Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 25
ERLENT
Ihaldsmenn deila hart
um stefnubreytingu
London. Morgunblaðið.
JÁRNFRÚIN varð agndofa og
öskugrá þegar henni varð ljóst
hvert Peter Lilley og William
Hague, leiðtogi íhaldsflokksins,
voru að fara með nýlegum ummæl-
um sínum um einkaframtakið og
velferðarmálin sem túlkuð eru sem
fráhvarf íhaldsflokksins frá
Thatcherismanum. Michael
Ancram, formaður íhaldsflokksins,
vísaði því í gær á bug að flokkurinn
væri að yfirgefa Thatcherismann og
sagði að Hague myndi „skýra“ mál-
ið nánar í ræðu.
Blaðið The Times greindi í gær
frá því að sá starfsmaður flokksins
er með félagatal þess og markaðs-
mál hefði verið rekinn af Ancram
þar sem talið væri að hann hefði lek-
ið ræðu Lilleys til fjölmiðla áður en
hún var flutt. Starfsmaður þessi
telst til stuðningsmanna Michaels
Portillos, fyrrum vamarmálaráð-
herra, og mun hafa lekið uppkasti að
ræðunni sökum þess hve hneykslað-
ur hann var á innihaldi hennar.
En á sama tíma og Margaret
Thatcher grætur ummæli flokks-
bræðra sinna getur hún glaðst yfir
því að nú er á almannavitorði að for-
sætisráðherrann, Tony Blair, hefur
stöðugt samband við hana vegna
stríðsrekstursins í Júgóslavíu. Hún
er því ekki dauð úr öllum pólistísk-
um æðum ennþá þótt hennar eigin
flokkur, eða að minnsta kosti hluti
hans, vilji ganga af pólitík hennar
dauðri.
Sagan er sögð þannig í breskum
fjölmiðlum að Thatcher hafi vegna
anna við undirbúning eigin ræðu við
hátíðarkvöldverðinn í síðustu viku,
látið hjá líða að renna yfir handrit
að ræðu Lilleys sem henni hafði
verið sent. Það hafi því í raun ekki
verið fyrr en daginn eftir hátíðar-
kvöldverðinn, að henni varð Ijóst,
hvað Lilley raunverulega sagði og
William Hague hnykkti á í sinni
ræðu við hátíðarkvöldverðinn. Varð
hún þá að sögn aðstoðarmanna bæði
fól og fá.
En íhaldsmenn halda áfram að
rífast um Ihaldsflokkinn, einka-
framtakið og velferðarmálin. Mich-
ael Howard, sem fer með utanríkis-
mál í skuggaráðuneyti, hefur verið
harðorðastur þai' og hann neitaði í
útvarpssamtali að taka undir orð
Peters Lilleys. Howard sagði hins
vegar í fyrradag að það hefði verið
rétt ákvörðun að kjósa Hague for-
mann. Hann var sjálfur í framboði
gegn Hague og sagði ljóst að Hague
hefur gi-ipið til umfangsmeiri upp-
stokkunar á flokksstarfmu en hann
sjálfur hefði haft kjark til.
Af utanþingsmönnum hefur
Michael Portillo látið hvað mest til
sín taka. En Hague lætur sig
hvergi. Hann segir að fari þessar
umræður fyrir brjóstið á einhverj-
um verði svo að vera.
Nefskattur og einkavæðingar-
áform slá á gagnrýnina
Hugmyndir um að einkavæða
póstþjónustuna og neðanjarðar-
lestakerfið í London og afnema nef-
skatt BBC eru sagðar eiga að slá á
gagnrýnina og sýna að einkavæð-
ingin er síður en svo horfin af eld-
húsborði íhaldsflokksins. Þær hafa
þó lítið náð að lægja óánægjuöld-
urnar.
En það eru ekld bara sveitar-
stjómarkosningar í næsta mánuði,
sem William Hague berst nú fyrir
upp á líf í dauða. I júní verður kosið
til Evrópuþingsins og þau mái hafa
líka valdið óróa í íhaldsflokknum,
svo ekki sé meira sagt, en opinber
stefna flokksins er að halda fast í
pundið, meðan margir áhrifamenn í
flokknum eru harðir Evrópusinnar
og fylgjandi einni Evrópumjmt, m.a.
