitir árlega svonefnd hvatningai--
verðlaun. Að þessu sinni hlaut þau
Kristján Gunnarsson mjólkureftir-
litsmaður fyrir mikinn dugnað og
metnað í starfi.
Bændasamtök Islands hafa á
undanfömum áram veitt verðlaun
fyrir besta nautið í hverjum ár-
gangi, en á síðasta ári var það
nautið Smellur-92028 frá Syðri-
Bægisá, en hann er fæddur 1992 og
var afkvæmadæmdur á síðasta ári
og var Smellur þá dæmdur besta
nautið í þeim árgangi.
NÝTT gistiheimili verður opnað í
göngugötunni á Akureyri innan
skamms, fyrir ofan Akureyrar
Apótek. Það hefur fengið nafnið
Gistiheimili Akureyrar og er í eigu
hjónanna Margrétar Thorarensen
og Erlings Ingvasonar. Gistiheim-
ilið er á þremur hæðum, með alls
19 herbergi og 30-40 gistirými og
verður fyrsta reyklausa gistiheim-
ili landsins, samkvæmt því sem
næst verður komist að sögn Erl-
ings.
Herbergin era á 2. og 3. hæð en
veitingaaðstaða á 4. hæðinni.
Framkvæmdir standa nú yfir af
fullum krafti og verður byrjað á að
taka 2. hæðina í notkun fljótlega og
3. hæðina í sumar. Herbergin era
eins og tveggja manna, öll með
vaski og sjónvarpi og nokkur
einnig með sturtu.
Margrét erfði hluta húsnæðisins
og í kjölfarið keyptu þau hjón hús-
næðið allt. Erling og Margrét era
bjai-tsýn á reksturinn og telja þenn-
an stað alveg kjörinn fyrir gisti-
heimili. „Gatan er friðsæl og héðan
er stutt í alla afþreyingu." Erling
sagði fúlla þörf fyrir nýtt gistiheim-
ili í bænum. Það hafi sýnt sig í
fyrrasumar að þrátt fyrir leiðinda-
sumar hafi verið skortur á gistirými
og fólk sé reyndar þegai- farið að
hringja í þau hjón og leita upplýs-
inga fyrir sumarið. Margrét sagði
að einnig hafi verið rætt um að á
Akureyri vantaði gistiheimili sem
gæti tekið á móti stærri hópum.
Húsið er við Hafnarstræti 104
og var byggt árið 1929 en efsta
hæðin var byggð á sjöunda ára-
tugnum. Fjölbreytt starfsemi hef-
ur verið í húsinu gegnum tíðina en
þar var m.a. ungbarnaeftirlitið
síðast til húsa. Endurbætur þess
eru nokkuð kostnaðarsamar að
sögn Erlings og ekki alltaf hægt
SÝNING á kirkjumunum stendur
nú yfir í Safnaðarheimili Akureyr-
arkirkju, en hún er á vegum Minja-
safnsins á Akureyri og Þjóðminja-
safns Islands.
Á sýningunni eru 34 gripir úr
eyfirskum kirkjum sem flestir hafa
verið fengnir að láni hjá sóknar-
nefndum. Þá eru teikningar Jóns
biskups Helgasonar af kirkjum í
Eyjafirði á sýningunni. Gripirnir
eru af ýmsum toga og misgamlir,
þeir era úr vel flestum þeim kirkj-
um sem nú standa og að auki úr
tveimur aflögðum kirkjum, á Myrká
og Miklagarði. Alabasturstafla frá
Möðruvöllum er elsti gripurinn á
sýningunni, frá því skömmu fyrir
1500 og er ein af sjö töflum sem
varðveittar hafa verið hér á landi.
Einnig er sýndur gluggi úr Bakka-
kirkju, sem talinn er vera frá 16. öld
en á hann er máluð og brennd mynd
úr píslarsögu Krists. Nokkrar altar-
istöflur eru á sýningunni og þá eru
þar verk kirkjulistamanna fyrr og
síðar.
Myndir Jóns Helgasonar biskups
eru teiknaðar á árunum 1921 og
1922 þegar Jón ferðaðist um og
vísiteraði kirkjurnar. Flestar eru
vatnslitamyndir og sýna kirkjurnar
og nánasta umhverfi þeirra.
Sýningin var sett upp í tilefni af
Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju
og þess að hátíðahöld vegna kristni-
tökuafmælisins eru hafin. Sýningin
er opin daglega frá kl. 14 til 18, en á
laugardag, 1. maí, er aðeins opið frá
kl. 14 til 16. Sýningunni lýkur á
sunnudag.
----------------
Skíðaganga
um Kröflu-
svæðið
ÁRLEG Súluganga Ferðafélags
Akureyrar verður farin næstkom-
andi laugardag, 1. maí. Þátttakend-
ur geta hvort heldur sem er farið
gangandi eða á skíðum. Lagt verður
af stað kl. 9.
Um helgina efnir Ferðafélagið til
helgarferðar, skíðagöngu um
Kröflusvæðið en gist verður í skála
á Þeistareykjum.
Upplýsingar um ferðirnar fást á
skrifstofu Ferðafélagsins við
Strandgötu en þar fer skráning
einnig fram. Skrifstofan er opin á
inorgun, föstudag, frá kl. 17.30 til
19.
að sjá fyrir alla hluti. Hins vegar
sé lofthæð nokkuð góð og nýtist
það vel fyrir ýmsar lagnir. Þau
hjón segja húsið gott og þau hafa
reynt að halda því í nokkuð svip-
uðu formi.