Michael Heseltine. Reyndar hafa
þingmenn yfirgefið flokkinn og
stofnað annan íhaldsflokk sem er
fylgjandi evrunni. Þeir hafa nú gefið
út bækling þar sem mönnum er
gert að gera upp í milli Williams
Hagues og Kenneths Clarkes en
fjármálaráðherrann fyrrverandi er
eindreginn fylgismaður evrunnar.
Segir The Independent on Sunday,
að á sjöttu milljón kjósenda muni fá
bæklinginn og þeir munu ekki kom-
ast hjá því að velta formannsstöðu
Williams Hagues vandlega fyrir sér.
Og til að bæta gráu ofan á svart
koma endurminningar Georges
Waldens, fyrrverandi ráðherra, út á
bók, þar sem hann er ekkert að fara
í launkofa með álit sitt á mönnum
og málefnum. Og hvað segir hann
um William Hague. „Þegar ég lít yf-
ir þau ár, sem við sátum saman á
þingi, get ég hreint ekki munað til
þess að hann hafi nokkurn tímann
sagt eða gert eitthvað áhugavert.
Þegar mér dettur William Hague í
hug, þá kemur mér ekkert í hug!“
AP
Mótmæli í Peking
ÞÚSUNDIR Kínverja efndu til mótmæla í Peking um siðustu helgi
og kröfðust þess að fá að stunda í friði ákveðna tegund hugleiðslu,
sem kallast „falun“. Lét lögreglan fólkið að mestu afskiptalaust en
varaði það þó við að ögra yfirvöldunum. Leiðtogi hugleiðslusafnaðar-
ins býr í Bandaríkjunum og segir hann, að safnaðarfólkið skipti
tugum milljóna í Kína.
ATiæqjQ
furir qIIq
Allir íbúar Reukjaneskjördæmis
Allir íbúar Reykjoneskjördæmis
eru boðnir velkomnir o fjölskyldu-
skemmtonir Sjólfstæðisflokksins.
Seltjarnarnes
Rmmtud. 29. opríl kl. 18:00.
Fjölskylduskemmtun ó Eidistorgi.
Gestgjofi: Hildur Jónsdóttir.
TöfromQÓurinn Bjorni, Brossbondið
og Nemendur úrTónlistorskólo
Seltjomomess. Árni M. Mothiesen
flytur óvorp.
Mosfellsbær
Mónudoginn 3. maí kl. 18:00.
Fjölskylduskemmtun í Kjorno.
Gestqjofi: Alfo Jóhonnesdóttir.
Töfromoðurinn Bjorni, Hljómsveitin
Leynifélogid, Dúettinn Tveir úr Hofnor-
firdi og stúlkur úr Mosfellsbæ syngjo.
Sigrídur Anno Þórdordóttir fiytur ovorp.
Kópavogur
Föstudoginn 30. apríl kl. 18:00.
Fjölskylduskemmtun ó Smórotorgi.
Gestgjofan Árni Rognor Árnoson og Helgo Gudrún Jónosdóttir.
Töfromodurinn Bjorni, Skólohljómsveit Kópovogs, leiktæki og ís fyrir krokko,
dúettinn Tveir úr Hofnorfirdi, Asgeir Póll og EyjóHúr Kristjónsson lodo from
hino hlidina ó frombjódendum. Gunnor I. Birgisson flytur óvorp.
Helgo G. Gunnor I.
i
Hildur Sigrídur
Alfo
Kosningoskrifstofo Seltjarnornesi: Austurströnd 3, s. 561 1220.
Kosningaskrrfstofa Mosfellsbæ, Kjalornesi og Kjós:
Urdorholt 4, Mosfellsbæ, s. 566 7755.
Kosningaskrifstofa Kópavogi:
Homroborg 1, s. 554 9545, fox 554 1166.
SJÁLFSTÆÐISMENN Á REYKJANESI Wá
wwwjtd-reykjanes.is